DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Delight yarn
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS AW2425

Spring Forest

Peysa með öldumynstri og laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr 2 þráðum DROPS Delight. Stærð S - XXXL

Velja stærð:
DROPS 178-27

#springforestsweater

DROPS Design: Mynstur de-166
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 g litur 08, grænn/beige
250-300-300-350-400-400 g litur 11, fjólublár/grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 lykkjur og 20 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 2 þráðum Delight og 20 lykkjur og 24 umferðir með öldumynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 2 þráðum Delight.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4,5 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð með 2 þráðum Delight.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

BYRJAÐ Á NÝRRI DOKKU:
Til að litaskiptingin með Delight verði fallegar þegar skipta á um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á sama lit og fyrri dokka sem er að ljúka.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman.
Til að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 17,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 17. og 18. hver lykkja saman.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. ATH: Í stærð S, M XXL er lykkjum fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eins og skýrt er frá í uppskrift.
Fækkið lykkjum eftir A.9 þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan A.9 þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.9 og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 270-297-324-351-378-405 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir).
Prjónið A.1 (= 27 lykkjur) 10-11-12-13-14-15 sinnum á breidd. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 230-253-276-299-322-345 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 (= 23 lykkjur) yfir mynstureiningu A.1. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka 3-3-3-3-3-4 sinnum á hæðina – LESIÐ BYRJAÐ Á NÝRRI DOKKU! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.3 (= 23 lykkjur) 1 sinni á hæðina. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 210-231-252-273-294-315 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 (= 21 lykkjur) 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum. Prjónið A.5 (= 21 lykkjur) 1 sinni á hæðina. Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 190-209-228-247-266-285 lykkjur í umferð. Prjónið A.6 (= 19 lykkjur) 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum. Prjónið síðan A.7 (= 19 lykkjur). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 150-165-180-195-210-225 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-11-14-13-8-5 lykkjur jafnt yfir = 140-154-166-182-202-220 lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 32-35-38-42-47-52 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju sem var prjónuð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 64-71-77-85-95-104 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu lykkju sem var prjónuð), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 32-36-39-43-48-52 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna sem var prjónuð. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMAR:
Fitjið upp 32-34-36-40-42-46 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.8. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 10-12-7-5-5-10 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7.-5.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 10-12-14-14-14-14 sinnum = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-44-44-42-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 46-52-58-62-64-68 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 220-246-270-294-318-344 lykkjur í umferð. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). Prjónið nú sléttprjón og A.9 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (lykkjur með prjónamerki í er miðjulykkjan í A.9). JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Úrtakan er mismunandi eftir stærðum.

STÆRÐ S, M og XXL:
Lykkjum fækkar mismunandi á fram- og bakstykki og ermum.
FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur færri í umferð) alls 18-20-25 sinnum.
ERMAR: Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 2-2-1 sinnum og í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur færri í umferð) alls 13-16-23 sinnum. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 eftir þörf.

STÆRÐ L, XL og XXXL:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.9 (= 8 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 21-23-26 sinnum. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 eftir þörf.

ALLAR STÆRÐIR:
Eftir allar úrtökur eru 88-94-102-110-122-136 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-8-12-16-24-34 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 83-86-90-94-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja = slétt lykkja
brugðin lykkja = brugðin lykkja
sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður slétt = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður slétt
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir (= 2 lykkjur færri) = lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir (= 2 lykkjur færri)
Diagram for DROPS 178-27
Diagram for DROPS 178-27

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springforestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

Richard skrifaði:

Hi again. I followed your instructions from the start of the decreasing, but having completed 4 ROUNDS, the total number of stitches are greatly reduced. I now have 27 for the front and 26 for the back. The sleeves have 20? Something is seriously wrong! I am knitting A9 for ALL the rounds. I assume that after 7 rounds, I continue only in stocking stitch. A 'Chart' layout would be most useful, please?

07.02.2018 - 19:41

DROPS Design svaraði:

Dear Richard, after 4 rounds with raglan decrease in size S, M and XL you should have decrease a total of 8 sts on both front and back piece (= 4 sts every other round) and 2 sts on each sleeve (= 2 sts every 4th round on each sleeve), ie 16+4= 20 sts have been decrased after the first 4 rounds. Dec at the beg of the piece to dec after A.9 (see RAGLAN) and dec at the end of the piece to dec before next A.9, make sure you will decrease 2 sts on each piece when it needs to dec, you will someetimes dec 8 sts (2 sts on each piece) or only 4 sts (only on front and on back piece). Happy knitting!

