Dea skrifaði:
BEllo!
09.07.2014 - 16:35
Natiel skrifaði:
C'est vraiment très féminin.j'attends avec impatience les explications.
07.07.2014 - 12:59
Pascale skrifaði:
Très bel effet sport et classe
26.06.2014 - 13:30
Anette Marker skrifaði:
Så flot. Den bliver populær. Wauw!
25.06.2014 - 19:25
Marie skrifaði:
Très sobre et élegant tout en étant feminin!un classique du plus bel effet...
25.06.2014 - 16:47
MARCHESI skrifaði:
JOLIEC AVEC LA FINITION
04.06.2014 - 21:34
Birgitta Hahne skrifaði:
Lite ovanlig! Och mkt fin.
04.06.2014 - 08:58
Rosie Eriksson skrifaði:
Höstens självklara val att sticka, ser fram emot beskrivningen!
03.06.2014 - 11:01
Mademoiselle Pénélope skrifaði:
J'attends les explications avec impatience
02.06.2014 - 17:30
Always Beautiful#alwaysbeautifulset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað axlarskjól, húfa og vettlingar úr 2 þráðum DROPS Alpaca í garðaprjóni.
DROPS 157-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): * 1 umf sl og umf br *, endurtakið frá *-*. STUTTAR UMFERÐIR: Í hvert skipti sem snúið er við í miðju stykki er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana sl, hert er á þræðinum og prjónað til baka, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningunum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, frá hlið. AXLARSKJÓL. Fitjið upp 64-72-80 l á prjóna nr 3,5 með 1 þræði í litnum milligrár + 1 þræði í litnum ljós grár (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 4 cm. (= kantur að framan). Haldið áfram í garðaprjóni JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið 8 l, snúið við – sjá STUTTAR UMFERÐIR – og prjónið til baka, prjónið 38-46-56 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið 48-56-64 l, snúið við og prjónið til baka, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-*. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 43-45-47 cm efst við hálsmál (þ.e.a.s. minnsti hluti á stykki) – endið eftir heila mynstureining með stuttum umferðum – prjónið garðaprjón yfir allar l í 4 cm (= kantur að framan). Stykkið mælist ca 47-49-51 cm efst og ca 125-131-137 cm mælt meðfram kanti neðst innan við 4 cm (= bylgjukantur). FRÁGANGUR: Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kant að framan og saumið í 5 skrauttölur. Saumið í gegnum bæði stykkin (byrjið 2 cm frá kanti í hálsmáli, með ca 6½-7½-8½ cm millibil á milli talna). ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 104-106-110 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum milligrár + 1 þræði í litnum ljós grár (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf br frá röngu og 1 umf sl frá réttu. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm fellið af 10 l í byrjun á umf frá réttu (spæll) = 94-96-100 l. Klippið frá. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 63-64-67 lykkjur. Þetta er núna byrjun á umferð (= mitt að aftan). Það eru 31-32-33 lykkjur eftir prjónamerki. Byrjið við prjónamerki og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar 94-96-100 lykkjur héðan, þ.e.a.s. það er prjónað yfir þar sem byrjun á umferð var áður. Þegar stykkið mælist 12 cm fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir = 86-88-92 l. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm = 78-80-84 l. Þegar stykkið mælist 18 cm er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir í öðrum hverjum cm alls 4 sinnum = 38-40-44 l. Þegar stykkið mælist 25 cm eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 19-20-22 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 einu sinni til viðbótar = 10-10-11 l á prjóni. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið saman húfuna við miðju að aftan kant í kant yst í lykkjubogann. Leggið spælinn yfir húfuna og saumið 2 skrauttölur í gegnum bæði lögin yst í kantinn. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. VETTLINGUR: Fitjið upp 45-47-49 l á prjóna nr 4 með 1 þræði í litnum milligrár + 1 þræði í litnum ljós grár (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm fellið af 10 l í byrjun á umf frá röngu (= spæll) = 35-37-39 l. Þegar stykkið mælist 8½-9½-10 cm – stillið af að næsta umf sé frá réttu, setjið 1 prjónamerki í 18.-19.-20. l. Aukið nú út fyrir þumal þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu utan við útauknu l í 4. hverri umf alls 5-6-7 sinnum = 45-49-53 l. Þegar stykkið mælist 15½-16½-18 cm setjið 11-13-15 þumallykkjur á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumallykkjur = 35-37-39 l eftir á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 23-24-26 cm. Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 3 l jafnt yfir = 32-34-36 l. Prjónið 3 umf slétt. Í næstu umf er fækkað um 4 l jafnt yfir = 28-30-32 l. Endurtakið úrtöku með 4 l í annarri hverri umf 4 sinnum til viðbótar = 12-14-16 l. Prjónið 1 umf sl. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6-7-8 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. ÞUMALL: Setjið þær 11-13-15 þumallykkjur á sokkaprjóna nr 4 og takið að auki upp 2 l í kanti á bakhlið á opi við þumallykkjur = 13-15-17 l. Prjónið GARÐAPRJÓN í hring á sokkaprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar þumallinn mælist 5-5½-6 cm prjónið allar l saman 2 og 2 = 7-8-9 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2 einu sinni til viðbótar = 4-4-5 l. Klippið frá. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. FRÁGANGUR: Saumið vettlinginn saman í hlið niður að spæl – saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. Saumið 2 skrauttölur yst í spælinn í gegnum bæði lögin. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. fellið af 10 l fyrir spæl í byrjun á umf frá réttu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alwaysbeautifulset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-43
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.