DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Lullaby

Heklað vesti úr DROPS Safran með gatamynsturskanti með röndum og snúru í mitti. Stærð S – XXXL.

DROPS Extra 0-1296
DROPS Design: Mynstur nr e-239
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
250-250-300 g nr 18, natur
150-200-200 g nr 50, ísblár
100-100-100 g nr 05, ljós bláfjólublár
50-50-50 g nr 04, grænn

ATH: Ef vestið er heklað með einum lit þá þarf 450-500-500 g Safran.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st x 12 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar með 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf (ef fyrri umf var st-umf) og með 1 st í 4. ll frá byrjun fyrri umf (ef fyrri umf var tbst-umf).
Í byrjun á hverri umf með tbst er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll. Umf endar með 1 tbst í 3. eða 4. ll frá byrjun fyrri umf eins og útskýrt er frá að ofan.

GATAMYNSTUR (sjá mynsturteikningu A.1):
UMFERÐ 1 (= rétta): 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hvern af næstu 4 st, 2 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í hvern af næstu 3 st, * 2 ll, hoppið yfir 3 st, í næsta st er heklaður 1 tbst + 4 ll + 1 tbst, 2 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st í hvern af næstu 3 st *, endurtakið frá *-* þar til 5 st eru eftir í umf, heklið 2 ll og endið með 1 st í hvern af síðustu 5 st, snúið við.
UMFERÐ 2: 4 ll (jafngildir 1 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 4 l, 2 ll, * 1 tbst í miðju af 3 l frá fyrri umf, 2 ll, 7 tbst um ll-bogann á milli tbst, 2 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8 sinnum, heklið 1 tbst í miðju af næstu 3 l, 2 ll og 1 tbst í hverja af síðustu 5 l í umf, snúið við.
UMFERÐ 3: 4 ll (jafngilda 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 4 tbst, í næsta tbst er heklað 1 tbst + 4 ll + 1 tbst, * 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst í hópnum, 2 ll, hoppið yfir 2 tbst, í næsta tbst er heklaður 1 tbst + 4 ll + 1 tbst *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8 sinnum og endið með 1 tbst í hvern af síðustu 5 tbst, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: 4 ll (jafngildir 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 4 tbst, 2 ll, * 7 tbst um ll-bogann á milli tbst, 2 ll, 1 tbst í miðju af 3 tbst í hópnum, 2 ll *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8 sinnum, 7 tbst um ll-bogann á milli tbst, 2 ll og 1 tbst í hvern af síðustu 5 tbst, snúið við.
UMFERÐ 5: 4 ll (jafngildir 1 tbst), 1 tbst í hvern af næstu 4 tbst, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst í hópnum, 2 ll, hoppið yfir 2 tbst, * í næsta tbst er heklaður 1 tbst + 4 ll + 1 tbst, 2 ll, 1 tbst í hvern af miðju 3 tbst í hópnum, 2 ll, hoppið yfir 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 6-7-8 sinnum og endið með 1 tbst í hvern af síðustu 5 tbst, snúið við. Endurtakið umf 2-5 (= A.X).

RÖND MEÐ GATAUMFERÐ (sjá mynsturteikningu A.2):
UMFERÐ 1: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hvern af næstu 4 l, heklið síðan 1 st í hvern tbst frá fyrri umf, 3 st um hvern ll-boga með 4 ll og 1 st um hvern ll-boga með 2 ll, endið með 1 st í hvern af síðustu 5 tbst = 75-85-95 st, snúið við.
UMFERÐ 2: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hverja af næstu 4 l, heklið síðan 1 st í hvern st þar til 5 st eru eftir í umf, en heklið aftan í lykkjubogann frá réttu og framan í lykkjubogann frá röngu, endið með 1 st í hverja af síðustu 5 l (heklið nú í gegnum báða lykkjubogana), snúið við.
UMFERÐ 3: 4 ll (jafngildir 1 tbst), 1 tbst í hverja af næstu 4 l, * 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 tbst í næstu l *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir í umf, 1 ll, hoppið yfir 1 l og endið með 1 tbst í hverja af síðustu 5 l í umf, snúið við.
UMFERÐ 4: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hverja af næstu 4 l, heklið nú 1 st um hverja ll og 1 st í hverja l út umf, snúið við = 75-85-95 st í umf.
UMFERÐ 5: 3 ll (jafngildir 1 st), 1 st í hverja af næstu 4 l, heklið nú 1 st í hvern st þar til 6 st eru eftir í umf, en heklið aftan í lykkjubogann frá réttu og framan í lykkjubogann frá röngu, heklið 1 st í hverja af síðustu 5 l (heklið nú í gegnum báða lykkjubogana), snúið við.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklið í 4 alveg eins stykkjum og heklað er neðan frá og upp. Stykkin eru síðan hekluð saman 2 og 2 fyrir miðju (skammhlið á móti skammhlið) þannig að það verða 2 löng stykki / lengjur. Heklið síðan bæði stykkin / lengjurnar saman á lengdina fyrir miðju að aftan.

