DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 169-29
DROPS Design: Mynstur nr bs-095
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt meðfram miðjulykkju ca 75 cm.
Mælt meðfram kanti efst ca 150 cm.

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
350 g nr 1306, púðurbleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með BabyAlpaca Silk.

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið allar l slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 l sl í fyrstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl í síðustu l = 7 l.

Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja, setjið 1 prjónamerki í þessa l, merkir miðju), A.1 yfir næstu l, endið á 2 l garðaprjón.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 119 l í umf (= 59 l hvoru megin við miðjulykkju).
Stykkið mælist ca 15 cm mælt meðfram miðjulykkju. Prjónið nú frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * A.2 yfir næstu 9 l, endurtakið A.3 yfir næstu 36 l (= 2 sinnum á breiddina), A.4 yfir næstu 12 l *, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni.
Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 215 l í umf (= 107 l hvoru megin við miðjulykkju). Stykkið mælist ca 29 cm mælt meðfram miðjulykkju.

Prjónið nú frá réttu þannig: * 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5 yfir næstu 2 l, endurtakið A.6 þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.7, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.5 yfir næstu 2 l, endurtakið A.6 þar til 3 l eru eftir, A.7, endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Prjónið 16 umf í sléttprjóni og aukið út um með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki og sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við miðjulykkju í hverri umf frá réttu (= 4 l fleiri í hverri umf frá réttu) *, endurtakið mynstur frá *-* (= 26 l fleiri hvoru megin við miðjulykkju í hverri endurtekningu = alls 52 l fleiri). Eftir fyrstu endurtekningu eru 267 l í umf (= 133 l hvoru megin við miðjulykkju). Endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 371 l í umf (= 185 l hvoru megin við miðjulykkju). Stykkið mælist ca 54 cm. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.8, endurtakið A.9 þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, A.10, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.8, endurtakið A.9 þar til 3 l eru eftir, A.10, endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni (= 6 l fleiri hvoru megin við miðjulykkju í hverri endurtekningu = alls 12 l fleiri).

Þegar A.8 til A.10 hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina eru 443 l í umf (= 221 l hvoru megin við miðjulykkju). Stykkið mælist ca 66 cm. Prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 1 l sl, prjónið þar til 1 l er eftir á undan miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), 1 l sl (= miðjulykkja), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= 3 l fleiri), prjónið sléttprjón þar til 3 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni (= alls 8 l fleiri) = 451 l í umf. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið nú kant á sjalið.

KANTUR:
Snúið stykkinu ekki við, heldur fitjið upp 15 nýjar l fyrir kant á sjali frá röngu.
Snúið stykkinu við, prjónið 1 umf slétt yfir þessar 15 nýju l. Snúið stykkinu við. Prjónið síðan eftir mynstri A.11 yfir þessar l frá röngu (= 1. umf = ranga). Kanturinn er prjónaður saman með sjali í hverri umf frá réttu. Í hverri umf frá röngu er 1. l tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana br. Endurtakið A.11 þar til 8 l eru eftir á undan miðjulykkju á sjali (= alls 18 sinnum). Prjónið síðan A.12 (1. umf = ranga). Þegar allar l á undan miðjulykkju hafa verið prjónaðar saman með sjal eru prjónaðar stuttar umf, þ.e.a.s. prjónið yfir 1 l færri í hverri umf frá réttu. Prjónið 2 l merktar p með ör í mynstri. Eftir það eru prjónaðar stuttar umferðir þ.e.a.s. prjónið yfir 1 l fleiri á milli hverra umf frá réttu, þar til prjónað hefur verið yfir allar l frá kanti. Þegar alls A.12 hefur verið prjónað 1 sinni (þ.e.a.s. 10 l framhjá miðjulykkju), en 38 blöð meðfram kanti. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Fellið laust af með sl.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið tvisar uppá prjóninn á milli 2 l, sleppið niður öðrum uppslættinum í næstu umf, hinn uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn, það á að myndast gat.
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn á EKKI að prjónast snúinn, það eiga að myndast göt.
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn á að prjónast snúinn slétt í næstu umf, það á EKKI að myndast gat.
symbols = í þessari umf er kanturinn prjónaður saman með miðju-l
symbols = Picot: Takið 1. l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, steypið síðustu l á hægri prjóni yfir fremstu.
symbols = prjónið 2 l í sömu l
symbols = síðasta l frá kanti (frá réttu) er prjónuð slétt saman með 2 næstu lausu l frá sjali.
symbols = síðasta l frá kanti (frá réttu) er prjónið slétt saman með næstu lausu l frá sjali.
symbols = 1 l sem tekin er óprjónuð eins og prjóna eigi hana br
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Birrit Andersen wrote:

