DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Cotton Light yarn
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Seashore Bliss Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og hringlaga berustykki. Hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 169-16

#seashoreblisscardigan

DROPS Design: Mynstur nr cl-057
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
450-500-550-600-650-750 g nr 02, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 396.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3564.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Mynsturteikning A.9 sýnir hvernig hver umf er hekluð saman þegar heklað er í hring.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Þegar heklað er í hring:
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 kl í 1. ll í byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG:
Stærð S, M och XL: Í síðustu mynstureiningu af A.2 á undan prjónamerki 1 og prjónamerki 3 (= byrjun á handveg) er síðustu loftlykkju í mynsturteikningu skipt út fyrir stuðul í lykkju að neðan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður. ATH: Mikilvægt er að halda heklfestunni á hæðina svo að lengdin á berustykkinu passi.

BERUSTYKKI:
Heklið 123-123-134-134-138-140 ll með heklunál nr 4 með Cotton Light. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 0-0-4-4-1-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 104-104-114-114-117-119 st.

Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og aukið út 19-19-21-21-30-40 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 123-123-135-135-147-159 st.
Heklið næstu umf og setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið A.1 (= 5-5-8-8-5-8 l), endurtakið A.2 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 st (= 3-3-3-3-4-4 sinnum á breiddina), setjið 1. prjónamerki, A.4 yfir fyrstu 4 st, setjið 2. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 3. prjónamerki, A.4 yfir næstu 4 st, setjið 4. prjónamerki, heklið A.2 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), setjið 5. prjónamerki, A.4 yfir næstu 4 st, setjið 6. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 7. prjónamerki, A.4 yfir næstu 4 st, setjið 8. prjónamerki, A.2 yfir næstu 18-18-18-18-24-24 st (= 3-3-3-3-4-4 sinnum á breiddina), endið með A.3 (= 6-6-9-9-6-9 st).
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

STÆRÐ XXL-XXXL:
Í umf 5 (umf með st frá réttu) í A.2 er aukið jafnt út þannig:
Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út 6-6 st.
Nú hefur verið aukið út um 12-12 st alls í umf (= 18-18 st á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis). A.2 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis). A.2 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis.

ALLAR STÆRÐIR:
Í umf 6 (umf með st frá röngu) í A.2 er aukið út jafnt yfir þannig:
Á undan 8. prjónamerki: Aukið út um 0-3-3-3-6-6 st (= 24-27-30-30-36-39 st á undan 8. prjónamerki).
Á milli 7. og 6. prjónamerkis og 3. og 2. prjónamerkis: Aukið út um 0-0-6-6-6-6 st (= 12-12-18-18-24-24 st á milli þessa merkja).
Á milli 5. og 4. prjónamerkis: Aukið út um 0-6-6-6-12-12 st (= 36-42-48-48-60-66 st á milli þessa merkja).
Á eftir 1. prjónamerkið: Aukið út um 0-3-3-3-6-6 st (= 23-26-29-29-35-38 st á eftir 1. prjónamerki). Þá eru alls 179-191-215-215-251-263 st í umf.

Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 5-5-8-8-5-8 st eins og áður, A.5 yfir næstu 0-3-3-3-0-0 st, endurtakið A.2 yfir næstu 18-18-18-18-30-30 st (= 3-3-3-3-5-5 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 st (= 2-2-3-3-4-4 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 36-42-48-48-60-66 st (= 6-7-8-8-10-11 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 12-12-18-18-24-24 st (= 2-2-3-3-4-4 sinum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 18-18-18-18-30-30 st eins og áður (= 3-3-3-3-5-5 sinnum á breiddina), A.5 yfir næstu 0-3-3-3-0-0 st, endið á A.3 yfir síðustu 6-6-9-9-6-9 st eins og áður.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Í umf 8 (umf með st frá röngu) í A.2 er aukið út jafnt yfir þannig:
Á undan 8. prjónamerki: Aukið út um 3-3-3 st (= 33-39-42 st á undan 8. prjónamerki).
Á milli 4. og 5. prjónamerkis: Aukið út um 6-6-6 st (= 54-66-72 st á milli 4. og 5. prjónamerkis).
Á eftir 1. prjónamerki: Aukið út um 3-3-3 st (= 32-38-41 st á eftir 1. prjónamerki).
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu 8-5-8 st eins og áður, A.5 yfir næstu 0-3-3 st, endurtakið A.2 yfir næstu 24-30-30 st eins og áður (= 4-5-5 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 18-24-24 st (= 3-4-4 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 54-66-72 st (= 9-11-12 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 18-24-24 st (= 3-4-4 sinnum á breiddina), A.4 eins og áður, endurtakið A.2 yfir næstu 24-30-30 st eins og áður (= 4-5-5 sinnum á breiddina), A.5 yfir næstu 0-3-3 st, endið á A.3 yfir fyrstu 9-6-9 st eins og áður.

