DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Wild Blueberries

Sett með prjónuðum galla, prjónaður ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki, plús húfu með eyrnaleppum og dúsk úr DROPS Karisma. Stærð börn 1-6 ára

DROPS Children 27-1

#wildblueberriesoverall

DROPS Design: Mynstur nr u-072-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

GALLI:
Stærð: 12/18 mán - 2 - 3/4 - 5/6 ára
Stærð í cl: 80/86 - 92 - 98/104 - 110/116

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
300-300-350-400 gr litur nr 50, grænn
50-50-50-50 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50 gr litur nr 44, ljós grár
50-50-50-50 gr litur nr 73, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt, þá er mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, NR 513: 6-6-7-7 st.

HÚFA:
Stærð: 12/24 mán - 3/6 ára
Höfuðmál: ca 44/48 - 50/52 cm

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 01, natur
50-50 gr litur nr 44, ljós grár
50-50 gr litur nr 50, grænn
50-50 gr litur nr 73, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 fyrir stroff og eyrnaleppa – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALLI:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan):
Í þeim umferðum þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með þeim lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, en skipt er um þræði á milli kants að framan og fram- og bakstykki (þetta er gert til að sleppa við að festa enda yst í kanti að framan).

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING:
Til að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7 lykkjur) = 10,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca í 10. og 11. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Lykkjur er ekki fækkað/felldar af yfir kant að framan).

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi og innan verðu á skálm):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagati í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 1½-2 cm frá kanti í hálsmáli, fellið síðan af fyrir næstu 5-5-6-6 hnappagötum með 7½-8-7½-8 cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Til að auðveldara verði að áætla lengd á ermum og skálmum er gallinn prjónaður ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á stutta hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= kantur í hálsmáli).
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur, þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar 6-6-7-7 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (til að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið – ATH: Ekki er aukið út í þessum lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur á prjóni. Prjónið 0-1-0-1 cm með litnum grænn. Stykkið mælist nú ca 13-14-15-16 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er síðan prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grænn. Í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður, setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 122-130-142-150 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hið (= 58-62-68-72 l á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá handveg endar kantur við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón í hring yfir allar lykkjur í ca 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handvegi og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Nú skiptist stykkið upp í skálmar.

SKÁLM:
Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 lykkjur sem eftir eru bíða á hringprjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð (= innan á skálm). Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur á innanverðri skálm –lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls2-3-3-3 sinnum = 56-60-66-70 lykkjur. Fækkið lykkjum svona áfram í hverri 4-5-7-9 umferð alls 8-7-8-8 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur.
Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskuðu máli). Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 65-70-75-80 lykkjur. Síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjóna nr 4 og prjónið hina skálmina alveg eins. Allur gallinn mælist ca 66-74-88-98 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli).

ERMI:
Setjið inn lykkjur af öðrum þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur = mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring með litnum grænn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umf alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm er aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskaðri lengd). Í næstu umf eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið hægi stroff-kant yfir vinstra stroff-kant og saumið neðst með smáu spori. Saumið tölur í vinstri stroff-kant.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1:
Fækkið um 1 lykkjurá eftir hverju prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2:
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri).

SNÚRA:
Setjið 4 lykkjur saman á einn sokkaprjón nr 3. Prjónið 1 umferðir slétt, * færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt aftur yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* að óskaðri lengd.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

Fitjið upp 96-112 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-16 lykkjur jafnt yfir = 84-96 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2 (= 7-8 mynstureiningar 12 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 14 cm. Prjónið síðan með litnum grænn þar til stykkið mælist 15-17 cm. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 36-48 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið 1 umferð slétt og prjónið allar lykkjur aftur slétt saman 2 og 2 = 9-12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 20-22 cm tilbúin.