Det ser ud som garnet er udgået? ( baby alpaca silk) Hvad kan bruges i stedet?

16.04.2024 - 12:39

DROPS Design answered:

Hej, du kan bruge DROPS Alpaca, BabyMerino, Nord, Flora og alle de andre garner fra garngruppe A - prøv vores omregner som du finder i opskriften :)

16.04.2024 - 13:26

country flag Diane Theberge wrote:

Je fais le châle sweet leaves no 169-29. Au bas de 1ere page des explications lors du diagramme a5,a6 et a7 on représente 8 lignes mais il faut tricoter 16 rangs par série donc comment j applique le diagramme après les 8lignes je recommence à la 1ere ligne? Merci de me répondre

26.03.2024 - 20:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Theberge, vous devez en fait tricoter ainsi: * les diagrammes A.5, A.6, A.7 comme indiqué, puis 16 rangs jersey en augmentant tous les rangs sur l'endroit*, répétez 3 fois de *-* autrement dit vous tricotez les 8 rangs des diagrammes + 16 rangs jersey (en augmentant) = 24 rangs x 3 = 72 rangs au total, vous avez augmenté 20 mailles à chaque fois que vous avez fait les diagrammes + 32 mailles = 52 mailles pour chaque série x 3 = 156 augmentations + les 215 mailles = 371 mailles au total. Bon tricot!

02.04.2024 - 10:37

country flag Monique Defferrard wrote:

Bonjour, DROPS Design, merciii beaucoup, j'ai réussi . Enfin de compte trés facile . Cordialement

04.12.2023 - 08:32

country flag Monique Defferrard wrote:

BONJOUR, je suis arrivée à la fin du diagramme A11 ( à 8m de la maille centrale) , pour A12 je reprend par le 1 rang du bas ou pas,car pour moi je refais A11. Merci . CORDIALEMENT

01.12.2023 - 17:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Defferrard, lorsqu'il reste 8 m avant la m centrale, tricotez A.12 en commençant en bas (comme pour les autres diagrammes); vous tricotez d'abord les premiers rangs de A.12 comme vous avez fait pour A.11 puis vous tricotez des rangs raccourcis comme indiqué par le diagramme, puis le rang avec la flèche (tricotez la m centrale comme avant), puis des rangs raccourcis de nouveau pour la 2ème partie de A.12, puis vous tricoterez les 8 premières mailles après la m centrale comme vous l'avez fait auparavant en terminant A.12. Bon tricot!

04.12.2023 - 07:41

country flag Arnarissoq Løvstrøm wrote:

Hvordan gøre man “Tag ud med omslag”? Og hvor? jeg kan ikke forstår det.

27.02.2023 - 20:54

DROPS Design answered:

Hej, du laver et omslag indenfor kantmaskerne og på hver side af de midterste masker :)

28.02.2023 - 14:42

country flag Monika Pisu wrote:

2 M kraus re., A8, A9 wdh. bis noch 1 M übrig ist, A10 1M glatt re (=Mittel-M) A8, A9 wdh bis noch 3 M übrig sind A10 , enden mit 2 M kraus re (= je 6 M zugenommen bis der Muttel M pro Rapport = insgesamt 12 M zugenommen). Laut Strickschrift ( ident mit A5, A6 und A7) nehm ich insgesamt nur 4 M zu wie mit 5, 6, 7. Ist das ein Fehler in der Strickschrift oder versteh ich was nicht? danke für die Hilfe, Monika Pisu