ALLAR STÆRÐIR:
Í síðustu umf í A.4 (= frá röngu) setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í hvert mynstur A.4 (þ.e.a.s. 18 st hvoru megin við prjónamerki í A.4 = 4 prjónamerki). Takið frá eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja ermar (= 48-48-54-54-60-60 st á hvorri ermi). Þegar A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 251-263-287-299-335-347 st í umf. Berustykkið er nú tilbúið í stærð S.

STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL:
Heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið A.6 yfir fyrstu 8-5-8-8-5 st, haldið áfram með A.2 yfir næstu 18-24-24-30-36 st (= 3-4-4-5-6 sinnum á breiddina), * A.7 yfir næstu 36 st (= 2 sinnum á breiddina, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa endurtekninga), A.2 yfir næstu 12-18-18-24-24 st (= 2-3-3-4-4 sinnum á breiddina), A.7 yfir næstu 36 st (= 2 sinnum á breiddina, prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa endurtekninga) *, A.2 yfir næstu 42-48-54-66-72 st eins og áður, endurtakið frá *-*, A.2 yfir næstu 18-24-24-30-36 st (= 3-4-4-5-6 sinnum á breiddina), endið á A.8 yfir síðustu 9-6-9-9-6 st. Heklið 1-2-3-4-4 umf af A.7.

ALLAR STÆRÐIR:
Stykkið mælist nú 17-18-19-20-21-21 cm á hæðina.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
STÆRÐ M-XL:
Heklið frá röngu þannig: Heklið A.8 eins og áður, endurtakið A.2a (sjá ör hvar mynstrið byrjar eftir stærðum) alls 6-7 sinnum á breiddina fram að 1. Prjónamerki (= hægra framstykki), heklið 8-10 ll, hoppið yfir l á milli 1. og 2. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 13-15 sinnum á breiddina fram að næsta prjónamerki (= bakstykki), heklið 8-10 ll, hoppið yfir l á milli 3. og 4. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 6-7 sinnum á breiddina, endið á A.6. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

STÆRÐ S-L-XXL-XXXL:
Heklið frá réttu þannig: Heklið A.6, endurtakið A.2a (sjá ör hvar mynstrið byrjar eftir stærðum) alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina fram að 1. prjónamerki (= vinstra framstykki), heklið 8-8-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 1. og 2. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 12-14-17-18 sinnum á breiddina fram að 3. prjónamerki (= bakstykki), heklið 8-8-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 3. og 4. prjónamerkis (= ermi), heklið A.2a alls 6-7-8-9 sinnum á breiddina, endið á A.8. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

STÆRÐ
S-M-L-XL:
Heklið A.6/A.2a/A.8 eins og áður, þær 8-8-8-10 l undir hvorri ermi eru heklaðar eins og 1. l í A.6. Í síðustu umf í A.6 og A.8 (umf með st) er fækkað um 4-4-4-2 st jafnt yfir alla umf – LESIÐ ÚRTAKA = 167-179-191-209 st. Þegar A.6 og A.8 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina, heklið næstu umf frá röngu þannig: Heklið A.3a yfir fyrstu 6-6-9-9 st, endurtakið A.2a alls 26-28-29-32 sinnum á breiddina, endið á A.1a yfir síðustu 5-5-8-8 st.

