Maria skrifaði:
Kevyt, ilmava ja rento - ihana!
29.12.2016 - 01:18
Stella McArlin skrifaði:
Oh no! Don't tell me that only 10 of these are published! I would like to make much more than 10 of these! Is this a new system or has this been done this way for the other seasons throughout the years as well? Either way, I would love for all of these to get published! Not necessarily all at the same time... It is just quite sad that we won't have access to all of these gorgeous patterns :(
27.12.2016 - 22:44
Emmelie#emmeliesweater |
|
|
|
Prjónuð peysa í klukkuprjóni, með hringlaga berustykki og 3/4-löngum ermum úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á FRAM- OG BAKSTYKKI (prjónað í hring á hringprjóna). UMFERÐ 1. * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á ERMUM (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. UMFERÐ 2: 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju. Endurtakið 2. umferð áfram. TALNING Á KLUKKUPRJÓNSLYKKJUM: Þegar telja á lykkjurnar, þá er uppslátturinn ekki talinn sem sér lykkja. ÚRTAKA (á fram- og bakstykki): Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við hvern merkiþráð (= 8 lykkjur færri í hverri úrtökuumferð). 1. ÚRTAKA: Lesið TALNING Á KLUKKUPRJÓNSLYKKJUM og byrjið 9 lykkjum á undan merkiþræði, lyftið sléttu lykkjunni og e.t.v. uppslættinum) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (og e.t.v. uppslætti) yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Haldið áfram í klukkuprjón þar til prjónaðar hafa verið 7 lykkjur framhjá merkiþræði, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hinn merkiþráðinn. 2. ÚRTAKA: Byrjið 7 lykkjum á undan merkiþræði, lyftið sléttu lykkjunni (og e.t.v. uppslætti) yfir eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (og e.t.v. uppslætti) yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Haldið áfram í klukkuprjóni þar til prjónaðar hafa verið 5 lykkjur fram hjá merkiþræði, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hinn merkiþráðinn. 3. ÚRTAKA: Byrjið 5 lykkjum á undan merkiþræði, lyftið sléttu lykkjunni (og e.t.v. uppslætti) af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni (og e.t.v. uppslætti) yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman. Haldið áfram í klukkuprjóni þar til prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá merkþræði, prjónið næstu 3 lykkjur slétt saman. Endurtakið við hinn merkiþráðinn. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Ermarnar eru settar á hringprjóninn saman við fram- og bakstykki og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón 6 með Brushed Alpaca Silk. Fitjið upp 180-192-210-228-246-270 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: * 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina = 120-128-140-152-164-180 lykkjur. Setjið 2 merkiþræði í stykkið þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, setjið 1 merkiþráð eftir 60-64-70-76-82-90 lykkjur. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 4 lykkjur í hvorri hlið á stykki þegar prjóna á 2. umferð í klukkuprjóni – lesið ÚRTAKA fyrir 1. ÚRTAKA (= alls 8 lykkjur færri í umferð). Haldið áfram í klukkuprjóni með uppslætti, en munið eftir að í fyrstu umferð eftir umferð með úrtöku eru sléttu lykkjurnar yfir úrtöku ekki með neinn uppslátt. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 og 30 cm – LESIÐ ÚRTAKA fyrir 2. og 3. ÚRTAKA = 96-104-116-128-140-156 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 34-34-35-35-35-35 cm, passið uppá að endað sé með umferð 3 í klukkuprjóni. Í næstu umferð (= 2. umferð í mynstri) fellið af 3-3-3-4-4-4 lykkjur hvoru megin við hvorn merkiþráð fyrir handveg (uppslátturinn er ekki talinn með sem lykkja – lesið KLUKKUPRJÓNSLYKKJUR að ofan) = 42-46-52-56-62-70 lykkjur á framstykki/bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 6. Fitjið upp 44-47-50-50-50-53 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Prjónið sléttprjón í 8 cm, prjónið síðan frá röngu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30-32-34-34-34-36 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið – lesið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI Á ERMUM. Þegar stykkið mælist 12-12-11-8-8-8 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Aukið út með 13-13-6-4-4-4 cm millibili alls 2-2-3-4-4-4 sinnum = 34-36-40-42-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-28-27-26-24-23 cm fellið af 4-4-4-5-5-5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferðum, byrjið með affellingu frá réttu = 26-28-32-32-32-34 lykkjur, klippið frá. Prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna 6. Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 136-148-168-176-188-208 lykkjur. Prjónið síðan í hring í klukkuprjóni. Þegar berustykkið mælist 15-17-18-20-22-24 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar eru sett saman er skipt yfir á hringprjón 5 og prjónuð er 1 umferð með stroffi (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, uppslátturinn er prjónaður saman með óprjónuðu lykkjunum). Í næstu umferð er lykkjum fækkað þannig: * 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónið í aftari lykkjubogann), 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* út umferðina = 68-74-84-88-94-104 lykkjur. Haldið áfram með stroff þar til berustykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm, fellið síðan af allar lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emmeliesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.