Geeta skrifaði:
What will be the bust measurement in inches/cms for S M L etc sizes? thank you.
16.06.2016 - 06:12DROPS Design svaraði:
Dear Geeta, you will find a measurement chart at the bottom of the pattern with all measurements for each size in cm - taken flat from side to side. Convert into inch and read more about sizing here. Happy knitting!
16.06.2016 - 08:49
Johane skrifaði:
Je suis incapable d imprimer le diagramme merci de m aider johane
26.03.2016 - 00:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Johanne, un test nous a permis d'imprimer les diagrammes en page 6/8 des explications. Bon tricot!
29.03.2016 - 08:42
Loredana skrifaði:
Quindi il motivo risulta più alto sul dietro.... Grazie ancora Loredana
26.02.2016 - 10:21DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Sì esatto: sul dietro ripete il motivo 5 volte in verticale; sul davanti 4 volte in verticale. Buon lavoro!
26.02.2016 - 11:53
Loredana skrifaði:
Buongiorno, Le spiegazioni per il dietro sono: 2 m rasata, A2C × 8 volte (80 m), A2B x 1 volta (9 maglie), 2 m rasata (totale = 93 m). Quindi le ripetizioni sono 9...o sbaglio? Comunque, scalando di volta in volta un motivo da entrambi i lati, le ripetizioni totali in verticale sarebbero 5! Grazie Loredana
26.02.2016 - 07:55DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Chiediamo scusa. E' corretto come dice lei. Le ripetizioni sul dietro sono 9 e le ripetizioni in verticale sono 5. Grazie e buon lavoro!
26.02.2016 - 09:28
Loredana skrifaði:
Buonasera. Sto realizzando la taglia M, ho sui ferri 201 maglie, quindi inizialmente 4 ripetizioni (orizzontali) del motivo ajour per il davanti e 9 per il dietro. Andandò a lavorare 1 motivo in meno ogni volta mi ritrovo con 4 ripetizioni (in totale) in verticale per il davanti e 5 per il dietro. Ovviamente il motivo è più alto nel dietro ....è giusto così il motivo deve avere lo stesso numero di ripetizioni? Grazie Loredana
25.02.2016 - 16:24DROPS Design svaraði:
Buongiorno Loredana. Per la taglia M, sul dietro, le ripetizioni del motivo dovrebbero essere 8. In questo modo, per questa taglia, l'altezza finale del motivo risulta uguale sul davanti e sul dietro. Buon lavoro!
26.02.2016 - 06:42
Joanieke skrifaði:
Hello, As I was reading the pattern, it said in the part about the body to continue the garter stitch for 2 cm: However if I look at the photo of the model wearing this vest it looks like the garter stitch is being continued more around 10 cm. And the drawing of the model below for the size guide, seems to say 8 or 10 centimeters as well. Can you please explain to me what the right lenght of the garter stitch should be?
03.02.2016 - 19:14DROPS Design svaraði:
Dear Joanieke, at the very beg of the body you start working in rib with 2 edge sts in garter st like this: 2 edge sts in garter st, K 1, P 1, K 1, P 2 (= 7 band sts), * K 2, P 2 * repeat from *-* until 9 sts remain on needle, finish with K 2 and 7 band sts as follows: P 2, K 1, P 1, K 1, 2 edge sts in garter st. Then work following diagrams A.1A and A.1B until piece measures 8-10 cm. Happy knitting!
03.02.2016 - 19:28
Martha skrifaði:
Hab schon die passende Farbe ausgesucht, ich freue mich so darauf dieses Modell zu stricken :)
24.01.2016 - 15:18
Sol Sandvik skrifaði:
This is so beautiful! Retro, and such a lovely fit.
11.01.2016 - 20:43
Roswitha skrifaði:
Zuckersüß! Als Alternative könnte man die Ärmel auch bis zu den Ellenbeugen verlängern.
18.12.2015 - 13:52
Ille skrifaði:
So cute! Love the retro look!
