Ulla skrifaði:
Visst är ärmen sjukt kort jämfört med andra raglanärmar som mäter ca 10 cm mer!
01.03.2016 - 17:22
Jette Høstager skrifaði:
Jeg kan heller ikke få ærmelængden til at stemme. Iflg. mønster strikkes ærme til 34 cm. ( str S ) Og så strikkes raglan 17 cm - hvilket giver 51 cm op til hals. Det er da et meget kort ærme!!!! Skal det ikke være ærme til 44cm før raglan påbegyndes?
01.03.2016 - 16:48DROPS Design svaraði:
Hej Jette, Design skal se på ærmelængden og er der noget galt vil der blive lagt en opdatering og en rettelse ud!
02.03.2016 - 14:10
Charlotte Larsen skrifaði:
Ærmelængden er kun 33 cm. på en str. L, hvilket svarer til en bluse med 3/4 ærme. På billedet er blusen med langt ærme. Hvor lang skal ærmet være for at få et langt ærme?? og er der garn nok til lange ærmer eller skal jeg ud og købe mere ???
28.02.2016 - 21:21DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, Da det er raglanærmer skal du se på målene øverst i måleskitsen, her ser du at hele ærmet måler totalt 62 cm fra halsen og ned. God fornøjelse!
29.02.2016 - 12:04
Ulla Lehtipalo skrifaði:
På bilden har tröjan lång ärm. I beskr. och på diagramet är ärmen endast 34 cm! upp till ärmhålet. Nu har jag stickat bålen när jag upptäckte detta. Kommer mitt garn att räcka till lång ärm?
08.02.2016 - 13:41DROPS Design svaraði:
Hej Ulla, Vi tittar på det, så återkommer vi så fort som möjligt!
03.03.2016 - 12:34
Lars skrifaði:
In A1 werden pro Rapport 2 Maschen abgenommen.
19.01.2016 - 13:05
Jana skrifaði:
Hallo, kann es sein, dass die Maschenanzahl, nachdem A.1 gestrickt wurde, mit 184 Maschen falsch ist? In A.1 wird pro Rapport nur eine Masche abgenommen. Das wären bei der Größe XS nur 23 Maschen und ergibt somit eine Gesamtmaschenanzahl von 207. In der Angabe werden allerdings 46 Maschen abgezogen. Wie kann das sein?
19.01.2016 - 11:27DROPS Design svaraði:
In A.1 werden in der letzten R jeweils 2 M abgenommen, nicht nur eine. Sie stricken ja 2 M re zusammen und direkt danach 2 M re verschränkt zusammen. Somit kommen Sie bei 23 Rapporten von A.1 auf die 46 M, die abgenommen werden.
30.01.2016 - 11:16
Loredana skrifaði:
Buongiorno! Manca la prima parte della spiegazionè.
15.01.2016 - 08:31DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Adesso trova la spiegazione completa. Grazie e buon lavoro!
15.01.2016 - 09:18
Koko skrifaði:
Nom proposé: SENSUELLE
11.01.2016 - 14:10
Josie Sanz skrifaði:
Beautiful,
11.01.2016 - 03:00
Anette Clausen skrifaði:
Skøn model
06.01.2016 - 19:52
Vintage Charmer#vintagecharmersweater |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino eða DROPS ♥ You #7 með smá kaðlakanti, gatamynstri og laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 169-10 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni svo að þær gangi jafnt upp í mynstri. LASKALÍNA: Laskalína er gerð hvoru megin við A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l slétt saman, A.4 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l snúnar brugðið saman, A.4 (= 6 l), 2 l br saman (= 2 l færri). ÚRTAKA (á við um kant í hálsmáli): Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 114 l) og deilið með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10 l) = 11,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 10. og 11. hver l og 11. og 12. hver l saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 322-350-378-448-476-546-574 l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff = 2 l sl, 5 l br. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðnu mynstureiningu brugðið saman. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu l í hverri brugðinni mynstureiningu saman = 230-250-270-320-340-390-410 l á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir mynstri A.1 (= 23-25-27-32-34-39-41 mynstureiningar 10 l). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 184-200-216-256-272-312-328 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8-8 cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 8-6-4-8-6-10-8 l jafnt yfir = 176-194-212-248-266-302-320 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.2. Eftir A.2 er sett 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 88-97-106-124-133-151-160 l. Prjónið síðan þannig: * Prjónið A.3A (= 6 l), endurtakið A.3B yfir næstu 72-81-90-108-117-135-144 l (= 8-9-10-12-13-15-16 mynstureiningar 9 l), prjónið A.3C (= 10 l), prjónamerki *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-6-8-10-10-10 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3-3 sinnum = 192-210-228-260-278-314-332 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38-39 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= framstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 52-52-61-61-61-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 – ATH: Í 7. umferð í A.2 er síðasta l í umf prjónuð slétt (á við um stærð M + L + XL). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.3A (= 6 l), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-45-45-45-54-54 l (= 4-4-5-5-5-6-6 mynstureiningar 9 l) og endið á A.3C (= 10 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – passið uppá að prjónað sé jafn langt í mynstureiningu A.3 og á fram- og bakstykki áður en fellt er af fyrir handveg. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l, prjónið 74-78-79-83-83-88-94 l og fellið af næstu 3-3-4-4-5-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjóna nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 328-354-370-410-424-470-500 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur eins og áður og prjónið að auki A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt í A.4). JAFNFRAMT í fyrstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 24-25-28-29-32-34-34 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-5-2-3-0-0-3 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga upp í A.3 þegar úrtaka er gerð eru prjónaðar í sléttprjóni. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-48-50-51-53-54-56 cm setjið miðju 12-17-24-28-35-43-46 l á þráð fyrir hálsmáli og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (í sumum stærðum er nú laskaúrtaka bæði frá réttu og frá röngu). Haldið áfram með mynstur og laskalínu eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá hálsi þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-4-4 sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 78-83-92-104-111-127-130 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 104-114-130-154-168-198-204 l (meðtaldar l af þræði að framan) á stutta hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf br. Prjónið 1 umf sl þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 102-104-120-122-132-136-140 l (þ.e.a.s. fækkið um ca 2-10-10-32-36-62-64 l) – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan of fellið síðan laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vintagecharmersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.