STYKKI 1:
Heklið 101-114-127 lausar ll með heklunál nr 3,5 með litnum ísblár DROPS Safran.
Fyrsta umf er hekluð frá röngu þannig: 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 1-2-3 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 75-85-95 st.
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan GATAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. mynstrið er heklað eftir mynsturteikningu A.1 þannig: Heklið A.1A (= 10 l), endurtakið A.1B yfir næstu 60-70-80 l og endið með A.1C (= 5 l). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.X hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í litinn ljós bláfjólublár. Heklið RÖND MEÐ GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan, þ.e.a.s. heklið eftir mynstri A.2 þannig: Heklið A.2A (0 5 l), heklið A.2B þar til 5 l eru eftir í umf og endið með A.2C (= 5 l) = 75-85-95 l í umf – ATH: Til að fá réttan lykkjufjölda er heklað þannig í umf 1: Heklið 10 st yfir A.1A, þ.e.a.s. 1 st í hverja kantlykkjum, 1 st um ll-bogann, 1 st í hverja af 3 miðjulykkjur og 1 st um ll-bogann. Heklið síðan 10 st yfir hverja mynstureiningu í A.1B, þ.e.a.s. 1 st í fyrsta tbst, 3 st um ll-bogann, 1 st í næsta tbst, 1 st um ll-bogann, 1 st í hverja af 3 miðju st í hópnum og 1 st um ll-bogann (= alls 60-70-80 st yfir A.1B), heklið síðan 5 st yfir A.1C, þ.e.a.s. 1 st í hverja af 5 kantlykkjum = 75-85-95 st í umf. Haldið síðan áfram eftir mynstri A.2 til A.Y hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Skiptið yfir í litinn natur og heklið umf 1-5 í A.1 (umf 1 í A.1 er heklað yfir A.2 eins og útskýrt er í mynstri A.1), síðan er endurtekin umf 2-5 (= A.X) þar til gatamynstrið með litnum natur mælist ca 25 cm – endið eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu í A.X.
Skiptið yfir í litinn ísblár og heklið umf 1 í A.2, skiptið yfir í litinn grænn og heklið umf 2-4 í A.2, skiptið yfir í litinn ísblár og heklið umf 5 í A.2, skiptið yfir í litinn natur og heklið umf 1-5 í A.2 (= A.Y). Skiptið yfir í litinn ljós bláfjólublár og heklið umf 1-5 í A.1, skiptið yfir í litinn natur og heklið umf 1-5 í A.2 og skiptið yfir í litinn ísblár og heklið umf 1-5 í A.1, endurtakið síðan umf 2-5 (= A.X) þar til stykkið mælist ca 67-71-75 cm – endið eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu í A.X. Heklið umf 1 í A.2 með litnum ísblár = 75-85-95 st í umf. Klippið frá og festið enda, stykkið mælist nú ca 68-72-76 cm.

Heklið 3 stykki til viðbótar á sama hátt. Heklið saman stykkin 2 og 2 fyrir miðju með litnum ísblár þannig: Leggið röngu á móti röngu (skammhlið á móti skammhlið) og heklið í gegnum bæði lögin með 1 fl í hverja l (samskeyti = mitt ofan á öxl). Klippið frá og festið enda. Nú eru 2 jafn löng stykki. Leggið bæði stykkin að hvoru öðru, langhlið á móti langhlið. Byrjið á öðrum endanum á báðum stykkjum og saumið saman á lengdina (= miðja að aftan) – saumið með smáu fallegu spori þar til eftir er ca 8-10-12 cm fyrir öxl. Klippið frá og festið enda. Vestið er nú opið frá miðju að aftan við hnakka og alla leið niður meðfram miðju að framan.

SNÚRA:
Klippið 3 þræði í litnum natur ca 5 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda og klippið endana til. Notið snúruna sem belti.

Mynstur

symbols = ll
symbols = st í st/tbst frá fyrri umf
symbols = st um ll
symbols = st heklaður í aftari lið frá réttu og fremri lið frá röngu
symbols = tbst í st/tbst frá fyrri umf
symbols = tbst í miðju af 3 st/tbst frá fyrri umf
symbols = 7 tbst um ll-boga á milli tbst
symbols = 2 ll, 1 tbst í hverja af 3 miðju tbst frá fyrri umf, 2 ll
symbols = 1 tbst í st/tbst frá fyrri umf, 4 ll, 1 tbst í sama st/tbst
symbols = þessi umf er útskýrð í uppskrift
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1296

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Nathalie wrote:

Bjr tte débutante. il me semble que je dois crocheter le diagramme en commençant par A.1a, A1b,A1c puis remonter jusqu'au rang 5,et le recommencer jusqu'à la fin du rang. et je ne comprends pas, il me semble que les explications du point fantaisie sont différentes du diagramme. Dans l'attente de votre retour. belle journée nathalie

26.02.2024 - 10:56

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, lorsque les 5 rangs (= A.X) ont été faits, vous changez de couleur et crochetez maintenant une rayure en bleu violet clair en suivant cette fois les diagrammes A.2A, A.2B et A.2C. Quand A.Y est terminé, crochetez les rangs 1-5 en naturel, puis répétez les rangs 2-5 jusqu'à ce que la rayure en naturel mesure 25 cm. Bon crochet!

