DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Winter Bird

Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, prjónuð frá hlið. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-6
DROPS Design: Mynstur nr bs-111
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 g litur nr 8465, milligrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-175-200-200-225-250 g litur nr 10, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með mynsturprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið í 2 stykkjum og saumuð saman við miðju að aftan í lokin. Prjónað er frá miðju aftan á baki að miðju að framan.

VINSTRA BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar l.
Fitjið upp 144-144-144-156-156-156 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið A.1 (= 2 l) * A.2 (= 8 l), A.3 (= 4 l) *, endurtakið *-* 10-10-10-11-11-11 sinnum til viðbótar, A.2 (= 8 l), endið með A.1 (= 2 l). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 17½-18-19-20-23-24½ cm fellið af fyrir handveg frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 38 l, fellið af næstu 29-31-32-34-36-38 l, prjónið eins og áður yfir síðustu 77-75-74-84-82-80 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf eru fitjaðar upp 29-31-32-34-36-38 l yfir þær l sem felldar voru af og mynstrið heldur áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-44-46-48-54-57 cm prjónið 6 umf garðaprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l yfir hverja br mynstureiningu ca 4 l (fækkið l með því að prjóna 2 l slétt saman) = 122-122-122-132-132-132 l. Fellið LAUST af.

HÆGRA BAKSTYKKI/FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra bakstykki/framstykki, en fellið af fyrir handveg eftir fyrstu 38 l með byrjun frá röngu og fitjið upp nýjar l frá réttu.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-38-40-40-44-44 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 11-12-12-13-12-11 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2½-2½ cm millibili alls 11-13-13-15-15-16 sinnum = 60-64-66-70-74-76 l. Þegar stykkið mælist 53-53-53-53-51-51 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 4 l alls 5 sinnum í hvorri hlið = 20-24-26-30-34-36 l. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58-58-58-58-56-56 cm. Prjónið aðra ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkanta í ystu lykkjubogana. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Leslie Jarvis wrote:

Thanks for your prompt reply! However I’m still not understanding the directions for binding off for the sleeve cap. If I’m making the smallest size and begin with a total of 60 sts, I begin the next row by binding off four sts, which leaves me with 56 sts. I turn the work, bind off another 4 and so on 3 more times, which is a total of 20 sts bound off and my remaining st count is 40, not 20.

14.08.2018 - 13:21

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jarvis, there are 60 sts after all increases have been done, now cast off 4 sts at the beginning of every row on each side (= both from RS and from WS) a total of 5 times: *work 1 RS row casting off the first 4 sts, turn and cast off 4 sts at the beg of next row from WS* ( = 8 sts are now cast off in total, 4 on each side), repeeat from *-* a total of 5 times (= 8 sts x 5 = 40 sts are now cast off = 60-40= 20 sts remain. Happy knitting!

14.08.2018 - 16:26

Leslie Jarvis wrote:

I have a question about the directions for casting off the sleeve cap. It says at the beginning of every row “Cast off 4 sts 5 times in total in each side = 20-24-26-30-34-36 sts.” Are the numbers 20-24-26 etc the total number of sts cast off, or the total number of sts remaining? My understanding of the directions is that I should cast off 4sts at the beginning of each row for the next 5 rows, but I’m not sure I have that correct.

14.08.2018 - 05:00

DROPS Design answered:

Dear Leslie, yes, the number 20-24-26-30-34-36 refers to the number of stitches left on the needles after you cast of. You understand the directions correctly, you have to cast of the 4 stitches at the beginning of every row for the next row. Happy Knitting!

14.08.2018 - 07:57

country flag Karlijn wrote:

Hoi, Ik heb het vest af en het patroon is prachtig geworden. Nu heb ik alleen nog een vraag over het in model krijgen van het vest. Wat moet ik doen om het zo in model te krijgen zoals op de foto? Als ik het nu aan trek dan zit het nog niet helemaal zoals het zou moeten. Alvast bedankt!

