Martha Nitschelm skrifaði:
Do you have instructions for knitting this bag? Thank you.
29.06.2018 - 00:03DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Nitschelm, there is only crochet pattern to this bag, you'll find our knitted bags here. Happy knitting!
29.06.2018 - 08:16
Kirsten Asmussen skrifaði:
Hej! Jeg vil gerne hækle denne taske til min datter. Den skal passe til hendes røde sommerkjoler. Spørgsmålet er, hvilke 2 farver i det røde spektrum jeg skal sætte sammen med hvid. F.eks. rød nr 19 og lysrosa nr 01 eller koralrød nr 13 og fersken nr 12 eller andet? Jeg vil blive glad for et indspark her :-) Venlig hilsen Kirsten
01.06.2018 - 10:34DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, spørg din datter, hun vil sikkert gerne være med til at ønske farver :) Eller så kigger du på de røde tasker vi har lavet :) God fornøjelse!
04.06.2018 - 09:42
Robin Joss skrifaði:
I'm new to crochet and I don't understand a1.looking at the design I can't see where I add two . I'm on row 5 and all the boxes look the same. So how do I know where to add .
17.04.2018 - 14:35DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Joss, when working A.1 you are increasing at the same time 12 sts on every round as explained in the written pattern. From round 5 continue as before: *1 dc in each of the first 3 dc, 2 dc in next dc* repeat from *-* at the same time follow round 5 in diagram: *2 sts with white, 2 sts with light blue purple, 1 st with white* and repeat from *-*. Happy crocheting!
17.04.2018 - 16:04
Laura skrifaði:
How much cotton do I need to the bag in Paris or other C yarn? Thank you!!!
21.04.2017 - 00:11DROPS Design svaraði:
Dear Laura, you will find here how to calculate new amount of yarn when using 1 yarn group C instead of 2 yarns group A. Happy crocheting!
21.04.2017 - 08:57
ELIE skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas comment on incère la cordelière merci de votre aide
10.04.2017 - 11:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Elie, suivez bien pas à pas les indications: on commence par l'insérer de l'intérieur vers l'extérieur puis de l'extérieur vers l'intérieur (= 1ère bandoulière), puis on répète encore 1 fois pour former la 2ème bandoulière et on noue les extrémité sur l'intérieur du sac. Sautez bien le nombre de mailles indiqué à chaque fois pour qu'elle soit placée comme il faut. Bon crochet!
12.04.2017 - 11:58
Eyssartier Marie-noelle skrifaði:
Bonjour j'aime beaucoup ce modèle mais c'est dommage qu'il n'y ai pas le diagramme complet en rond du fond du sac
23.02.2017 - 08:46
Beate Eckardt skrifaði:
Taschen und Beutel kann man nie genug haben, zumal sie wieder voll im Trend sind.
17.01.2017 - 14:16
Lika skrifaði:
Where can I find this pattern please??
16.01.2017 - 15:26
Margaret Thomas skrifaði:
Where can I find this pattern please??
15.01.2017 - 20:41
Line Huth skrifaði:
Lekker
12.01.2017 - 12:43
Carried Away#carriedawaybag |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Hekluð taska með marglitu mynstri úr 2 þráðum DROPS Safran.
DROPS 177-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 stuðull. TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráðinn innan í og utan með dokkunni. Gott er að skipta ekki um báða þræðina í einu, annars verða samskeytin of þykk. Það er einnig gott að festa endana með því að leggja þá meðfram lykkjunum frá fyrri umferð og síðan að hekla utan um þá og festa á meðan heklað er áfram. LITAMYNSTUR (heklað í hring): Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Heklið síðasta stuðul með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næsta stuðul. Þegar heklað er með tveimur litum þá eru þræðirnir með þeim lit sem ekki er heklað með lagðir yfir lykkjurnar frá fyrri umferð og heklað er utan um þræðina þannig að þeir sjáist ekki og eru alltaf til staðar þegar á þeim þarf að halda. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta stuðul í umferð er skipt út fyrir 3 loftlykkjur, endið umferð með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með 2 þráðum. TASKA: Heklið 5 loftlykkjur með 2 þráðum í litnum gallabuxnablár með heklunál 3,5 og tengið saman í hring með einni keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring eftir mynsturteikningu A.1 (heklaðar eru 12 mynstureiningar af A.1 á breidd) – LESIÐ LITAMYNSTUR! UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla í hvern stuðul = 24 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið * 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið * 1 stuðul í hvorn af fyrstu 2 stuðlum, 2 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 5-12: Haldið áfram með útaukningu og mynstur A.1 eins og áður, þ.e.a.s. fyrir hverja umferð er heklaður 1 stuðull fleiri á milli útaukninga = 144 stuðlar. Aukið út um 12 stuðla í hverri umferð. UMFERÐ 13: Haldið áfram með að hekla í hring, en án útaukningar og heklið eftir A.2 (= 8 mynstureiningar á breidd). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið heklað til loka, klippið frá og festið enda. SNÚRA: Klippið 12 þræði ca 10 metra af hvorum og einum í litnum ljós blár og í litnum gallabuxnablár (= 24 þræðir). Tvinnið þræðina fast saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í töskuna á milli 2 stuðla í þriðju síðustu umferðina á töskunni, þannig: Byrjið eftir 21. stuðul í umferð: Þræðið snúruna frá innanverðri tösku og út, hoppið yfir 30 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðri töskunni og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 18 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 30 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Hoppið yfir 12 stuðla og þræðið snúruna frá innanverðu og út, hoppið yfir 18 stuðla og þræðið snúruna frá utanverðu og inn. Jafnið að lokum lengdina á snúrunni og hnýtið saman endana frá innanverðri töskunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carriedawaybag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.