STÆRÐ XXL-XXXL:
Heklið frá röngu: A.3a yfir fyrstu 69 st, endurtakið A.2a alls 37-38 sinnum JAFNFRAMT er fækkað um 2-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, endið á A.1a yfir síðustu 5-8 st = 233-245 st.

ALLAR STÆRÐIR:
Endurtakið A.1a til A.3a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 161-173-185-203-227-239 st. A.2a er nú endurtekið 25-27-28-31-36-37 sinnum á breiddina.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki = 197-221-233 st. A.2a er nú endurtekið 30-35-36 sinnum á breiddina.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 6 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 3½-3½-2½-2-2-2 cm millibili 3-3-4-6-6-6 sinnum til viðbótar = 185-197-215-239-263-275 st. A.2a er endurtekið 1 sinni til viðbótar fyrir hvert skipti sem aukið er út. Þegar allar útaukningarnar hafa verið gerðar er endurtekið A.2a 29-31-33-37-42-43 sinnum á breiddina. Heklið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá prjónamerki, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
STÆRÐ S:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að hekla mitt undir handveg þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.7 yfir næstu 18 st, heklið A.2a (passið uppá mynstur miðað við A.7) alls 2 sinnum á breiddina, heklið A.7 yfir næstu 18 st, endið á 1 fl í hverja og eina af síðustu 3 ll. Þær 8 l undir ermi eru heklaðar eins og 1. l í A.7. Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 56 st í síðustu umf.

STÆRÐ M-XL-XXL-XXXL:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8-10-10-10 ll sem voru heklaðar í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja af næstu 4-6-6-6 ll, heklið A.7 eins og áður, heklið A.2a (passið uppá mynstur miðað við A.7) alls 2-3-4-4 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.7, endið á 1 st í hvern og einn af síðustu 3 ll. Þær 8-10-10-10 l undir ermi eru heklaðar eins og 1. l í A.7.
Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 56-64-70-70 st í síðustu umf.

STÆRÐ L:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.7 eins og áður, heklið A.2a (passið uppá mynstur miðað við A.7) alls 3 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.7, endið á 1 fl í hverja og eina af síðustu 3 ll. Þær 8 l undir ermi eru heklaðar eins og 1. l í A.7.
Þegar A.7 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 62 st í síðustu umf.

ALLAR STÆRÐIR:
= 56-56-62-64-70-70 st. Endurtakið A.2a alls 9-9-10-10-11-11 á breiddina JAFNFRAMT í fyrstu umf með st er fækkað um 2-2-2-4-4-4 st jafnt yfir = 54-54-60-60-66-66 st. Þegar stykkið mælist 10 cm, passið að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 48-48-54-54-60-60 st. A.2a er endurtekið þá 8-8-9-9-10-10 sinnum á breiddina. Þegar stykkið mælist 23 cm, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur, klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið fyrir miðju að framan. Heklið * 1 fl í fyrsta st, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið uppá að hálsmálið verði ekki of stíft, passið einnig uppá að endað sé með 1 fl í síðasta st í umf. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan á að sauma 2 cm frá kant í hálsmáli, hinar tölurnar eru settar með ca 8-9-9-8-8-9 cm millibili. Tölum er hneppt á milli 2 st á hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.06.2018
Leiðbeiningar fyrir handveg hefur verið bætt við

Mynstur

loftlykkja = loftlykkja
fastalykkja í lykkju = fastalykkja í lykkju
fastalykkja á milli 2 stuðla = fastalykkja á milli 2 stuðla
fastalykkja um loftlykkju = fastalykkja um loftlykkju
stuðull í lykkju = stuðull í lykkju
stuðull um lykkju = stuðull um lykkju
þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, umferðin sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkju = þessi umferð hefur nú þegar verið hekluð, umferðin sýnir einungis hvernig hekla á næstu umferð í lykkju
fyrsta umferði í mynstri = fyrsta umferði í mynstri
keðjulykkja = keðjulykkja
Diagram for DROPS 169-16
Diagram for DROPS 169-16
Diagram for DROPS 169-16
Diagram for DROPS 169-16
Diagram for DROPS 169-16
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (171)

country flag Nathalie skrifaði:

