DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 173-16
DROPS Design: Mynstur nr ai-037
Garnflokkur C eða A+A
----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt frá miðju að aftan: ca 85.
Mælt meðfram kanti efst: ca 180 cm.

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
150 g litur nr 03, perlugrár
100 g litur nr 04, milligrár
50 g litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l x 17 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar.

SJAL:
Fitjið upp 4 l með litnum perlugrár á hringprjóna nr 7.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 6 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br fram þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl og setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 10 l og 4 l fleiri.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br fram þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 l sl (= prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 14 l og 4 l fleiri.
UMFERÐ 6: Prjónið 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br fram þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 7: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 l sl (= prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sl fram þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 22 l og 8 l fleiri.
UMFERÐ 8: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br fram þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 9: Prjónið eins og umf 7 = 30 l og 8 l fleiri.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 10: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br saman þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Endurtakið síðan umf 5-10 þar til stykkið mælist ca 36 cm í prjónstefnu = síðasta umf er frá röngu. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið og aukið út eins og áður í 4 umf. Skiptið yfir í litinn milligrár, prjónið og aukið síðan út áfram þar til stykkið mælist ca 50 cm í prjónstefnu = síðasta umf er frá réttu

KANTUR OG AFFELLING:
Til að kanturinn *rúllist ekki* ekki, er prjónað og fellt af þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 ls l *, endurtakið frá *-* út umf og endið með 1 l sl.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 l sl og * steypið fyrstu l yfir síðustu l sem var prjónuð, prjónið uppsláttinn og l sem steypt var yfir slétt saman og steypið síðan annarri l á hægri prjóni yfir síðustu prjónuðu l, prjónið 1 l sl *, endurtakið frá *-* út umf og fellið síðan af síðustu l.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2016
UMFERÐ 10: Prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni, prjónið allar l og uppsláttinn br saman þar til 1 l er eftir og prjónið 1 kantlykkju með garðaprjóni.
Endurtakið síðan umf 5-10 þar til stykkið mælist ca 36 cm í prjónstefnu = síðasta umf er frá röngu. Skiptið yfir í natur, prjónið og aukið út eins og áður í 4 umf. Skiptið yfir í milligrátt, prjónið og aukið síðan út áfram þar til stykkið mælist ca 50 cm í prjónstefnu = síðasta umf er frá réttu
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Nicole wrote:

Hei, det står: 2.P(= vrangen): Strikk 1 kant-m rille, strikk alle m og kast vrangt frem til det gjenstår 1 m og strikk 1 kant-m rille. kaster jeg vrangt mellom hver maske? Takk 😇

28.03.2024 - 00:02

DROPS Design answered:

Hei Nicole, Nei, du skal ikke lage kast på vrangen, men hver av kastene fra forrige raden er strikket vrangt, slik at det blir hullmønster. God fornøyelse!

04.04.2024 - 06:34

country flag Alexandra wrote:

Hej. Jag undrar om det har blivit fel i beskrivningen av mönstret. Sticka tills det mäter ca 36 cm i stickriktningen (. .....) sticka och öka sedan vidare tills arb mäter ca 50 cm i stickriktningen. Det innebär att sjalen skulle vara 50 cm i dess mitt, när mönstret säger ca 85 cm. Kan det vara så att man ska sticka 36 och sen över det 50? För då stämmer måtten. Tack

08.10.2023 - 14:31

DROPS Design answered:

Hei Alexandra. Sjalet skal måle ca 50 mål i strikkeretningen, mens den skal måle ca 85 cm fra starten og ned til tuppen (dette er ikke strikkeretningen). Om du ser på bildet ser du strikkeretningen er midt bak og mot låret til modellen (ca 50 cm), mens fra midt bak og ned til tuppen, langs hullmønstret, der skal det mål ca 85 cm. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 14:30

country flag Lila wrote:

Bonjour, que veut dire "comme avant" : "continuer en naturel et augmenter comme avant pendant 4 rangs" : que voulez vous dire aussi au sujet des 4 rangs ? quels sont ces 4 rangs où l'on doit augmenter, de quelles augmentations s'agit il ? "continuer ensuite en gris moyen et augmente comme avant" : j'ai la même question : quel avant de quoi ? cordialement

12.12.2021 - 13:57

DROPS Design answered:

Cf réponse ci-dessous - dites-nous si vous avez compris ou si vous avez une autre question, merci!