30.11.2021 - 22:26

DROPS Design answered:

Liebe Frau Pisu, wenn die Diagramme einmal gestrickt werden (= nach den 6 Reihen in A.8, A.9, A.10), haben Sie insgesamt 12 Maschen zugenommen (3 M in jedem A.8 x 2 + 3 M in jedem A.10 x 2 = 6 M beidseitig von der Mittlemasche und 12 M insgesamt. Viel Spaß beim stricken!

01.12.2021 - 07:26

country flag Ellenor Wäverstam wrote:

Hej! 169-29, jag undrar om det är fel eller skall vara så på diagram A2 varv 22 att det inte är 2 räta som det är på de andra varven, men i slutet av v är det 2? Får det inte att stämma! Med vänlig hälsning, Ellenor Wäverstam

15.03.2021 - 08:51

DROPS Design answered:

Hej Ellenor, jeg tror du har ret i at der skal være 2 ret fra vrangsiden i A.2, som der også er i den anden side. Vi skal få lavet en rettelse :)

08.04.2021 - 09:12

country flag Jeanet wrote:

Hej. Hvad har jeg lavet galt når jeg efter A1 kun har 61 m incl kantmasker og der i opskriften står jeg burde have 119 m?

12.10.2020 - 00:34

DROPS Design answered:

Hei Jeanet. Har du fått med deg alle kastene? A.1 strikkes på hver side av en midtmaske og når A.1 er ferdig strikket i høyden skal du ha 59 masker på hver side av midt masken. mvh DROPS design.

12.10.2020 - 15:07

country flag Melanie wrote:

Bonjour est il possible de m’expliquer cette partie que je n’ai pas très bien comprise: Tricoter ensuite ainsi sur l'endroit: *2 m point mousse, A.5 sur les 2 m suivantes, répéter A.6 jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant la m centrale, A.7, 1 m jersey (= m centrale), A.5 sur les 2 m suivantes, répéter A.6 jusqu'à ce qu'il reste 3 m, A.7, terminer par 2 m point mousse. Tricoter 16 rangs jersey et augmenter tous les rangs sur l'endroit

29.06.2020 - 09:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, tricotez ainsi: 2 m point mousse, A.5 (= 2 m au 1er rang), A.6 (= 2 m) jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant l m centrale, A.7 (= 1 m au 1er rang), 1 m centrale en jersey, A.5 (= 2 m), A.6 jusqu'à ce qu'il reste 3 m, A.7 (= 1 m au 1er rang) et 2 m point mousse. Quand les diagrammes sont terminés, tricotez 16 rangs jersey en augmentant 4 m tous les rangs sur l'endroit comme avant. Répétez cette séquence (= les diagrammes A.5-A.7 et 16 rangs jersey) encore 2 autres fois (3 fois au total). Bon tricot!

29.06.2020 - 14:03

country flag Melanie wrote:

Bonjour, est ce que c’est possible d’avoir plus d’explication pour la partie du châle avec les digramme de A5 à A7 , voire à la limite une vidéo? Merci

23.06.2020 - 19:13

DROPS Design answered:

Bonjour Melanie, tricotez A.5 sur 2 mailes au 1er rang (vous ferez: 1 jeté, 2 m end = vous avez augmenté 1 m). Répétez A.6 (= 2 m) jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant la m centrale la 1ère fois et 3 m avant la fin du rang de l'autre côté. Tricotez ensuite A.7 (= 1 m au 1er rang soit 1 m end, 1 jeté). Au rang suivant (sur l'envers), tricotez toutes ces mailles à l'endroit. Continuez les diagrammes ainsi, tous les 2 rangs vous augmentez dans A.5 et A.7. Mettez des marqueurs pour délimiter les diagrammes, c'est souvent très pratique. Bon tricot!

24.06.2020 - 07:23