2/2 Dan heb ik dus 11 losse die ik in de 1e stk na de mouwopening vast maak, maar daarna zou ik 12 keer A2a moeten herhalen, echter is de laatste toer niet telkens met 3 stk in de ruimte van de vorige toer gemaakt. Hoe moet ik nu verder? Zijn die 8+3 l wel correct? En wat is dat "friemeltje" bij A2a aan de rechterkant van de verticale streep?

25.07.2017 - 09:58

DROPS Design svaraði:

Hoi Nathalie, A.9 laat zien hoe de toer begint en eindigt. Aan het begin van de toer vervang je ieder stokje door 3 lossen en aan het eind van de toer maak je de toer af met een halve vaste in de eerste steek van de vorige toer. Onder de arm maak je dus 8 lossen (niet 8 + 3).

30.07.2017 - 21:49

country flag Nathalie skrifaði:

Ik ben begonnen met maat S. Ik ben inmiddels een "gevorderde" beginner, echter is dit de eerste keer dat ik een kledingstuk maak. Nu is het met moeite gelukt om het eerste deel (17 cm) te haken, maar nu moet ik met het lijf beginnen en dan ga ik volledig onderuit. Het eerste stuk lukt, maar dan kom ik vervolgens met de A2a niet uit tot aan de markeerder. Ik zit nog met de 3 losse die nergens aan vast zit. Dan zou ik 8 losse moeten doen en dan de mouw (48 steken) moeten overslaan. 1/2

25.07.2017 - 09:57

DROPS Design svaraði:

Hoi Nathalie, De reactie staat onder je volgende vraag.

30.07.2017 - 21:50

country flag Melinda R. W. skrifaði:

Gleder meg til å se ferdig resultat. Første gangen jeg hekler etter oppskrift, gode spørsmål i kommentarfeltet da jeg har stusset på mye av det samme. Veldig spent på om jeg har valgt riktig størrelse ^^,

22.07.2017 - 03:34

country flag Marine skrifaði:

Merci. Je fais donc 8 fois 3 mailles piquées dans les 8m et non des B, si j'ai bien compris. Serait-il possible d'avoir des photos plus précises du gilet fini ou des coordonnées d'un site où des expertes ont réalisé vos splendides modèles...

11.07.2017 - 11:40

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marine, la 1ère m de A.6 = soit 1 bride soit 1 maille serré - crochetez soit 1 ms soit 1 bride dans chacune des 8 ml (= 8 ms/8 brides, en fonction du rang que vous crochetez). Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter le magasin où vous avez acheté votre fil ou bien adressez-vous au forum DROPS. Bon crochet!

11.07.2017 - 15:47

country flag Marine skrifaði:

Bonjour, Au rang suivant les 8 m du dessous de manche, faut-il réaliser le même point du rang sur cette chaînette de 8m ? (Soit: B, 2m,2ms, 2m) ou faire 8 brides, comme sur la vidéo ? Merci par avance.

10.07.2017 - 16:49

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marine, après avoir sauté les mailles des manches, crochetez les 8 m sous les manches comme la 1ère m de A.6 jusqu'au dernier rang de A.6/A.2a/A.8. Bon crochet!

11.07.2017 - 09:20

country flag Sylvie skrifaði:

Bonjour Merci. Il y a donc une dissymétrie: d'un côté il y aura deux brides avec un espace... La bordure sera composée de 6 brides ? (En comptant les 3 premières mailles de début.)Tout comme dans les diagrammes A1 et A3 il y a des mailles serrées sur certains rangs de brides... C'est bien cela ? Et que signifient les mailles dessinées en oblique ? Merci d'avance.

