Kari skrifaði:
Hvordan strikker man tommelen på vottene? Jeg er vant med å strikke selbuvotter, men der er det like mange masker foran og bak. Her skulle man bare legge opp 1 ekstra maske når man har satt av tommelkilen. Det blir ikke fint, og det må være noe jeg gjør feil. Kan dere være så snill å lage video på hvordan dere strikker tommel, hele tommelen!
05.11.2022 - 17:25DROPS Design svaraði:
Hei Kari. Ta en titt på videoen som allerede er lagt til denne oppskriften. Om du ser på tiden 00:55-00:59 ser du første økningen. Øk på hver side av de økte maskene på hver 2.omgang totalt 5-6 ganger = 54-60 masker. Om du igjen ser på videoen på tiden 03:14, ser du hvordan maskene har blitt satt på1 tråd og at det strikkes opp nye masker bak tommelen. I DROPS 180-19 skal det bare strikkes opp 1 maske. mvh DROPS Design
07.11.2022 - 11:20
Jette skrifaði:
De 3 første og 3 sidste masker på pandebåndet hvordan strikkes de på vrang pinden ???
25.08.2022 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hei Jette. Strikk de 2 første og 2 siste maskene rett, både fra retten og fra vrangen. Les evnt forklaringen under RETSTRIK (strikkes frem og tilbage – gælder pandebånd) øverst i oppskriften. Når det gjelder 3. maske og 3. siste maske strikkes disse vrang fra retten og rett fra vrangen. mvh DROPS Design
29.08.2022 - 09:37
Maiken skrifaði:
Hei. Hvordan skal vrangen strikkes på pannebåndet på de 3 første og siste maskene?
27.06.2022 - 18:33DROPS Design svaraði:
Hej Maiken, De 2 rillemasker i hver side strikkes ret både fra retsiden og fra vrangen, 1 maske vrang (fra retsiden) strikkes ret fra vrangen :)
29.06.2022 - 10:06
Paulina skrifaði:
W przypadku opaski brak informacji, jak przerabiać 3 pierwsze oraz 3 ostatnie oczka na stronie lewej. Domyślam się, że tak samo, ale nie jest to wyjaśnione.
13.04.2021 - 19:02DROPS Design svaraði:
Witaj Paulino, 2 pierwsze i 2 ostatnie oczka w rzędzie są zawsze przerabiane na prawo (ścieg francuski). 3-cie oczko od brzegów jest przerabiane na lewo na prawej stronie robótki, a na prawo na lewej stronie robótki. Pozdrawiamy!
14.04.2021 - 12:54
Ann-Helen skrifaði:
Prøver meg på pannebånd og har strikket 1 diagram ferdig. Er det feil i oppskrifta eller skal man legge opp kun 26 masker. Synes det høres veldig lite ut. Det rekker ikke rundt håndledd engang når man får sydd endene sammen.
11.02.2021 - 21:32DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Helen, du strikker pandebåndet over de 26 masker og fortsætter frem og tilbage til det når rundt om hovedet :)
16.02.2021 - 15:04
Margaret skrifaði:
When doing the thumb increases for the smaller size of left mitten I found that doing them n each side of the 22nd stitch didn't match the right mitten or the photograph. Should the pattern perhaps read 'on each side of the 20th/22nd stitch' ? Thank you for all the lovely patterns.
17.10.2020 - 16:02
Kathy Pratt skrifaði:
Where did the diagram charts go? I was using this pattern yesterday and now I can't find the charts.
12.02.2020 - 01:29DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Pratt, they are back, it's now working normally again, please try again. Happy knitting!
12.02.2020 - 08:14
Laura Hämäläinen skrifaði:
Kaavioita ei näy. Lapasten koitan tehä mutta kuva kaaviota en löydä.
09.09.2018 - 17:58DROPS Design svaraði:
Nyt piirrokset aukeavat.
11.09.2018 - 14:19
BERENGUER skrifaði:
Vos explications sont géniales... et astucieuses. Un vrai guide pour toute tricoteuse ! Merci à vous pour ce travail. Cordialement - Lucie
23.08.2017 - 09:49
OLIVON skrifaði:
Kit premier frimas à tricoter impérativement.
01.07.2017 - 16:39
Goldenrod#goldenrodset |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónuðu eyrnabandi, hálsskjóli og vettlingum með blaðamynstri. Stærð S - XXXL. Settið er prjónað úr DROPS Lima.
DROPS 180-19 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um eyrnaband): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um hálsskjól): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Eyrnaband: Sjá mynsturteikningu A.1. Hálsskjól: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1, A.3 og A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið er út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið lykkjum þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 26 lykkjur á prjóna 4 með Lima. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan frá réttu – þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja brugðið, A.1 (= 20 lykkjur), 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 48-50 cm, prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið af. Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 132-154 lykkjur á hringprjón 4 með Lima. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið síðan þannig: * A.1 (= 20 lykkjur), 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (= 6-7 mynstureiningar af A.1 á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-20 cm. Prjónið A.2 yfir A.1, 2 lykkjur brugðið halda áfram eins og áður = 144-168 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 46-50 lykkjur á sokkaprjón 3 með Lima og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 24-28 lykkjur, prjónið A.3 (= 20 lykkjur), 2 lykkjur slétt. Prjónið svona þar til stroffið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 24-28 lykkjur sléttprjón og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, A.1 (= 20 lykkjur) og 2 lykkjur sléttprjón = 44-48 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við fyrstu lykkju í umferð fyrir þumal – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út hvoru megin við útauknu lykkjurnar í annarri hverri umferð alls 5-6 sinnum = 54-60 lykkjur. Setjið nú 11-13 þumallykkjur á þráð. Haldið áfram hringinn eins og áður JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný lykkja aftan við þumal í næstu umferð = 44-48 lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist ca 23-25 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú eru eftir ca 4 cm til loka), prjónið A.4 yfir A.1 = 42-46 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir lykkjur í A.4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og 1 prjónamerki eftir 21-23 lykkjur. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 3 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 14-18 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 27-29 cm. ÞUMALL: Setjið til baka 11-13 þumallykkjur af þræði á sokkaprjón 3,5. Prjónið að auki upp 4 lykkjur aftan við þumal = 15-17 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist 4½-5 cm (mátið e.t.v. vettlinginn, nú er eftir ca ½ cm til loka). Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman í næstu 2 umferðum = 4-5 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið eins og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal hvoru megin við 22. og 24. lykkju í umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenrodset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 180-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.