DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

After the Rain

Prjónuð peysa með laskalínu, klauf í hliðum og köðlum á ermum, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 181-19
DROPS Design: Mynstur as-077
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-175-200-200-225-250 g litur 13, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5016.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermum þannig:
Prjónið fram þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið og gerið eins við þau prjónamerki sem eftir eru í umferð (= 8 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 15 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 3. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju. Aukið út með því að slá uppá prjóninn og prjóna uppsláttinn snúinn í næstu umferð.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Á eftir affellingu fyrir klauf í hliðum er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 78-84-84-90-90-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 3 cm er skipt yfir á hringprjón 5. Prjónið næstu umferð þannig:
Prjónið 15-17-17-18-18-20 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-5-6-8-10-10 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir), prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 9 sinnum, prjónið 30-33-33-36-36-39 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 10-11-13-16-20-21 lykkjur jafnt yfir, prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* alls 9 sinnum, prjónið 15-16-16-18-18-19 lykkjur slétt JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-7-8-10-11 lykkjur jafnt yfir = 116-124-128-140-148-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið og prjónið MYNSTUR og aukið út um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig:
Prjónið 19-21-22-25-27-29 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (setjið eitt prjónamerki á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (setjið eitt prjónamerki á milli þessa 2 lykkja), sláið uppá prjóninn, prjónið 38-42-44-50-54-58 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (setjið eitt prjónamerki á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (setjið eitt prjónamerki á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 19-21-22-25-27-29 lykkjur slétt.
Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri). Haldið síðan áfram með mynstur alveg eins og aukið út fyrir LASALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 20-21-22-24-26-28 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning) = 276-292-304-332-356-380 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 22-23-24-26-28-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og niður. Ef málin passa ekki er haldið áfram með sléttprjóni og mynstri án þess að auka út fleiri lykkjur.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 40-43-45-50-54-58 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-60-62-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 80-86-90-100-108-116 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 58-60-62-66-70-74 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 40-43-45-50-54-58 lykkjur (= hálft bakstykki).
Setjið eitt prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 172-184-196-216-236-256 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 16-17-18-18-18-19 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 38-41-44-49-54-59 lykkjur, prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir næstu 10 lykkjur, prjónið sléttprjón yfir næstu 76-82-88-98-108-118 lykkjur, prjónið 10 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttprjón yfir þær 38-41-44-49-54-59 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram hringinn þar til prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir 10 lykkjur í hvorri hlið. Nú skiptist stykkið upp í framstykki og bakstykki þannig:
Prjónið fram að fyrstu 10 lykkjum í garðaprjóni, prjónið 4 lykkjur garðaprjón, fellið af næstu 2 lykkjur (= klauf), prjónið 4 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttprjón fram að lykkjum í garðaprjóni, prjónið 4 lykkjur garðaprjón, fellið af 2 lykkjur, prjónið 4 lykkjur garðaprjón, prjónið sléttprjón út umferðina. Klippið frá og setjið lykkjur fyrir bakstykki á þráð.

FRAMSTYKKI:
= 84-90-96-106-116-126 lykkjur. Prjónið nú fram og til baka bakstykkið þannig: Prjónið sléttprjón með 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 4 cm frá lykkjum sem felldar voru af fyrir klauf í hvorri hlið – stillið af að næsta umferð sem prjónuð er sé frá réttu, aukið út um 11-11-11-7-9-11 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið) = 95-101-107-113-125-137 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Í næstu umferð frá réttu er prjónað stroff þannig: 4 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 4 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm (klaufin mælist ca 12 cm). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

BAKSTYKKI:
= 84-90-96-106-116-126 lykkjur. Prjónið alveg eins og framstykki.

ERMI:
Setjið til baka 58-60-62-66-70-74 lykkjur frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón/sokkaprjón 5 og takið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-66-70-74-80-86 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið síðan áfram í sléttprjóni og mynstur A.1/A.2 eins og áður yfir miðju 16 lykkjur á ermi.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Lykkjum er fækkað mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M og L:
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 4-2-1 sinnum, síðan í 11.- 8.- 6. hverri umferð 7-9-12 sinnum (= alls 11-11-13 umferðir með úrtöku).

STÆRÐ XL, XXL og XXL:
Fækkið lykkjum í 4.- 3.- 2. hverri umferð 15-17-19 sinnum.

Eftir allar úrtökur eru 42-44-44-44-46-48 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram þar til ermin mælist 38-35-33-29-26-23 cm. Prjónið nú 1 umferð þar sem auknar eru út 5-9-9-9-7-11 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir 16 lykkjur í mynsturteikningu A.1/A.2) = 47-53-53-53-53-59 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið sléttar lykkjur fram að A.1/A.2, prjónið A.3 yfir næstu 16 lykkjur (A.3 eiga að passa yfir A.1/A.2), prjónið 2 lykkjur slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Ermin mælist 43-40-38-34-31-28 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.06.2021
Nýtt efnismagn: DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C) 150-175-200-200-225-250 g litur 13, gallabuxnablár

Mynstur

symbols = slétt frá réttu
symbols = brugðið frá réttu
symbols = Setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framann við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

After the Rain

Pam, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Rodica wrote:

Bonjour, je viens de finir le pull mais l'encolure est trop serré, ma tète ne rentre pas est je crois que au niveau des cotes c'est le mémé soucis - trop serré. En cm les dimensions sont celles du patron. Je pense que c'est la soie du fil qui fait çela. J'ai défait le col, il est assez large avant de rabattre les mailles. J'ai rabattu la mailles avec aiguilles 6, toujours trop petit. Auriez-vous un conseil pour ne pas défaire tout le pull ? Merci

14.09.2023 - 12:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rodica, vous pouvez essayer de rabattre avec le fil en double (cf cette vidéo, ou bien en utilisant une des techniques de cette vidéo. Bon tricot!

