ANNICK Abdelli skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas l'explication qu indiqué pour le dos, "Tricoter ensuite 1 côte mousse, EN MÊME TEMPS, ajuster le nombre de mailles à 55-59-65-69 au 1er rang. ". est-ce UN côté ou UNE côte ? Je ne vois pas ce qu'il faut faire. Faut-il faire des diminutions de 2mailles à cette étape ? Merci de votre aide. Cordialement Annick
03.03.2018 - 18:07DROPS Design svaraði:
Voir réponse ci-dessous :)
05.03.2018 - 08:35
ANNICK Abdelli skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas l'explication qu indiqué pour le dos, "Tricoter ensuite 1 côte mousse, EN MÊME TEMPS, ajuster le nombre de mailles à 55-59-65-69 au 1er rang. ". est-ce UN côté ou UNE côte ? Je ne vois pas ce qu'il faut faire. Merci de votre aide. Cordialement Annick
03.03.2018 - 17:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Annick, vous tricotez 1 côte mousse (= 2 rangs endroit) en ajustant le nombre de mailles (augmentez/diminuez en fonction de la taille) au 1er de ces 2 rangs. Bon tricot!
05.03.2018 - 08:35
Jannie Van Leeuwen skrifaði:
Hallo , hoe veel bollen wol heb ik nodig voor dit patroon graag hoor ik van jullie mvg, Jannie van Leeuwen
29.11.2017 - 10:37DROPS Design svaraði:
Hoi Jannie, Het hangt er vanaf welke maat je wilt gaan breien. Je hebt 950-1050-1100-1250 gram nodig voor respectievelijk maat S/M - L - XL - XXL. De bollen van eskimo zijn 50 gram, dus bijvoorbeeld voor maat L zou je 21 bollen nodig hebben.
02.12.2017 - 16:39
Anneke skrifaði:
K had jullie gevraagd waar de maat tabellen stonden, en werd toen doorverwezen naar de patroontekeningen aan de onderkant van het patroon, en een link naar hoe je een maat kan kiezen. Wat nou als het een volledig ander model trui is waar je mee moet vergelijken?? Ik vind het dus vreemd dat jullie geen algemene maattabel hebben (zoals ik die ken van alle andere brei/haak/naai bladen/patronen) die van toepassing is op jullie patronen.
12.01.2017 - 10:53
Anneke skrifaði:
Waar kan ik de maattabellen vinden om te bepalen welke maat ik moet breien??? Misschien ben ik blind maar kan die nergens op de site vinden... Alvast veel dank!
06.01.2017 - 11:54DROPS Design svaraði:
Hoi Anneke. Kijk onderaan het patroon. Hier is de maattekening met alle afmetingen in cm per maat. Je kan hier ook meer over lezen hoe je een maat kiest
09.01.2017 - 15:08
Cornelia Varnhagen skrifaði:
In der Anleitung ist das Diagramm nicht verfügbar. Wann wird es online gestellt? Danke
02.01.2017 - 11:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Varnhagen, Diagram A.1 können Sie neben dem Maßenskizze finden, es wird über 2 M und 6 R gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2017 - 14:10
Vanessa skrifaði:
Bonjour, Pourriez-vous me dire comment s'appelle le point de ce tricot s'il vous plait? Merci
29.11.2016 - 13:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Vanessa, il s'agit d'un point texturé simple qui se tricote sur 2 m et 2 rangs: Rang 1 à l'end sur l'endroit - Rang 2 (on lit le diagramme de gauche à droite): 1 m env, 1 m end. Bon tricot!
29.11.2016 - 13:53
Silverwood#silverwoodsweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Snow í áferðamynstri með kraga í stroffprjóni. Stærð S - XXL.
DROPS 174-23 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. 1. umf í mynstri = rétta. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um handveg): Fækkið l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ATH: Í næstu umf (= frá röngu) eru l innan við kantlykkju alltaf prjónaðar br (svo að það verði 1 l sl innan við kantlykkju fyrir frágang). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í stykkjum fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 56-59-65-71 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 0-3-3-3 l br, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 55-59-65-69 l í fyrstu umf. Prjónið síðan A.1, endið með 1. l í A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 11 cm millibili alls 3 sinnum – útauknar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur = 61-65-71-75 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44 cm fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir handveg þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið um 1 l í annarri hverri umf alls 2-3-5-6 sinnum = 51-53-55-57 l. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68 cm fellið af miðju 15-17-15-17 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsi = 17-17-19-19 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina. FRAMSTYKKI: Fitjið upp eins og á bakstykki og prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1-4-4-4 l, prjónið 0-3-3-3 l sl og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Jafnið síðan lykkjufjöldann út eins og á bakstykki áður en haldið er áfram með A.1 og útaukningar í hvorri hlið. Fellið af fyrir handveg eins og á bakstykki og prjónið síðan þar til stykkið mælist 57-59-60-62 cm. Setjið nú miðju 9-11-9-11 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fækkið um 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 17-17-19-19 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 26-26-32-32 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið stroff (= 3 l sl, 3 l br) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í 7 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30-30 l í fyrstu umf. Prjónið síðan A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-14-14-13 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Aukið svona út með 3½-3-3-3 cm millibili alls 11-12-12-13 sinnum – útaukningar l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstri = 50-52-54-56 l. Þegar ermin mælist 50-50-50-51 cm fellið af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 3 l 1 sinni, síðan eru felldar af 2 l í byrjun umf í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-59-60 cm, fellið síðan af 3 l í byrjun 2 næstu umf áður en allar l eru felldar af, stykkið mælist ca 57-58-60-61 cm. Prjónið aðra ermi á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KRAGI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu ca 60 til 72 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 8. Prjónið 1 umf br þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-66-66-72 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kraginn mælist 7 cm eru allar 3 l br auknar út til 4 l br = 70-77-77-84 l. Þegar kraginn mælist 14 cm eru allar 4 l br fækkaðar í 3 l br = 60-66-66-72 l. Haldið áfram með stroff þar til kraginn mælist 21 cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er slegið uppá prjóninn á eftir 6. hverri l JAFNFRAMT því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg l). FRÁGANGUR: Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silverwoodsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.