DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Peach Macaroon

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri og laksalínu. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 160-23
DROPS Design: Mynstur nr r-668
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 gr litur nr 10, ferskja

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (ljós bleik), NR 618: 7-7-7-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6292.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN:
Kantur að framan (= 6 l) eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 6 l sl.
UMFERÐ 2: 6 l sl.
Endurtakið umf 1-2 alls 5 sinnum (= 10 umf garðaprjón).
UMFERÐ 11 (= rétta): * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, hin hliðin á stykkinu er prjónuð sem spegilmynd, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman (= gataumferð).
UMFERÐ 12: 1 l sl, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt.

LASKALÍNA:
Aukið er út mismunandi fyrir laskalínu eftir stærðum:
STÆRÐ S-M:
Aukið er út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt, endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 17-19 sinnum til viðbótar.
STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL:
Aukið út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig:
Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 16 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (fyrsti og síðasti uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt, en í 2. miðju uppsláttunum eiga að myndast göt). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 1-1-1-3 sinnum til viðbótar.
Aukið síðan út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga að myndast göt, endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 19-20-22-21 sinnum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), svo að ekki myndist göt.

LEIÐBEININGAR:
Myndin er öðruvísi en útskýring, það er engin saumur á ermi í útskýringu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 147-147-153-157-157-161 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 2 l) þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, endið á 6 kantlykkjum að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Þær 6 kantlykkjurnar að framan eru prjónaðar svona til loka. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: 6 kantlykkjur að framan, A.2 (= 7 l), prjónið sl þar til 13 l eru eftir JAFNFRAMT er aukið út um 14-18-12-20-40-44 l jafnt yfir, A.3 (= 7 l), endið á 6 kantlykkjum að framan = 161-165-165-177-197-205 l. Í næstu umf (= frá röngu) setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 6 kantlykkjur að framan, A.3, 15-16-17-20-25-28 l br (= framstykki), 1 l br og setjið 1. prjónamerkið í þessa l, prjónið 28-28-26-26-24 l br (= ermi), 1 l br og setjið 2. prjónamerkið í þessa l, prjónið 45-47-49-55-65-71 l br (= bakstykki), prjónið 1 l br og setjið 3. prjónamerkið í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-24 l br (= ermi), 1 l br og setjið 4. prjónamerkið í þessa l, 15-16-17-20-25-28 l br (= framstykki), A.2, endið á 6 kantlykkjum að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.2 - A.3 er endurtekið til loka.

Prjónið nú (frá réttu) – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, A.2, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 1. prjónamerki, prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 2. prjónamerki, prjónið laskalína, 0-1-1-4-9-12 l sl, A.4 (= 43 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 3. prjónamerki, prjónið laskalína, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 4. prjónamerki, prjónið laskalína, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 13 l, A.3 (= 7 l), endið á 6 kantlykkjum að framan. Útauknar l eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.4

Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað (= 57 l) yfir A.4.
Eftir alla útaukningu eru 305-325-349-369-405-437 l á prjóni. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, A.2 eins og áður, 33-36-40-44-51-57 l sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið næstu 81-87-95-103-117-129 l (= bakstykki) eins og áður, setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), 33-36-40-44-51-57 l sléttprjón (= framstykki), A.3 eins og áður, endið á 6 kantlykkjum að framan = 185-197-213-233-261-285 l eftir á prjóni.

Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram að prjóna mynstur og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hlið (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 161-181-197-217-245-269 l. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar l. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 8-7-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 197-213-229-249-277-301 l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, stillið af að næsta umf er frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan þannig: 6 kantlykkjur að framan, prjónið A.6 (= 2 l) þar til 7 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 6 kantlykkjur að framan. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, fellið af.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l) = 72-76-80-84-88-92 l – sjá LEIÐBEININGAR.
Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 l færri), endurtakið úrtöku með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili 12-13-14-15-17-18 sinnum til viðbótar = 46-48-50-52-52-54 l. Þegar stykkið mælist 32-32-32-31-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið A.6. Fellið af þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í, tölum er hneppt í gataumferðina í kant að framan. Efsta tala í hálsmáli er fest í vinstri kant að framan í fyrstu gataumferð, hoppið yfir 2 gataumferðir, festið næstu tölu, síðan eru þær festar í aðra hverja gataumferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.03.2015
BERUSTYKKI:Fjölda vantaði í stærð L undir skýringu á laskalínu
Yfirfarið á vefsvæði: 01.06.2015
Leiðrétting: Laskalína og berustykki hafa verið umorðuð.
Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2016
BERUSTYKKI: 28 l á framstykki í stærð XXXL (ekki 29)
Yfirfarið á vefsvæði: 16.05.2022
Leiðrétting BERUSTYKKI:..prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 2. prjónamerki, prjónið laskalína, 0-1-1-4-9-12 l sl, A.4 (= 43 l),

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Gilda Le Pera wrote:

Salve, all inizio del aumento raglan dice di aumentare 8 maglie ogni due giri. Ma nella spiegazione sembra che ne aumenta 16. Nella taglia S/M cita "aumentare 1 maglia da ciascun lato del segno come segue: 1 m gettata, 1 m a diritto ritorta," quest ultima maglia a diritto ritorta è già assistente o va aumentata? L aumento va fatto 2maglie prima del segno? Grazie mille

29.05.2022 - 07:39

DROPS Design answered:

Buonasera Gilda, durante il raglan si aumentano 8 maglie per giro facendo 1 gettato, come indicato nel paragrafo relativo: la maglia ritorta è una maglia già presente sul ferro. Buon lavoro!

29.05.2022 - 14:29

country flag Donna Zhang wrote:

On the first row of inc for RAGLAN (RS), for size L, between marker 2 and 3, there are 50 sts, follow instruction, the raglan will use 3 sts, then K 3, then A.4 (43 sts), these will use total of 3+3+43=49 sts, so there is only 1 st left and I cannot complete the last step of "K until 2 st remains before 3rd marker" because I would need at least 2 sts left before 3rd marker. Please help me. Thank you so much!

25.04.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Zhong, there are 49 sts between 2nd and 3rd marker, you increase 2 sts before 2nd marker (2 sts + 1 st with marker + 2 sts), 45 sts remain before 3rd marker, work stocking stitch + the lace pattern in A.4 centered in the middle of back piece + stocking st until 2 sts remain before 3rd marker and increase as before for raglan. Happy knitting!

26.04.2022 - 09:12

country flag Donna Zhang wrote:

Hi: I just posted a question with 499 characters, but got a reply "Your comment is too long!". Please reply to my email and explain why I cannot post a question that has 499 characters which is within your limit of 500 characters. Thank you. Donna Zhang

25.04.2022 - 00:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Zhang, for technical reason, there is a limit to the number of characters in every questions and answers; please try to reword your question to make it shorter so that we can help you. Thanks for your comprehension. Happy knitting!

25.04.2022 - 08:34

country flag Jess wrote:

I'm wondering what the best way to attach the buttons is: if align it with the YO on the band, it would seem I'd have to sew it to what is effectively a hole. Do you have recommendations on how best to tackle this? Thanks in advance!

06.09.2021 - 22:59

DROPS Design answered:

Dear Jess, the holes on the front band are the buttonholes, so that you will have to sew the buttons facing one of these holes/over the hole on the left front band to match the hole on the right front band. Happy knitting!

07.09.2021 - 08:35

country flag Manon wrote:

Je tricote la grandeur S. Je suis à faire le début du raglan. Entre le marqueur 2 et 3, j'ai 45 mailles. Si l'a dessus, je tricote les mailles torses que j'ai besoin pour le raglan des marqueurs 2 et 3, il me reste 43 mailles comme demandé dans A4. Cependant, on me demande suite au raglan du marqueur 2 de tricoter un maille endroit avant de tricoter A4. Il me manque donc 1 maille pour faire le motif du dos. Merci de votre aide.

