Gudrun Liedtke skrifaði:
Hallo,ich verstehe den Anfang nicht.Muss ich bei Gr.XXXL in der ersten Runde 50 + die 6 Maschen stricken und dann den Markierungsfaden oder insgesamt 50 Maschen. Sehr undeutlich beschrieben. Liebe Grüße
06.08.2024 - 14:26DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Liedtke, stricken Sie die ersten 50 M und gleichzeitig nehmen Sie 6 Maschen regelmäßig verteilt (dann sind es 56 M anstatt 50 vor dem 1. Markierungsfaden. Viel Spaß beim Stricken!
06.08.2024 - 15:50
Ruth Savard skrifaði:
Bonjour, J'aimerais ajouter le motif sur le devant du modèle :Design: Modèle n° li-083 sur les manches. Pouvez-vous me dire à partir de quel maille je peux commencer le motif car je voudrais e qu'il soit centré? Je tricote un chandail de grandeur large. Si j'ai bien lu les explications il y aurait 79 mailles pour la manche. Merci
06.02.2021 - 20:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Savard, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, pour toute assistance personnalisée, merci de bien vouloir vous adresser à votre magasin - même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!
08.02.2021 - 08:41
Sandra Stoffels skrifaði:
Ik wil deze trui graag breien in maat S. Ik heb de volgende wol nog liggen: LANG yarns. Merino 120. (Merino fine-superwash). Ik heb proeflapje: 21 st x 28 naalden= 10x 10 cm. Een bol is 50 gram met lengte van ca. 120m. Ik heb 10 bollen. Is dat genoeg voor patroon 181-20?
04.02.2019 - 07:57DROPS Design svaraði:
Dag Sandra
Voor maat S heb je voor DROPS Lima 10 bollen nodig voor dit patroon. Als de looplengte en de stekenverhouding overeenkomt zou je ook voor een ander garen ongeveer 10 bollen nodig hebben.
08.02.2019 - 17:28
Estelita skrifaði:
Can I have the English version please
13.06.2018 - 15:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Estelita, you can edit the language in all our patterns by clicking on the arrow below the pattern and select English either UK or US in the dropdown menu. Happy knitting!
13.06.2018 - 16:32
Carole skrifaði:
Beautiful, elegant design
30.06.2017 - 18:17
Kody Doisy skrifaði:
J'adore ce modèle j’espère avoir les explications en top down SVP . Merci
23.06.2017 - 14:19
Blue Hour#bluehoursweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Lima. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 15. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 15. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma í annarri hverri umferð þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 90-94-98-104-108-114 lykkjur á stutta hringprjóna 3,5 með Lima. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4. Prjónið nú eina umferð þar sem 4 prjónamerki eru sett í stykkið og aukið út þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar (= laskalína á vinstri öxl að aftan): prjónið 37-39-42-45-47-50 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-5-6 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir), yfir þessar lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 7-7-6-6-6-6 sinnum alls, setjið eitt prjónamerki hér, 37-39-42-45-47-50 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1-1-2-3-5-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, 1 lykkja slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 7-7-6-6-6-6 sinnum alls = 106-110-114-122-130-138 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (allir uppslættirnir eru prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndist gat). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið 6-7-9-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 13-13-11-11-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (prjónamerki er staðsett hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 22-25-27-30-33-36 sinnum (meðtaldar fyrstu útaukningar) = 282-310-330-362-394-426 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga á milli fram- og bakstykkis og erma (mynsturteikning A.1 heldur áfram eins og áður) þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti og niður við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 59-65-67-73-79-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 59-65-67-73-79-85 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 10-10-12-12-14-16 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið). Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með A.1 við miðju að framan og við miðju að aftan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12.-12.-14.-14.-14.-14. hverri umferð alls 7-7-6-6-6-6 sinnum = 212-228-244-264-288-312 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 31-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 59-65-67-73-79-85 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 10-10-12-12-14-16 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-75-79-85-93-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp í hvorri hlið (= mitt undir ermi/hliðar á peysu). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 9.-6.-6.-5.-4.-3. hverri umferð alls 11-14-15-17-21-24 sinnum = 47-47-49-51-51-53 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 44-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluehoursweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.