EYRNALEPPUR:
Fitjið upp 40-44 lykkjur með litnum bensínblár DROPS Karisma og deilið lykkjum niður á 2 sokkaprjóna nr 3 með 20-22 lykkjur á hvorum prjóni. Prjónið sléttprjón í hring á þessum 2 prjónum – ATH: Herðið aðeins á þræði í hverri skiptingu á milli þessa 2 prjóna þegar prjónað er. Þegar eyrnaleppurinn mælist 5-6 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-5 sinnum = 4 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan, yfir þær lykkjur sem eftir eru og þar til snúran mælist ca 20-25 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur, herðið að og festið vel.
Prjónið annan eyrnalepp á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið eyrnaleppana ca 3 cm inn undir stroffið á húfunni og saumið niður á röngu – ATH: Það á að vera ca 13-15 cm á milli eyrnaleppa að framan (= ca 7-9 cm á milli eyrnaleppa að aftan).

Gerið einn dúsk með litnum grænn ca 4-5 cm að þvermáli og saumið dúskinn á toppinn á húfunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 09.04.2018
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1
Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2025
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð.

Mynstur

ljós grár = ljós grár
grænn = grænn
natur = natur
bensínblár = bensínblár
sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja í grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja í grunnlit í mynsturrönd, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
Diagram for DROPS Children 27-1
Diagram for DROPS Children 27-1
Diagram for DROPS Children 27-1

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (100)

country flag Martje skrifaði:

Hallo liebes drops-team! Vielen Dank für die schnelle Antwort! Verstehe ich es richtig, dass es keinen Rapport von 6 Maschen gibt, ich also nicht in jeder Reihe den Rapport von 6 Maschen, (wie in der ersten Reihe) wiederhole, sondern ich wiederhole immer wieder die KOMPLETTE Reihe von vorne bis hinten, so wie abgebildet? Vielen Dank, ich stricke sehr gerne Ihre Anleitungen!

06.12.2016 - 14:40

DROPS Design svaraði:

Liebe Martje, wenn Sie A.1 stricken sollen Sie den ganzen Rapport über alle Maschen (= 6 Mal in der Breite) stricken, dh an der 1. Reihe: 1 Umschlag, 6 Maschen (= 7 Maschen in jedem Rapport), usw die Zunahmen sind im Diagram (= Umschläge, bei der nächsten Reihe verschränkt stricken) inbegriffen. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2016 - 15:33

country flag Martje Bertram skrifaði:

Liebes Drops-Team, in der Anleitung steht, dass man am Ende der Strickschrift 203 Maschen auf der Nadel hat (angeschlagene Maschen: 88). Ich habe die Zunahme wie in der Strickschrift angegeben am Anfang (oder am Ende) der betreffenden Reihe gearbeitet. Den Rapport habe ich bis zum Reihenende wiederholt. Jedoch komme ich so zu keiner Zunahme von 115 Maschen! Vielen Dank! Martje

05.12.2016 - 18:20

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Bertram, in der Größe 2 Jahre stricken Sie A.1 so: 5 M. Kraus re, 12 x A.1 (= 12x6 = 72 M.), 1 M. glatt re, 5 M. Kraus re. In jedem A.1 werden Sie insgesamt 10 M. zunehmen, nach A.1 haben Sie dann: 5 M. kraus re, 12 x A.1 (= 12 x 16 = 192 M.), 1 M glatt re, 5 M. kraus re = 203 M. Viel Spaß beim stricken!

06.12.2016 - 10:02

country flag Annie skrifaði:

Hi thanks for your answer. i would like to modify the pattern into a cardigan. where do i stop in the body instructions? and do i need to decrease before i do ribbing? thanks

07.11.2016 - 14:28

DROPS Design svaraði:

Dear Annie, you can get help from a similar pattern in the correct size and with a yarn same group. Happy knitting!

07.11.2016 - 14:47

country flag Annie skrifaði:

Hello, i am knitting the sweater for2 year old. i am on the second row and after the garter band, the first color is white. but if i am following diagram on ws from left to right it should be black. i also read in the comments that you said second row starts with two white stitches. i am confused

04.11.2016 - 14:10

DROPS Design svaraði:

Dear Annie, read diagram from the right to the left from RS and from the left to the right from WS. When working A.1, you repeat A.1 and finish with 1st st in A.1 before band sts. From WS, work 1 st in white (= 1st st in A.1), then repeat A.1 from the left towards the right. Happy knitting!

