DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull |
946.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Cotton Merino uni colour 50% Ull, 50% Bómull 946.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= 2 l slétt saman | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l, prjónið br í næstu umf | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l, prjónið snúið br í næstu umf | |
= takið 1 l óprjónaða, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Summer Diamond Shawl |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónað sjal með gatamynstri úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 160-10 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.11. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. 3 KANTLYKKJUR: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með þráðinn fyrir aftan stykkið), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Prjónið þar til 3 l eru eftir, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með þráðinn fyrir aftan stykkið), 1 l sl. UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, 1 l br, sleppið niður uppslættinum, 1 l br. Prjónið þar til 3 l eru eftir, 1 l br, sleppið niður uppslættinum, 1 l br og 1 l sl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. Sjalið er prjónað frá miðju að aftan og niður. SJAL: Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Setjið 1 prjónamerki í 5. l (= miðjulykkju) og látið það fylgja með í miðjulykkju. Miðjulykkjan er prjónuð allan tíman í sléttprjóni. Prjónið og aukið út eins og útskýrt er í A.1 og A.2 þannig: Prjónið 3 KANTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, A.1 er prjónað fram að miðjulykkju, 1 l sléttprjón, A.2 er prjónað fram þar til 3 lykkjur eru eftir og prjónið á 3 kantlykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru útaukningar endurteknar eins og útskýrt er í A.z og A.x (þ.e.a.s. prjónið sléttprjón jafnframt er aukið út um 1 l hvoru megin við miðjulykkju, en innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið er aukið út til skiptis: 2, 2, 2, 2 og 3 l í hlið eins og útskýrt er í mynstri (til skiptis 6, 6, 6, 6 og 8 l í hverri umf frá réttu í A.z-A.x). Þegar útaukningar í A.z-A.x hafa verið prjónaðar 3 sinnum, prjónið A.z-A.x 1 sinni til viðbótar EN í síðustu umf frá réttu (sjá stjörnu í mynstri) aukið út um 1 l (í stað fyrir 3 l) í hvorri hlið, útaukning í miðju er gerð eins og í mynstri = þá eru 177 l á prjóni. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 l hvoru megin við miðjulykkju (= 4 l fleiri) = 181 l á prjóni (þ.e.a.s. 90 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan eftir A.3-A.5 þannig: Prjónið 3 kantlykkjur, mynstur A.3 yfir 1 l, A.4 er endurtekið yfir næstu 84 l (= 3 sinnum), A.5 yfir 2 1, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.3 yfir 1 l, A.4 er endurtekið yfir næstu 84 l (= 3 sinnum), A.5 yfir 2 l og prjónið 3 kantlykkjur. Þegar mynstur A.3-A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 293 l á prjóni (þ.e.a.s. 146 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið 3 kantlykkjur, mynstur A.6 yfir 1 l, A.7 er endurtekið yfir næstu 140 l (= 5 sinnum) og A.8 yfir 2 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.6 yfir 1 l, A.7 er endurtekið yfir næstu 140 l (= 5 sinnum, A.8 yfir 2 l og prjónið 3 kantlykkjur. Þegar A.6-A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 373 l á prjóni (þ.e.a.s. 186 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið 3 kantlykkjur, A.9 yfir 20 l, A.10 er endurtekið yfir næstu 140 l (= 5 sinnum), A.11 yfir 23 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.9 yfir 20 l, A.10 yfir næstu 140 l (= 5 sinnum), A.11 yfir 23 l og prjónið 3 kantlykkjur. Þegar mynstur A.9-A.11 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 401 l á prjóni (= 200 l hvoru megin við miðjulykkju). Prjónið nú kant með gataumferð. KANTUR MEÐ GATAUMFERÐ: UMFERÐ 1 (1. Umf = rétta): Prjónið 3 kantlykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, sl fram þar til 3 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 3 kantlykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sl. UMFERÐ 3: Prjónið eins og umf 1. UMFERÐ 4: Prjónið 3 kantlykkjur, br frá röngu fram þar til 3 l eru eftir, 3 kantlykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið 3 kantlykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkju, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l slétt (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* fram þar til 4 l eru eftir, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 3 kantlykkjur. Endurtakið umf 1-2, 2 sinnum til viðbótar. Fellið laust af með sl í næstu umf. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (26)
Emilia Tulila wrote:
Mitä tarkoittaa: Kun olet neulonut piirrokset loppuun, toista piirrosten A.z ja A.x lisäykset (eli neulo sileää neuletta ja lisää SAMALLA keskisilmukan molemmin puolin 1 s, mutta lisää kummankin reunan 3 reunasilmukan sisäpuolella vuorotellen: 2, 2, 2, 2 ja 3 s sivuun piirroksen mukaisesti (vuorotellen 6, 6, 6, 6 ja 8 s piirrosten A.z-A.x jokaisella oikean puolen krs:lla)). Saan tehtyä mallikerran A1 ja A2 vain kerran ja jään jumiin. En saa kasaan 177 silmukkaa.
