DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Love Is In The Air Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Belle með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 160-2
DROPS Design: Mynstur nr r-673
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S – M/L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
650-700-750-850-900 gr litur nr 06, ljós bleikur

Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
550-600-650-750-750 gr litur 11, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7436.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mysnturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl til þess að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm.
STÆRÐ M/L: 15, 23, 31, 39, 48 og 57 cm.
STÆRÐ XL: 16, 24, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ XXL: 16, 25, 34, 43, 52 og 61 cm.
STÆRÐ XXXL: 17, 27, 36, 45, 54 og 63 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 311-351-411-439-495 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan frá réttu þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 10-9-9-8-8 l br, * A.1 (= 9 l), 7-6-6-5-5 l br *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, setjið 1 prjónamerki (= hægra framstykki), * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, setjið 1 prjónamerki (= bakstykki), * 7-6-6-5-5 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, 10-9-9-8-8 l br, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Brugðnar lykkjur eru prjónaðar slétt frá röngu og brugðið frá réttu. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 277-309-361-381-429 l á prjóni. Prjónið síðan A.2 (= 7 l) yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 10 cm er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 l br saman, 8-7-7-6-6 l br, * A.2, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, prjónamerki, * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, prjónamerki, * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, 2 l br saman, 8-7-7-6-6 l br, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 257-285-333-349-393 l (20-24-28-32-36 l færri). Prjónið síðan með br og mynstri eins og áður þar til stykkið mælist 13-14-14-15-15 cm.
Fækkið síðan lykkjum þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 7-6-6-5-5 l br, 2 l br saman, * A.2, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, prjónamerki, * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, prjónamerki, * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, 7-6-6-5-5 l br, 2 l br saman, 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 237-261-305-317-357 l (20-24-28-32-36 l færri). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með úrtöku (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis hvoru megin við hverja br mynstureiningu) með 3-4-4-5-5 cm millibili 4-3-3-2-2 sinnum til viðbótar = 157-189-221-253-285 l.
Næsta umf er prjónuð þannig: 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4 l br, * A.2, 1 l br *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, prjónamerki, * 1 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 8-10-12-14-16 sinnum til viðbótar, 1 l br, prjónamerki, * 1 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* 3-4-5-6-7 sinnum til viðbótar, 4 l br, 6 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 30 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Útauknar lykkjur eru prjónaðar br frá réttu og sl frá röngu. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½-3½-3½ cm millibili 9-7-6-5-5 sinnum til viðbótar = 197-221-249-277-309 l.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52 cm er stykkinu skipt upp þannig: Setjið fyrstu og síðustu 52-58-65-72-80 l á þráð fyrir framstykki, klippið frá, síðan er einungis prjónað yfir miðju 93-105-119-133-149 l (= bakstykki).

BAKSTYKKI:
= 93-105-119-133-149 l. Nú er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 lykkjur 0-0-1-1-1 sinni, síðan 3 lykkjur 1-1-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 2-4-4-6-7 sinnum og 1 lykkja 1-3-5-8-9 sinnum = 77-77-79-79-83 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73 cm setjið miðju 31-33-35-37-39 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-22-22-21-22 l. Í næstu umf frá hálsi eru fyrstu 2 l prjónaðar slétt saman = 22-21-21-20-21 l. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. Prjónið hina öxlina ´á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 52-58-65-72-80 l. Nú er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hlið eins og á bakstykki = 44-44-45-45-47 l. Haldið áfram að prjóna garðaprjón, A.2 og br eins og áður. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig: Í næstu umf frá réttu eru settar 14-15-16-17-18 l við miðju framan á þráð fyrir hálsmáli (prjónið þær fyrst), fellið síðan af í hverri umf frá hálsmáli: 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 22-21-21-20-21 l eftir á öxl. Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna A.2, br og sléttprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 96-105-105-112-112 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Síðan er prjónað þannig: * 7-6-6-5-5 l br, A.1 (= 9 l) *, endurtakið frá *-* út umf (= alls 6-7-7-8-8 sinnum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 84-91-91-96-96 l á prjóni. Prjónið A.2 yfir A.1 br eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm er lykkjum fækkað þannig: * 2 l br saman, 5-4-4-3-3 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* út umf (= 6-7-7-8-8 l færri) = 78-84-84-88-88 l. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7 cm fellið af þannig: * 4-3-3-2-2 l br, 2 l br saman, A.2 *, endurtakið frá *-* út umf (= 6-7-7-8-8 l færri) = 72-77-77-80-80 l. Endurtakið úrtöku (þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis hvoru megin við br mynstureiningar) með 2½-3-3-4-4 cm millibili 4-3-3-2-2 sinnum til viðbótar = 48-56-56-64-64 l. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l br, A.2 *, endurtakið frá *-* út umf (= alls 6-7-7-8-8 sinnum). Stykkið mælist nú ca 16 cm. Þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING – (= 2 l fleiri), endurtakið útaukningu með 2½-3-2-2-1½ cm millibili 11-9-12-11-14 sinnum til viðbótar = 72-76-82-88-94 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Prjónið A.2 og br þar til stykkið mælist 47-46-44-43-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l fyrir miðju undir ermi (= 3 l hvoru megin við prjónamerki) og ermin er prjónuð til loka fram og til baka á hringprjóna. Nú er lykkjum fækkað fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið: Fækkið um 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkju 1-4-7-10-14 sinnum, síðan er fækkað um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56 cm, fækkið síðan um 3 l 1 sinni í hvorri hlið. ATH: Lykkjur sem ekki ganga upp í A.2 eru prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið tölur í vinstra framstykki.