01.07.2017 - 17:10

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sylvie, la bordure des devants (= A.1 et A.3) sera symétrique, la première m de A.3 sur l'endroit (= la dernière m de A.3 sur l'envers) permet de faire la transition entre A.2 et la bordure devant. Les 3 ml du début des rangs remplacent la 1ère bride, ainsi A.1 = 5 brides et A.2 = 6 brides, y compris les 3 ml. 1 tiret = 1 ml, au rang 1 de A.1/A.3 par ex (celui avec le carré noir), crochetez: 3 ml (= 1ère bride), 3 brides, 3 ml, et continuez en crochetant A.2 (qui commence par 1 ms). Bon crochet!

03.07.2017 - 09:24

country flag Marine skrifaði:

Bonjour, Très joli modèle, mais...je suis perdue ! Au 3 ième rang, je ne comprends pas : Crochetez le rang suivant (en Brides ?) tout en plaçant les marqueurs... 5 brides pour la bordure puis on commence les diagrammes...? Puis les flèches de côté pour indiquer l'arrêt pour les tailles ? X fois en largeur veut dire qu'on répète X fois le motif correspondant au diagramme ? Je vous remercie par avance...

30.06.2017 - 18:13

DROPS Design svaraði:

Bonjour Marine, après avoir crocheté le 1er rang de brides après la chaînette de base, crochetez le rang suivant en brides en plaçant des marqueurs pour délimiter chaque section et en augmentant dans les sections indiquées - crochetez les diagrammes en largeur 1 à X fois (cf taille) - les flèches à droite dans les diagrammes serviront plus tard. Bon crochet!

03.07.2017 - 08:45

country flag Sylvie skrifaði:

Dès le tout début: doit on crocheter deux brides, puis sauter une maille,une bride dans chacune des six mailles suivantes et donc terminer par deux brides ? Ou bien six brides, sauter une maille puis répéter ce motif Merci d' avance

29.06.2017 - 19:21

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sylvie, on saute des mailles en l'air à intervalles réguliers au tout 1er rang pour évite que la chaînette de base ne soit trop serrée, crochetez: 1 B dans la 4ème ml à partir du crochet (les 3 premières ml = 1ère bride = on a ainsi maintenant 2 brides), puis en taille S ou M, répétez: (sautez 1 ml, 1 B dans chacune des 6 ml suivantes), c'est-à-dire que l'on a 6 brides au-dessus de 7 ml, on répète de (à) tout le rang. Bon crochet!

30.06.2017 - 09:03

country flag Sonia skrifaði:

Bonjour, quelle est la signification des symboles "point noir et suite de 3 pointillés en oblique" situés à gauche des diagrammes A2 et A9?dans le motif A2a et A7, les flèches signifient elles le rang de départ du motif pour chaque taille, par exemple pour la taille L le motif A2a se résume t-il aux 3 derniers rangs? Sauf erreur de ma part, je n'ai pas trouvé d'aide sur ces symboles sur votre site. Merci par avance

27.06.2017 - 07:42

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sonia, en début de tour 1 pointillé = 1 ml (cf légende), le point noir représente la maille coulée faite en fin de tour dans cette/ces ml. Dans les explications, vous pourrez lire à quoi correspondent ces flèches et à quel niveau on les utilise (A.7= dernier rang crocheté et A.2 (= début du diagramme). Bon crochet!

27.06.2017 - 09:05

country flag Manen Burger skrifaði:

Hallo, Gisteren stelde ik een vraag over 8e toer, maat xxl. Volgens mij komen jullie met 3 stokken meerderen op 39 omdat jullie de eerste steken ook meetellen. Alleen kom ik dan op 38. 5 stokken van a1 en dan 33 stokken in a2. Kunnen jullie mij verheldering bieden? Alvast bedankt voor het antwoord

15.06.2017 - 12:16

DROPS Design svaraði:

Hoi Manon, Na het meerderen van op toer 8 heb je in totaal 39 stokjes voor de 8e markeerder. Dit aantal zou moeten kloppen, controleer evt. even goed of je alle meerderingen en stokjes hebt gemaakt. (Na de 1e markeerder heb je 38 stokjes, dus in totaal 77 tussen markeerdraad 1 en 8.)

17.06.2017 - 20:48