DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue For You

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með köðlum, gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 158-4

#blueforyoucardigan

DROPS Design: Mynstur nr z-683
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400-450-450-500 gr litur nr 6309, turkos/grár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-175-175-200-225 gr litur nr 24, bensínblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS SKELJATALA, NR 526: 7-7-8-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið næstu 2 l slétt saman.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón (prjónamerki á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

LASKALÍNA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki, þar til br A.5a/A.5b við ermi mætir prjónamerki.
Fækkið lykkjum síðan hvoru megin við kaðal og 2 l við miðju að framan og við miðju að aftan. Fækkið lykkjum hverri umf frá réttu þannig:

Fækkið um 1 l hvoru megin við laskalínu (þ.e.a.s. 8 l færri í umf):
Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki og kaðal: Byrjið 2 l á undan prjónamerki, 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki, kaðal og 2 l br: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

Fækkið um 2 l hvoru megin við laskalínu (þ.e.a.s. 16 l færri í umf):
Fækkið lykkjum á UNDAN prjónamerki og kaðal: Byrjið 3 l á undan prjónamerki, 3 l slétt saman = 2 l færri.
Fækkið lykkjum á EFTIR prjónamerki, kaðal og 2 l br: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 4, 14, 24, 34, 44, 53 og 62 cm.
STÆRÐ M: 4, 14, 24, 34, 44, 54 og 64 cm.
STÆRÐ L: 3, 12, 21, 30, 39, 48, 57 og 66 cm.
STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 32, 41, 50, 59 og 68 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 13, 23, 33, 43, 52, 61 og 70 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 13, 23, 33, 43, 53, 63 og 72 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar á sokkaprjóna áður en skipt er yfir á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 219-231-259-280-307-323 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í síðustu rönd með garðaprjón er aukið út um 11-11-11-14-15-15 l jafnt yfir = 230-242-270-294-322-338 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið mynstur þannig:

S/M/L: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5b, 7-10-17 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 7-10-17 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, A.1, A.5b, 7-10-17 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 7-10-17 l sléttprjón, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8-8-8 mynstureiningar A.1)

XL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b 2 sinnum á breiddina, 11 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 11 l sléttprjón, A.5a 2 sinnum á breiddina, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b 2 sinnum á breiddina, 11 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 11 l sléttprjón, A.5a 2 sinnum á breiddina, A.1, A.5, A.5a, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 mynstureiningar A.1).

XXL/XXXL: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.1, A.5b, 9-13 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 9-13 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, A.1, A.5b, 9-13 l sléttprjón, setjið prjónamerki hér, 9-13 l sléttprjón, A.5a, * A.1, A.5 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, A.1, A.5b, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 12-12 mynstureiningar A.1).