13.12.2021 - 09:46

country flag Lila wrote:

Bonjour, "répétez les rangs 5 -10 jusque l'ouvrage mesure environ 36cm ... continuer en naturel et augmenter comme avant pendant 4 rangs" : je ne comprends pas ce que veut dire "comme avant pendant 4 rangs" : comme avant quoi exactement ? et que voulez vous dire par "pendant 4 rangs" ? de quelles augmentations s'agit il ? "continuer ensuite en gris moyen et augmenter comme avant" : que veut dire là aussi "comme avant"

12.12.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Bonjour Lila, lorsque vous avez répété les rangs 5 à 10 vous avez augmenté: 4 mailles à chaque fois que vous avez répété le rang 5 et 8 mailles à chaque fois que vous avez répété les rangs 7 et 9. Lorsque vous avez atteint la longueur requise, continuez comme avant = en répétant toujours ces rangs et en augmentant comme avant aux rangs 5, 7 et 9, mais tricotez cette fois en naturel. Puis après ces 4 rangs, tricotez en gris moyen toujours comme avant, autrement dit, vous devrez répétez ces 6 rangs mais changez de couleur quand indiqué. Bon tricot!

13.12.2021 - 09:45

country flag Hella wrote:

Ik zie niet goed hoe de kleurverdeling is in relatie tot de hoeveelheid voorgeschreven garen. Ik zie maar twee kleuren. Welk deel is parelgrijs, welk deel grijs en welk naturel?

18.11.2021 - 22:40

DROPS Design answered:

Dag Hella,

Tussen de grijze rand en de grote driehoek in parelgrijs, zit nog een randje naturel. Op het eerste gezicht niet duidelijk te zien inderdaad, maar als je even inzoomt kun je het wel zien.

23.11.2021 - 12:38

country flag Radka Hajdušková wrote:

Dobrý den, v návodu je chyba. Má se opakovat řada 5 - 10, desátá řada není zmíněná v návodu.

22.08.2021 - 08:19

country flag Crystèle Cavaignac wrote:

Que signifie "dans le sens du tricot"? et je ne comprends pas comment il peut y avoir une bande de couleur différente autour du tricot en tricotant une couleur, la 2ème, puis la 3ème, cela devrait faire des bandes de couleur les unes au dessus des autres? ou alors, ce sont 2 triangles tricotés l\'un après l\'autre et montés ensemble ?

04.03.2021 - 15:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cavaignac, "dans le sens du tricot" signifie à partir du rang de montage jusqu'aux mailles sur l'aiguille, le long des mailles tricotées - le châle se tricote de haut en bas et en augmentant de chaque côté et de chaque côté de la maille centrale, ce qui va compliquer les mesures, d'où l'intérêt de bien mesurer où il faut. Bon tricot!

04.03.2021 - 16:02

country flag Ineke De Man wrote:

Kan ik Dorps Air vervangen door een ander garen? Het mag niet kriebelen! Hoor graag van u!

03.02.2021 - 21:47

DROPS Design answered:

Dag Ineke,

Als je er zeker van wilt zijn dat het niet kriebelt, kun je het beste Big Merino nemen. Deze valt in dezelfde garencategorie (namelijk categorie C)

06.02.2021 - 11:27

country flag Laurence wrote:

La photo montre un châle au point jersey (alternativement un rang endroit puis un rang envers) et l’explication indique un point mousse (ts les rangs à l’endroit) le point mousse ne semble utilisé sur la photo que pour la bordure en gris perle. Les explications correspondent elles bien à la photo c’est à dire à un châle au point Jersey ? Le cas échéant comment réaliser ce châle comme sur la photo ? Merci !

06.12.2020 - 09:29

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, les explications du châle correspondent bien au modèle photographié et on tricote effectivement en jersey - on explique simplement au tout début comment tricoter du point mousse (pour les mailles lisières et la bordure du bas du châle). Bon tricot!

07.12.2020 - 08:19

country flag Clara wrote:

Mi spiace disturbare ancora, tuttavia sempre al ferro 5, Ok per i 4 gettati ma non mi ritrovo con i segnapunti. Infatti la spiegazione, dopo il 3zo gettato dice nuovamente di lavorare sino alla maglia prima del segnapunti, ma io non ho altri segnapunti sul ferro oltre a quello precedente che é l’unico che mi é stato indicato di mettere al ferro 3. Quando e dove avrei dovuto mettere questo secondo segnapunti? Mi scuso ma vorrei proprio riuscire a farlo questo scialle. Grazie

16.10.2020 - 19:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Clara. Abbiamo corretto il testo. Deve lavorare finché non rimane 1 m sul ferro. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

16.10.2020 - 23:50