Vidonne Marie skrifaði:
Bonjour, quand on travaille sur une aiguille circulaire, faut-il, sur le diagramme, suivre les indications de mailles endroit ou envers ou faut-il les inverser? Merci.
04.03.2015 - 16:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vidonne, quand on tricote en rond, on tricote les mailles comme elles doivent se présenter sur l'endroit (en jersey par ex on tricote tous les tours à l'endroit), en allers et retours, on tricote comme sur aiguilles droites. Bon tricot!
04.03.2015 - 17:56
Renate Gisbertz skrifaði:
Ein Traumteil und ich werde es für mich stricken
14.02.2015 - 15:21
Pia Jørgensen skrifaði:
Hej, jeg er i tvivl om pind 2 i A1. Skal de 6 vr masker i str. M på pind 2 i A1 strikkes vrang eller ret? På rundpinden. 1 pind er jo vrang. Synes ikke det fremgår af opskriften. Håber I forstår mit spørgsmål. Venlig hilsen Pia
11.02.2015 - 19:44DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Du strikker mönstret fra retten, og naar du strikker rundt paa rundpind er hver pind fra retten. Dvs, baade förste og anden pind af A.1 (hvid firkant) strikkes ret.
12.02.2015 - 17:18
Brandy skrifaði:
Ultra chic
08.02.2015 - 13:53
Mette skrifaði:
Hej Anne Bemærk, at der står gentag 10 gange til - altså 11 gange i alt. Held og lykke. Hilsen Mette
29.01.2015 - 07:31
Anna skrifaði:
Jeg løber i problemer når jeg skal strikke første omgang mønster efter de 4 omg retstrik i starten af toppen. Jeg strikker M/L og har 342 m, så gentager jeg *6vr, A1* 10 gange, så 6vr (rygstk) så *6vr, A1* 10 gange og 6vr, men så har jeg stadig 30m tilbage på pinden som jeg ikke kan gennemskue hvordan skal strikkes. Jeg har desuden jo kun lukket 2x10=20m men jf. opskriften burde jeg have lukket 342-298=44/2=22m Håber i kan opklare mit mysterie om de sidste 30m :o)
29.01.2015 - 06:07DROPS Design svaraði:
Du strikker fra *-* ialt 11 gange + de 6 vr på hver side = 342 m (15x11 + 6 + 15x11 + 6) God fornøjelse!
29.01.2015 - 14:37
Annie skrifaði:
Très élégant avec cette basque
13.01.2015 - 18:18
Juani skrifaði:
Artesanal
10.01.2015 - 22:53
Isa skrifaði:
Einfach nur traumhaft! Für mich ist dieses Top das schönste Teil der Kollektion.
10.01.2015 - 15:45
Majbritt Hoffmann skrifaði:
Flot og feminin. Fremhæver taljen. Den bliver mit første forårsprojekt.
09.01.2015 - 06:48
Love Is In The Air#loveisintheairtop |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 160-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. TOPPUR: Fitjið upp 302-342-402-430-486 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú þannig: * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, setjið 1 prjónamerki (= framstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-298-350-370-418 l á prjóni. Prjónið nú A.2 (= 7 l) yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm er lykkjum fækkað þannig: * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, prjónamerki, * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, prjónamerki = 246-274-322-338-382 l (20-24-28-32-36 l færri). Prjónið síðan áfram með br og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-14-15-15 cm. Fækkið nú lykkjum þannig: * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, prjónamerki, * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, prjónamerki = 226-250-294-306-346 l (20-24-28-32-36 l færri). Haldið áfram með úrtöku (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis hvoru megin við hverja br mynstureiningu) með 3-4-4-5-5 cm millibili 4-3-3-2-2 sinnum til viðbótar = 146-178-210-242-274 l. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 l br, prjónamerki. Prjónið áfram þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 30 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½-3½-3½ cm millibili 9-7-6-5-5 sinnum til viðbótar = 186-210-238-266-298 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50 cm prjónið garðaprjón yfir 7 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 14 l garðaprjón í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52 cm prjónið nú áfram yfir fyrstu 93-105-119-133-149 l í umf (= bakstykki), l fyrir framstykki eru settar á þráð. BAKSTYKKI: = 93-105-119-133-149 l. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Fellið af 4 l í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 85-97-111-125-141 l. Fækkið nú lykkjum fyrir handveg innan við 3 l garðaprjón, fækkið um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf 4-10-16-23-29 sinnum, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l br saman (þegar úrtaka nær yfir l í A.2 er fækkað um 2 l slétt saman, þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjón) = 77-77-79-79-83 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73 cm setjið miðju 31-33-35-37-39 l á þráð fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-22-22-21-22 l. Í næstu umf frá hálsi eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman = 22-21-21-20-21 l. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón (sjá útskýringu að ofan) yfir allar l, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI = 93-105-119-133-149 l. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Prjónið bakstykki þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65 cm. Setji miðju 21-23-25-27-29 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umf við hálsmál þannig: 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum. Haldið áfram að fækka lykkjum, þegar úrtöku er lokið eru 22-21-21-20-21 l á prjóni. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. HÁLSMÁL: Takið upp 100-120 l (meðtaldar l af þræði fyrir hálsmáli) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #loveisintheairtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.