DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 176-20
DROPS Design: Mynstur ks-124
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd ca 26 cm.
Lengd ca 164 cm mælt mitt undir stykki.

Efni:
DROPS Kid-Silk frá Garnstudio
25 g litur 03, ljós bleikur
25 g litur 05. bleikfjólublár
25 g litur 20, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 10 stuðlar verði 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4290.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR HÁLFUR HRINGUR:
Í byrjun og lok hverrar umferðar eru hálfu hringirnir heklaðir við hring/hálfan hring í hlið fyrri hring/hálfur hringur.
Fyrsta umferðin byrjar frá röngu þannig: Heklið 1 fastalykkju um lykkjuna sem hálfur hringurinn á að byrja í, * heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul frá fyrri hring/hálfur hringur, 1 keðjulykkja í næsta stuðul *, snúið við og heklið síðan frá réttu = 1. umferð í A.2.
(Endið umferð með 1 keðjulykkju í 2. stuðul frá fyrri hring/hálfur hringur og endurtakið frá *-* og snúið stykkinu og heklið næstu umferð í A.2 frá röngu). Endurtakið síðan frá (-) í byrjun og lok umferðar.

LITAMYNSTUR:
Skipt er um lit fyrir hvern hring/hálfur hringur þannig:
Hringur = ljós bleikur, 1. hálfur hringur = ljós bleikur.
Heklið síðan hálfa hringi í þessari röð í hvorri hlið á sjali: * bleikfjólublár, ljós bleikur og ljós beige *, endurtakið síðan frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir hvernig hálfu hringirnir eru heklaðir út frá hring og 1. hálfa hringinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er heklaður einn hringur, síðan eru hálfu hringirnir heklaðir út frá þessum hring.

HRINGUR:
Notið heklunál 4,5 og Kid-Silk – LESIÐ LITAMYNSTUR, heklið 6 loftlykkjur og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1, mynsturteikning er endurtekið 13 sinnum á breidd um loftlykkjuhringinn. Heklið eftir mynsturteikningu A.1 þar til 1 stuðull er eftir í síðustu umferð, skiptið þessum stuðli út með 1 loftlykkju (héðan frá er heklað síðar) og endið umverð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið enda.

1. HÁLFUR HRINGUR:
Notið heklunál 4,5 og ljós beige, byrjið fyrstu umferð um loftlykkjuna sem var gerð í lok hrings LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR HÁLFUR HRINGUR og heklið eftir A.2 ) 8 endurtekningar á breidd. Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina – ATH! Endið A.2 með 1 keðjulykkju í 2. stuðul frá fyrri umferð á hring.

HÁLFUR HRINGUR:
Notið heklunál 4,5 og bleikfjólublár – LESIÐ LITAMYNSTUR, byrjið að hekla í skiptingunni á milli hrings og 1. hálfa hringsins.
Heklið eftir A.2 alveg eins og á 1. hálfa hring, en nú er heklað eftir A.2 með 6 endurtekningar á breiddina.
Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina – ATH! Endið A.2 með 1 keðjulykkju í 2. stuðul frá fyrri umferð á hring/hálfur hringur.

Haldið áfram að hekla svona hálfa hringi (með 6 endurtekningum af A.2) í skiptingunum á milli hverra og einna af síðustu hálfu hringjunum í hvorri hlið á hring. Heklið svona þar til 13 hálfir hringir eru hvoru megin við 1. hálfa hringinn og hringinn.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.05.2017
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 - eða þá stærð sem þarf til að 10 stuðlar verði 10 cm á hæð

Mynstur

symbols = stuðull
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = umferðir byrjar með 3 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrsta stuðul

symbols = hringur
symbols = 1. hálfur hringur
symbols = hálfur hringur
symbols = sýnir stefnuna sem hekluð er í hvorri hlið
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag CHOISY Nathalie wrote:

Bonjour, la difficulté est de savoir comment on repart. Par exemple, motif A2. Fin du rg 1 : je termine par une m.c dans une bride du cercle mais je repars comment ? si je fais 3 ml pour la 1ère bride du rang 2, cette bride n'est "rattachée" à rien. Merci de votre aide.

17.10.2022 - 13:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Choisy, le 2ème motif (celui avec le carré dans le schéma), se fait en allers et retours, à la fin du 1er rang, vous terminez par 1 mc dans la m du cercle précédent, puis vous tournez et crochetez le 2ème rang (en commençant par 3 ml, puis lisez le diagramme de gauche à droite sur l'envers). Pour les demi-cercles suivants, procédez comme indiqué sous INFO CROCHET DEMI-CERCLE:.Bon crochet!