HÁLSMÁL:
Takið upp 100-120 l (meðtaldar l af þræði fyrir hálsmáli) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Love Is In The Air

Manulein, Austria

Strikket trøje til min datter

Muttis kreative dukkehus, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag Emmy wrote:

Hi! I was just wondering; why are there so many cast-on stitches? Is it possible to size down the pattern? Thanks!

26.02.2023 - 04:11

DROPS Design answered:

Dear Emmy, you cast on extra stitches for the bottom edge for the wave-pattern. Later on, you will decrease stitches for the actual measurements. Happy knitting!

26.02.2023 - 23:52

country flag Ina wrote:

Die glatt links gestrickten Partien auf der Innenseite der Ärmel und auf den Seiten des Körperteils sehen besser aus, wenn die Zunahmen nicht, wie in der Anleitung angegeben, neben den mittig platzierten Markern gearbeitet werden, sondern am Rand, direkt vor und nach dem Mustersatz. Dann sieht man die Zunahmen gar nicht. Außerdem habe ich bis zum Armausschnitt die Vorderteile und das Rückenteil zusammen gestrickt, das spart die Seitennähte.

15.03.2022 - 17:38

country flag Connie Olsen wrote:

Jeg startede på jakken i 2017 og har bøvlet så meget med mønsteret, at jeg i arrigskab lagde det væk. Nu har jeg taget det frem igen da jeg mangler ærmerne - jeg skal slå 96 masker op - d.v.s. at mine arme kan være i ærmet ca. fire gange, det kan simpelthen ikke passe, så vide er de heller ikke på modellen, og selvom du vil sige, at der bli’r taget ind hen ad vejen, så er det stadig ikke godt nok. Du må kunne gi’ en bedre fidus? Det er trods alt et kæmpe arbejde.

12.01.2022 - 18:56

DROPS Design answered:

Hej Connie, jo men de første 16 cm er som en flæsekant (næsten som et trompetærme), hvis du ikke vil have det, så kan du starte med maskeantallet efter de 16 cm :)

17.01.2022 - 14:20

country flag Ina wrote:

Für Gr. M/L ist eine Länge von 69cm angegeben und eine Weite für den unteren Abschluss von 140 (!) cm. Das ist doch viel länger als auf dem Foto und unglaublich weit?

29.12.2021 - 19:56

DROPS Design answered:

Liebe Ina, die fertige Jacke wird ca 69 cm messen von der Anschlagskante bis zur Schulter - bei der Weite stimmt es auch, aber das Muster und die linken Maschen dazwischen werden die Arbeit etwas enger als diese 70 cm machen. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2022 - 09:57

country flag Stine Larsen wrote:

Hej, så dukkede der lige et spørgsmål op igen. Jeg har nu lukket af til ærmegab på rygstykket . Men jeg er i tvivl om hvordan jeg gør med de 2 resterende masker i hver ende som der er tilbage, de var jo oprindeligt en del af mønstret. Skal de strikkes i glatstrik (vrang på retside og ret på vrangside)? jeg kan jo ikke rigtigt følge mønstret når der kun er 2 masker.

23.06.2020 - 00:29

DROPS Design answered:

Hej Stine, ja de masker som ikke går op i mønsteret strikkes i glatstrik. God fornøjelse!

25.06.2020 - 09:35

country flag Stine Larsen wrote:

Hej, jeg er igang med denne cardigan, men har nu et problem. Jeg har lige opdelt arbejdet i ryg samt venstre og højre forstykke. Jeg skal så igang med at lukke af til ærmegab 14 masker i hver side, jeg strikker str m/l. Mit problem er at der jo kun er 9 masker i hver side og derfor vil jeg komme til at skulle lukke masker af som er en del af mønstret, kan det passe?

12.05.2020 - 13:58

DROPS Design answered:

Hej stine, Ja det stemmer, du vil være nødt til at lukke en del af mønsteret af. God fornøjelse!

15.05.2020 - 08:58

country flag Beatrice wrote:

Buonasera il modello mi piace molto ma ho difficoltà con lo schema A2, ci sono 2 gettati di seguito nel primo ferro. Come si fanno?\r\nGrazie mille

02.03.2020 - 18:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Beatrice. Deve lavorare il diagramma A.2 sulle maglie su cui ha lavorato il diagramma A.1. Tra una ripetizione e l’altra di A.2 continua a lavorare le maglie a rovescio. Buon lavoro!

02.03.2020 - 18:26

country flag Amina wrote:

I made one amnd i am wearing it now. it's so beautiful. thank you for the pattern and explanation 😚👍👍👍

10.02.2019 - 18:47

country flag Marita Kjørsvik wrote:

Hei, begynt å stikke denne. Men får ikke oppskriften til å stemme med bildet. På bildet ser det ut som det er glattstrikk, rettmasker mellom rapportene A1 og A2, mens i oppskriften står det vrang. Dette blir da ikke riktig?? Kan noen hjelpe raskt.

18.07.2018 - 11:53

DROPS Design answered:

Hei Marita. Det stemmer at det er vrangmasker mellom A.1 og A.2 – det er det også på bildet, men det er litt vanskelig å se siden det er så lite. God fornøyelse.

25.07.2018 - 15:04

country flag Sanna wrote:

Jag räknade inte med maskan som jag ska dra över. Ibland står det helt still. Haha! PS. Det måste va 3 varv räts i början annars börjar man sticka mönstret från avs.

11.03.2018 - 23:15