Ariane skrifaði:
Just to make sure: do i use both yarns together when casting and knitting? Thanks in advance, ariane
11.08.2016 - 11:18DROPS Design svaraði:
Dear Ariane, you're right, you've to knit with two strands through all the pattern. Happy knitting!
11.08.2016 - 15:49
Vigdis Haugvaldstad skrifaði:
Har begynt på Winter Flair Drops 172-1 og jeg finner ikke diagram til A.5, A.6, A7 og A8 som det er referert til i oppskriften. Mangler det?
02.08.2016 - 13:38DROPS Design svaraði:
Hei Vigdis. Ja, de mangler. Vi tilföjer hurtigst muligt.
02.08.2016 - 15:04
Gro Hagen skrifaði:
Hei, jeg strikker Winter Flair .Det mangler mønster A5a,A6a,A7ogA8.
26.07.2016 - 22:00
Henriette Laumann skrifaði:
Ein toller Pullover,wenn das Muster verfügbar ist,ist das mein nächstes Projekt.
21.07.2016 - 12:40
Darlene skrifaði:
Love it - can't wait til the pattern comes out!
12.07.2016 - 22:03
Marilo skrifaði:
La forma de este jersey favorece mucho. Estiliza la figura. Deseando tener pronto los patrones de esta colección para tejer para el invierno. ¡Gracias!
03.07.2016 - 09:10
Amelia skrifaði:
Great design, very flattering to most figures, especially mine
01.07.2016 - 00:12
Dauphin Martine skrifaði:
Style de pull tunique de j'attendais depuis longtemps ! Dans l'idéal j'aurais aimé la même pointe sur les manches ! Mais déjà très bien !
28.06.2016 - 19:42Laura skrifaði:
Hola soy de Argentina y me encantan los modelos tejidos. Es un gusto tener acceso a los patrones, desde ya muchas gracias. Saludos.
27.06.2016 - 23:19
Michele skrifaði:
Love this design! Must add it to my 'to do' list
24.06.2016 - 22:04
Winter Flair#winterflairtunic |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð tunika úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með köðlum, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: Á ermum er aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Aukið út þannig: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Aukið út í hverri umf alls 0-2-4-0-0-0 sinnum. Aukið út í annarri hverri umf 22-23-23-27-24-26 sinnum. Aukið út í 4. hverri umf alls 0-0-0-0-2-2 sinnum (= alls 22-25-27-27-26-28 sinnum) = alls 48-54-60-60-62-66 l á hvorri ermi. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚRTAKA-1: Þegar prjónað er í hring er l fækkað þannig: Fækkið l við hvert prjónamerki þannig: Prjónið þar til eftir eru 3-3-3-5-6-6 l á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2-2-2-6-8-8 l garðaprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri). Þegar prjónað er fram og til baka er l fækkað þannig: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Prjónið 3-3-3-3-4-4 l garðaprjón, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri), prjónið mynstur eins og áður þar til 5-5-5-5-6-6 l eru eftir, 2 l slétt saman (= 1 l færri), endið með 3-3-3-3-4-4 l garðaprjón. ÚRTAKA-2 (á við um ermi): Fækkið við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri). AFFELLING: Ef affellingarkanturinn verður of stífur þá er hægt að fella af með ½-1 nr grófari prjónum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring ofan frá og niður. TUNIKA: Fitjið upp 80-84-86-92-96-102 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-18-20-22-26-28 l jafnt yfir = 102-102-106-114-122-130 l. Í næstu umf er prjónað mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, þannig: Prjónið A.1a yfir fyrstu 21-21-21-23-23-25 l, A.2a yfir næstu l, 1 l br, 1 l sl (= frá miðju að aftan), 1 l br, A.3a yfir næstu l, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l (= bakstykki), setjið 1. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 l sl, setjið 2. prjónamerki (= ermi), A.1a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l, A.2a yfir næstu l, 1 l br, 1 l sl (= miðja að framan), 1 l br, A.3a yfir næstu l, A.4a yfir næstu 21-21-21-23-23-25 l (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, 4-4-6-6-10-10 l sl, setjið 4. prjónamerki (= ermi). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a og A.4a hafa verið prjónuð 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b og A.4b á hæðina. Þegar A.2a og A.3a hafa verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 298-318-362-378-402-430 l í umf. Stykkið mælist ca 22-24-25-27-28-30 cm þar sem það er styst. Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram með A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, sláið uppá prjóninn, 1 l br, 1 l sl (= miðja að aftan), 1 l br, sláið uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki), A.1b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, sláið uppá prjóninn, 1 l br, 1 l sl (= miðja að framan), 1 l br, sláið uppá prjóninn, A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l, setjið næstu 48-54-60-60-62-66 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (= hliðarmerki) = 218-226-258-282-306-326 l. Prjónið 1 umf mynstur, uppslátturinn við miðju að framan og við miðju að aftan er prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt. Næsta umf er prjónuð þannig: Haldið áfram með * A.1b yfir fyrstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, A.2b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.5a yfir næstu l (aukið út um 1 l í A.5a), 1 l br, 1 l sl (= miðja að aftan/framan), 1 l br, A.6a yfir næstu l (aukið út um 1 l í A.6a), A.3b yfir næstu 27-29-37-39-44-47 l, A.4b yfir næstu 22-22-22-24-24-26 l eins og áður, 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2-2-2-6-8-8 l garðaprjón, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Í þessari umf er aukið út um 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkið um 2 l á hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 umf með mynstri eins og áður (= 1 umf án þess að slá uppá prjóninn í mynstri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og fækkið um 1 l hvoru megin við hvert hliðarmerki – LESIÐ ÚRTAKA-1. Í þessari umf er aukið út um 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan og fækkið um 2 l í hvorri hlið á stykki, þ.e.a.s. lykkjufjöldinn verður sá sami. UMFERÐ 3: Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 4: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 5: Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 6: Prjónið eins og umf 2. UMFERÐ 7: Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 8: Prjónið mynstur eins og áður. Í þessari umf er aukið út um 2 l fyrir miðju að framan og fyrir miðju að aftan = alls 4 l fleiri. Ekki er l fækkað á undan og á eftir hliðarmerkingum. Endurtakið umf 1 til 8 til loka. Þegar A.5a og A.6a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.5b og A.6a á hæðina. Nú er prjónað A.7 eftir A.5b og A.8 á undan A.6a við miðju að framan og fyrir miðju að aftan til loka, þ.e.a.s. útauknar lykkjur við miðju að framan/aftan eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 18 cm frá prjónamerki undir ermi, stillið af að síðasta umf sé 1 umf með uppslætti, skiptið stykkinu upp við hliðarmerkin, framstykki og bakstykki eru nú prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: (Byrjið við vinstra hliðarmerki. Fyrsta umf = frá röngu). Prjónið mynstur og endurtakið umf 1 til 8 eins og áður, en þær 3-3-3-3-4-4 síðustu l á hvorri hlið á stykki eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 30 cm frá prjónamerki undir ermi, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hvern kaðal. Fellið af – LESIÐ AFFELLING. BAKSTYKKI: Prjónið eins og framstykki. ERMI: = 48-54-60-60-62-66 l. Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5,5 og fitjið upp 6-6-6-10-12-12 l undir ermi = 54-60-66-70-74-78 l. Prjónið sléttprjón hringinn og setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-3-5-6-6 nýjar l hvoru megin við prjónamerkin). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2! Fækkið l svona með ca 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 9-12-14-15-16-17 sinnum = 36-36-38-40-42-44 l. Þegar ermin mælist 43-42-42-41-41-40 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterflairtunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.