Susi skrifaði:
Hallo kannst du mir den Anfang der Mütze noch etwas anders erklären oder gibt es dazu vielleicht ein Video# Danke
14.03.2016 - 10:28DROPS Design svaraði:
Hallo Susi, in der ersten Reihe der Mütze werden zwischen den Ohrenklappen Luftmaschen gehäkelt, damit sie nachher den gesamten Kopfumfang in der Runde haben.
14.03.2016 - 11:44
Rose Marshall skrifaði:
When changing colors - do I drop the yarn and pick again after 2 rows? thank you.
11.01.2016 - 14:45DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Marshall, that's correct, just leave unworked colour while you are working the other colour and then take again previous colour, make sure to not tighten strand too much then. Happy crocheting!
11.01.2016 - 17:04
Sara skrifaði:
Hej! Finns inget mönster på den matchande tröjan? :)
20.08.2015 - 00:01
Kathrin skrifaði:
Habe mütze gerade fertig und liebe Sie hab sie jedoch in hell und dunkel grün gehäkelt und dazu passende Handschuhe
25.10.2014 - 23:50Ebrul Pesin skrifaði:
Diese mütze ist einfach zu haekeln und sitzt sehr gut, auch für die etwas grösseren sehr praktisch... Und natürlich sieht sie auch noch supersüss aus.
10.10.2014 - 16:15
Elisabeth skrifaði:
Bonjour, Combien de temps faut-il pour réaliser ce modèle ? D'avance merci
17.09.2014 - 21:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Elisabeth, le temps de réalisation dépend notamment de l'expérience de chacune. Bon crochet!
18.09.2014 - 08:53
Baby Blues Hat#babyblueshat |
|
|
|
Hekluð húfa fyrir börn með röndum úr DROPS Karisma. Stærð 0–4 ára
DROPS Baby 25-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsti hst í hverri umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 hst í 2. ll frá byrjun fyrri umf. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Fyrsti hst í byrjun hverrar umf er skipt út fyrir 2 ll. Hver umf endar á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf. RENDUR: * 2 umf hst með litnum ljós blágrár, 2 hst með litnum natur *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hst með því að hekla 2 hst í næst síðasta hst. HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Fækkað er um einn hst með því að hekla 2 hst saman, þ.e.a.s. heklið einn hst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 l eftir á heklunálinni), heklið 1 hst í næstu l og dragið síðan þráðinn í gegnum allar 5 l á heklunálinni. FL HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 2 fl saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru heklaðir eyrnaleppar fram og til baka, síðan er stykkið heklað í hring. EYRNALEPPUR: Heklið 5 ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós blágrár. Heklið 1 hst í 3.ll frá heklunálinni, 1 hst í 2 næstu ll = 4 hst, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT er heklað þannig: Heklið 1 umf hst JAFNFRAMT er aukið út um 1 hst í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umf alls 4-5 (6) sinnum = 12-14 (16) hst. Haldið áfram með hst og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 5-6 (8) cm – stillið af eftir tvær umf með litnum natur. Geymið stykkið og heklið annan eyrnalepp á sama hátt. HÚFA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-7 (7) ll með litnum ljós blágrár, heklið hst yfir annan eyrnaleppinn, heklið 16-18 (20) ll (= miðja að framan), heklið hst yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-7 (7) ll og endið á 1 kl í fyrstu ll = 54-60 (66) ll/hst. Byrjið á umf = miðja að aftan. Í næstu umf er heklaður 1 hst í hverja ll/hst. Haldið áfram með hst hringinn með röndum. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá miðju að aftan er næsta umf hekluð með úrtöku þannig: * 1 hst í hverja af fyrstu 4 lykkjum, heklið síðan 2 næstu hst saman – sjá HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn (nú hefur fækkað um 9-10-11 hst í umf). Heklið 1 umf án úrtöku og næstu umf þannig: * 1 hst í hverja af fyrstu 3 lykkjum, heklið síðan 2 næstu hst saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (með 1 hst færri á milli úrtöku í hvert sinn sem lykkjum er fækkað), 2 sinnum til viðbótar = 18-20 (22) hst í umf. Heklið 2-2 (3) umf án þess að fækka l. Í næstu umf eru allir hst heklaðir saman 2 og 2 = 9-10 (11) hst eftir í umf. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu l, herðið að og festið. Húfan mælist ca 16-18 (20) cm ofan frá og niður. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fl í fyrstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 l/umf *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl. SNÚRA: Klippið 2 þræði í litnum natur ca 150 cm. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, þræðið snúruna í gegnum annan eyrnaleppinn (neðst fyrir miðju), leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á endann. Gerið aðra snúru á sama hátt neðst á hinn eyrnaleppinn. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babyblueshat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.