DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1496.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 175-23
DROPS Design: Mynstur cl-077
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Mál:
Hæð: 21 cm
Breidd: 20 cm

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
50 g litur 28, gulur
50 g litur 30, dökk grár
50 g litur 02, hvítur
50 g litur 21, ljós beige

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 fastalykkjur og 22 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1496.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Byrjið 2 fastalykkjum á undan prjónamerki, heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju, heklið 2 fastalykkjur, prjónamerki er staðsett á milli þessa fastalykkja og heklið 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir liti í mynstri. 1 rúða = 1 fastalykkja.

LITAMYNSTUR (heklað í hring):
Þegar skipt er um lit er heklað þannig: Byrjið í síðustu fastalykkju með fyrri litnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, skiptið yfir í næsta lit og dragið þráðinn í gegn í lokin, heklið síðan næstu fastalykkju. Þegar heklað er með tveimur litum er þráðurinn á þeim lit sem ekki er heklað með látinn liggja yfir lykkjur frá fyrri umferð og heklað er utan um þráðinn þannig að hann sjáist ekki og er alltaf til taks.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fastalykkju í umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring með fastalykkjum. Fyrst er botninn heklaður með útaukningu. Síðan er heklað A.1 og A.2 án útaukninga. Efst er gataumferð hekluð fyrir snúrur.

TASKA:
Heklið 35 lykkjur með heklunál 3 með litnum ljós beige.
UMFERÐ 1:
Heklið fastalykkjur niður meðfram annarri hlið á loftlykkjuumferð þannig: Hoppið yfir fyrstu loftlykkju, heklið 2 fastalykkjur í næstu loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 32 loftlykkjum, í síðustu loftlykkju eru heklaðar 2 fastalykkjur, setjið 1 prjónamerki = miðja í hlið.
Snúið og heklið síðan frá hinni hlið á loftlykkjuumferð.
Heklið 2 fastalykkjur í fyrstu loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 32 loftlykkjum og endið með 2 fastalykkjur í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í byrjun umferðar og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Setjið 1 prjónamerki = miðja í hlið. Nú eru 72 fastalykkjur í umferð.
UMFERÐ 2-6:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð, jafnframt er auki út um 4 fastalykkjur í hverri umferð – LESIÐ ÚTAUKNING. Heklið 5 umferðir svona = 92 fastalykkjur.

Haldið áfram að hekla í hring með fastalykkjum, en án útaukninga og heklið eftir A.1 (= 23 mynstureiningar á breidd). LESIÐ LITAMYSTUR! Eftir síðustu umferð í A.1 er fækkað um 2 fastalykkjur jafnt yfir = 90 fastalykkjur. Heklið síðan með A.2 (= 3 mynstureiningar á breidd). Í umferð með ör er hekluð ein gataumferð þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 2 fyrstu fastalykkjum, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 næstu fastalykkjur, 1 fastalykkja í hvora af næstu 2 fastalykkjum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Í næstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga. Heklið til loka A.2. Klippið frá og festið enda.

SNÚRA:
Heklið 3 snúrur, eina með litnum hvítur, eina með litnum ljós beige og eina með með litnum gulur þannig: Heklið 1 umferð með loftlykkjum þar til snúran mælist 130 cm.
Hnýtið þræðina saman með einum hnút í hvorri hlið innan á töskunni, í umferð með gati.

Mynstur

symbols = hvítur
symbols = gulur
symbols = ljós beige
symbols = dökk grár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 175-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Aracely Flores wrote:

Excelente Muchas gracias

12.03.2024 - 02:13

country flag Ana wrote:

Buenas noches, si quisiera hacer este bolso en un tamaño más grande cual seria el. Número de cadenetas al final, o cual es el múltiplo de número para ir aumentando el tamaño. Espero darme a entender con la pregunta

03.02.2024 - 05:23

DROPS Design answered:

Hola Ana, ten en cuenta que necesitarás repeticiones completas de A.2 para que el bolso quede bonito. Así que, a la hora de hacer el bolso más grande, tienes que tener en cuenta el número de puntos en una repetición de A.2 e incrementar el número de cadenetas iniciales a partir de ellos. Nosotros no hacemos patrones personalizados.