04.11.2016 - 14:31

Selam skrifaði:

Hi I would like to use Nepal for this pattern.what would I need to do to obtain same results? Do i cast on same number of sts? How to calculate? When to decrease and increase by how many? Thanks

27.10.2016 - 00:51

DROPS Design svaraði:

Dear Selam, Nepal is yarn group C and Karisma yarn group B, tension is different (17 sts/10 cm for Nepal and 21 sts/10 cm for Karisma). You would have to re-calculate the whole pattern in height and width. For any individual assistance, you are welcome to contact your DROPS store. Remember also that DROPS Lima belongs to group B, same content as DROPS Nepal, and could be used as an alternative to Karisma without recalculating. Happy knitting!

27.10.2016 - 09:21

country flag Fatou skrifaði:

Hi thank you so much But 11th row is a repeat of 10sts then yo. So if i do a first repeat and end wth yo in off white the new repeat statts with light grey

26.10.2016 - 13:06

DROPS Design svaraði:

Dear Fatou, in row 11 (size 12/18+2), you will have (11 sts, 1YO) in each A.1 and finish with 1st st in A.1. Each repeat ends with 1 YO with off white and next repeat starts with 1 st with light grey. Happy knitting!

26.10.2016 - 14:56

country flag Fatou Thioune skrifaði:

On row 11th, i did the yarn over in white but it doesnt work because next stitch is gray. is that row worked from left to right? do i only start from left to right on purl rows or when there is yarn over at the end on diagram? thanks

26.10.2016 - 03:31

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Thioune, on 11th row the yo has to be worked with off white, but remember you should finish each row from RS with the 1st st in A.1 before the 5 sts in garter st, so that on 11th row, you'll finish with 1 YO with off white in last repeat in A.1, then 1 st with light grey (= 1st st in A.1), and 5 sts in garter st with off white. On row 12, you'll start with 5 sts in garter st with off white, 1st st in A.1 = 1 st with light grey, then diagram A.1 from the left towards the right= *1 st with light grey, 3 sts with off white, 3 sts with light grey, 3 sts with off white, 2 sts with light grey*, repeat A.1 from *-* and finish with 5 sts in garter st. Happy knitting!

26.10.2016 - 09:36

country flag Fatou Thioune skrifaði:

Sorry it's me again. when i completed first row and turned to do second row in A1, the colors were off. i should be able to purl petrol on the other side but it turns out to be white. is there somethign i am doing wrong? thanks

25.10.2016 - 15:11

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Thioune, from WS read diagram from the left towards the right, the sts in Petrol should be worked over the sts worked in petrol on previous row, and work with off white the other sts. Happy knitting!

25.10.2016 - 15:24

country flag Fatou Thioune skrifaði:

On 11th row off white? On 7th row it is in off white? On fifth row, yo is in green? On 9th row it is in off white? On 17th row it is off white? Also are the bands included in A1? Or do I knit 5 stitches for band then starts A1 and when I have 5 stitches left I work my band? Thank you

25.10.2016 - 14:49

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Thioune, that's right (size 12/18 + 2) and on row 21 +25 YO will be worked with light grey. Front band sts are worked in garter st, not in A.1 - see "KNITTING TIP" at the bottom of written pattern. Happy knitting!

25.10.2016 - 15:23

country flag Fatou Thioune skrifaði:

Hi thank you for the pattern. i am stuck at the yoke. i don't understand the DIAGRAM A1 for example in first row, Is the yarn over stitch in off white? is the yarn over stitch always same as color following or preceding? in second row is yarn over in petrol or off white? thank you

25.10.2016 - 02:34

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Thiounne, make the YO (inc) in the main colour of pattern stripe, ie on 1st row in A.1 YO will be made with off white, and will be worked with off white on 2nd row (row 2 starts with 2 white squares = off white). Happy knitting!

25.10.2016 - 09:28