DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Seashore Bliss Top

Heklaður toppur úr DROPS Muskat með gatamynstri og hringlaga berustykki. Heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-26
DROPS Design: Mynstur nr r-698
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
400-450-500-600-650 g nr 18, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st x 9 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.4 sýnir hvernig hver umf byrjar og endar.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG:
Í stærð S, M og XL: Í síðustu mynstureiningu af A.1 á undan prjónamerki 1 og prjónamerki 3 (= byrjun á handveg) er fyrstu loftlykkju í mynsturteikningu skipt út fyrir stuðul í lykkju að neðan.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. ATH: Mikilvægt er að halda heklfestunni á hæðina svo að lengdin á berustykkinu passi.

BERUSTYKKI:
Heklið 108-108-117-117-124-124 ll með heklunál nr með Muskat og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið fyrstu umf þannig: Heklið 3 ll (= 1 st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og aukið út um 18-18-22-22-28-40 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 112-112-124-124-136-148 st. Heklið næstu umf og setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: A.4 sýnir hvernig umf byrjar og endar. Setjið 1. prjónamerki í byrjun umf, heklið A.2 yfir fyrstu 4 st, setjið 2. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 4. prjónamerki, heklið A.1 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina), setjið 5. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 6. prjónamerki, A.1 yfir næstu 12 st (= 2 sinnum á breiddina), setjið 7. prjónamerki, A.2 yfir næstu 4 st, setjið 8. prjónamerki, A.1 yfir síðustu 36-36-42-42-48-54 st (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breiddina). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

STÆRÐ XXL-XXXL:
Í umf 5 (umf með st frá réttu) í A.1 er aukið jafnt út þannig:
Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út 6-6 st.
Nú hefur verið aukið út um 12-12 st alls í umf (= 18-18 st á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis). A.1 er þá endurtekið 3-3 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 7. prjónamerkis.

ALLAR STÆRÐIR:
Í umf 6 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig:
Á milli 2. og 3. prjónamerkis og 6. og 7. prjónamerkis: Aukið út um 0-0-6-6-6-6 st (= 12-12-18-18-24-24 st á milli þessa prjónamerkja).
Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 st (= 36-42-48-48-54-60 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 2. og 3. prjónamerkis, 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis, 2-2-3-3-4-4 sinnum á milli 6. og 7. prjónamerkis og 6-7-8-8-9-10 sinnum á milli 8. og 1. prjónamerkis. A.2 er síðan heklað eins og áður.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Í umf 8 (umf með st frá röngu) í A.1 er aukið út jafnt yfir þannig:
Á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis: Aukið út um 6-6-6 st (= 54-60-66 st á milli hverra prjónamerkja).
Aukið út um 12-12-12 st alls í umf. A.1 er endurtakið 9-10-11 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis. Endurtakið útaukningu í umf 10 í A.1(= 60-66-72 st á milli hverra prjónamerkja). Mynstur A.1 er endurtekið 10-11-12 sinnum á milli 4. og 5. prjónamerkis og 8. og 1. prjónamerkis.

ALLAR STÆRÐIR:
Í síðustu umf í A.2 setjið 1 nýtt prjónamerki mitt í hvert mynstur A.2 (þ.e.a.s. 18 st hvoru megin við prjónamerki í A.2 = 4 prjónamerki). Takið frá eldri prjónamerki (= 4 prjónamerki eftir í stykki). Lykkjur á milli prjónamerkja merkja ermar (= 48-48-54-54-60-60 st á hvorri ermi). Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-276-300-324-336 st í umf. Berustykkið er nú tilbúið í stærð S.

STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXXL:
Haldið áfram með mynstur A.1 eins og áður, en yfir st í A.2 (= 36 st) er heklað A.3 alls 2 sinnum á breiddina (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa endurtekninga). Heklið 1-2-3-4-5 umf af A.3 (sjá ör í mynstri fyrir rétta stærð). Stykkið mælist nú 17-18-19-20-21-22 cm á hæðina.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið A.1a (sjá ör hvar mynstrið byrjar í mismunandi stærðum) alls 3 sinnum á breiddina fram að fyrsta prjónamerki - sjá LEIÐBEININGAR FYRIR HANDVEG, heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 12-13-14-16-17-18 sinnum á breiddina fram að næsta prjónamerki (= framstykki), heklið 8-8-8-10-10-10 ll, hoppið yfir l á milli 2 prjónamerkja (= ermi), heklið A.1a alls 9-10-11-13-14-15 sinnum á breiddina (= 160-172-184-212-224-236 l). Klippið frá og festið enda.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið umf mitt undir ermi þannig:

STÆRÐ S-L:
Heklið 1 kl í 5. ll, 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 3-3 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 fl í hverja af 8-8 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður út umf. Þær 8-8 l undir hvorri ermi eru heklaðar eins og í 1. l í A.1a.

STÆRÐ M-XL-XXL-XXXL:
Heklið 1 kl í 5. ll, 3 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 3-5-5-5 ll, heklið A.1a eins og áður fram að ll undir 2. ermi, 1 st í hverja af 8-10-10 ll undir ermi, heklið A.1a eins og áður. Þær 8-10-10-10 l undir hvorri ermi er heklað eins og 1. l í A.1a.

