Marja skrifaði:
Onkohan silmukkamäärät ihan oikein tuossa 38/40 koon ohjeessa kantapään jälkeen? Jalkapöydän kuviossa on 29 s. Mutta ohjeen mukaan siinä on 31 s. Vai, siirretäänkö molemmin puolin 1 s takaisin kantapäähän kiilakavennuksen alkaessa? Taidan häivyttää nuo 2 "ylimääräistä" kaventamalla ne pois kiilakavennuksessa.
20.10.2023 - 16:52
Beatrice Williams skrifaði:
I have just started this pattern. On line 5 of A.1 and the increase and decrease will add one stitch that is not reflected in other rows. What am I missing? Thank you.
17.08.2021 - 17:56DROPS Design svaraði:
Dear Beatrice, in the fifth row of A.1 there are two yarnovers and there is a K2Tog PSSo in between (which decrases 2 stitches) so the number of stotches do not change. Happy Stitching!
17.08.2021 - 23:21
Johanna skrifaði:
Thank you for quick response! I was doing it correctly, but YO is tought differently here in Finland so that is why my work did not have so big holes and the pattern looked like tight diamonds :)
13.01.2016 - 17:00
Johanna skrifaði:
Thank you for quick response! I was doing it correctly, but YO is tought differently here in Finland so that is why my work did not have so big holes and the pattern looked like tight diamonds :)
13.01.2016 - 17:00
Johanna skrifaði:
Are you sure that your diagrams are correct? My work does not look like the socks in your picture and I am pretty sure I am doing it correctly. My pattern looks like boring diamonds and the ones in your picture seem to be something else. Hopefully you can answer me, I am putting my knitting on hold for now, because I dont want to do boring diamonds :) Best regards, Johanna
12.01.2016 - 21:46DROPS Design svaraði:
Dear Johanna, diagrams are correct and pattern looks like the one shown in the video below - remember to check and keep the gauge to get same look. Happy knitting!
13.01.2016 - 10:01
Mona Sundqvist skrifaði:
Speciella och vackra!
06.01.2015 - 20:39
Anita skrifaði:
Für Socken gibt es viele Anleitungen. Kniestrümpfe bleiben eine Herausforderung wegen der Wadenzunahme. Toll, wenn es dan noch einige Varianten mehr gäbe..
02.01.2015 - 21:09
Päivi skrifaði:
Look good - perhaps my favourite color
12.12.2014 - 11:33
Pernilla#pernillasocks |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 160-26 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l hvoru megin við A.3 þannig (byrjið 2 l á undan A.3): Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið A.3, 2 l slétt saman. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-17 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 120-132-144 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 80-88-96 l á prjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú þannig: A.3, 20-24-28 l sléttprjón, A.2 (= miðja að framan), 20-24-28 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.3 – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 3-2-2 cm millibili 11-14-16 sinnum til viðbótar (alls 12-15-17 úrtökur) = 56-58-62 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 36-38-40 cm. Haldið eftir fyrstu 18-19-20 l á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 31-31-33 l á þráð (= miðja ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 7-8-9 l fyrir hæl = 25-27-29 l fyrir hæl. Prjónið nú sléttprjón yfir hæl-l í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-14-16 l hvoru megin við hæl og 31-31-33 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-74-82 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 31-31-33 l ofan á fæti. Haldið síðan áfram í sléttprjóni undir fæti og A.2 ofan á fæti eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á UNDAN fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu l á EFTIR seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 8-8-10 sinnum til viðbótar (alls 9-9-11 úrtökur) = 52-56-60 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-12-15 cm frá prjónamerki (stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2) prjónið A.4 yfir A.2. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 18-20-22 cm frá prjónamerki (= ca 4-4-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir prjónamerki: 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 5-6-7 sinnum og síðan í hverri umf 5-4-4 sinnum = 12-16-16 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Þræðið silkiborða upp og niður í gatakantinn efst á sokknum og hnýtið slaufu að framan. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pernillasocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.