01.11.2017 - 10:43

DROPS Design answered:

Hallo Karlijn, Waarschijnlijk bedoel je dat het kantpatroon nog een beetje 'in elkaar zit'. Om het mooi plat te krijgen pers ik dit altijd op met het strijkijzer. Maar LET OP: doe dit heel voorzichtig. Gebruik een oude theedoek, bevochtig deze en leg deze over het werk heen op de strijplank. Dan heel voorzichtig en kort met het strijkijzer er over.

01.11.2017 - 18:42

country flag Linda wrote:

Hur ska man göra vid hålet för armen? Ska man bara avmaska och på nästa varv lägga upp nya maskor (så det blir ett litet hål) eller har det blivit något fel i mönstret?

25.09.2017 - 23:46

DROPS Design answered:

Jo, du ska göra precis som det står i mönstret. Ärmhålet kommer att bli tillräckligt stort då det stickas vidare.

26.09.2017 - 14:32

country flag Rubina wrote:

Buongiorno, vorrei sapere se per questo modello posso sostituire il Kid-Silk con Brushed Alpaca Sik

18.08.2017 - 10:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Rubina, il modello è lavorato con 1 capo per qualità, quindi 2 capi di filati appartenenti al gruppo A (= 1 capo del gruppo C). Se vuole può utilizzare 1 capo di Brushed Silk che appartiene al gruppo C, controllando che il campione corrisponda a quello indicato. Buon lavoro!

18.08.2017 - 11:26

country flag Markéta Vlková wrote:

Kterou přízi typu C a kolik byste mi prosím doporučili tak, aby co nejlépe vyhovovala velikosti L? Děkuji.

03.05.2017 - 14:26

DROPS Design answered:

Milá Markéto, na tento kabátek je ideální vzdušná příze Air - na velikost L budete potřebovat 9 klubíček. Hodně zdaru! Hana

05.05.2017 - 08:06

country flag MKR wrote:

Kann man die Jacke auch mit einem provisorischen Anschlag stricken, so dass man am Ende nicht zusammennähen muss?

06.04.2017 - 09:11

DROPS Design answered:

Liebe MKR, so können Sie auch gerne stricken. Viel Spaß beim stricken!

06.04.2017 - 09:42

country flag Emma wrote:

Hi! I would like to knit this for my mother in law but she doesn't like 'fluffy' wool. Am I correct in thinking I can use a group C yarn instead of the two group A yarns? How do I work out how much I need and are there any yarns you would recommend? Thank you!

30.03.2017 - 18:17

DROPS Design answered:

Dear Emma, that's right you can use any other yarn group A or replace 2 threads yarn group A with 1 thread yarn group C, read more here. Happy knitting!

31.03.2017 - 08:49

country flag Sissel wrote:

Jeg forstår ikke helt; dette skal være en jakke med hullmønster (synes tydelig på modellen), men man skal strikke kastene vridd vrangt for å unngå hull? Og i øketips står det at man skal øke innenfor en rillemaske og en rett, men A1 er jo vrang hele veien fra retten.. Er det feil i oppskriften eller er det jeg som misforstår?

04.03.2017 - 09:16

DROPS Design answered:

Hej Sissel. Du strikker ikke kastene i mönstret vrid. Det med vrid gaelder kun for ökningerne ikke diagrammet.

06.03.2017 - 15:14

country flag Anne wrote:

Hallo, Ik heb het linkerachterpand/voorpand af en wil nu met het rechter deel beginnen. Maar ik ben even in de war. Er staat: "begin aan de verkeerde kant", gaat dat over het afkanten voor het armsgat of geldt dat voor het gehele patroon? Alvast bedankt

22.02.2017 - 10:19

DROPS Design answered:

Hoi Anne. Je moet beginnen met het afkanten voor het armsgat aan de verkeerde kant.

22.02.2017 - 12:08