Marianne Denain skrifaði:
Où trouver le modèle drops 181-31
29.03.2025 - 09:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Denain, retrouves les explications de ce modèle en français ici. Bon crochet!
31.03.2025 - 08:20
Alison skrifaði:
I really love this pattern, but I cannot read a chart. I've had a look at it, and tried to watch some of the videos, but it just doesn't work for me in this format. Do you provide a written pattern, or do you know if someone has produced one?
23.02.2025 - 00:40DROPS Design svaraði:
Dear Alison, we don't make custom patterns. Hereis a general lesson about reading our crochet charts. You can ask us questions regarding specific sections of the chart and we will try to explain them to you. You can also ask for guidance at your usual DROPS store. Happy crochetting!
24.02.2025 - 00:56
Estelle skrifaði:
Bonjour, je suis en train de crocheter ce pull en taille XXL au début des épaules et je ne comprends pas ce que signifie" crocheter 3 doubles brides autour de chacun des 2 premiers rangs de A4". Merci par avance pour votre retour. Cordialement. Estelle
21.10.2024 - 09:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Estelle, quand le carré est fini, vous avez crocheté d'abord 2 tours supplémentaires (avec A.3) puis, vous avez crocheté les côtés du carré séparément pour augmenter la largeur (A.4); lorsque vous crochetez les épaules, vous devez crocheter autour des premiers rangs crochetés en suivant A.4, autrement dit sur toute la largeur du haut du carré, y compris les rangs rajoutés sur les côtés. Bon crochet!
21.10.2024 - 15:31
Laurie Jackson skrifaði:
I am on A1b, the second round, there are 2 slip stitches, 1 ch, then a gab over 2 dc stitches; what do I do over those stitches? Or am I suppose to slip stitch over to the 3rd dc. Thanks for your help. Laurie
06.05.2022 - 23:39DROPS Design svaraði:
Dear Laurie, the "gap" means you skip the next 2 sts and crochet 1 dc in the next dc (US-English). Happy crocheting!
09.05.2022 - 08:20
Judith Evans skrifaði:
Hi again Thank you for your really prompt and helpful answer. I realised as soon as I pressed Send that I'd said 3trb instead of the 4 triple/ double treble cluster thingies. I also thought it might be 5 chains but thought I'd check. So, thank you again for your help :) Kind regards Judith
05.02.2022 - 19:32
Judith Evans skrifaði:
Hi In round3 how many chains are worked in between each of the 3 trbs together? The diagram just shows a curved black line, which I assume denotes chain(s), but how many? Thank you.
05.02.2022 - 14:46DROPS Design svaraði:
Dear Judith, there are no 3 trb worked together, there are only clusters of 4 triple/ double treble crochets worked together. As you can see in the symbols above the diagrams, a curve = 5 chain stitches. You can check all the symbols and their meaning in the small section above the diagrams. Happy crocheting!
05.02.2022 - 19:27
Agnes skrifaði:
Hej! Jag ska precis börja med a.2.b. Det står i virkinfo att jag ska börja med 4lm. Ska jag göra de 4 luftmaskorna + de tre mm som är i början på diagrammet? Eller ersätter de 4 den första stolpen i stolpgruppen? Mvh Agnes
17.10.2020 - 19:26DROPS Design svaraði:
Hei Agnes. Det er bare på begynnelsen av hver rad/omgang med dobbeltstaver som erstattes med 4 luftmasker (altså A.2a, ikke A.2b), les evnt HEKLEINFO i oppskriften. God Fornøyelse!
26.10.2020 - 07:02
Hekla skrifaði:
Men va fult ! Detta mönster är ju inte erat egna, utan taget / snott från orginaldesingnern för Finska Omakoppa.
25.04.2020 - 13:42
Lorena Alvarez skrifaði:
Tienes envíos a Mexico.? Es Excelente tú página!! Saludos
08.12.2019 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hola Lorena. Bajo este link puedes encontrar las tiendas que tienen envíos a todo el mundo: https://www.garnstudio.com/findastore.php?s=w&cid=23
10.12.2019 - 00:13
Graciela Larroque skrifaði:
El modelo y el patrón se ven muy bien.181-31
22.08.2019 - 01:37
Magic Square#magicsquaresweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa með ferningi og gatamynstri úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.
