Amelia skrifaði:
Ja meine Maschenprobe passte
08.07.2016 - 14:32DROPS Design svaraði:
In dem Fall empfehle ich, mehr Maschen anzuschlagen. Wahrscheinlich ist Ihr Anschlag fester als von uns geplant.
09.07.2016 - 14:52
Amelia skrifaði:
Also wenn ich die Größe S stricken will mit 62 M aufnehmen ? hab ich gemacht aber da passt ja noch nicht mal der Kopf durch und meine Maschenprobe stimmte. Sollen das wirklich nur 62 M sein?
01.07.2016 - 19:36DROPS Design svaraði:
Liee Amelia, wenn Ihr Maschenanschlag fest ist, können Sie die 10 zusätzlichen Maschen, die in der 1. Rd zugenommen werden, auch gleich anschlagen, also mit 72 statt 62 Maschen beginnen. Achten Sie aber darauf, dass das Material sehr dehnbar ist und eine zu weite Ausschnittkante unschön aussieht. Haben Sie die Maschenprobe gestickt und hat diese gepasst?
06.07.2016 - 08:53
Bea skrifaði:
Mir fehlt das Diagramm, die Zentimeterangaben sind wichtig,um die richtige Grösse zu wählen. Danke! Das Modell ist wunderschön, ich freue mich aufs stricken!
29.06.2016 - 14:11DROPS Design svaraði:
Liebe Bea, vielen Dank für den Hinweis, das Diagramm ist nun sichtbar.
30.06.2016 - 13:52
Ania skrifaði:
Enkelt vacker med rätt detaljer! Klart hållbar!
24.06.2016 - 16:15
Truus skrifaði:
Nice raglan detail on a simple sweater, like it!
20.06.2016 - 12:28
Gabi skrifaði:
Toll, der muss dabei sein!
19.06.2016 - 14:08
Lena Efverström skrifaði:
Såå fin!.....den blir det
12.06.2016 - 22:06
Lisette Van Raadshooven skrifaði:
Love, love, love!!
07.06.2016 - 21:41
Andrea skrifaði:
My absolute favorite
07.06.2016 - 13:28
Andrea skrifaði:
My absolute favorite!!
07.06.2016 - 13:27
Lilla Camilla#lillacamillasweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 172-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við prjónamerkin fjögur – ATH: Ekki er aukið út með sama lykkjufjölda á fram-/bakstykki og ermum. Aukið út um 2 l hvoru megin við fram- og bakstykki í annarri hverri umf (= 8 l fleiri): Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l. Í næstu l er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Aukið út um 1 l hvoru megin við fram- og bakstykki eða á hvorri ermi í annarri hverri umf (= 4 l fleiri að framan/aftan eða 4 l fleiri á ermi): Aukið út á undan prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki 1 l sl, sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki eða hvorri ermi í 4. hverri umf (= 4 l fleiri að framan/aftan eða 4 l fleiri á ermi): Aukið út á undan prjónamerki þannig: UMFERÐ 1: Byrjið 1 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat. UMFERÐ 3: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki (= engin l útaukin). UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: UMFERÐ 1: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat. UMFERÐ 3: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman (= engin l útaukin). UMFERÐ 4: Prjónið uppsláttinn slétt svo það myndist gat. ÚTAUKNING (á við um útaukning í hliðum á fram- og bakstykki): Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið l mitt undir ermi þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-62-66-74-78-78 l á stutta hringprjóna nr 4,5 með litnum perlugrár og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem aukið er út um 10 l jafnt yfir = 72-72-76-84-88-88 l. Skiptið yfir í stutta hringprjóna nr 5 og prjónið þannig (byrjun umf = miðja að aftan): 13-13-14-14-15-15 l sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 10-10-10-14-14-14 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 26-26-28-28-30-30 l sléttprjón (= framstykki), setjið eitt prjónamerki, 10-10-10-14-14-14 l sléttprjón (= ermi), setjið eitt prjónamerki og sléttprjón yfir síðustu 13-13-14-14-15-15 l í umf (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA OG LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umf byrjar útaukning fyrir laskalínu – LESIÐ ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU! Aukið út hvoru megin við 4 prjónamerki, en ekki er aukið eins út á fram-/bakstykki og ermum þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út um 2 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í annarri hverri umf 0-2-1-3-6-8 sinnum, aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í annarri hverri umf 20-21-24-24-22-22 sinnum og aukið út um 1 l í hvorri hlið á fram- og bakstykki í 4. hverri umf v 1-0-0-0-0-0 sinnum. ERMI: Aukið út um 1 l í hvorri hlið á hvorri ermi í annarri hverri umf 16-23-25-24-22-22 sinnum og aukið út um 1 l í hvorri hlið á hvorri ermi í 4. hverri umf 3-0-0-1-3-4 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 232-264-280-304-324-344 l í umf. Stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá öxl (19-21-22-23-25-27 cm frá uppfitjunarkanti). Nú er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 34-38-40-44-49-53 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 l (= framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa nýrra lykkja) og prjónið síðan þær 34-38-40-44-49-53 l sem eftir eru (= hálft bakstykki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-216-236 l. Prjónið í sléttprjóni í hring með litnum perlugrár þar til stykkið mælist 3 cm. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Aukið með 3 cm millibili 9 sinnum = 184-200-212-228-252-272 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 28-28-29-30-30-30 cm. Setjið l á milli 2. og 1. prjónamerkis á þráð (= bakstykki), síðan er prjónað fram og til baka yfir þær 92-100-106-114-126-136 l (= framstykki) sem eftir eru. Skiptið yfir í litinn ljós þoka, síðan er prjónað sléttprjón með 5 l GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram í 7 cm, síðan er prjónað 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af. BAKSTYKKI: Setjið til baka 92-100-106-114-126-136 l af þræði á hringprjóna nr 5. Prjónið sléttprjón með 5 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm er skipt yfir í litinn ljós þoka. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í 7 cm, prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af. ERMI: Setjið til baka l af þræði á stutta hringprjóna/sokkaprjóna nr 5 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-12 nýjar l undir ermi = 54-62-68-72-74-78 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýju l undir ermi – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn á hringprjóna/sokkaprjóna. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-2½-2-2-2-1½ cm millibili alls 10-13-15-16-17-18 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 34-36-38-40-40-42 l eftir í umf. Þegar ermin mælist 44-43-43-43-41-40 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið LAUST af. Ermin mælist ca 45-44-44-44-42-41 cm (ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lillacamillasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.