Malene skrifaði:
Ååh, tusen takk for hjelpen :-)
22.11.2016 - 21:27
Malene skrifaði:
Takk for svar :-) Men skulle gjerne fått det forklart litt mer.. 2 m mer på forkortet p. Hvor på p skal jeg øke maskene? Er det samme hvor bare jeg øker med 2?
21.11.2016 - 21:28DROPS Design svaraði:
Hej Malene. Du skal ikke öge, du skal strikke 2 m mere. Dvs, har du strikket 7 m förste gang för du vender, strikker du 9 naeste gang, saa 11 osv.
22.11.2016 - 15:40
Malene skrifaði:
Hei, etter pinne 12.. Det står gjenta 5.-12.P fram og tilbake. Skal jeg da strikke fra 5-12 og så fra 12 til 5 igjen? Og skal jeg legge til 2 masker hver gang jeg strikker forkortet pinne?
19.11.2016 - 22:45DROPS Design svaraði:
Hej Malene. Du strikker pinde 5 til 12 igen og ja du skal laegge 2 m til for hver forkortede p til du har strikket over totalt 26 m i hver side.
21.11.2016 - 14:40
Mirjam skrifaði:
Lovely scarf, I 'm knitting it in aqua grey mix, light petroleum and petroleum mix
01.11.2016 - 10:05
Christiane skrifaði:
Hei, jeg lurte på pinne 9 på sjalet ja.
26.10.2016 - 11:49
Tora skrifaði:
Hei, på pinne 6. Et kast og en vridd maske vrang for å unngå hull. Er det et vanlig kast på pinnen òg så en vridd maske? El hente opp en maske mellom pinnene og gjøre den vridd vrang?
25.10.2016 - 10:54
Christiane skrifaði:
Hei Er det mulig å få en ekstra forklaring på 9.P? Ev henvisning til video.
22.10.2016 - 22:45DROPS Design svaraði:
Hej Christiane. Er det 9. p til sjalet eller diagrammet du spörger til?
25.10.2016 - 12:43
Marjo skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas bien où se font les augmentations : 12m au rang 5 ET 12 m au rang 7, ou 6 à chaque fois? Et faut il répartir les augmentations dans le rang ou bien les ajouter en début ou en fin de rang? Merci
16.10.2016 - 17:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Marjo, on augmente 6 m à chaque fois que l'on tricote le rang 5 et 6 m à chaque fois que l'on tricote le rang 7, ainsi, en répétant les rangs 5 à 12, on augmente 12 m. Bon tricot!
17.10.2016 - 10:15
Hana skrifaði:
Není mi jasný návod na Pikotkové zakončení. Po nahození 3 nových ok na levé jehlici, pletu "první oko hladce" to poslední nahozené nebo původně první, čili nyní čtvrté? Díky za odpověď, Hanka
13.10.2016 - 11:42DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Hanko, jde o 1. oko po směru pletení, tj. od špičky jehlice (tedy poslední z nahozených 3 ok). Hodně zdaru! Hana
18.10.2016 - 06:55
Malene skrifaði:
Takk for svar, men er fortsatt litt usikker.. Er 1 rille 2 pinner med rettstrikk på alle maskene? (P betyr vel omgang?) Eller er det slik: På 4.P står det jo 1 kant-m RILLE, betyr det på første masken bare? Så blir det vrangstrikk fram til siste maske som skal strikkes rett? Så blir det en rett maske på hver side av maskene jeg strikker vrange? Er en kant-m RILLE rett og slett bare én maske som strikkes rett? :-)
12.10.2016 - 21:23DROPS Design svaraði:
Hej. 1 kant-m i RILLE er bare 1 maske
13.10.2016 - 12:16
Shades of Eire#shadesofeirescarf |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónað DROPS sjal með 2 þráðum úr Alpaca með stuttum umferðum, gatamynstri og röndum, prjónað ofan frá og niður.
DROPS 171-8 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: Prjónið rendur þannig: Fitjið upp með 2 þráðum í litnum gulgrænn og prjónið umf 1-12, endurtakið síðan umf 5-12 7 sinnum til viðbótar = 105 l. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum gulgrænn og 1 þráð í litnum dökk ólífa, endurtakið umf 5-12 alls 9 sinnum = 213 l. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum dökk ólífa og 1 þráð í litnum grænn/turkos, endurtakið umf 5-12 alls 8 sinnum = 309 l. Prjónið síðan mynstur A.1-A.5 með 2 þráðum í litnum grænn/turkos. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. SJAL: Fitjið upp 3 l á hringprjón nr 5 með 2 þráðum í litnum gulgrænn Alpaca. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l. UMFERÐ 3 (= rétta): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 9 l. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna (= miðjulykkja). UMFERÐ 4 (= ranga): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið br þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan og aukið út með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 6 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 l br, prjónið næsta uppslátt snúinn br svo ekki myndist gat, prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn br, prjónið 2 l br og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 8 (= stuttar umf frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2 l sl, 1 l snúin slétt (svo ekki myndist gat), 4 l sl, snúið stykkinu. ATH! Þessa umf á að prjóna slétt frá röngu svo að það myndist rönd í garðaprjóni séð frá réttu. UMFERÐ 9 (= rétta): lyftið 1. lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 7 l sl til baka. UMFERÐ 10 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn br (svo ekki myndist gat), prjónið 2 l br og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 11 (= stuttar umf frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 7 l sl, snúið stykkinu. UMFERÐ 12 (= ranga): Lyftið 1. af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 7 l sl til baka. ATH! Þessa umf á að prjóna slétt frá röngu svo það myndist rönd í garðaprjóni séð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið umf 5-12 fram og til baka, EN í hverri endurtekningu eru prjónaðar 2 l fleiri í stuttum umferðum þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar yfir alls 26 l í hvorri hlið. Haldið áfram eins og áður, en prjónið stuttar umferðir einungis yfir 26 l til loka (aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Eftir hverja endurtekningu hefur verið aukið út um 12 nýjar l (aukið er út í umf 5 og 7). Eftir síðustu rönd og endurtekningu af umf 5-12 eru 309 l á prjóni. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum grænn/turkos. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10 l þannig: Aukið út eins og áður hvoru megin við miðjulykkju (= 6 l) og aukið út um 4 l jafnt yfir (þ.e.a.s. 2 l hvoru megin við miðjulykkju, þessar l eru auknar út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 319 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Prjónið síðan eftir mynstri þannig: A.1 yfir 2 l, A.2 er endurtekið fram að 1 l á undan miðjulykkju, prjónið A.3 yfir næstu 3 l (miðjulykkja er í miðju A.3), endurtakið fram þar til 2 l eru eftir og prjónið A.5 yfir þessar l. Prjónið mynstur alls 1 sinni á hæðina. Klippið ekki frá, heldur fellið af með picot – sjá útskýringu að neðan. PICOT: Fellið laust af með sl frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, ((** stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkju), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar l á vinstri prjóni). * Prjónið fyrstu lykkju á vinstri prjóni slétt, lyftið fyrstu lykkju á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð *)), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið frá ((-)) meðfram öllu sjalinu þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shadesofeirescarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.