Tone skrifaði:
Nydelig jakke. Denne vil jeg gjerne strikke!
24.06.2014 - 22:02
Brigitte Appeltans skrifaði:
Zeer mooi door zijn eenvoud, zeker eentje voor mijn favorieten!
09.06.2014 - 16:58
Markéta skrifaði:
Úžasné... doufám, že bude návod i v ČJ.
08.06.2014 - 14:04
Bente skrifaði:
En lang lynlås vil gøre en forskel i denne model
06.06.2014 - 21:03Mireille skrifaði:
Tres joli. Je ne trouve pas le patron sur le site toutefois. Ou est-il? Merci pour ces beaux patrons
06.06.2014 - 15:14
Frisoline skrifaði:
Charmant pour flâner en ville.
06.06.2014 - 13:16C Darmanin skrifaði:
Beautiful jacket!
05.06.2014 - 10:02Judith skrifaði:
Perfection! My search for the perfect knitted coat is over - can't wait to knit and wear it :-)
03.06.2014 - 23:31
Christina skrifaði:
This is fantastic for a relax day
03.06.2014 - 19:25
Christina skrifaði:
Simple and elegant, love it!
03.06.2014 - 19:18
By The Lake Jacket#bythelakejacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk með áferðamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-6 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l í lok umf þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4, mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til þess að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 50 cm STÆRÐ M: 51 cm STÆRÐ L: 52 cm STÆRÐ XL: 53 cm STÆRÐ XXL: 54 cm STÆRÐ XXXL: 55 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 62-66-72-76-86-90 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði af Cloud eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.2 (= 7 l) 4-4-5-5-6-6 sinnum á breiddina, sléttprjón yfir næstu 4-8-0-4-0-4 l, A.1 (= 7 l) 4-4-5-5-6-6 sinnum á breiddina, 1 kantlykkja. Kantlykkjur í hliðum eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Endurtakið tilfærslu á lykkjum í A.1-A.2 á hæðina þar til tilfærsla á lykkjum hafa mætt hver annarri við miðju að aftan. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l innan við kantlykkju í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7-8½-6½-9 cm millibili 6-6-7-6-8-6 sinnum til viðbótar = 48-52-56-62-68-76 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm, passið að prjónuð hefur verið heil mynstureining eða hálf mynstureining af A.1-A.2, prjónið yfir A.2 og A.3 yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 40-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 78-81-84-87-90-93 cm fellið af miðju 14-14-14-16-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 12-13-14-14-15-16 l eftir fyrir ölx. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 44-46-4951-56-58 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan frá réttu þannig: 6 l garðaprjón (= kantur að framan), 2-4-0-2-0-2 l sléttprjón, A.1 5-5-6-6-7-7 sinnum á breiddina, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATH! Kantlykkja í hlið og í kanti að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Endurtakið tilfærslu á lykkjum í A.1 á hæðina þar til tilfærsla á lykkjum mætir kanti að framan. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað um 1 l innan við kantlykkju í hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 7-7½-7-8½-6½-9 cm millibili 6-6-7-6-8-6 sinnum til viðbótar = 37-39-41-44-47-51 l. JAFNFRMAT þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm, stillið af með bakstykki - fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað A.3 yfir A.1 til loka. Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 3 l 0-0-1-1-1-1 sinni, 2 l 1-1-1-1-2-3 sinnum og 1 l 2-3-1-3-3-4 sinnum = 33-34-35-36-37-38 l. Þegar stykkið mælist 80-83-86-89-92-95 cm, stillið af að næsta umf er frá röngu, fellið af fyrstu 15-16-16-17-17-18 l (= öxl), prjónið út umf = 18-18-19-19-20-20 l. Prjónið garðaprjón yfir þessar l – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umf með byrjun frá hálsmáli (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 14-14-14-16-16-16 l sl, snúið við og prjónið sl til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 10 cm frá þeim stað sem fellt var af fyrir öxl (styttir hlið). Fellið laust af allar l. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd, prjónið A.2 og A.4 í stað A.1 og A.3. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. Stuttar umferðir byrja frá röngu. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 26-26-30-30-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með 1 þræði Cloud eða 2 þræðir Brushed Alpaca Silk. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING – innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6½-4½-5-4½-5-4 cm millibili alls 5-7-6-7-6-7 sinnum = 38-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 47-46-45-44-43-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri topp á ermi) fellið af í byrjun á hverri umf í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 3-3-4-5-6-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 56 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 57 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma og saumið ermar í yst í lykkjubogann. Saumið saman hliðarsauma og ermasauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið saman kant að framan við miðju að aftan fyrir kraga – ATH: Saumurinn á að vera á bakhlið svo að hann sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bythelakejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.