04.02.2024 - 22:54

country flag María Serrano wrote:

En todas las vueltas el primer punto de la vuelta se sustituye por una cadeneta y el último se sustituye por un punto enano en esa primera cadeneta? Hay Algún video para verlo? Gracias

14.07.2021 - 20:24

DROPS Design answered:

Hola María Serrano, el último punto no se sustituye por un punto enano; este se trabaja después del último punto. A continuación tienes un vídeo que te puede servir de apoyo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=312&lang=es

15.07.2021 - 00:05

country flag Miranda wrote:

Ik blijf de bodem fout doen. Toer 1 lukt. Maar verschillende manier geprobeerd om te meerdere, maar het patroon (de naad) word daardoor schreef. Kortom kun je uitleggen hoe toer 2 precies gaat, stapje voor stapje? Aan het begin heb ik een markeerdraad, en in het midden. Ik neem aan dat daar beide 2 gemeerderd moeten worden, maar hoe... Patroon is hierin best lastig te ontcijferen. 1e losse tel ik trouwens mee in de telling. Alvast bedankt!

13.06.2021 - 19:15

DROPS Design answered:

Dag Miranda,

De tas wordt in de rondte gehaakt, dus na het haken van de 35 lossen sluit je de toer. Dan keer je het werk en haak je terug. Dit doe je elke keer, dus de toer sluiten en dan het werk keren. Je hebt 2 markeerdraden in het werk en je meerdert voor en na de markeerdraden. Je begint 2 steken voor de markeerdraad, dan haak je 2 vasten in 1 steek, 1 vaste in de volgende steek, markeerdraad, 1 vaste in de volgende steek, 2 vasten in de volgende steek. Dit doe je ook bij de andere markeerdraad.

24.06.2021 - 09:47

country flag Mary Manoly wrote:

Hello cannot figure out how to place the cords shoul i make only 3 or 6 thank you for all you effort

26.10.2020 - 04:06

DROPS Design answered:

Hi Mary, You work 3 cords, which are tied on the inside of the round of holes. They are fastened close together on one side and then again on the other. Happy crocheting!

26.10.2020 - 06:49

country flag Sonja Schuler wrote:

Vielen Dank hab es jetzt verstanden. Nur noch eine Frage muss ich nach der KM LM in die nächste Masche verdoppeln oder in die gleiche Masche wo die LM ist?

24.09.2019 - 17:05

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schuler, die erste feste Masche der Runde wird durch 1 Luftmasche ersetzt (siehe HÄKELINFO), aber wenn Sie lieber diese Luftmasche extra häkeln möchten, dann verdoppeln Sie die 1. Feste Masche. Viel Spaß beim häkeln!

25.09.2019 - 08:50

country flag Sonja Schuler wrote:

Leider versteh ich nicht wo ich die Zunahmen häkeln muss.

24.09.2019 - 15:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schuler, am Anfang der Tasche nehmen Sie 4 Maschen bzw 2 Maschen auf beiden Seiten von jedem Markierungsfaden zu - siehe ZUNAHMETIPP. Viel Spaß beim häkeln!

24.09.2019 - 16:25

country flag Eva Calderón Moreno wrote:

Hola, el primer punto bajo de cada vuelta se sustituye por uno de cadeneta, este punto cuenta para el diagrama?. gracias.

02.09.2018 - 11:39

DROPS Design answered:

Hola Eva. Mira la INFORMACIÓN PARA LA REALIZACIÓN DEL TRABAJO, al inicio de la vuelta el 1er punto bajo se sustituye por 1 punto de cadeneta y es el primer punto del diagrama.

02.09.2018 - 18:27

country flag Cristina wrote:

Gracias!!!

31.08.2017 - 00:12

country flag Cristina wrote:

Buenas. No consigo saber cómo colocar los cordones. Tengo hechos los ojales y los cordones, pero no consigo colocarlos en el bolso y no he encontrado ningún video explicativo. me podríais ayudar? Por cierto queda muy chulo el dibujo!! Gracias

29.08.2017 - 10:40

DROPS Design answered:

Hola Cristina. Los 3 cordones (= 1 de cada color) se insertan de fuera hacia dentro en la fila de los ojales en un lado lateral, después, se hace un nudo en el extremo interior de los cordones (Atención: el nudo queda dentro de la bolsa). Repetir en el otro lado.

29.08.2017 - 18:14