Anne skrifaði:
Hallo, Ik heb het linkerachterpand/voorpand af en wil nu met het rechter deel beginnen. Maar ik ben even in de war. Er staat: "begin aan de verkeerde kant", gaat dat over het afkanten voor het armsgat of geldt dat voor het gehele patroon? Alvast bedankt
22.02.2017 - 10:19DROPS Design svaraði:
Hoi Anne. Je moet beginnen met het afkanten voor het armsgat aan de verkeerde kant.
22.02.2017 - 12:08
Leslie Jarvis skrifaði:
How do I determine which size I should knit? I don't see anyplace in the pattern that indicates that, for example, if I have a 36" bust, I should follow the M pattern instructions.
08.11.2016 - 20:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Jarvis, you will find at the bottom of the patern a measurement chart with all measurements for each size, taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape (eg width on back piece) to find out matching size. Happy knitting!
09.11.2016 - 08:53
Mary Nanson skrifaði:
I am knitting pattern # 173-6. I love the yarn and the pattern but I am not certain re the YO between 2 stitches. I understand the directions, but I'm not sure if the 2 stitches for the first YO would start after the A1 and before the first stitch in A2. Thanks for responding quickly so I can get one with it. Mary
03.11.2016 - 01:07DROPS Design svaraði:
Dea Mrs Nanson, the yo will be worked between 2 sts as in diagram, eg when you work A.1, A.2, A.3 (3rd row), work: P2 (= A.1), YO, K3, slip 1, K1, psso, K3 (= A.2), P4 (= A.4). On next row from WS, P all sts in A.2. Happy knitting!
03.11.2016 - 09:13
Krista Jørgensen skrifaði:
Super dejlig opskrift
09.08.2016 - 07:42
Dini skrifaði:
Mooi patroon. Deze wil ik maken
25.06.2016 - 12:24
Fanny Latour skrifaði:
Modèle hyper féminin, je l'adore !
17.06.2016 - 10:33
Shannon Furnish skrifaði:
I love the design. The model is stunning. The pattern is beautiful.
11.06.2016 - 15:25
FANI skrifaði:
ΩΡΑΙΟ ΠΑΤΡΟΝ ΚΑΙ ΠΟΛΥ ΩΡΑΙΑ ΠΛΕΞΗ!
08.06.2016 - 12:32
FANI skrifaði:
ΠΟΛΥ ΩΡΑΙΟ ΠΑΤΡΟΝ & ΩΡΑΙΑ ΠΛΕΞΗ
08.06.2016 - 12:02
April GLASPER skrifaði:
I love the shaping. It's flattering to all body shapes.
04.06.2016 - 08:31
Winter Bird#winterbirdcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.
DROPS 173-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið í 2 stykkjum og saumuð saman við miðju að aftan í lokin. Prjónað er frá miðju aftan á baki að miðju að framan. VINSTRA BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar l. Fitjið upp 144-144-144-156-156-156 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 2 l) * A.2 (= 8 l), A.3 (= 4 l) *, endurtakið *-* 10-10-10-11-11-11 sinnum til viðbótar, A.2 (= 8 l), endið með A.1 (= 2 l). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17½-18-19-20-23-24½ cm fellið af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 38 l, fellið af næstu 29-31-32-34-36-38 l, prjónið eins og áður yfir síðustu 77-75-74-84-82-80 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf eru fitjaðar upp 29-31-32-34-36-38 l yfir þær l sem felldar voru af og mynstrið heldur áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-44-46-48-54-57 cm prjónið 6 umf garðaprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hverja br mynstureiningu ca 4 l (fækkið l með því að prjóna 2 l slétt saman) = 122-122-122-132-132-132 l. Fellið LAUST af. HÆGRA BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og vinstra bakstykki/framstykki, en fellið af fyrir handveg eftir fyrstu 38 l með byrjun frá röngu og fitjið upp nýjar l frá réttu. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-38-40-40-44-44 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-12-12-13-12-11 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2½-2½ cm millibili alls 11-13-13-15-15-16 sinnum = 60-64-66-70-74-76 l. Þegar stykkið mælist 53-53-53-53-51-51 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum í hvorri hlið = 20-24-26-30-34-36 l. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58-58-58-58-56-56 cm. Prjónið aðra ermi. FRÁGANGUR: Saumið saman uppfitjunarkanta í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterbirdcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.