23.07.2022 - 11:53Ana Suarez wrote:
No me queda claro la corrección del patrón? Donde iría la hebra que dice? El parón dibujado para A1 y A2 no es el correcto entonces? Muchas gracias por la ayuda
11.03.2022 - 05:19DROPS Design answered:
Hola Ana, la corrección es una advertencia, por si alguien tiene descargado o impreso el patrón, de que ha sido modificado. El diagrama que está ahora online es el diagrama correcto o definitivo. Si tienes impreso el patrón a una fecha previa a la de la realización de la corrección, podrías tener un diagrama erróneo, por lo que tendrías que imprimirlo de nuevo.
11.03.2022 - 18:12Jasmin wrote:
Hallo. Ich habe nun Ax & Az so gestrickt wie es in der Anleitung steht, allerdings habe ich viel mehr maschen als 177 auf der nadel. Ich muss dazu sagen es ist das erste Mal, dass ich mit Diagramm arbeite. Was hab ich falsch gemacht
01.07.2020 - 06:56DROPS Design answered:
Liebe Jasmin, nach A.1 und A.2 1x gestrickt sind haben Sie 53 M (23 M in jedem Diag. + 2 x 3 M + 1 mitt-M), dann wiederholen Sie 3 Mal die Reihen in A.x/A.z (16 Maschen werden in A.x + 16 Maschen in A.z zugenommen) = 85 M, nach 2. Mal = 117 Maschen und nach 3. Mal = 149 M. Jetzt wiederholen Sie die Diag. noch einmal aber mit nur 14 Zunahmen = 177 Maschen. Viel Spaß beim stricken!
01.07.2020 - 08:59Ann-Catrin Hansson wrote:
Svårt mönster att förstå. Får inte ihop 177 maskor. Finns det en bättre förklaring på HUR man ska sticka?
10.04.2018 - 12:09DROPS Design answered:
Hei Ann-Cathrin. Du har helt rett i at det ikke blir 177 masker, det var en feil i oppskriften som nå er blitt rettet. A.z-A.x skal gjentas 3 ganger (ikke 4), så en gang til hvor det på siste pinne fra retten økes kun 1 maske i hver side =177. Altså, A.z-A.x skal strikkes totalt 4 ganger, inkludert den siste gangen med kun 1 maske økt i hver side. God fornøyelse
13.04.2018 - 11:52IOANA DETESAN wrote:
"DROPS CIRCULAR NEEDLE (80 cm) SIZE 3.5 mm" or "Cast on 9 sts on circular needle size 4 mm with Cotton Merino". How is it right? Best regards, Ioana
25.09.2015 - 20:48DROPS Design answered:
Dear Mrs Detesan, shawl is worked with needle size 3,5 mm, pattern has been updated, thank you. Happy knitting!
06.10.2015 - 13:04Gavanesch wrote:
Est ce que le modèle n'est pas trop difficile à faire je tricote pas mal mais avec tous ces diagrammes ca me fait peur Merci
17.09.2015 - 09:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gavanesch, pour vous aider à la réalisation de ce modèle, vous trouverez à droite de la photo un onglet "vidéos" qui reprend toutes les vidéos utilisées dans ce modèle. Pour toute assistance complémentaire, vous pouvez vous adresser à votre magasin DROPS, il pourra vous répondre par mail ou téléphone, ou au forum DROPS. Bon tricot!
17.09.2015 - 11:43Sylvia Kuehm wrote:
Ik heb na alle meerderingen meer dan 177 steken ik begrijp de duitse en andere talige uitleg niet. Kan ik deze uitleg in het nederlands kriigen? alvast bedankt
31.07.2015 - 21:27DROPS Design answered:
Hoi Sylvia. Je kan ook kijken op het Nederlandse patroon - zie hier Of kies Nederlands in het Change Language menu onder de foto.
03.08.2015 - 13:44Joke Dolsma wrote:
Fout in vertaling. Er staat als a.z -a.x 4 x......... HAAK Het is een brei patroon
21.07.2015 - 19:59DROPS Design answered:
Hoi Joke. Bedankt voor het melden, het is aangepast.
28.07.2015 - 16:09Joke Dolsma wrote:
Bij benodigdheden staat rondbreinaald 3,5 maar het patroon begint met zet 9 steken op met naald 4. Op de cotton merino staat ook naald 4. Welke dikte naald wordt nu gebruikt voor het breien? Vriendelijke groet, Joke
14.07.2015 - 17:24DROPS Design answered:
Hoi Joke. Je moet 3,5 mm gebruiken. Excuses voor de wachttijd!
06.10.2015 - 12:49DROPS Design wrote:
Hej Sonja. Her er forklaring: Start med 9 m. M som strikkes i a.1 og a.2 er i starten 1 m. Etter a.1 1 x = 23 m. Så økes det 16 m 4 x og siste gang økes bare 14 m: 1 m blir til 23 (1 x A1) +16 = 39 ( 2 x) +16 = 55 ( 3 x) +16 = 71 ( 4 x) +16 = 87 - 2 økninger som ikke gjøres siste gang = 85 m (siste x). Dette er kun A.1, altså bare halve sjalet uten kant-m og midt m. Så da blir det 85 + 85 + kant-m og midt m = 7 = 177. Haaber det er tydeligt nu :-)
05.06.2015 - 09:44