DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Tide

Prjónað sjal úr DROPS Fabel, prjónað á ská í garðaprjóni með göddum í annarri hliðinn. Prjónað eyrnaband í garðaprjóni og stroffprjóni úr DROPS Fabel.

DROPS 181-23
DROPS Design: Mynstur fa-385
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Í allt settið þarf ca 250-250-250 g litur 677, grænn/turkos


SJAL:
Mál:
Hæð mælt við miðju: ca 57 cm.
Lengd mælt efst ca: 170 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200 g litur 677, grænn/turkos

EYRNABAND:
Stærð: S - M – L
Höfuðmál: ca 54 - 56 - 58 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 677, grænn/turkos

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 39 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferðir með garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR VARÐANDI LIT OG KANT (á við um eyrnaband):
Eyrnabandið er prjónað með 1 þræði til skiptis utan með dokkunni og 1 þræði innan úr dokkunni til að þynna út rendurnar (deilið e.t.v. dokkunni í 2 dokkur).
Alltaf er skipt um enda á sömu hlið, til þess að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur þegar skipt er um enda er síðasta lykkjan prjónuð í þeirri hlið með báðum þráðum (= tvöfaldur þráður).

ÚTAUKNING (á við um eyrnaband):
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir gat (= prjónið í aftari lykkjubogann). Allar útauknar lykkjur eru nú prjónaðar í garðaprjóni.

ÚRTAKA (á við um eyrnaband):
Aukið út með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Allt sjalið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

SJAL:
Fitjið upp 5 lykkjur á hringprjón 4,5 með Fabel og prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan eftir mynsturteikningu frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir 3 lykkjur, setjið eitt prjónamerki á prjóninn eftir A.1 sem fylgir með stykkinu upp úr og prjónið A.2 yfir 2 lykkjur. ATH! Mikilvægt er að nota eitt prjónamerki í stykkið til að skilja mynstrin að. Aukið er út og lykkjum fækkað í mynstri A.1 og í mynstri A.2 eru lykkjur auknar út sem felldar eru af í síðustu umferð í mynsturteikningu. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er aukið út um 8 lykkjur í A.1 = 13 lykkjur í umferð.

Prjónið nú áfram þannig: Prjónið A.3 yfir 11 lykkjur, munið eftir að láta prjónamerkin fylgja með í stykkinu og prjónið A.2 yfir 2 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er aukið út um 8 lykkjur í A.3 = 21 lykkjur í umferð.

Aukið síðan út og fækkið lykkjum alveg eins og í A.3, en nú eru fleiri lykkjur á milli útaukninga og úrtöku. Þ.e.a.s. prjónið þannig: Prjónið 3 lykkjur eins og útskýrt er í byrjun á A.3, prjónið garðaprjón eins og áður fram þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki og prjónið síðustu 2 lykkjur eins og útskýrt er í lok A.3 og prjónið A.2 yfir lykkjur á eftir prjónamerki. Haldið áfram að prjóna svona, A.3 eykst með 8 lykkjum í hvert skipti sem mynsturteikning er prjónuð á hæðina. Nýjar lykkjur í miðju A.3 eru prjónaðar í garðaprjóni.

Haldið áfram með að prjóna svona þar til 213 lykkjur eru í umferð, endið á undan síðustu umferð í mynsturteikningu A.2 (í 25. gaddinum eða prjónið að óskuðu máli, en passið uppá að það sé nægilegt garn til fyrir affelingu). Til að fá teygjanlegan affellingarkant er fellt af þannig: * Fellið af 2 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn og fellið uppsláttinn laust af *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman við miðju að aftan í lokin.

EYRNABAND:
Fitjið upp 30-34-38 lykkjur á prjón 2,5 með Fabel. Prjónið frá réttu þannig:

UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu.
LESIÐ LEIÐBEININGAR VARÐANDI LITI OG KANT.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 lykkjur garðaprjón (með báðum þráðum), 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja garðaprjón og 1 lykkja garðaprjón (með báðum þráðum). Snúið stykkinu.

