Di skrifaði:
Очень красиво!
18.01.2017 - 18:47
Mariette Karselius skrifaði:
Leuk patroon. Zou ik graag willen gaan breien. Welke wol gebruiken jullie?
17.01.2017 - 17:12Margaret Marks skrifaði:
Just superb...can't wait for the pattern and yarn
17.01.2017 - 02:20
Elena skrifaði:
Beautiful pattern ! I agree please keep it on the collection.
03.01.2017 - 20:01
Elisabeth Hellsten skrifaði:
Favorit! När kommer modellen?
21.12.2016 - 11:38Dianne skrifaði:
This is my favourite, just love it, please include in the collection.
20.12.2016 - 23:27
Torhild Christensen skrifaði:
Helt nydelig
17.12.2016 - 21:29
Myrta skrifaði:
Prachtige trui!!
14.12.2016 - 20:46
Vera Sintenie skrifaði:
Met stip mijn favoriet
14.12.2016 - 15:43
Elisabeth skrifaði:
Er godt helt vild med den , den er superflot
14.12.2016 - 15:03
Candied Almonds#candiedalmondssweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og kúlum úr DROPS Melody. Stærð S - XXXL.
DROPS 176-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 175 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 31) = 5,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja saman. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp fyrir handveg, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjóna til loka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 175-190-200-210-230-245 lykkjur á hringprjóna 7 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 31-34-36-34-38-41 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 144-156-164-176-192-204 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 73.-79.-83.-89.-97.-103. lykkju í umferð (= 71-77-81-87-95-101 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í á fram- og bakstykki). Næsta umferð er prjónuð þannig: Stærð: S + XXL: Prjónið A.1 hringinn (= 6-8 mynstureiningar 24 lykkjur). Stærð: M + L + XL + XXXL: Prjónið 3-5-8-3 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-72-96 lykkjur, A.2 (= 1 lykkja), 5-9-15-5 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 72-72-72-96 lykkjur, A.2 (= 1 lykkja), endið með 2-4-7-2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 47-48-49-50-51-52 cm – passið uppá að næsta umferð sé odda umferð mynsturteikningu, fellið síðan af 11-11-11-13-13-13 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (lykkja með prjónamerki í + 5-5-5-6-6-6 lykkjur hvoru megin við hana). Fram- og bakstykki er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 61-67-71-75-83-89 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri við handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 19-19-19-21-21-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 19-22-24-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – Mikilvægt er að affellingarkanturinn verði ekki of stífur. Prjónið hina öxlina alveg eins. FRAMSTYKKI: = 61-67-71-75-83-89 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka alveg eins og á bakstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið nú miðju 17-17-17-19-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 19-22-24-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina alveg eins. ERMI: Fitjið upp 30-30-30-30-35-35 lykkjur á sokkaprjóna 7 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-3-1-1-4-4 lykkjur jafnt yfir = 27-27-29-29-31-31 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 24 lykkjur), A.2 (= 1 lykkja), 1-1-2-2-3-3 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur þannig: Þegar stykkið mælist 8-6-6-6-8-8 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2 cm millibili alls 9-10-10-11-12-13 sinnum = 45-47-49-51-55-57 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 43-41-41-40-38-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að næsta umferð sé jöfn umferð í mynstri. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka á hringprjón frá miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki eru prjónaðar 2 umferðir þar sem felldar eru af 5 lykkjur í byrjun hverrar umferðar. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 48-46-46-45-43-41 cm ofan frá og niður. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón ofan á öxl. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (prjónamerki mitt undir ermi á að passa við handveg). HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 56 til 62 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 7. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candiedalmondssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 176-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.