Sabine P. skrifaði:
Encore un à "devoir" faire !!!
05.01.2016 - 08:54
Gloria Sanders skrifaði:
Just a sweet cardigan everyone would love. cute-cute! I am ready to knit this when it gets on the list!!
30.12.2015 - 01:09
Bea skrifaði:
Wunderschönes streifenjäckchen, ein must im sommer!
22.12.2015 - 17:30
Caro-mou skrifaði:
Einfach süß ! ! ! ! !
11.12.2015 - 12:28
City Stroll#citystrollcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Delight með röndum, v-hálsmáli og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * Prjónið 2 umf með litnum beige/grár/bleikur, prjónið 2 umf með litnum bleikur/fjólublár *, endurtakið frá *-*. LITASKIPTI: Þegar rendur eru prjónaðar þá er skipt um lit í hlið á stykki til þess að endafestingarnar sjáist ekki. ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 11, 18, 25 og 32 cm. STÆRÐ M: 3, 11, 18, 26 og 33 cm. STÆRÐ L: 3, 11, 19, 27 og 34 cm. STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 27 og 35 cm. STÆRÐ XXL: 3, 12, 20, 28 og 36 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 9, 16, 23, 30 og 37 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Prjónaðar eru RENDUR – sjá útskýringu að ofan – út uppskriftina. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-98-106-118-130-142 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige/grár/bleikur. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku með 7-8-8-8-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 82-90-98-110-122-134 l. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið, í annarri hverri umf þannig: 3 l 0-1-1-2-2-3 sinnum, 2 l 0-0-1-2-4-5 sinnum og 1 l 1-1-2-2-3-3 sinnum = 80-82-84-86-88-90 l. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 28-28-30-30-32-32 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), síðan eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 31-32-32-33-33-34 l. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 l garðaprjón við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-64-70-76 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige/grár/bleikur. LESIÐ LITASKIPTI. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, síðan er prjónað sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í byrjun á umf frá réttu og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l innan við 1 kantlykkju í hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-8-8-8-9-9 cm millibili alls 4 sinnum = 46-50-54-60-66-72 l. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm er fell af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá miðju að framan þannig: Fækkið um 1 l innan við 5 kantlykkjur að framan – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 14-14-15-15-16-16 sinnum – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá röngu eins og á bakstykki. Þegar affelling/úrtaka fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 31-32-32-33-33-34 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af fyrir handveg í byrjun umf frá réttu og kantlykkjum að framan í lok umf frá réttu. Ekki er fellt af fyrir hnappagötum. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Munið eftir RENDUR. Fitjið upp 50-52-54-57-59-61 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með litnum beige/grár/bleikur. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3-4-2-4-4-3 cm aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3½-2½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 9-11-12-12-15-16 sinnum = 68-74-78-81-89-93 l. Þegar stykkið mælist 33-32-31-30-28-28 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 4 l 1 sinni, 3 l 6-7-8-0-0-0 sinnum, 2 l 0-0-0-11-14-15 sinnum = 24-24-22-29-25-25 l. Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 38-38-38-39-40-40 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstri kant að framan. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Munið eftir RENDUR. Fitjið upp 23 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með litnum beige/grár/bleikur. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt. Saumið vasana á peysuna ca 7 cm frá neðri kanti og ca fyrir miðju á framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #citystrollcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.