DROPS DESIGN skrifaði:
Hej igen Mary For å finne maskeantallet ditt før stjernen starter i størrelse 5/6 år teller du antall masker i A.1 på raden før stjernen (dvs 14 masker i 5/6 år) og ganger med antall rapporter (12 rapporter i størrelse 5/6 år) + 1 ekstra maske før stolpen (slik at mønsteret starter og slutter likt innenfor stolpen i hver side) + 10 stolpemasker = 179 masker. God fornøyelse!
26.02.2018 - 13:12
Mary Evensen skrifaði:
Plages med økinga 😯er det hver 7 maske ,som skal økes ,og neste omg 8 maske ?? får det ikke til og stemme på hver side . hvor mange m skal det være før begynner med stjernene på 5/6år ? trur jeg gir opp ,😐
02.02.2018 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hei Mary. På første pinne øker du ved å lage 1 kast om pinnen på begynnelsen av hver rapport med A.1, dvs strikk 5 stolpemasker i rille, * lag 1 kast om pinnen, strikk 7 masker rett med petrol *, strikk fra *-* til det gjenstår 6 masker på pinnen, strikk 1 maske rett med petrol og avslutt med 5 stolpemasker i rille = 107 masker i 5/6 år. På tredje pinne øker du på samme måte slik diagrammet viser, dvs strikk 5 stolpemasker i rille, * strikk 8 masker mønster, lag 1 kast om pinnen *, strikk fra *-* til det gjenstår 6 masker på pinnen, strikk 1 maske rett med naturhvit og avslutt med 5 stolpemasker i rille
26.02.2018 - 13:10
Mary Evensen skrifaði:
Er ferdig med vrangborden ,skal æ begynne og strikke den høyre bak da ,høres litt rart ut ,men det står. I mønstre😯😯😯😯😯😯
01.02.2018 - 18:04DROPS Design svaraði:
Hei Mary. Når du er ferdig med vrangborden, skal du strikke en forhøyning bak (5-6 rader for å få en bedre passform), deretter strikker du over hele bærestykket igjen. God Fornøyelse!
02.02.2018 - 07:00
Mary Evensen skrifaði:
Når skal jeg begynne med og strikke den høyre bak. Etter mønstret er ferdig .? Takk for svar
01.02.2018 - 17:49
Bodil Kruse Jensen skrifaði:
Hej! Jeg kan ikke få bærestykket til at passe, der står i opskriften at når A1 i st 2 år er færdigt måler det 14cm? Mit bliver ca dobbelt så stort. Hvad gør jeg forkert?
11.01.2018 - 14:09DROPS Design svaraði:
Hej, strikker du i DROPS Karisma og har du 21 m på 10 cm i bredden og 28 masker på 10 cm i højden? Hvis du feks bruger et tykkere garn eller strikker løsere end hvad vi har gjort, så bliver arbejdet for stort. God fornøjelse!
30.01.2018 - 10:16
Silje skrifaði:
Hvis man ønsker å sy strikke rundt og klippe opp kan man da bare bruke stolpene som klippemasker? Jeg strikker så mye raskere rett enn vrangt og mye gjevere også..
07.01.2018 - 01:46DROPS Design svaraði:
Hei Silje. Du kan trekker i fra stolpemaskene og legger til 5-6 oppklippsmasker, men husk å få mønstret riktig. God Fornøyelse!
10.01.2018 - 12:00
Ida skrifaði:
Tusen takk for forklaring på tidligere spm om mønsteret! Gikk veldig greit. Nå lurer jeg på: strikker ben. Er kommet til felling av to masker på innsiden av benet. Det står det "fell slik på hver 3. -4. -6. -7.omg totalt 10 ganger= 46m". Betyr det å felle på omg nr 3, så felle igjen neste omg som er nr 4, så strikke to omg og felle på nr 6 osv, eller betyr det å strikke 3 omg og felle, så strikke 4 omg og felle, så strikke 6 omg osv? Mvh Ida
05.12.2017 - 21:00DROPS Design svaraði:
Hej Ida, I din str feller du på hver 4. omg 10 ganger = 46 m. :)
06.12.2017 - 13:53
Chresa skrifaði:
Nun als frage: Ich bin nun an der Stelle, an der die Maschen für die Ärmel stillgelegt werden. Soweit so gut. Eine Sache verstehe ich dabei nicht : "6 neue M anschlagen (= unter dem Arm) und die restlichen..." Wie schlage ich diese Maschen an? Und, am Beginn nehme ich 6 neue Maschen auf, lege 50 Maschen still. Zähle ich die 6 dazu und lege also nur 44 still? Lg
25.11.2017 - 16:27DROPS Design svaraði:
Liebe Chresa, die Maschen schlagen Sie wie im Video unten gezeigt, dh wie in diesem anderen Video unten. Viel Spaß beim stricken!