26.02.2024 - 13:48

country flag Srijani Chakraborty wrote:

Hello, is this pattern has stitches along the sides. Otherwise how will this vest will be in place around the body?

13.07.2022 - 16:10

DROPS Design answered:

Dear Srijani, yes, this pattern has stitches along the sides. When working the right front, the side is included in A.1A; when working the left front, the other side is included in A.1C. Happy crocheting!

15.07.2022 - 12:51

country flag Srijani Chakraborty wrote:

Hello, I want to know is this pattern have stitches along the sides...otherwise how will this pattern be in place around the body?

13.07.2022 - 16:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chakraborty, there is no seam along the sides, the jacket is closed with the string as a belt. Feel free to sew or crochet the sides together if you rather like it so. Happy crocheting!

02.08.2022 - 11:40

country flag Gea Stomphorst wrote:

Dank voor uw antwoord. Ik denk dat ik toch een andere oplossing kies. Ik haak een extra toer stokjes in naturel tussen de twee gaatjespatronen, dus direct na de toer in ijsblauw. Dat vind ik mooier dan de draad afknippen. Dan kom ik wel aan de goede kant uit met de volgende gaatjes en met het kantpatroon. Ik ben inmiddels met drie van de vier op de hoogte van 25 cm, dus kan nu mooi door.

03.03.2022 - 22:28

country flag Gea Stomphorst wrote:

Dank voor uw uitleg. Dit klopt voor het onderste deel. Maar in het bovenste deel kom ik er niet goed uit. Ik bedoel na 25 cm naturel. Dan haak je 10 toeren gaatjespatroon en kom je aan de andere kant uit en zitten de waaiers er boven verkeerd om. Ik heb nog gekeken op de foto of er een extra toer stokjes tussen de 2 gaatjespatronen zit, maar dat lijkt niet zo. Hoe kom ik dan toch aan de goede kant met de waaiers boven de 2 gaatjespatronen?

11.02.2022 - 22:41

DROPS Design answered:

Dag Gea,

Excuses voor het late antwoord. Volgens mij is het inderdaad wel zo dat je laatste keer dat je A.1 haakt, dus in ijsblauw, niet goed uit komt. Dit moet nog even nagekeken worden door de ontwerpafdeling. Je zou de draad af kunnen knippen en aan de goede kant kunnen beginnen. Hopelijk kun je zo eerst verder.

02.03.2022 - 13:47

country flag Gea Stomphorst wrote:

Ik kom er niet goed uit met de goede en verkeerde kant. Als ik in het onderste, ecru deel de waaiers van 7 dstk aan de goede kant maak, kom ik na de strepen er op uit dat de waaiers in paarsblauw aan de verkeerde kant zitten. Is dat de bedoeling? Of sla ik ergens per abuis een toer over? Of moet ik juist het onderste deel omdraaien, zodat die waaiers daar aan de verkeerde kant zitten en dan de paarsblauwe waaiers aan de goede kant?

08.02.2022 - 01:15

DROPS Design answered:

Dag Gea,

Als je (na de waaiers aan de goede kant) strepen begint te haken, haak je dus 5 toeren van strepen, waarbij de eerste en de laatste toer aan de verkeerde kant is. Hierdoor begin je weer met patroon A.1 aan de goede kant en zou je weer goed uit moeten komen. Let er op dat je dan de toer met de ster ervoor in A.1 niet haakt.

11.02.2022 - 15:33

country flag Bente Sørensen wrote:

Hej Drops ;) Tænker om 404 masker ikke er voldsomt meget, har haft den startet og den blev meget stor. Hilsen Bente

06.06.2020 - 09:53

country flag C.O. Hakkesteegt wrote:

Moeten er geen zijnaden gemaakt worden? Anders zijn het toch losse lappen en dat vind ik heel raar.

19.07.2018 - 18:22

country flag Sonia B. wrote:

Bonjour, j'aimerais faire la cordelette. Pouvez-vous me dire combien elle mesure une fois enroulée? Je voudrais ce genre de ceinture pour mettre autour d'un pull que j'ai tricoté. Merci.

22.05.2018 - 07:15

DROPS Design answered:

Bonjour Sonia, la longueur de la cordelière va dépendre de la façon dont vous avez serré le fil, et même le fil peut jouer. Vous pouvez vous baser sur un modèle similaire et faire éventuellement un échantillon-test de cordelière pour calculer la longueur dont vous avez besoin pour la ceinture. Bon tricot!

22.05.2018 - 12:51