14.09.2023 - 17:15

country flag Anita Le Goff wrote:

Bonjour Pour les manches des modèles TOP DOWN, vous conseillez souvent d'utiliser la " petite" aiguille circulaire. Quelle est la longueur et où en trouver ? Merci

13.01.2020 - 18:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Goff, la petite aiguille circulaire est indiquée sous les fournitures, elle fait 40 cm et vous les retrouvez ici. Bon tricot!

14.01.2020 - 07:23

country flag Sabine wrote:

Dieser Pullover wird einfädig gestrickt und benötigt angeblich 200 gr dieser Wolle. An anderer Stelle werden Modelle mit derselben Wolle in Vollpatent oder zweifädig vorgestellt mit einem viel geringeren Wollverbrauch. Meine Frage: Wieviel Gramm benötige ich für diesen Pullover: einfädig in Gr. S?? 140gr.?

15.12.2019 - 15:12

country flag Anna wrote:

Hallo, in de tekst staat: Ga verder in patroon op dezelfde manier en meerder voor de RAGLAN - zie uitleg hierboven, in iedere overgang tussen het lijf en de mouwen. Meerder zo iedere andere naald 20-21-22-24-26-28 keer in totaal (inclusief de eerste meerdering) = 276-292-304-332-356-380 steken. Betekend iedere andere naald, de ene naald meerderen en de volgende niet en zo om en om? Ik heb elke naald gemeerderd en kom ook op 12 cm uit?

17.11.2019 - 08:27

DROPS Design answered:

Dag Anna,

Met iedere andere naald wordt inderdaad om de naald bedoeld, dus de ene naald wel en en de andere naald niet. Als je alle meerderingen voor de raglan gemaakt hebt, kom je op ongeveer 22-23-24-26-28-29 cm uit.

23.11.2019 - 15:27

country flag Viktoria wrote:

Hej! Det står att detta garn kan ersättas med A + A istället, vad betyder det? Att man ska använda 2st garner från A-gruppen för att ersätta en från C? Jag vill t.ex istället sticka med Drops Kid-silk med mohair. Det är grupp A.

17.10.2018 - 13:51

DROPS Design answered:

Hei Viktoria. Ja, det som er viktig ved bytte av garn er at den opprinnelige strikkefastheten blir overholdt. Om du strikker med 2 tråder fra garngruppe A vil dette tilsvare strikkefastheten til garn i garngruppe C - så det er det A + A betyr. Lag likevel en prøvelapp for å forsikre deg om at strikkefastheten blir den samme. God fornøyelse.

18.10.2018 - 11:57

country flag Marja wrote:

Bedankt voor het snelle antwoord. Begrijp ik het goed dat de totale lengte vanaf onder de arm tot aan de onderkant trui dan 25 cm is? Als ik naar de foto kijkt lijkt dat veel langer. Maakt verder niet uit want ik brei hem gewoon langer. Dacht dat het verkeerd beschreven stond

23.09.2018 - 21:52

DROPS Design answered:

Dag Marja, Ik kom op ongeveer 30 cm; eerst 17 cm vanaf onder de arm, dan 2 ribbels en dan nog 12 cm.

23.09.2018 - 22:03

country flag Marja wrote:

Vanaf de markeer draad 17 cm breien en dan afkanten voor het split. Het lijf is dan wel erg kort. Klopt dit? Of lees ik iets verkeerd

23.09.2018 - 18:19

DROPS Design answered:

Dag Marja, Je breit 17 cm vanaf waar het werk gescheiden is tussen lijf en mouwen. Dan haak je een aantal ribbels in de zijnaden en dan nog 12 cm split, waardoor de totale lengte zou moeten kloppen.

23.09.2018 - 20:55

country flag Irene wrote:

Ik heb voor maat M veel minder nodig gehad; 140 gr ipv 200.

06.04.2018 - 09:16

country flag Caroline Richter wrote:

Could you perhaps convert the comments section to English, that might be helpful for those of us who are considering making this beautiful sweater. Thank you.

11.03.2018 - 16:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Richter, you can use any online translator to translate all comments, questions & answers, or ask your own question here. Happy knitting!

12.03.2018 - 09:59

country flag Adrianna wrote:

Jakim wymiarom odpowiada sweter o rozmiarze XXXL? Ewentualnie ile potrzeba tej włóczki na sweter o wymiarach szer.70cm, wys.70 cm :)

27.11.2017 - 12:56

DROPS Design answered:

Witam, sweter o wymiarach: szerokość 70cm, wys.70 to rozmiar XXL. Potrzeba na niego 250 g włóczki DROPS BRUSHED ALPACA SILK (tj. 5 motków). Wymiary dla swetra XXXL znajdzie Pani na dole wzoru, tam znajduje się schematyczny rysunek z miarami w centymetrach (patrz ostatnie miary). Pozdrawiamy

27.11.2017 - 18:34