08.02.2018 - 08:44

Richard skrifaði:

FRONT AND BACK PIECES: Decrease 1 stitch every 2nd round (= 4 stitches decreased on the round) a total of 18-20-25 times - THIS I UNDERSTAND. But - SLEEVES: Decrease 1 stitch every 4th round a total of 2-2-1 times and every 2nd round (= 4 stitches decreased on the round) a total of 13-16-23 times. - I do not understand? Is the decreasing for every 4th and 2nd round, (2 times)?

06.02.2018 - 18:43

DROPS Design svaraði:

Dear Richard, you will decrease differently on body and on sleeve, ie on body decrease every other round a total of 18-20-25 times and at the same times decrease on sleeve first every 4th round 2-2-1 times in total then every other round 13-16-23 times, on the first decrease round on raglan you will sometimes dec only 4 sts (= only body) and sometimes 8 sts (body and sleeves). Happy knitting!

07.02.2018 - 08:33

Richard skrifaði:

Help - I have now placed the sleeves onto the circular needle, as the body and the number of stitches are correct. For size M, when decreasing for the sleeves, do I decrease 1 stitch AT EACH END (4/round) - both sleeves. Is A9 repeated for all the sleeve stitches?

06.02.2018 - 10:23

DROPS Design svaraði:

Dear Richard, on the sleeves you will decrease at the beg of each sleeve (after A.9) and at the end of the sleeve (before A.9), ie decrease 2 sts per sleeve = 4 sts for both sleeve. You will work A.9 to the end of yoke, A.9 = transition between body and sleeves. Happy knitting!

06.02.2018 - 11:32

country flag Richard. skrifaði:

Thanks for your reply. So my work is correct as it measures approximately 27cm. So shaping the raglan for the sleeves will then give the finished length of 56cm. Thanks..... Richard.

03.02.2018 - 12:35

Richard skrifaði:

I have completed all the 'blocks' from No.1 to No.6 and I am concerned, as the measurement is approximately 27cm. I have 4/5 rounds to complete which I will 'set aside' ready with 'markers' for the two sleeves!Your diagram on page 4 (of the pattern), is showing that the measurement is 56cm! Richard.

02.02.2018 - 15:04

DROPS Design svaraði:

Dear Richard, 56 cm is the total length in size M, from shoulder down to edge. From cast on row to armhole, piece should measure 27 cm (= 56 - (3 cm wave edge + 20 cm armhole + 1+5 cm neckline/shoulders). Happy knitting!

02.02.2018 - 15:39

country flag Karin skrifaði:

Die 270 M Anschlag sind für die kleinste Größe. Ich benötige die Größte. Wenn ich die Maschenprobe für das Wellenmuster zugrunde lege, dann ergibt sich folgendes, bei den angegeben Maßen, in meinem Fall 86 cm = 172 cm Umfang: 20 M = 10 cm, 20 x 17,2 = 344 Maschen und nicht wie in der Anleitung angegeben 405 Maschen. Was ist jetzt richtig?

11.12.2017 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Liebe Karin, genau diese Maschenanzahl (also 345 M) haben Sie nach A.1. Schlagen Sie 405 M in der letzten Größe, dann stricken Sie die 5 Runden M.1, dann haben Sie 345 M (4 M werden in der 3. Reihe A.1 in jedem Rapport abgenommen). Viel Spaß beim stricken!

12.12.2017 - 07:58

country flag Karin skrifaði:

Kann es sein, dass die Maschenprobe nicht zu diesem Modell gehört? Nach der angegeben Maschenprobe, ohne dass Muster zu berücksichtigen, müsste man bei der größten Größe 275 Maschen anschlagen. Oder habe ich irgendwo einen Denkfehler?

10.12.2017 - 02:33

DROPS Design svaraði:

Liebe Karin, es werden 270 M angeschlagen, dann A.1 gestrickt. Nach A.1 bleiben 230 M und mit 20 M im Wellenmuster = 10 cm, haben Sie dann 115 cm Umfang, dh wie in der Skizze. Viel Spaß beim stricken!

11.12.2017 - 09:43

country flag Tone skrifaði:

Alle som klager på at denne er for kort har rett. Her må det strikkes flere A6 for å få rette lengden. Dere ber om tilbakemeldinger men når dere får det så gidder dere ikke ta det til etterretning. Skjerp dere. Når så mange gir tilbakemelding på at lengden ikke stemmer så kan ikke det være en tilfeldighet. Mvh. Tone Sundland

21.11.2017 - 12:34

country flag Dorthe skrifaði:

Kommer der en rettelse til denne opskrift. Jeg har her 10 dage stadig ikke hørt noget fra jer....

23.10.2017 - 11:40

country flag Dorthe skrifaði:

Følger man opskrift bliver længde op til ærmegab 23 cm. Iflg stregtegning skal længden være 37 cm op til ærmegab så der er en STOR fejl i opskriften. Bittert at have brugt penge på en ubrugelig opskrift og penge på garn også......

12.10.2017 - 10:52