DROPS Super Sale - 6 vinsælar garntegundir á afslætti allan mánuðinn!
Product image DROPS Muskat yarn
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 68-23
DROPS Design: Mynstur nr R-390
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L

Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
250-300-300 gr litur nr 28, rauðbrúnn
100-100-100 gr litur nr 38, dökk plómu
50-100-100 gr litur nr 49, dökk beige
50-100-100 gr litur nr 23, beige
50-100-100 gr litur nr 22, dökk brúnn
50 - 50 - 50 gr litur nr 35, dökk sinnepsgulur
50 - 50 - 50 gr litur nr 32, turkos
50 - 50 - 50 gr litur nr 08, natur

Nokkrir litir fást ekki lengur, hægt er að nota þessa liti í staðin (sjá einnig á nærmynd):
DROPS Muskat frá Garnstudio
250-300-300 g nr 79, vínrauður (í staðinn fyrir nr 28, rauðbrúnn)
50-100-100 g nr 09, ljós brúnn (í staðinn fyrir nr 22, dökk brúnn)
50 - 50 - 50 g nr 51, ljós appelsínugulur (í staðinn fyrir nr 35, dökk sinnepsgulur)

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3, 3,5 og 4 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með mynstri verði 10 x 10 cm og 23 l og 40 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl, 1 umf br *, endurtakið frá *-*

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu – M.1 til M.7 og A.1a og A.1b. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (á við um berustykki að aftan): Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkað er um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um berustykki að framan): Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Lykkjum er fækkað þannig: Prjónið 1 l sl, 3 l slétt saman, prjónið síðan lykkjurnar slétt fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan þeirri lykkju, prjónið l slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið áfram slétt þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt. Allar l eru prjónaðar slétt til baka, nema uppslátturinn sem er prjónaður snúinn slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kjóllinn er prjónaður í hring á hringprjón, neðan frá og upp.

KJÓLL:
Fitjið laust upp 252-288-324 l á hringprjón nr 4 með litnum rauðbrúnn DROPS Muskat.
Prjónið 2 umf garðaprjón í M.1. Skiptið yfir á hringprjón nr 3,5 og prjónið áfram M.1 litaskiptum eftir A.1a og A.1b upp úr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 28 cm byrjar úrtaka. Fækkað er um 14-16-18 l í hverri úrtöku umferð, þ.e.a.s. fækkað er um 2 l í annarri hverri mynstureiningu að auki við úrtöku umferð. Þetta er gert svona að öldumynstrið minnki.
Prjónið 1. úrtöku = 238-272-306 l, haldið áfram með M.2.
Þegar stykkið mælist 33 cm er prjónuð 2. úrtaka = 224-256-288 l,
Haldið áfram með M.3.
Þegar stykkið mælist 38 cm er prjónuð 3. úrtaka = 210-240-270 l,
Haldið áfram með M.4.
Þegar stykkið mælist 42 cm er prjónuð 4. úrtaka = 196-224-252 l,
Haldið áfram með M.5.
Þegar stykkið mælist 47 cm er prjónuð 5. úrtaka = 182-208-234 l,
Haldið áfram með M.6.
Þegar stykkið mælist 53 cm er prjónuð 6. úrtaka = 168-192-216 l,
Haldið áfram með M.7.
Þegar stykkið mælist 65-66-67 cm er skipt yfir á hringprjón nr 3 og prjónið til loka með litnum rauðbrúnn í garðaprjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið garðaprjón fram og til baka frá annarri hliðinni í 11-12-12 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, 86-98-110 l = framstykki, fellið af 7 l fyrir handveg, 68-80-92 l = bakstykki, fellið af 4 l fyrir handveg. Fram- og bakstykki eru nú prjónað til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 68-80-92 l. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf – sjá ÚRTAKA-1 – Fellið af 1 l alls 7-10-14 sinnum = 54-60-64 l, fellið af.

FRAMSTYKKI:
= 86-98-110 l. Setjið 43-49-55 l í annarri hliðinni á þráð og hvort brjóststykki eru prjónað áfram hvort fyrir sig.