ALLAR STÆRÐIR:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í fyrstu umf með st er fækkað um 4-4-4-2-2-2 st jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 156-168-180-210-222-234 st. A.1a er endurtekið 26-28-30-35-37-39 sinnum á breiddina. Endurtakið A.1a á hæðina. Þegar stykkið mælist 12 cm, passið uppá að næsta umf sé með st, fækkið um 6 st jafnt yfir = 150-162-174-204-216-228 st. A.1a er endurtekið 25-27-29-34-36-38 sinnum á breiddina.

STÆRÐ XL:
Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki = 198 st. A.1a er nú endurtekið 33 sinnum á breiddina.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá prjónamerki, passið að næsta umf sé með st, aukið út um 6 st jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með 2-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili 5-5-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 186-198-222-246-264-276 st. A.1a er endurtekið 1 sinni til viðbótar fyrir hvert skipti sem aukið er út. Þegar öll útaukning hefur verið gerð er endurtekið A.1a 31-33-37-41-44-46 sinnum á breiddina. Heklið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm frá prjónamerki, passið uppá að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda.

KANTUR ERMI:
STÆRÐ S:
Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru við handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Heklið síðan 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 yfir næstu 18 st, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3 yfir næstu 18 st, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 l undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 l jafnt yfir = 46 st.

STÆRÐ M-XL-XXL:
Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8-10-10-10 ll sem voru heklaðar í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja af næstu 4-6-6-6 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 2-3-4 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 st í hverja af 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8-10-10-10 st undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 st jafnt yfir = 46-54-60 st.

STÆRÐ L:
Byrjið á að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 1 ll (= 1 fl). Síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 4 ll, heklið A.3 eins og áður, heklið A.1 (passið uppá mynstur miðað við A.3) alls 3 sinnum á breiddina eins og áður, heklið A.3, endið á 1 fl í hverja af síðustu 3 ll. Heklið eins og 1. l í A.3 í 8 st undir ermi. Í síðustu umf í A.3 er fækkað um 10 st jafnt yfir = 52 st.

STÆRÐ XXXL:
Byrjið að hekla mitt undir ermi þannig: Heklið 1 kl í 4. ll af 10 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið síðan 1 st í hverja af næstu 6 ll, heklið 1 st í hvern og einn af 60 st, endið með 1 st í hverja af síðustu 3 ll. Heklið 1 st í hvern st og fækkið um 10 st jafnt yfir = 60 st.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum alla ermina. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt.

HÁLSMÁL:
Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið fyrir miðju að aftan. Heklið * 1 fl í fyrsta/næsta st, 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið uppá að hálsmálið verði ekki of stíft, passið einnig uppá að endað sé með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.06.2018
Leiðbeiningar fyrir handveg hefur verið bætt við
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2019
Leiðrétting: - ERMI: ALLAR STÆRÐIR: Heklið * 1 fl í fyrstu/næsta stuðul, 1 ll, hoppið yfir ca 1 cm *,

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl á milli 2 st
symbols = fl um ll
symbols = st í l
symbols = st um ll
symbols = þessi umf á ekki að hekla, hún hefur nú þegar verið hekluð, þetta sýnir bara hvernig næsta umf er hekluð í l
symbols = kl
symbols = fyrsta umf í mynstri
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Seashore Bliss Top

Bianca, Netherlands

169-26 Seashore Bliss Top

OOSeleneOo, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (131)

country flag Jeanette wrote:

Ik ben deze top aan het maken, gelukkig ben ik een ervaren haakster want de beschrijving is gewoon onleesbaar! Er staan geen toernrs aangegeven dus moet je goed tellen.Ik heb dit heel vaak met jullie patronen. Een beginnend haakster komt hier echt niet uit.Ik doe zoveel mogelijk aan de hand van de tekening en kijk ook regelmatig naar de foto.

05.11.2023 - 23:17

country flag Anna wrote:

Thanks for your answer. I read the whole pattern many times even discussing it with friends who don't know either and I still don't understand what I'm supposed to do after the yoke is finished. I'm doing size S, should I start A1.a on the row where the S arrow is pointing but then what should I do when finished vertically, should I go back to the beginning of A1.a where the arrow XXXL is pointing or should I go back to the S arrow? Or should I start at XXXL and stop at S?

20.06.2023 - 10:07

DROPS Design answered:

Dear Anna, in size S, you have 240 sts when all increases are done and A.2 finished. You will now divide piece for sleeves and body working A.1a from the row with the arrow in A.1a (the last row worked previously was the row before the one with the arrow = 14 rows in A.1 / 14 rows in A.2), this means read now paragraph ALL SIZES where you crochet A.1a 3 times in width to the first marker, crochet 8 chains for under sleeve and skip sts for sleeve, work 12 repeats of A.1a for front piece, crochet 8 chains for under sleeve, skip sts for sleeve and finish with 9 repeats of A.1a in width = 160 stitches. Then work body. Happy crocheting!

