DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6226.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dragon Fire

Prjónað sjal úr DROPS Alpaca og DROPS Fabel með gatamynstri, röndum og sléttprjóni, prjónað ofan frá og niður.

DROPS 173-35
DROPS Design: Mynstur nr fa-361
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt fyrir miðju: ca 62 cm.
Mælt meðfram kanti efst: ca 168 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100 g litur nr 2925, dökk appelsínugulur
150 g litur nr 5565, vínrauður
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100 g litur nr 672, vínrauður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6226.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Allar rendurnar eru mældar í prjónstefnu.
20 cm með dökk appelsínugulur Alpaca og prjónið GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að neðan.
6 cm með vínrauður Fabel.
12 cm með vínrauður Alpaca og prjónið GATAMYNSTUR.
4 cm með dökk appelsínugulur Alpaca og prjónið GATAMYNSTUR.
6 cm vínrauður Fabel.
4 cm vínrauður Alpaca.

GATAMYNSTUR:
Gatamynstur er prjónað með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið sl frá röngu.
UMFERÐ 2: Prjónið sl frá réttu og aukið út eins og áður í hliðum og við prjónamerki.
UMFERÐ 3: 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, allar aðrar l og uppsláttur er prjónaður br frá röngu.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *-* og endið endurtekninguna minnst 1 sinni á undan l með prjónamerki í og prjónið sléttprjón eins og áður og aukið út við prjónamerki, prjónið sléttprjón minnst 1 l framhjá prjónamerki. Endurtakið frá *-* og endið endurtekninguna minnst 1 l á undan l með prjónameri í og prjónið sléttprjón eins og áður og aukið út við prjónamerki, prjónið sléttprjón minnst 1 l framhjá prjónamerki. Endurtakið frá *-* fram þar til eftir er minnst 3 l, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 l garðaprjón.
ATH: Passið uppá að prjónaðar séu jafn margar l (2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn) svo að lykkjufjöldinn er einungis aukin út við prjónamerki og á hliðum.
UMFERÐ 5: 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, allar aðrar l og uppsláttur er prjónaður br frá röngu.
UMFERÐ 6: Prjónið sl frá réttu og aukið út eins og áður í hliðum og við prjónamerki.
UMFERÐ 7: Prjónið sl frá röngu og skiptið síðan út lit fyrir næstu
RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3 með litnum dökk appelsínugulur Alpaca. Prjónið sléttprjón og aukið út þannig:
UMFERÐ 1: (= rétta) 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l.
UMFERÐ 2: (= ranga) Prjónið allar l slétt.
UMFERÐ 3: 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 4 l fleiri og 9 l á prjóni.
UMFERÐ 4 og síðan allar umf frá röngu: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið allar l og uppslátt br, uppslátturinn á að mynda göt.
UMFERÐ 5: 2 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 6 sinnum og 1 l sl = 6 l fleiri og 15 l á prjóni.
UMFERÐ 7: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 4 l fleiri og 19 l á prjóni.
UMFERÐ 9: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl og setjið eitt prjónamerki í þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, og setjið eitt prjónamerki í þessa l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 6 l fleiri og 25 l á prjóni.
UMFERÐ 11: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sl að fyrra prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki í), prjónið sl fram að og með l með seinna prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram þar til 2 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 4 l fleiri og 29 l á prjóni.
UMFERÐ 13: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl að fyrra prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að seinna prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 6 l fleiri og 35 l á prjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið síðan umf 11-14 á meðan prjónaðar eru RENDUR og GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Eftir síðustu röndina með litnum vínrauður Alpaca er þráðurinn ekki klipptur frá, heldur er fellt af með picot – sjá útskýringu að neðan.

PICOT:
Fellið laust af með sl frá réttu með litnum vínrauður Alpaca þannig:
Prjónið 1 l sl, ((** stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu l á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli l á prjóni, ekki í gegnum l), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar l á vinstri prjóni). * Prjónið fyrstu l á vinstri prjóni sl, takið fyrstu l á hægri prjón yfir síðustu l sem var prjónuð *)), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið frá ((-)) meðfram öllu sjalinu þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Jenna wrote:

Hi, I have 2 questions: 1. Which row of the stockinette portion am I supposed to work last before moving on to row 1 (WS) of the eyelet portion, row 14 (WS) or row 13 (RS)? I think I'm supposed to end by working row 13, but I'm not sure. 2. The stockinette portion increases on the RS rows 4-6-4-6-4-6 by repeating rows 11-14, but if I work the 3 RS rows in the eyelet portion as 4-6-4 and move back to rows 11-14 it ends up as 4-6-4-4-6-4-6-4-6. Am I missing something here? Thanks!

09.02.2020 - 22:27

DROPS Design answered:

Dear Jenna, the first row in the eyelet pattern is worked from WS, so that previous row should be a RS row. I'm sorry I don't understand your 2nd question, could you please tell more?

