Rina Pieterse skrifaði:
Ik 21 cm (ik heb 132st."staat 1 kantst 58st tricot. Maar dar moet zijn : 1 kant st 64 tricot st . Klopt dat?
31.08.2014 - 16:54
Graziella Paola skrifaði:
Forse sbaglio ma dopo i 21cm. di m.rasata il motivo dovrebbe essere prima a1 e poi a2...grazie e scusate
28.08.2014 - 14:33DROPS Design svaraði:
Buonasera Graziella Paola. La successione corretta è prima il diagramma A.2 e poi il diagramma A.1. In questo modo le m a rov si spostano verso i lati del lavoro. Ci riscriva se è ancora in difficoltà. Buon lavoro!
28.08.2014 - 22:28
Mette skrifaði:
Hvis jeg slå masker op med "gammel norsk ret", den første pind jeg strikker tilbage er det ret eller vrang side?
25.08.2014 - 16:53DROPS Design svaraði:
Man kan bruge begge sider, det er en smags sag. Du vælger den side som du synes bedst om. God fornøjelse!
02.09.2014 - 15:39
Mette skrifaði:
Kan man strikke ryg og forstykke på rundpind sammen og så dele ved ærmegab?
25.08.2014 - 14:15DROPS Design svaraði:
Jo, da fjerner du bare kantmaskerne og sætter en mærketråd i siderne, så du ved hvor stykkerne begynder, det er vigtigt at diagrammerne placeres rigtigt. God fornøjelse!
25.08.2014 - 14:47
Dorthe Riis skrifaði:
I simply love this beautiful sweater. I really want to knit it, so please let us have the recipe
08.07.2014 - 11:14
Martine DAUPHIN skrifaði:
J'aimerais beaucoup le réaliser
26.06.2014 - 16:06
Sabina skrifaði:
V-ringat, A-linje, grafisk formgivning. Kanonfint!
23.06.2014 - 22:44
Funy skrifaði:
Un beau petit modèle
17.06.2014 - 12:45
Astrid Sortdal skrifaði:
Mye pent :)
13.06.2014 - 20:09Sevleta skrifaði:
Very nice,i want it
12.06.2014 - 17:13
Lazy Sunday Afternoon#lazysundayafternoonsweater |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Belle í garðaprjóni og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur tilfærslan áfram um 1 l til vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg úr að kanti á vinstri hlið á stykki. JAFNFRAMT er byrjað á 1 nýrri mynstureiningu á hæðina í 7. hverri umf. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina heldur tilfærslan á 1 l br til hægri hlið á stykki (séð frá réttu) í hverri umf alveg út að kantlykkju á hægri hlið á stykki. JAFNFRAMT er byrjað á 1 nýrri mynstureiningu á hæðina í 7. hverri umf. MYNSTUR-1: UMFERÐ 1: sl l frá röngu UMFERÐ 2: sl l frá réttu UMFERÐ 3: br l frá röngu UMFERÐ 4: sl l frá réttu UMFERÐ 5: br l frá röngu UMFERÐ 6: sl l frá réttu Endurtakið umf 1-6. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 2 l þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 2 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 106-114-122-132-144-156 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með Lima eða Belle. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvori hlið á stykki. Kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 21 cm er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 45-49-53-58-64-70 l sléttprjón, A.2, A.1, 45-49-53-58-64-70 l sléttprjón, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með tilfærsluna á A.1/A.2 – LESIÐ MYNSTUR- þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, passið uppá að næsta umf sé frá röngu. Prjónið nú MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 2 l í hvorri hlið á stykki í 2 næstu umf = 102-110-118-128-140-152 l. Haldið áfram með mynstur-1 til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið 2 umf í garðaprjóni yfir 32-32-34-34-36-36 miðju-l (= 35-39-42-47-52-58 l í hvorri hlið), þær l sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af 28-28-30-30-32-32 miðju l í garðaprjóni og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 37-41-44-49-54-60 l á hvorri öxl). Þær 2 kantlykkjurnar við hálsmál eru prjónaðar áfram í garðaprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir 6 miðju-l (= 48-52-56-61-67-73 l í hvorri hlið), hinar l sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Fellið nú af 2 miðju-l í garðaprjóni og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig (= 50-54-58-63-69-75 l á hvorri öxl). Þær 2 kantlykkjur við hálsmál eru prjónaðar áfram í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmál innan við 2 kantlykkjur – LESIÐ ÚRTAKA – endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 12-12-13-13-14-14 sinnum til viðbótar = 37-41-44-49-54-60 l á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-54-56 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 4 með Lima eða Belle. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2-1½ cm millibili 6-7-8-9-11-12 sinnum til viðbótar = 62-66-70-74-78-82 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 36-35-34-33-31-29 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lazysundayafternoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.