17.10.2022 - 17:04

country flag Line wrote:

Jaurais aimé avoir un video sur comment commencé les demi-cercles , car le cercle c’est correct mais pour le reste ce n’est vraiment pas facile et pas du tout tres clair tellement que je n y comprend rien. On va se le dire ce n’est pas evident ce style de patron, je n’en ai jamais vu. Aucun video sur les patrons en cercle et demi-cercle . Je crois que je vais abandonner le patron a mon grand regret.

30.08.2020 - 02:50

DROPS Design answered:

Bonjour Line, les demi-cercles sont crochetés d'abord sur le cercle puis les uns avec les autres, commencez les demi-cercles sur l'envers par 1 maile serrée puis crochetez le 1er rang de A.2 (= 8 fois pour le demi-cercle-1, 6 fois pour les autres), terminez par 1 maille coulée dans la 2ème bride du cercle dessous (pour bien "attacher" le demi-cercle. Tournez, et continuez à suivre le diagramme mais cette fois en lisant de gauche à droite (= sur l'envers). Bon crochet!

31.08.2020 - 10:40

country flag Alice wrote:

Nella spiegazione del circolo dice "ripetere il diagramma 13 volte in larghezza attorno all’anello di catenelle", cosa vuol dire? Detto così sembra di dover ripetere lo schema 13 volte, ma ovviamente no, nella foto si vede che si fa lo schema 1 volta sola. Grazie!

02.05.2020 - 11:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Alice. Le indicazioni sono corrette. Si inizia con il cerchio rosa chiaro che vede nella fotografia presa di schiena. Buon lavoro!

02.05.2020 - 14:33

country flag Lidia wrote:

Quisiera saber si el punto del chal en circulo lo pueden realizar en video por favor.Gracias

18.08.2019 - 23:05

DROPS Design answered:

Hola Lidia. Este patrón de momento no tiene un video paso a paso

17.10.2019 - 20:12

country flag JoAnnah wrote:

Ik heb een vraag over de eerste drie toeren: 1e toer: klopt het dat ik aan het einde 3 lossen en 27 stokjes heb? 2e toer: moet er tussen elk stokje een losse? Als ik het patroon goed snap is het 2 stokjes, 1 losse, maar als ik de foto bekijk lijkt het erop dat er na elk stokje een losse zit. 3e toer: is eigenlijk dezelfde vraag als bij de 2e toer: zit er tussen elk stokje 2 lossen? Alvast dank voor het antwoord.

28.03.2019 - 15:08

DROPS Design answered:

Dag JoAnnah,

Je herhaalt A.1 13 keer in de breedte, dus na de eerste toer heb je dan 13 stokjes op de toer. Op de 2e toer is het inderdaad 1 losse, 1 stokje, 1 losse, enz. Bij de derde toer haak je steeds 1 stkokje, 2 lossen, 1 stokje, 2 lossen enz.

31.03.2019 - 12:11

country flag Franca wrote:

Salve volevo sapere quando si inizia il mezzo cerchio e si devono fare sul rovescio del lavoro le catenelle e le maglie bassissime ,con quale colore devo lavorare? il colore del precedente o del successivo?? certa di una vostra celere risposta (come già altre volte avete fatto) vi auguro buona giornata

05.07.2017 - 08:39

DROPS Design answered:

Buongiorno Franca. Deve lavorare con il colore successivo. Buon lavoro!

05.07.2017 - 09:58

country flag Nina wrote:

Hei! Jeg har begynt med dette sjalet og er ferdig med den første sirkelen. Når jeg begynner på første halvsirkel kan jeg ikke se at det er forklart hvor mange staver på første sirkel som skal hoppes over hver gang jeg skal feste halvsirkelen til forrige sirkel/halvsirkel. Kan noen forklare dette?

04.06.2017 - 17:39

DROPS Design answered:

Hei Nina. Du finner informasjonen under HEKLEINFO HALVSIRKEL, øverst i oppskriften. God Fornøyelse!

06.06.2017 - 08:25

country flag Dorte Hvalsøe wrote:

Bruges der hæklenål nr 3.5 eller 4.5? Begge nåle fremgår i opskriften.

30.05.2017 - 23:22

DROPS Design answered:

Hei Dorte. Her har det sneket seg inn en feil. Det skal være heklenål nr. 4,5. Vi skal få rettet dette opp asap. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette og god fornøyelse med å hekle dette flotte sjalet.

31.05.2017 - 09:53

country flag Åshild Aspøy wrote:

Hei, Drops. Jeg vil bare si i fra om at denne oppskriften opererer både med nål nr 3,5 og 4,5, ulikt mellom søk, overskrift og selve oppskriftsteksten. Vennligst, Åshild :-)

16.05.2017 - 16:00

country flag Leonore wrote:

Wat betekenen het roze diamant-icoontje en het klokje rechtsbovenin de foto's?

24.02.2017 - 22:58

DROPS Design answered:

Hoi Leonore. Dat het patroon te zien is op de voorpagina van de site (featured).

27.02.2017 - 15:01