1. Brjóststykki: Setjið 1 prjónamerki í miðju á þeim 43-49-55 l sem eftir eru á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað og aukið út þannig að stykkið verður þríhyrningslaga – sjá ÚRTAKA-2 að ofan. Með því að fækka lykkjum svona er fækkað um 2 lykkjur í hverri umf. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 16-19-22 sinnum = 11-11-11 l eftir á prjóni.
Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þessar 11 l fyrir band / hlýra. Fellið af þegar bandið / hlýrinn mælist ca 30 cm – mátið kjólinn til þess að lengdin á bandinu / hlýra verði rétt.
2. Brjóststykki: Setjið 43-49-55 l af þræði á prjóninn og prjónið á sama hátt og 1. Brjóststykki.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma á berustykki – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið böndin á öxlum / hlýra við bakstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.05.2006
Útskýring á táknum í mynsturteikningu. Litur nr 23 beige er notaður ekki ljós beig nr 61

Mynstur

rauðbrúnn, litur nr 28 = rauðbrúnn, litur nr 28
dökk appelsínugulur, litur nr 49 = dökk appelsínugulur, litur nr 49
dökk plóma, litur nr 38 = dökk plóma, litur nr 38
dökk sinnepsgulur, litur nr 35 = dökk sinnepsgulur, litur nr 35
turkis, litur nr 32 = turkis, litur nr 32
beige, litur nr 23 = beige, litur nr 23
natur, litur nr 08 = natur, litur nr 08
dökk brúnn, litur nr 22 = dökk brúnn, litur nr 22
úrtaka = úrtaka
sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt = sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
3 lykkjur slétt saman = 3 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir þær lykkjur sem prjónaðar voru slétt saman = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir þær lykkjur sem prjónaðar voru slétt saman
slétt lykkja (á við um M.1-M.7) = slétt lykkja (á við um M.1-M.7)
Diagram for DROPS 68-23
Diagram for DROPS 68-23
Diagram for DROPS 68-23
Diagram for DROPS 68-23
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 68-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (72)

country flag Hilda skrifaði:

Hoi, is het ook mogelijk om mij een beschrijving te bezorgen van het patroon, om dit met gewone naalden te breien ipv rondbreinaald? Want dit lukt mij helaas niet :( ik heb het Drops garen in 1 kleur, dus het zou gewoon een effen kleedje worden.. maar kan niet goed uit aan het patroon, mits er geen teruggaande naalden bij vermeld staan. Alvast bedankt!

08.06.2020 - 15:56

DROPS Design svaraði:

Dag Hilda,

Dit patroon is er helaas allen voor de rondbreinaald. Je zou het patroon zelf aan kunnen passen en de voor en achterpanden in twee aparte delen kunnen breien, waarbij je een kantsteek aan beide kanten van elk pand opzet, om hem later in elkaar te naaien. Alle teruggaande naalden brei je dan averecht en de heengaande naalden brei je de omslagen en minderingen.

10.06.2020 - 11:53

country flag Thea skrifaði:

In het 2e diagram zie ik M1 en 1. In de lijn met alleen een cijfer zie ik een mindering. Begin ik het patroon meteen vanaf M1 en dan in de lijn met alleen een cijfer de mindering? Er staat namelijk bij mijn diagram geen pijl.

15.04.2020 - 18:36

DROPS Design svaraði:

Dag Thea,

Volgens mij zijn de telpatronen een tijdje geleden vervangen en hoef je niet meer naar de pijlen te kijken. In het patroon staat aangegeven op welke hoogte je de minderingen maakt in M.1, M.2, enz. Dus je herhaalt de eerste 2 naalden van M.1 steeds totdat aangegeven wordt in het patroon dat je de minderingen kunt maken. Dan brei je de naald met het getal en de naald die daarop volgt. Vervolgens ga je verder met M.2 totdat je opnieuw op de juiste hoogte bent om minderingen te maken, enzovoort.

16.04.2020 - 11:18

country flag Evelyne Vivier skrifaði:

Bonjour je suis vraiment désolée je ne comprends toujours pas pouvez vous m expliquer autrement. Toutes mes excuses mais je ne vois pas comment on diminue au niveau du marqueur. Dites moi dans quel sens on va!!!!!! Merci \\\\\\\\r\\\\\\\\nCordialement Evelyne

14.05.2018 - 19:34

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vivier, on ne diminue pas au niveau du marqueur, on diminuer au début et à la fin du rang, et en même temps, on augmente de chaque côté du marqueur = on diminue 2 m au début du rang et 2 m à la fin du rang et en même temps, sur le même rang, on augmente 2 m au marqueur = on va diminuer 2 m au total. Bon tricot!