Haldið síðan áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka 3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.1 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 15 l í hverja A.1. Nú eru 8-8-8-8-12-12 mynstureiningar A.1). ATH: Í L og XL er fækkað um 2 l til viðbótar í hvorri hlið, þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við hvor prjónamerki, þegar stykkið mælist 10 cm – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 8 cm millibili alls 3 sinnum (= alls 12 l færri) JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá að neðan!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með A.2 yfir A.1 þar til prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar af A.2, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.2 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 13 l eftir í hvert A.2).
Prjónið nú A.3 yfir A.2 2-2-2-3-3-3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hverja mynstureiningu A.3 með því að prjóna 2 fyrstu og 2 síðustu l í hverri mynstureiningu br saman (= 11 l eftir í hverri A.3). Nú eru 182-194-210-234-250-266 l á prjóni. Prjónið nú A.4 yfir hverja mynstureiningu A.3 þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu. Fellið nú af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fram þar til 5 l eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, fellið af næstu 10 l, prjónið þar til 5 l eru eftir að næsta prjónamerki, fellið af næstu 10 l. Nú eru 162-174-190-214-230-246 l eftir. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 38-38-38-42-42-42 l á sokkaprjóna nr 4,5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10-10-10-14-14-14 l jafnt yfir = 48-48-48-56-56-56 l. Haldið síðan áfram með A.6 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 12 cm er haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 10-10-10-14-14-14 l jafnt yfir = 38-38-38-42-42-42 l. Nú byrjar útaukning á ermum – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili 8-10-15-16-19-22 sinnum til viðbótar = 56-60-70-76-82-88 l. Aukið síðan út í annarri hverri umf 8 sinnum = 72-76-86-92-98-104 l. Í næstu umf eru felldar af 5 l hvoru megin við prjónamerki (= 10 l felldar af) = 62-66-76-82-88-94 l. Setjið þær l sem eftir eru á þráð og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er prjónað fram og til baka með mynstri eins og áður á hringprjóna nr 5. Nú eru sett 4 stykki í prjónamerki þannig (1. umf = rétta):
Prjónið fyrstu 45-48-52-58-62-66 l á hægra framstykki, setjið 1. prjónamerki, prjónið 62-66-76-82-88-94 l frá ermi, setjið 2. prjónamerkið, prjónið 72-78-86-98-106-114 l yfir bakstykki, setjið 3. prjónamerki, prjónið 62-66-76-82-88-94 l inn frá ermi, setjið 4. prjónamerki, prjónið næstu 45-48-52-58-62-66 l á vinstra framstykki. Nú eru 286-306-342-378-406-434 l að laskalínu. Nú byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í hverri umf frá réttu þar til úrtöku fyrir laskalínu er lokið. Endurtakið úrtöku með 1 l á hvoru megin við hvert prjónamerki 21-22-20-19-18-18 sinnum, síðan 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki 0-0-3-5-7-8 sinnum = 118-130-134-146-150-162 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til eftir eru 23-25-25-28-29-31 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 23-25-25-28-29-31 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 33-35-35-38-39-41 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 33-35-35-38-39-41 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 43-45-45-48-49-51 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 43-45-45-48-49-51 l, snúið við, prjónið út umf. Prjónið 1 umf til baka. Prjónið nú 6 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu 2 umf frá réttu er fækkað um 16-20-20-24-24-28 l jafnt yfir (en ekki yfir 5 kantlykkjur í hvorri hlið) = 86-90-94-98-102-106 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
Diagram for DROPS 158-4
Diagram for DROPS 158-4
Diagram for DROPS 158-4

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueforyoucardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Denise Col skrifaði:

Bonjour, J'aimerais tricoter la veste 158-4 modèle z-683 dans la qualité "big merino à la place des laines préconisées. Combien de pelotes me faudrait-il pour la taille "S". Merci de votre réponse.

30.09.2015 - 15:06

DROPS Design svaraði:

Chère Madame Col, vous trouverez ici toutes les informations relatives à l'utilisation d'une alternative, ainsi que le calcul de la nouvelle quantité. Bon tricot!

30.09.2015 - 15:38

country flag Gunilla Svensson skrifaði:

Hej! Har just börjat på oket, koftan ser ut att bli mycket fin - kul! Men jag har svårt att tolka hur minskningarna mellan ärm och fram/bakstycke ska göras.... En detaljbild på hur minskningarna ska se ut skulle vara väldigt bra att ha! Går det att få?

27.09.2015 - 15:20

DROPS Design svaraði:

Hej, har du läst hur vi beskriver minskningarna på varje sida om flätan, under "RAGLAN"? Lycka till!

01.10.2015 - 17:06

country flag Pia skrifaði:

Är antalet maskor anpassat till mönsterstickningen eller kan jag använda samma maskantal till slät- eller rätstickning?

19.09.2015 - 09:22

DROPS Design svaraði:

Hej Pia, ja antal m är anpassat till mönsterstickning, det går flera m till flätor!

24.09.2015 - 11:36

Allison skrifaði:

Jeg skal til at starte men er i tvivl om jeg skal strikke S eller M - jeg bruger M omkring barmen, men synes at str. M bliver MEGET vide forneden - cirka 140 cm ifølge mønstret - bliver det ikke for meget hvis man kun bruger str. 38/40 og er ca 170 høj?