27.11.2017 - 09:25
Chresa skrifaði:
Hallo zusammen! Ich bin nun an der Stelle, an der die Maschen für die Ärmel stillgelegt werden. Soweit so gut. Eine Sache verstehe ich dabei nicht : "6 neue M anschlagen (= unter dem Arm) und die restlichen..." Wie schlage ich diese Maschen an? Und, am Beginn nehme ich 6 neue Maschen auf, lege 50 Maschen still. Zähle ich die 6 dazu und lege also nur 44 still? Lg
25.11.2017 - 16:26DROPS Design svaraði:
Liebe Chresa, das Video unten zeigt wie man einen Pull von oben nach unten strickt, bei der Zeit ca 06:58 können Sie sehen, wie man die Maschen der Ärmel zuerst die Ärmelmaschen stilllegt, dann die neuen Maschen anschlägt, usw. Dieses Video schaut die Technik, dh stricken Sie wie in der Anleitung (nicht in der Runde + Maschenanzahl wie in der Anleitung folgen). Viel Spaß beim stricken!
27.11.2017 - 09:24
Chresa skrifaði:
Hallo zusammen! Ich bin an der Stelle wo die Ärmel stillgelegt werden.wie nehme ich dabei die 6 neuen Maschen auf und zähle ich die jeweils dazu? Bei dem ersten mal stilllegen nehme ich 6 neue auf der stillgelegten Nadel auf. bei den 2. Ärmel nehme ich 6 Maschen auf der nicht stillgelegten Nadel auf? Lg
25.11.2017 - 09:50
Wild Blueberries#wildblueberriesoverall |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sett með prjónuðum galla, prjónaður ofan frá og niður með norrænu mynstri og hringlaga berustykki, plús húfu með eyrnaleppum og dúsk úr DROPS Karisma. Stærð börn 1-6 ára
DROPS Children 27-1 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALLI: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan): Í þeim umferðum þar sem annað hvort eru rendur eða mynsturbekkur er prjónað með þeim lit í rönd eða grunnlit í mynsturbekk einnig yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið, en skipt er um þræði á milli kants að framan og fram- og bakstykki (þetta er gert til að sleppa við að festa enda yst í kanti að framan). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING: Til að reikna út hversu oft eigi að fella af/auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kant að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 7 lykkjur) = 10,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca í 10. og 11. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat – ATH: Lykkjur er ekki fækkað/felldar af yfir kant að framan). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi og innan verðu á skálm): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = byrjið frá röngu og prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagati eftir 1½-2 cm frá kanti í hálsmáli, fellið síðan af fyrir næstu 5-5-6-6 hnappagötum með 7½-8-7½-8 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Til að auðveldara verði að áætla lengd á ermum og skálmum er gallinn prjónaður ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 84-88-92-96 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á stutta hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan og endið eftir 1 umferð frá réttu (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 7-5-4-1 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-83-88-95 lykkjur. Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 12-13-14-15 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur þar til eftir eru 20-22-24-26 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið brugðnar lykkjur, þar til eftir eru 28-31-34-37 lykkjur í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni – ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð (= 11-12-11-12 mynstureiningar 6-6-7-7 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (til að mynstrið byrji og endi alveg eins innan við kant að framan í hvorri hlið – ATH: Ekki er aukið út í þessum lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynstri – LESIÐ LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 187-203-220-239 lykkjur á prjóni. Prjónið 0-1-0-1 cm með litnum grænn. Stykkið mælist nú ca 13-14-15-16 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Stykkið er síðan prjónað áfram í sléttprjóni með litnum grænn. Í fyrstu umferð frá réttu er aukið út um 7-7-10-7 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 194-210-230-246 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 29-31-34-36 lykkjur eins og áður, setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 52-56-62-66 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 42-46-50-54 lykkjur á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið 29-31-34-36 lykkjur sem eftir eru eins og áður. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 122-130-142-150 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 32-34-37-39 lykkjur inn frá hvorri hið (= 58-62-68-72 l á milli prjónamerkja á bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 10-10-12-12 cm aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-20-24-24 cm = 130-138-150-158 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-35-38 cm frá handveg endar kantur við miðju að framan. Fellið af fyrstu 3 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 124-132-144-152 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan sléttprjón í hring yfir allar lykkjur í ca 3 cm – stykkið mælist nú 32-34-38-41 cm frá handvegi og 45-48-53-57 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). Nú skiptist stykkið upp í skálmar. SKÁLM: Byrjið við miðju að framan, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón hringinn yfir fyrstu 62-66-72-76 lykkjur (þær 62-66-72-76 lykkjur sem eftir eru bíða á hringprjóninum). Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð (= innan á skálm). Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur á innanverðri skálm –lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls2-3-3-3 sinnum = 56-60-66-70 lykkjur. Fækkið lykkjum svona áfram í hverri 4-5-7-9 umferð alls 8-7-8-8 sinnum = 42-46-50-54 lykkjur. Þegar skálmin mælist 13-18-25-31 cm er aukið út um 10 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskuðu máli). Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 65-70-75-80 lykkjur. Síðan er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið lykkjur af hringprjóni á sokkaprjóna nr 4 og prjónið hina skálmina alveg eins. Allur gallinn mælist ca 66-74-88-98 cm frá miðju að framan (mælt án stroffs í hálsmáli). ERMI: Setjið inn lykkjur af öðrum þræði á sokkaprjóna nr 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-52-56-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6 lykkjur = mitt undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón í hring með litnum grænn. Þegar ermin mælist 2-2-1-1 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3.-3.-4.-4. hverri umf alls 7-9-10-12 sinnum = 34-34-36-36 l. Þegar ermin mælist 10-12-15-18 cm er aukið út um 6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8-8-10-10 cm (eða að óskaðri lengd). Í næstu umf eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 50-50-55-55 lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið hægi stroff-kant yfir vinstra stroff-kant og saumið neðst með smáu spori. Saumið tölur í vinstri stroff-kant. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkjurá eftir hverju prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). SNÚRA: Setjið 4 lykkjur saman á einn sokkaprjón nr 3. Prjónið 1 umferðir slétt, * færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt aftur yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* að óskaðri lengd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Fitjið upp 96-112 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum bensínblár DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-16 lykkjur jafnt yfir = 84-96 lykkjur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir A.2 (= 7-8 mynstureiningar 12 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 14 cm. Prjónið síðan með litnum grænn þar til stykkið mælist 15-17 cm. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3 sinnum = 36-48 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, prjónið 1 umferð slétt og prjónið allar lykkjur aftur slétt saman 2 og 2 = 9-12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 20-22 cm tilbúin. EYRNALEPPUR: Fitjið upp 40-44 lykkjur með litnum bensínblár DROPS Karisma og deilið lykkjum niður á 2 sokkaprjóna nr 3 með 20-22 lykkjur á hvorum prjóni. Prjónið sléttprjón í hring á þessum 2 prjónum – ATH: Herðið aðeins á þræði í hverri skiptingu á milli þessa 2 prjóna þegar prjónað er. Þegar eyrnaleppurinn mælist 5-6 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4-5 sinnum = 4 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan, yfir þær lykkjur sem eftir eru og þar til snúran mælist ca 20-25 cm. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur, herðið að og festið vel. Prjónið annan eyrnalepp á sama hátt. FRÁGANGUR: Leggið eyrnaleppana ca 3 cm inn undir stroffið á húfunni og saumið niður á röngu – ATH: Það á að vera ca 13-15 cm á milli eyrnaleppa að framan (= ca 7-9 cm á milli eyrnaleppa að aftan). Gerið einn dúsk með litnum grænn ca 4-5 cm að þvermáli og saumið dúskinn á toppinn á húfunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wildblueberriesoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.