DROPS 181-31 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með tvíbrugðnum stuðlum er fyrsta tvíbrugðna stuðlinum skipt út fyrir 4 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju. ATH: Fyrsta umferð í A.2A byrjar með 4 loftlykkjum. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í næstu lykkju og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hverja og eina af næstu 3 lykkjum, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin í hvern og einn af þessum tvíbrugðnu stuðlum, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður einn ferningur eins í öllum stærðum. Síðan er heklað áfram hringinn og svo fram og til baka yfir þennan ferning. HEKLAÐUR FERNINGUR: Byrjið með heklunál 6 og Nepal. Heklið A.1a. Heklið síðan hringinn þannig: Heklið A.1b, A.1c alls 3 sinnum á breidd og A.1d. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 er lokið eru 40 fastalykkjur meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Ferningurinn mælist nú ca 38 x 38 cm. Heklið 1 keðjulykkju í hvora af fyrstu 2 fastalykkjum, næsta umferð byrjar héðan. Haldið síðan áfram hringinn þannig: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.2a yfir fyrstu 2 fastalykkjur, næsta umferð byrjar héðan. Haldið síðan áfram hringinn þannig: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið A.2a yfir fyrstu 10 fastalykkjur, A.2b yfir fyrsta hornbogann, heklið * A.2a yfir næstu 40 fastalykkjur (= 4 mynstureiningar), A.2b yfir næsta hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.2a yfir þær 30 fastalykkjur sem eftir eru (= 3 mynstureiningar). Þegar A.2 er lokið eru 72 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Haldið síðan áfram hringinn þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 26 tvíbrugðnu stuðlana (= 13 mynstureiningar), A.3b yfir fyrsta hornboga, heklið * A.3a yfir næstu 72 tvíbrugðnu stuðla (= 36 mynstureiningar), A.3b yfir næsta hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.3a yfir 46 tvíbrugðnu stuðlana sem eftir eru (= 23 mynstureiningar). Þegar A.3 er lokið eru 80 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Ferningurinn mælist ca 66 x 66 cm. Nú er stærð S/M lokið – klippið frá og festið enda í þessari stærð. Stærð L/XL, XXL og XXXL heldur áfram hér: STÆRÐ L/XL: Heklið nú fram og til baka út að hvorri hlið á peysu án útaukninga. Byrjið við kross í einu horninu (klippa verður frá endann áður en heklað er áfram) – sjá mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.4d um hornboga, heklið A.4b yfir næstu 80 tvíbrugðnu stuðlana (= 40 mynstureiningar) og A.4a yfir næsta hornboga. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 85 tvíbrugðnir stuðlar í síðustu umferð. Klippið frá og festið enda. Endurtakið í gagnstæðri hlið á stykki – sjá kross í mynsturteikningu. STÆRÐ XXL - XXXL: Endurtakið 2 síðustu umferðirnar þannig: Heklið A.3a fram að fyrsta hornboga, heklið A.3b yfir hornboga, heklið * A.3a fram að næsta hornboga, heklið A.3b yfir hornboga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, heklið A.3a umferðina út = 88 tvíbrugðnir stuðlar meðfram hvorri hlið og 4 hornbogar. Klippið frá. Heklið nú fram og til baka út að hvorri hlið á peysu án útaukninga. Byrjið við kross í einu horninu – sjá mynsturteikningu og heklið þannig: Heklið A.4d um hornboga, heklið A.4b yfir næstu 88 tvíbrugðnu stuðla (= 44 mynstureiningar) og A.4a yfir næsta hornboga. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka á hæðina eru 93 tvíbrugðnir stuðlar í síðustu umferð. Nú er stærð XXL lokið, en í stærð XXXL eru heklaðar 2 umferðir þannig: Heklið A.4b þar til 1 tvíbrugðinn stuðull er eftir, heklið A.4c yfir síðasta tvíbrugðna stuðulinn. Klippið frá og festið enda á eftir síðustu umferð í báðum stærðum. Endurtakið á gagnstæðri hlið á stykki – sjá kross í mynsturteikningu. ALLAR STÆRÐIR – ÖXL: Heklið nú einungis fram og til baka meðfram annarri hliðinni – að hálsi. Hinar þrjár hliðarnar eru nú loknar. Heklið eftir mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S/M: Heklið nú öxl þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 30 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 34 tvíbrugðnir stuðlar, snúið. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 31 tvíbrugðnu stuðlum = 32 tvíbrugðnir stuðlar, snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 14 tvíbrugðnu stuðlana frá heklaða ferningnum (= hálsmál) og byrjið á að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 1 (= frá röngu): Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Byrjið á annarri hliðinni frá röngu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum frá ferning, 3 tvíbrugðnir stuðlar um næsta hornboga frá ferning, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 síðustu umferðum frá A.4 = 98 tvíbrugðnir stuðlar, snúið. Heklið nú öxl þannig: UMFERÐ 2 (= frá réttu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 39 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sá útskýringu að ofan = 40 tvíbrugðnir stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 37 