15.05.2018 - 09:59

country flag Evelyne Vivier skrifaði:

Bonjour je ne comprends pas les diminutions pour le devant astuce 2 .\r\n J\'ai mis mon marqueur au milieu de mes 43m et après je suis bloquée . Merci pour votre réponse . Cordialement Evelyne

13.05.2018 - 12:27

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vivier, placez bien votre marqueur dans la m centrale (= 21 m, mettez un marqueur dans la m suivante, 21 m). Diminuez ensuite ainsi: 1 m end, 3 m ens à l'end (= on diminue 2 m), faites 1 jeté de chaque côté de la maille avec le marqueur (= 2 augm), continuez jusqu'à ce qu'il reste 4 m et diminuez 2 m (= glissez 1 m à l'end, 2 m ens à l'end, p assez la m glissée par-dessus la m tricotée), 1 m end = vous avez diminué 4 m et augmenté 2 m = vous avez diminué 2 mailles seulement sur ce rang. Bon tricot!

14.05.2018 - 11:46

country flag Evelyne Vivier skrifaði:

Bonjour Merci pour votre réponse. J'ai bien compris la diminution mais je j'obtiens pas le bon nombre de mailles entre les jetés Pouvez vous m expliquer à nouveau Merci Evelyne

02.05.2018 - 10:07

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vivier, à la 1ère diminution (flèche 1), tricotez les premières m comme avant: 2 m ens à l'end, 6 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 6 m end, 1 dim, 1 m end, puis tricotez 3 m ens à l'end (= 12ème symbole = 2 dim), 5 m end, 1 jeté, 5 m end, glissez 1 m à l'end, 2 m ens à l'end, passez la m glissée par dessus la m tricotée (= 2 diminutions = avant-dernier symbole). Bon tricot!

02.05.2018 - 10:53

country flag Evelyne Vivier skrifaði:

Bonjour je n arrive pas à faire les diminutions 1 je n'ai pas le bon nombre de mailles entre les deux Comment dois-je suivre le diagramme sur les 36m Merci Cordialement Evelyne

30.04.2018 - 15:14

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vivier, en bas de la robe, tricotez d'abord M.1 puis diminuez en suivant les 2 rangs 1. = celui avec la flèche (= on diminue au 1er de ces 2 rangs), tricotez ensuite en suivant M.2. À 33 cm, tricotez les 2 rangs 2. avec la flèche (= diminutions) et tricotez ensuite M.3, et ainsi de suite, tricotez le diagramme indiqué puis, pour diminuer, tricotez les 2 rangs suivant avec la flèche. Bon tricot!

02.05.2018 - 09:21

country flag Lisa Nyberg skrifaði:

Hej från en nybörjare som vill prova att göra en enkel klänning och fann den här. Kan jag använda mönstret för att göra den enfärgad och utan sick-sack-mönstret eller är det bättre att jag letar upp ett annat mönster?

26.02.2018 - 19:50

DROPS Design svaraði:

Hej Lisa, Jo men det bør du kunne, men sørg for at få samme strikkefasthed som der står i opskriften, så målene stemmer med dem du finder i måleskitsen nederst. God fornøjelse!

27.02.2018 - 13:33

country flag Joan Honoré skrifaði:

Hej, tak for svar. Kombinerer jeg muskat og cotton light ? og hvilke farve nr vil i foreslå at jeg bruger istedet for 22,28+35 ? Farverne snydere somme tider på en skærm :-)

15.06.2017 - 18:30

DROPS Design svaraði:

Hei Joan. Fargevalg er så personlig at det beste er at du velger de fargene du mener passer deg best, enten i bare Muskat eller i Cotton Light. God Fornøyelse!

16.06.2017 - 06:57

country flag Joan skrifaði:

Hej, tak for svar. Kombinerer jeg muskat og cotton light ? og hvilke farve nr vil i foreslå at jeg bruger istedet for 22,28+35 ? Farverne snydere somme tider på en skærm :-)

11.06.2017 - 09:21

country flag Chris skrifaði:

Hva med bakstykket på denne kjolen? Det står at en skal felle av alle 60 m. på bakstykket. Stemmer dette? Det kan være noe jeg ikke har klart å lese av oppskriften. Forslag/erfaringer tas i mot med takk på hvordan jeg skal gjør det med bakstykket :)

10.06.2017 - 12:34

DROPS Design svaraði:

Hei Chris. Ja, det stemmer. Kjolen strikkes på rundp fra nederkant av skjørtet og opp, når arb måler 66 cm (str M) byttes det til rundp 3 og strikkes ferdig med terrakotta og rillestrikk. Fell til ermhull, deretter strikkes for- og bakstk ferdig for seg. Bakstk: = 80 m. Videre felles det til ermhull i hver side på hver 2.p - se Felletips: 1 m i alt 10 ganger = 60 m, fell av. Du er nå ferdig med bakstykket og skal nå strikke forstykkene inkl stroppene, disse stroppene skal så festes i bakstykket. Se bildet av ryggen. God Fornøyelse!

12.06.2017 - 08:19