Endurtakið umferð 3-4 svona þar til stykkið mælist 7-8-9 cm, aukið nú um 1 lykkju í ystu eininguna með stroffi í hvorri hlið – SJÁ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í 10. hverri umferð alls 6 sinnum = 42-46-50 lykkjur. Nú eru 8 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið garðaprjón og stroff eins og áður þar til stykkið mælist 27-30-31 cm. Fækkið nú um 1 lykkju yst í einingu með stroffi í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 10. hverri umferð alls 6 sinnum = 30-34-38 lykkjur. Prjónið garðaprjón og stroff eins og áður þar til stykkið mælist 48-52-54 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Klippið frá, saumið affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn saman með smáu spori.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = slétt frá röngu
symbols = Á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt
symbols = lykkja sem felld er af með sléttu frá röngu
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (22)

country flag Heidi Solem wrote:

Er det riktig at pannebåndet skal strikkes med pinne 2,5 og sjalet med 4,5? Må vite det før jeg bestiller garn.

22.12.2020 - 10:12

DROPS Design answered:

Hej Heidi, det stemmer :)

22.12.2020 - 14:10

country flag درب ضد سرقت wrote:

زيبايي شناسي شخص رو بر انگيخته كند. درب ضد سرقت به دليل همخواني اجزاع ان نه تنها نقش حفاظتي دارد

01.12.2019 - 17:39

country flag Alie wrote:

Ik begrijp de volgord van het patroon niet. Is er geen video waar het patroon in uitgelegd word?

10.10.2019 - 15:24

DROPS Design answered:

Dag Alie,

Je kunt het patroon gewoon van boven naar beneden lezen. Je leest dus eerst de algemene instructies bij 'Informatie voor het patroon'. Daarna begin je met breien bij het betreffende onderdeel, dus bijvoorbeeld als je de omslagdoek wilt breien begin je door 5 steken op te zetten en dan volg je gewoon de beschrijving. Als je alleen de hoofdband wilt breien, begin je bij de hoofdband.

11.10.2019 - 19:09

country flag Nina Schumann wrote:

Hallo, verstehe ich es richtig, dass A.1 nur ein einziges Mal vorkommt? Danach immer nur A.3 (jeweils in Verbindung mit A.2) ?

15.09.2019 - 20:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schumann, ja genau A.1 wird nur einmal in der Höhe gestrickt, dann stricken Sie die ersten 11 Maschen wie im A.3 gezeigt (und A.2 dazu), und es wird dann wie im A.3 weitergestrickt. Viel Spaß beim stricken!

16.09.2019 - 11:24

country flag Anne wrote:

Bonjour, combien de pelote faut-il pour réaliser le châle? Merci d'avance.

25.08.2018 - 21:31

DROPS Design answered:

Bonjour Anne. Pour le châle , il vous faudra 200 g (4 pelotes) . Bon tricot!

26.08.2018 - 09:54

country flag Jeanne wrote:

Bonjour,Faut il lire les diagrammes de haut en bas puis de gauche à droite à chaque rang ou de gauche à droite sur les rangs endroits et de droite à gauche sur les rangs envers ?De plus, j'ai l'impression qu'il y a une erreur sur le diagramme A2. N'y a t'il pas une maille en trop sur la ligne 15 (en partant du bas), car il 'y a pas d'augmentation à la ligne 14, nous devrions donc avoir le même nombres de mailles.Merci pour votre aide !

22.05.2018 - 10:42

DROPS Design answered:

Bonjour Jeanne, les diagrammes se lisent en commençant en bas à droite sur l'endroit et de droite à gauche sur l'endroit, et de gauche à droite sur l'envers. À l'avant-dernier rang de A.2 on a bien 9 m end, 1 jeté, 1 m end. Bon tricot!

22.05.2018 - 11:34

Mulheres De Goiania wrote:

Olha, estou aqui novamente. Gosto muito para comentar seu website pois aprecio do método que você usa para relacionar-se com com o visitante.

01.03.2018 - 01:41

Acompanhante Sp wrote:

Concordo com sua desfecho. As vezes é difícil para quem está no início, mas zero que a experiência não ajuda.

21.02.2018 - 12:32

Garotas De Programa Goiania wrote:

Nosso país tem bastante plumitivo bom e também você é um deles. Agradeço a web por me conceder a possibilidade de saber seu sítio da Internet e ser capaz retornar.

17.02.2018 - 15:43

country flag Bach wrote:

Der mangler tegn i mønster beskrivelsen. Der er kun blanke feldter.

07.02.2018 - 21:46