27.05.2015 - 21:13

DROPS Design svaraði:

Hej Allison, Modellen er strikket med A-facon men str M bliver "KUN" 124 cm forneden (ikke 140cm=L) God fornøjelse!

29.05.2015 - 12:04

country flag Bjørg Frogner skrifaði:

Takk for svar, men det var selve fellingen som er problemet. Forstår til jeg er kommet til fletten. Skal det felles på begge sider av den. Det er der problemet er. Mvh. Bjørg

16.05.2015 - 18:55

DROPS Design svaraði:

Hej Bjørg, Ja du feller på begge sider av fletten: Det felles på hver side av merket, til vr-m i A.5a/A.5b mot ermet møter merket. Videre felles det på hver side av fletten og 2 m vr mot midt foran og midt bak. Det felles på hver p fra retten slik:

18.05.2015 - 09:39

country flag Bjørg Frogner skrifaði:

Strikker jakken i M. Er kommet til der at jeg har satt i armene, og skal begynne på ranglangfellingen. Kan noen forklare meg hvordan det skal gjøres. Har tatt den med til garnbutikken, de var heller ikke sikre på hva det egentlig står der...... Mvh. Bjørg

14.05.2015 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Hej Bjørg, Du strikker ærmerne ind på samme rundpind i samme rækkefølge som der står i opskriften. Først højre forstk, så setter du 1. merke, strikk ærmerne ind, så et merke til osv ifølge forklaringen under BÆRESTK. God fornøjelse!

15.05.2015 - 10:01

country flag Anny Jansen skrifaði:

Goedemorgen ik ben met dit vest tot de armsgaten gekomen en heb de mouwen er ook al bij opgezet, nu komt mijn vraag: de raglan is toch voor de markeerder in het trico gedeelte?tot de kabels bij elkaar komen. heb ik dat goed begrepen? daarna ga je in de aversteken van het patroon minderen? maar ik zie op de foto dat de raglan doorloopt in het patroon en er ook een kabel naast zit tussen de mouw en het patroon. dat snap ik niet echt goed. wil u mij dit uitleggen? groet a jansen

18.02.2015 - 08:17

DROPS Design svaraði:

Hoi Anny. Ja, je mindert tot de av van A.5a/A.5b de markeerders ontmoeten. In A.5 zit de kabel die aan het eind bij de raglan komt zoals te zien is op de foto. Volg je de instructie onder RAGLAN, dan komt het goed :-) Veel breiplezier verder.

18.02.2015 - 13:05

country flag Anny Jansen skrifaði:

Goedemorgen even een vraag ik moet nu met de mouwen beginnen maar moeten die net als sokken op 4 nld. gebreid worden? zo ja hoe verdeel ik dan de steken? groet A.Jansen

08.02.2015 - 10:36

DROPS Design svaraði:

Hoi Anny. Ja, je kan de mouwen breien zoals sokken en de st verdelen over 4 breinaalden zonder knop. Verdeel met een gelijk aantal st (38/4 = 9 - 10 st per naald) en pas aan als je brei zodat het past met patroon en meerderingen. Je kan ook breien in de rondte op een korte rondbreinaald (40 cm) of met een langere naald en de magic loop techniek gebruiken:

10.02.2015 - 15:04

country flag Danis Yvette skrifaði:

EST CE QUE JE SUIS LA SEULE FRANCAISE A FAIRE DES COMMENTAIRES SUR VOS SUPERS MODELES ?

01.02.2015 - 15:48

country flag Fransien De Vries skrifaði:

Hallo, Bij het lijf staat dat je tot 41, 42,43,44,45,46cm moet breien en dan beginnen met de armsgaten, maar bij de tekening zie je dat de lengte van beneden tot de armsgaten veel langer is, namelijk 66,68,70,72,74,76cm. mijn vraag is hoe kan dit en welke klopt nu. groetje Fransien

19.12.2014 - 16:41

DROPS Design svaraði:

Hoi Fransien. Alles klopt. De afmetingen op de maattekening is de totale hoogte inclusief de armsgaten.

19.12.2014 - 19:01