Dagmar Malinová skrifaði:
Krásné bolerko. Prosím Vás o uvedení návodu.
11.01.2015 - 18:12
Elena skrifaði:
Bellissimo, originale, elegante, fantastico per l'estate. Grazie x i vostri fantastici modelli
08.01.2015 - 14:11
Leena Suikkanen skrifaði:
Kaunis kesäinen malli.
07.01.2015 - 12:42
Corrine skrifaði:
Deze is supermooi
05.01.2015 - 13:11
Angela skrifaði:
Ännu en underbar modell!!
04.01.2015 - 19:10
Kris skrifaði:
Another beautiful design, its gorgeous
01.01.2015 - 16:48
Lara skrifaði:
In assoluto il mio preferito, spero che pubblichiate al più presto le spiegazioni per potermelo realizzare.
30.12.2014 - 02:28
W Van Leeuwen-van Onselen skrifaði:
Mooi vestje, past bij veel kleding. Laat de zomer maar komen!
28.12.2014 - 16:28
Bertina skrifaði:
Heel mooi.
24.12.2014 - 09:54
Van Kolck skrifaði:
Prachtig heerlijk over een t-shirt
19.12.2014 - 16:42
Kamelia#kameliashoulderpiece |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Safran með gatamynstri, prjónað í ferhyrning. Stærð S - XXXL
DROPS 160-25 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er prjónaður ferhyrningur, síðan er prjónað út og hvor ermin er prjónuð fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna þegar aukið hefur verið út nægilega margar l. Fitjið upp 12 l með Safran og skiptið l niður á 4 sokkaprjóna nr 3,5 (= 3 l á hverjum prjóni). Setjið síðan 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1. prjónamerki á milli 3. og 4. l, 2. prjónamerki á milli 6. og 7. l, 3. prjónamerki á milli 9. og 10. l og 4. prjónamerki á milli 12. og 1. prjónamerki. Prjónið síðan A.1 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 4 sinnum). Prjónamerki merkja hornin, látið prjónamerkin fylgja með í stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (sjá ör fyrir rétta stærð) prjónið hvora hlið áfram hvora fyrri sig = 63-67-71-75 l meðfram hverri hlið og alls 252-268-284-300 l á prjóni. Prjónið síðan einungis yfir fyrstu 63-67-71-75 l (= ein hlið, l á milli 4. og 1. prjónamerki), setjið aðrar hliðar sitt hvorn þráðinn, síðar á að prjóna yfir l á milli 2. og 3. prjónamerkis. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 l í fyrstu l, 0-2-4-6 l sl, A.2 (= 61 l), 0-2-4-6 l sl, prjónið 2 l í síðustu l á prjóni = 65-69-73-77 l. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1-3-5-7 l sléttprjón, A.2, 1-3-5-7 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni til loka. STÆRÐ L/XL-XXL-XXXL: Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorir hlið á stykki innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING, endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 2-4-8 sinnum til viðbótar = 75-83-95 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ALLAR STÆRÐIR: = 65-75-83-95 l. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 27-32-36-42 l sléttprjón, A.3 (= 9 l), 27-32-36-42 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.3 alls 2 sinnum á hæðin. Prjónið 0-6-0-4 umf sléttprjón. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 3-1-1-3 l jafnt yfir = 62-74-82-92 l. Prjónið br til baka frá röngu. Prjónið A.4 – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð (= 12-12-10-10 l) 5-6-8-9 sinnum á breiddina. Prjónið A.4 alls 2-2-3-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.5 (= 6 l) 10-12-13-15 sinnum, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 0-0-2-0 l jafnt yfir = 62-74-80-92 l. Fellið af þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerki á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman hlið innan við 1 kantlykkju, 27 cm upp frá stað neðst niðri á ermi og upp. Gerið alveg eins í hinni hliðinni. KANTUR: Kanturinn er prjónaður í hring á hringprjóna. Byrjið við annan sauminn við ermi og prjónið með hringprjóni nr 3,5 með Safran frá réttu þannig: Prjónið upp 20-25-28-30 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sl yfir 63-67-71-75 l af þræði, prjónið upp 40-50-56-60 l innan við 1 kantlykkju, prjónið sl yfir 63-67-71-75 l af þræði, prjónið upp 20-25-28-30 l = 206-234-254-270 l. Prjónið 1 umf br JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 40-47-52-56 l br, setjið 1. prjónamerki, prjónið 23 l br, setjið 2. prjónamerki, prjónið 80-94-104-112 l br, setjið 3. prjónamerki, prjónið 23 l br, setjið 4. prjónamerki, prjónið út umf (= 40-47-52-56 l br). Þegar auknar eru út l er ekki aukið út á milli 1. og 2. prjónamerkis (merki við hnakka) og á milli 3. og 4. prjónamerkis (merkir miðju að aftan). Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 14-15-18-22 l jafnt yfir = 220-249-272-292 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið síðan A.6 (= 6 l) JAFNFRAMT er aukið út í fyrstu umf 14-15-16-20 l jafnt yfir = 234-264-288-312 l. A.6 er nú prjónað 39-44-48-52 sinnum á breidd. Endurtakið A.6 1 sinni til viðbótar á hæðina JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 24-30-36-36 l jafnt yfir = 258-294-324-348 l. A.6 prjónið nú 43-49-54-58 sinnum hringinn. Þegar A.6 hefur verið prjónað er fellt laust af. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kameliashoulderpiece eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.