10.02.2020 - 09:53

country flag Elsje wrote:

Aan het eind van het breiwerk brei ik een picotrand. Wat er dan gebeurt is heel jammer: het breiwerk krult om! Ik heb het - met veel moeite! - weer uitgehaald en probeer het omkrullen nu te voorkomen door eerst maar een paar regels boordsteek te breien. Of hebben jullie een andere tip?

17.01.2020 - 11:51

DROPS Design answered:

Dag Elsje,

Het kan zijn dat je de picotrand iets te strak maakt, waardoor hij omkrult. Als dat niet het geval is en hij krult nog steeds om, dan zou je de rand op kunnen persen door het werk op de strijkplank te leggen, daarover heen een natte theedoek en dan heel, heel voorzichtig deppen met het strijkijzer. Je kan het werk ook blocken, zie deze video

18.01.2020 - 12:01

country flag DUCHENE wrote:

S'il vous plait : Pour le modèle 173-35 quelles couleurs commandées pour approcher le plus des couleurs de la photo ? (les n° que vous indiquez ne correspondent pas à la photo du châle) Je voudrais de l'orange. Merci bcp d'avoir rétabli la rubrique : "mes modèles préférés"

07.02.2019 - 16:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Duchene, les couleurs indiquées dans les explications sont bien celles du châle, toutefois, lors de la prise de photo, la luminosité peut donner un effet différent aux couleurs. Votre magasin DROPS pourra vous aider à choisir les couleurs, même par mail ou téléphone, n'hésitez pas à le contacter. Bon tricot!

08.02.2019 - 08:33

country flag Blume wrote:

Ist es richtig, dass abwechselnd einmal beidseitig der markierten Maschine und einmal nur einseitig zugenommen wird. Danke, Ute

23.12.2017 - 17:08

DROPS Design answered:

Liebe Blume, wenn Sie Reihe 11 wiederholen, nehmen Sie 1 M vor der 1. + vor der 2. Markierung auf. Wenn Sie Reihe 13 wiederholen, nehmen Sie 1 M beidseitig jeder den 2 Markierungen auf. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2018 - 08:13

country flag Gina Von Staden wrote:

Hallo, ich freue mich an den Farben und dem Muster dieses Tuches, komme aber mit den Maßen nicht klar. Wenn ich die Streifen zusammenzähle komme ich auf 52cm (20+6+12+4+6+4=52) in der hinteren Mitte, bei der Beschreibung steht jedoch, dass das Tuch in der hinteren Mitte 62cm lang sein soll. Wie erklärt sich diese Diskrepanz? Mir ist es wichtig, dass das Tuch am Ende groß genug ist. Vielen Dank! Gina

21.12.2017 - 18:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Van Staden, die Streifen werden in Strickrichtung gemessen, dann bei den Zunahmen wird es etwas länger sein. Viel Spaß beim stricken!

22.12.2017 - 07:52

country flag Antonella wrote:

Guardando la foto sembrerebbe che il motivo con i buchini sia in fondo ad ogni striscia di colore e non solo in fondo ad alcune. È così? Anche se purtroppo ormai sono già andato dritto seguendo le istruzioni.

08.12.2017 - 17:22

country flag Erika Klarner wrote:

Guten Tag, seit langer Zeit verarbeite ich drops-Garne und die kostenlosen Anleitungen Momentan stricke ich das Tuch DRAGON FIRE. Mir scheint, dass die Streifenreihen auf der Abbildung nicht der Anleitung entsprechen. Stimmt das? Mit freundlichen Grüßen und herzlichen Dank im Vorraus Erika Klarner

28.05.2017 - 11:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Klarner, Anleitung stimmt, bitte nicht vergessen, die Streifen in Strickrichtung messen. Viel Spaß beim stricken!

29.05.2017 - 09:48

country flag Bodil wrote:

Hej! De ränder man skall göra hålvarv i, stickar man det antal cm som står och sedan kommer hålvarvet, som t ex första randen, man stickar 20 cm och sedan kommer hålvarvet? Tänker jag rätt då? Tack på förhand./Bodil

09.11.2016 - 20:59

DROPS Design answered:

Hej Bodil, Ja du har helt rätt :)

16.03.2017 - 11:49

country flag Friederike wrote:

Ich habe zu diesem schicken Tuch ein paar Fragen: Man fängt mit 3 M an und dann wird zugenommen. Oder? Wird dann das Tuch von unten nach oben gestrickt? Ansonsten habe ich doch an der oberen langen Kante keine gerade Kante. Oder habe ich da in der Anleitung etwas falsch verstanden? Ansonsten stricke ich ab der 14. Reihe immer das Lochmuster und die ersten zwei und letzten zwei M einer Reihe kraus rechts. Oder? Danke für eine Rückmeldung. Viele Grüße, Friederike

07.08.2016 - 21:47

DROPS Design answered:

Liebe Friederike, man beginnt mit 3 Maschen und strickt wie angegeben von oben nach unten. Die Form (auch die obere Kante) ergibt sich durch die Zunahmen.

08.08.2016 - 08:50

country flag Pashmina wrote:

En vacker sjal

21.07.2016 - 07:59