17.12.2015 - 23:00
Spring Fling#springflingbolero |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Alpaca með gatamynstri og litlum köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 169-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf (= ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn í næstu umf svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hversu oft eigi að fella af í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 232 l), mínus kant að framan (t.d. 14 l) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 47 l) = 4,6. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er prjónað til skiptis þriðja og fjórða og fjórða og fimmta hver l saman (ekki er fellt af yfir kant að framan) HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu hverja l frá kanti snúna slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umf er uppslátturinn prjónaður inn í stroff). Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 7, 11, 15, 19, 23 og 27 cm. STÆRÐ M: 2, 7, 12, 17, 21, 25 og 29 cm. STÆRÐ L: 2, 7, 12, 17, 21, 25 og 29 cm. STÆRÐ XL: 2, 7, 12, 17, 22, 27 og 31 cm. STÆRÐ XXL: 2, 7, 12, 17, 22, 27 og 31 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 8, 13, 18, 23, 28 og 33 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 232-256-280-312-356-392 l (meðtaldar 7 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni , 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 2 l br (= 7 kantlykkjur að framan), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 9 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l sl og 7 kantlykkjur að framan þannig: 2 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff svona í 2 cm – Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.1A þar til 9 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 2 l) og endið á 7 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 8-8-8-10-10-10 cm. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu þar sem fækkað er um 47-55-59-67-79-83 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 185-201-221-245-277-309 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf br til baka (kantur að framan er prjónaður eins og áður). Setjið 1 prjónamerki 50-54-59-65-73-81 l inn frá hvorri hlið (= 85-93-103-115-131-147 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A yfir næstu 40-40-50-50-60-70 l (= 4-4-5-5-6-7 mynstureiningar 10 l), prjónið 3-7-2-8-6-4 l sléttprjón, prjónamerki, prjónið 8-2-7-3-1-9 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2C yfir næstu 60-80-80-100-120-120 l (= 6-8-8-10-12-12 mynstureiningar 10 l), prjónið A.2B 1 sinni (= 9 l), 8-2-7-3-1-9 l sléttprjón, prjónamerki, 3-7-2-8-6-4 l sléttprjón, mynstur eftir mynsturteikningu A.2C yfir næstu 40-40-50-50-60-70 l og endið á 7 kantlykkjum eins og áður. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! MYNSTU: Haldið áfram með mynstur og sléttprjón þar til prjónuð hefur verið 1 mynstureining á hæðina. Nú er mynstur prjónað alveg eins, en yfir 1 mynstureiningu færri við prjónamerki í hliðum, þ.e.a.s. A.2A er prjónað alls 3-3-4-4-5-6 sinnum, prjónið 13-17-12-18-16-14 l sléttprjón, prjónamerki, 18-12-17-13-11-19 l sléttprjón, A.2C alls 4-6-6-8-10-10 sinnum, A.2B 1 sinni, 18-12-17-13-11-19 l sléttprjón, prjónamerki, 13-17-12-18-16-14 l sléttprjón, A.2C alls 3-3-4-4-5-6 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur með því að prjóna yfir 1 mynstureiningu færri við prjónamerki í hliðum þar til prjónuð hefur verið 1 mynstureining yfir síðustu mynstureiningu við miðju að framan og við miðju að aftan. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l til loka. ÚTAUKNING Á HLIÐUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-12-12-12 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 1½-1½-2-2-2½-2½ cm millibili alls 6-6-6-6-5-5 sinnum = 209-225-245-269-297-329 l. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 53-57-61-67-73-81 l eins og áður (= framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 91-99-107-119-131-147 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg og prjónið þær 53-57-61-67-73-81 l sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 91-99-107-119-131-147 l. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka á hringprjóna og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l 1-2-3-4-5-6 sinnum og 1 l 1-2-3-3-6-7 sinnum = 85-87-89-91-93-97 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm fellið af miðju 33-33-35-35-37-37 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í byrjun á 2 næstu umf frá hálsi = 24-25-25-26-26-28 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 53-57-61-67-73-81 l. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka á hringprjóna nr 7 með kantlykkjum við miðju að framan eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hlið á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-30-30-32-32-34 cm setjið fyrstu 12-12-13-13-14-14 l í byrjun umf frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (til að sleppa við að klippa frá eru l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Síðan er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá miðju að framan þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 4 sinnum og 1 l 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 24-25-25-26-26-28 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum á vinstra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna þegar ermakúpan byrjar. Fitjið upp 76-80-88-92-100-108 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 1 cm er mynstrið prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1A. Þegar stykkið mælist 3-3-3-4-4-4 cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-5 l, prjónið 70-74-80-84-90-98 l sl og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur fram og til baka á hringprjóna eftir mynsturteikningu A.3. JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 3-4-4-4-4-5 sinnum og 1 l 6-7-9-9-12-12 sinnum. Fellið síðan af 2 l í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-12-13-15-17-18 cm. Fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf og laust af þær l sem eftir eru, ermin mælist ca 12-13-14-16-18-19 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu á hringprjóna nr 2,5 ca 118 til 138 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan). Prjónið 5 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springflingbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.