14.05.2020 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Manon, effectivement, au 1er tour de A.4, vous allez augmenter pour le raglan, tricoter A.4 et augmenter pour le raglan, la maille endroit de part et d'autre de A.4 est utilisée pour le raglan. Bon tricot!

15.05.2020 - 08:04

country flag Nicole wrote:

Is het de bedoeling dat A4 voltooid is voordat de steken op de hulpdraad worden gezet, of moet dit gebeuren als de raglan meerderingen voltooid zijn? Alvast bedankt

12.03.2020 - 18:02

DROPS Design answered:

Dag Nicole,

Het is de bedoeling dat je A.4 helemaal afmaakt in de hoogte en daarna A.5 breit boven A.4. Je zet steken op de hulpdraad wannneer je op het aantal aangegeven steken zit, of de aangegeven hoogte voor jou maat. Met andere woorden: het steken op een hulpdraad zetten staat los van hoe ver je met A.4 bent.

22.03.2020 - 11:29

country flag Anna wrote:

Hallo ich versuche mich gerade an der Größe S. Ich hab jetzt fleißig bei jeder Reihe beim Raglan zugenommen. Jetzt komme ich nach A.4 aber weit über die Zahl von 305 Maschen. Also hab ich nochmal in der Beschreibung nachgelesen und gesehen das ich das 17 mal am Raglan nur wiederholen soll. Was soll ich danach an den Raglan Markierungen Stricken? Da A4 ja 28 Hinreihen hat. Und ich erst danach für mein Ärmel die Maschen still lege.

10.01.2020 - 05:16

DROPS Design answered:

Liebe Anna, bei der Größe S haben Sie 161 M + die Raglanzunahmen: 8 Maschen x 18 = 144 Raglanzunahmen + 161 = 305 Maschen. A.4 wird zuerst über 43 Maschen gestrickt, aber ab 20. Reihe wird A.4 über 57 Maschen (=7 M mehr beidseitig). Hoffentlich kann das helfen. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2020 - 09:40

country flag Joana wrote:

Olá... mais outra vez 😶 Finalmente consegui dar com o erro! Fiz uma laçada a mais na parte das costas.😜 Felizmente, foi mesmo na última carreira terminada, por isso não tive que desfazer muito! ☺ Assunto resolvido! Ufa! Obrigada,de qualquer forma, pela vossa disponibilidade! Bom trabalho! ☺

29.03.2017 - 21:38

DROPS Design answered:

Ficamos contentes por saber que conseguiu dar com o erro! E quando terminar este bonito casaco pode sempre partilhar uma foto no grupo DROPS do Facebook! Bom tricô!

30.03.2017 - 12:29

country flag Joana wrote:

Continuando... Esta é a contagem que fiz logo após ter terminado os aumentos do Ragan, pode ser que consigam detectar algum erro: 6 (orla) + 7 (A2) + 35 (frente) + 3* (*correspondem à malha meia torcida+malha marcador+malha meia torcida do Raglan) + 66 (manga) + 3* + 86 (costas) + 3* + 66 (manga) + 3* + 35 (frente) + 7 (A3) + 6 (orla). Obrigada!

29.03.2017 - 12:11

DROPS Design answered:

Deverá continuar e seguir as explicações do modelo para verificar o número final de malhas, após os aumentos do raglan. Bom tricô!

03.04.2017 - 13:06

country flag Joana wrote:

Olá outra vez! Preciso novamente da vossa ajuda. Já terminei os aumentos do Raglan e, de acordo com as instruções, deveria ter 325 malhas (8 aumentos x 20 repetições = 160 + 165 = 325), mas terminei com 326. Já contei os aumentos iniciais e deu certo (165), contei os ajours do Raglan e estão certos, por isso não sei o que fiz de errado.

29.03.2017 - 11:44

DROPS Design answered:

Ficamos contentes por saber que conseguiu dar com o erro! E quando terminar este bonito casaco pode sempre partilhar uma foto no grupo DROPS do Facebook! Bom tricô!

30.03.2017 - 12:29