Barbara skrifaði:
Drops. Thanks for your response but to be honest, now I'm even more confused. from how I read your A2 diagram, nowhere does a round start with a slip 1 stitch. all rows start with either a YO, K, K2T. There isn't even anything in your guide pertaining to this that I have found.
02.12.2017 - 23:55DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, at the begining of the 5th round slip the first st in round on previous round (on previous needle) > the first st becomes the last st now > and start the pattern: K3, 1 yarn over, slip 1 stitch knitwise, knit 2 together and pass slipped stitch over stitches worked together, 1 yarn oper, etc. Remember that at the beggining of the 6th round you have to slip the last st in round on the next needle, the last st becomes again the first st and it will be the same until the 12th round including. Happy knitting!
04.12.2017 - 19:57
Barbara skrifaði:
Hello. I'm confused by your A2 diagram. In the 5th row from bottom, the row is moved one stitch to the left. this reoccurs on the other similar rows above it. is this a misprint? am I supposed to K3, YO or am I supposed to K4, YO. please advise. thanks
30.11.2017 - 19:20DROPS Design svaraði:
Dear Barbara, at the beg of round, slip the last st on previous round, K2, then slip the next st, K tog the last st on repeat + 1st st on next repeat tog and psso. At the end of round, you will K tog the last st on last repeat + the first st on round (and psso). Make sure there are always 6 sts in each repeat. Happy knitting!
01.12.2017 - 09:01
Barbara skrifaði:
Hello. I'm confused by your A2 diagram. In the 5th row from bottom, the row is moved one stitch to the left. this reoccurs on the other similar rows above it. is this a misprint? am I supposed to K3, YO or am I supposed to K4, YO. please advise. thanks
30.11.2017 - 17:18
Loly Aguilar skrifaði:
No entiendo el esquema A2 de este patron
07.06.2017 - 17:54DROPS Design svaraði:
Hola Loly. Imagino que el problema con A.2 tiene que ver con las filas donde los aumentos están fuera del diagrama. Los diagramas son planos y moviendo las filas del diagrama podemos explicar el dibujo en 3d. Si sigues con más dudas, puedes acudir a la tienda de Drops más cercana para que te lo expliquen.
11.06.2017 - 16:22
Loly Aguilar skrifaði:
No entiendo el esquema A2 de este patron
06.06.2017 - 17:27
Spring Snow#springsnowsocks |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 178-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur, í næst síðustu umferð í A.1 er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 66-66-66 lykkjur. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næst síðustu umferð í A.2 er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 70-70-70 lykkjur. Haldið áfram með A.3 (= 5 mynstureiningar á breidd í öllum stærðum). Þegar stykkið mælist 20-21-22 cm eru fyrstu 43 lykkjur settar á þráð (= ofan á fæti), haldið eftir síðustu 27 lykkjum á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 25-27-29 lykkjur á fyrsta prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í síðustu umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA- sjá útskýringu að ofan! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið lykkjur af þræði og prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl = 82-86-90 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður ofan á fæti (= A.3) og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan 43 miðjulykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir 43 miðjulykkjum ofan á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 13 sinnum = 56-60-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (= 5-5-6 cm eftir að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 28-30-32 lykkjur undir undir fæti og 28-30-32 lykkjur ofan á fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Á eftir prjónamerki: 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 7-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð 4-6-6 sinum = 12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsnowsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.