20.06.2023 - 15:28

country flag Anna wrote:

Hi there, I don't understand what the arrows mean... And why is there a size specified in front of them? It says they indicate where we should begin for each size.. but why is it smaller for M, XL has even only one row on A1.a

20.06.2023 - 01:05

DROPS Design answered:

Dear Anna, the arrows are explained in the written pattern, you will crochet a different number of rows depending on the size so that the arrow is adapted to that number of rows § in size M you work until piece measures 17 cm but 19 cm in size XL, then you will start A.1a with a different row - just remember to follow the written pattern and the explanation for your size, it might help. Happy crocheting!

20.06.2023 - 08:42

country flag Joke wrote:

Het lukt mij vanaf hier niet meer. Als ik volgende uitleg volg begint mijn volgende toer op de 1st ketting onder de mouw ???\r\n\r\nMAAT M-XL-XXL-XXXL:\r\nHaak 1 hv in 5e l, 3 l, haak 1 stk in elke van de volgende 3-5-5-5 l, haak A.1a als hiervoor tot l onder 2e mouw, 1 stk in elke van de 8-10-10-10 l onder mouw, haak A.1a als hiervoor de rest van toer. Haak de 8-10-10-10 st onder elke mouw als 1e st \r\nin A.1a.

14.04.2023 - 09:18

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Afhankelijk van je maat heb je 8 of 10 lossen onder de mouw gehaakt. Je begint nu met haken in de 5e lossen van die 8 of 10 lossen. Hier haak je een vaste in. Dan haak je 3 lossen en dan 1 stokje in elk van de volgende 3 of 5 (ook weer afhankelijk van je maat) lossen. Daarna haak je A.1 zoals hiervoor tot je bij de lossen onder de volgende mouw bent, enz.

19.04.2023 - 13:35

country flag Fia Älander wrote:

Det står i mönstret: "ALLA STL: På sista v i A.2 sätts det 1 ny markör mitt i varje A.2 (dvs 18 st på varje sida av markören i A.2 = 4 markörer). Ta bort de gamla markörerna (= 4 markörer kvar i arb). Maskorna mellan markörerna markerar ärmarna (= 48-48-54-54-60-60 st på varje ärm). När A.2 har virkats 1 gång på höjden är det 240-252-276-300-324-336 st på v. Oket är nu färdigt i stl S." Vilket blir mitt sista varv i a2 när jag virkar stl: XL?

23.11.2022 - 15:32

DROPS Design answered:

Hei Fia. Fortsett med mønster A.1 som før, men over st i A.2 (= 36 st) hekles A.3 totalt 2 ganger i bredden (merket sitter midt mellom disse repetisjonene). Hekle 3 omganger av A.3 (se pil i diag for riktig str). Arb måler nå 19 cm i høyden. mvh DROPS Design

28.11.2022 - 11:20

country flag Maija Linnakko wrote:

R-698 Mitä tarkoittaa ohjeessa sivulla 4 lause ”Toista jokaisen lisäyskerroksen jälkeen piirroksen A.1a mallikertaa yhden ylimäärisen kerran krs:lla”?

08.11.2022 - 17:01

country flag Anne wrote:

I have found this pattern very difficult to understand. Instructions are not clear . I have read instructions multiple times, watched videos with no help in understanding instructions. Even with tension square correct the sizing is too small for what pattern indicates. I would not recommend this pattern at all.

11.10.2022 - 23:13

country flag Ashley wrote:

I understand the author’s native language isn’t English, but I still think this pattern, as beautiful as it is, is so poorly written. I shouldn’t have to sift through every page of comments to figure it out and then still be confused. The pattern needs a lot of work to be user friendly at all.

27.03.2022 - 18:30

country flag Stefanie Nocker wrote:

Hallo. Ich häkle Gr. XL. und habe jetzt 300 Stb. (passe in S fertig). Ich soll nun 3 Rd weiter häkeln. in A3 beim Pfeil starten. 3Stb,2Lm,3Stb. Ich habe in meiner letzten runde nur Stb. wo soll ich 6 Stb. unterbringen?. In A.1a sind beim pfeil XL nur 2 runden übrig. und auch da passt die runde nicht auf meine letzte Runde. Wie und wo im Diagramm fahre ich nun fort?

02.03.2022 - 13:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Nocker, in A.1 haben Sie mit der Runde mit dem Pfeil gehäkelt dann häkeln Sie die 3 ersten Runde in A.3 - letzte Runde in A.2 /A.1 wurde mit Stäbchen, dann häkeln Sie die 3 ersten Runde in A.3 (bei der Reihe mit dem schwarzen Quadrat anfangen). Viel Spaß beim häkeln!

02.03.2022 - 17:30

country flag Gisela wrote:

Rd11 and 100 2ch spaces. For A1 Front and back l need 72 each so 144 x 3= 48 spaces.for A1 between A2 l need 24 x2 sts = 16 spaces. That leaves 36 soaces for 4x A2, 9 each. How does that work out?

23.10.2021 - 08:49

DROPS Design answered:

Dear Gisela, could you specify which size you are working, so that we can better answer your questions. Also, which spaces do you mean and cause you trouble: tr, ch2, 2tr or tr,ch2, dc?

01.11.2021 - 12:19