tvíbrugðnu stuðlum = 38 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið. UMFERÐ 4: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 14 tvíbrugðnu stuðlum frá 1. umferð (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. STÆRÐ XXL - XXXL: Heklið nú öxl þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Byrjið á annarri hliðinni frá réttu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá heklaða ferningnum, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af fyrstu 33-33 tvíbrugðnu stuðlum frá ferning, heklið 3 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – sjá útskýringu að ofan = 43-49 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman, heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af næstu 40-46 tvíbrugðnu stuðlum = 41-47 tvíbrugðnir stuðlar. Snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 16-16 tvíbrugðnu stuðlana frá heklaða ferningnum (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. BAKSTYKKI: Heklið alveg eins og framstykki fram þar til byrjar er á ALLAR STÆRÐIR – ÖXL. Heklið nú fram og til baka meðfram allri hliðinni upp að hálsi og síðan eru axlirnar heklaðar. Heklið eftir mismunandi stærðum þannig: STÆRÐ S/M: = 80 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram hlið. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga, 1 tvíbrugðinn stuðull í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga = 86 tvíbrugðnir stuðlar, snúið. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið. UMFERÐ 3 (= öxl): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 31 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 32 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 18 tvíbrugðnu stuðlana (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. STÆRÐ L/XL: = 80 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram þessari hlið á heklaða ferningnum og 2 umferðir frá A.4 í hvorri hlið á ferningi. UMFERÐ 1 (= ranga): Byrjið á annarri hlið frá röngu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferningi, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 80 tvíbrugðnu stuðlum frá ferningi, 3 tvíbrugðnir stuðlar um næsta hornboga frá ferningi, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hvora af 2 síðustu umferðum frá A.4 = 98 tvíbrugðnir stuðlar, snúið. UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið. UMFERÐ 3: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 37 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 38 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 18 tvíbrugðnu stuðlana (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. STÆRÐ XXL - XXXL: = 88-88 tvíbrugðnir stuðlar og 2 hornbogar meðfram annarri hlið á heklaða ferningnum og 2-4 umferðir frá A.4 í hvorri hlið á ferning. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið í annarri hlið frá réttu og heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 fyrstu umferðum frá A.4, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferningi, 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af 88-88 tvíbrugðnu stuðlum frá ferningi, heklið 3 tvíbrugðna stuðla um hornboga frá ferning og 3 tvíbrugðna stuðla um hverja af 2-4 næstu umferðum frá A.4 = 106-118 tvíbrugðna stuðla. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern tvíbrugðinn stuðul. Snúið. UMFERÐ 3 (= öxl): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul í hvern af fyrstu 40-46 tvíbrugðnu stuðlum, heklið 3 tvíbrugðna stuðla saman = 41-47 tvíbrugðnir stuðlar. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. hoppið yfir miðju 20-20 tvíbrugðnu stuðlum (= hálsmál) og byrjið með að hekla 3 tvíbrugðna stuðla saman. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Mælið ca 20-22-24-25 cm niður frá öxlum og saumið hliðarsaum – skiljið eftir ca 20 cm neðst niðri fyrir klauf. ERMI: Ermin er hekluð í hring með byrjun frá miðju undir handveg. Heklið 52-58-62-64 tvíbrugðna stuðla jafnt yfir í kringum handveg. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Heklið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.4b og fækkið lykkjum í umferð með tvíbrugðnu stuðlum þannig: Fækkið lykkjum með því að hekla 2 TVÍBRUGÐNIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN strax á eftir prjónamerki – sjá útskýringu að ofan og heklið 2 tvíbrugðna stuðla saman strax á eftir prjónamerki (= 2 tvíbrugðnir stuðlar færri í umferð). Endurtakið úrtöku í hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum alls 7-6-5-3 sinnum = 38-46-52-58 tvíbrugðnir stuðlar. Haldið áfram með mynstur þar til ermin mælist ca 27-23-23-20 cm – endið eftir eina umferð með tvíbrugðnum stuðlum. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. HÁLSMÁL: Heklið kant meðfram opi í hálsi. Byrjið frá öxl og heklið þannig: * 1 fastalykkja um ystu lykkjuna, 4 loftlykkjur, hoppið ca 1½ cm áfram *, endurtakið frá *-* meðfram öllu hálsmálinu og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #magicsquaresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 181-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.