DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-34
DROPS Design: Mynstur nr u-055-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
150-200-200-200 (250-250) gr litur nr 70, ljós blágrár
150-150-150-200 (200-200) gr litur nr 01, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st/fl á breiddina og 6 umf með áferð á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 523: 4-5-5-6 (7-7) stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf.
Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf.

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ:
* 1 umf með fl (heklið frá röngu), 1 umf með st (heklið frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð).

RENDUR:
Allt settið er heklað í röndum þannig: * 1 umf fl frá röngu með litnum natur og síðan 1 umf st frá réttu með litnum natur, 1 fl frá röngu með litnum ljós blágrár og síðan 1 umf st frá réttu með litnum ljós blágrár *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 37-41-45-45 (49-49) LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með litnum ljós blágrár.
Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 36-40-44-44 (48-48) fl.
Snúið stykkinu við og heklið 1 fl til baka frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 8 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 44-48-52-52 (56-56) fl í umf.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að framan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 6-7-8-8 (9-9) fl (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 8 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 12-14-16-16 (18-18) fl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 8 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fl (nú eru 6-7-8-8 (9-9) fl eftir síðasta prjónamerki á hægra framstykki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig:
Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 56-60-64-64 (68-68) st í umf. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ og RENDUR – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í hverja umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínum).
JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu (þ.e.a.s. í umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-4-4-5 (5-6) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-6 (6-7) sinnum) = 120-140-144-160 (164-180) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður.
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 16-19-20-22 (23-25) fl (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 28-32-32-36 (36-40) fl (= ermi), heklið 4-4-4-6 (6-8) ll, heklið 1 st í hverja af næstu 32-38-40-44 (46-50) fl (= bakstykki), hoppið yfir næstu 28-32-32-36 (36-40) fl (= ermi), heklið 4-4-4-6 (6-8) ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 16-19-20-22 (23-25) fl (= hægra framstykki). Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fyrsta umf er hekluð frá röngu – heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af 4-4-4-6 (6-8) ll undir hvorum handveg = 72-84-88-100 (104-116) fl í umf. Haldið áfram fram og til baka með umferð með áferð og rendur eins og áður – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! JAFNFRAMT í 1. umf (= st frá réttu), aukið út um 4-0-2-2 (4-6) st jafnt yfir = 76-84-90-102 (108-122) st.
Þegar stykkið mælist ca 24-29-34-39 (44-48) cm frá hálsmáli (þ.e.a.s. ca 27-32-37-42 (47-51) cm frá öxl) – stillið af að síðasta umf er 1 umf með litnum natur og st frá réttu, ljúkið við opið við kant við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Haldið áfram fram og til baka eins og áður.
Þegar stykkið mælist 27-32-38-43 (49-53) cm frá hálsi (og ca 30-35-41-46 (52-56) cm frá öxl), skiptið stykkinu upp og hvor skálm er nú hekluð til loka fyrir sig.

SKÁLM:
Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með umferð með áferð og rendur fram og til baka yfir fyrstu 38-42-45-51 (54-61) l í umf (þ.e.a.s. yfir helming af l).
Þegar skálmin mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 fl/st í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2-3-3 (3½-3½) cm millibili, 4-4-4-4 (5-7) sinnum til viðbótar alls 5-5-5-5 (6-8) = 28-32-35-41 (42-45) l. Þegar skálmin mælist 11-14-17-20 (25-30) cm frá prjónamerki skiptið nú yfir í litinn ljós blágrár og heklið fl fram og til baka í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Skálmin mælist ca 15-18-21-24 (29-34) cm og allt settið mælist ca 45-53-62-70 (81-90) cm frá öxl. Heklið hina skálmina á sama hátt.

ERMI:
= 28-32-32-36 (36-40) l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Fyrsta umf er hekluð frá réttu þannig (rendurnar halda áfram eins og áður): Heklið 2-2-2-3 (3-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 2-2-2-3 (3-4) ll. Snúið við, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af næstu 0-0-0-1 (1-2) ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af 2-2-2-3 (3-4) ll frá byrjun fyrri umf = 32-36-36-42 (42-48) l í umf. Haldið áfram með áferð og rendur fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2-2-2½-2 (2-2) cm millibili, 3-4-4-7 (7-9) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-8 (8-10) sinnum) = 24-26-26-26 (26-28) l. Þegar ermin mælist 9-11-13-15 (19-24) cm frá prjónamerki er skipt yfir í litinn ljós blágrár. Heklið fl fram og til baka í 4 cm, klippið frá og festið enda. Ermin mælist 13-15-17-19 (23-28 cm) frá prjónamerki.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá kantinn neðst niðri á ermum. Saumið saman op við miðju framan við prjónamerki þar sem kantur að framan endaði og niður að skiptingu að skálmum – saumið yst í lykkjubogana.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá röngu neðst niðri á vinstra framstykki með litnum ljós blágrár og heklið 1 fl í st yst í röndina með litnum natur, * heklið 2 st + 2 ll + 2 st um næsta st (þ.e.a.s. í st neðst í rönd með litnum ljós blágrár), 1 fl um næsta st (þ.e.a.s. í st neðst á rönd með litnum natur) *, endurtakið frá *-* upp meðfram vinstra framstykki að hálsmáli og endið á 1 kl yst í hornið við hálsmál. Snúið við og heklið frá réttu þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), síðan er heklaður 1 st á milli hverra l og 1 st í ll-boga á hverjum st-hópi. Klippið frá og festið enda. Saumið niður kant að framan neðst niðri við skiptinguna.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN OG í HÁLSMÁLI:
Heklið eins og vinstri kant að framan, en byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki, heklið eins og vinstri kantur að framan upp að hálsmáli, en í stað þess að enda á 1 kl í horni við hálsmál heldur kanturinn áfram í kringum hálsmál þannig: Heklið 1 fl í hverja l meðfram hálsmáli þar til 3 l eru eftir á undan laskalínu, hoppið yfir þessar 3 l og heklið 4 st í l í laskalínu, hoppið yfir 3 næstu l og haldið áfram með 1 fl í hverja l þar til 3 l eru eftir á undan næstu laskalínu, hoppið yfir þessar 3 l og heklið 4 st í næstu laskalínu. Haldið svona áfram hringinn í kringum hálsmál og endið á 1 kl yst í umf. Snúið við og heklið aðra umf eins og á vinstri kanti að framan. Klippið frá og festið enda.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan. Byrjið á 1 tölu efst í rönd í litnum ljós blágrár, síðan á að vera 1 tala í annarri hverri rönd í litnum ljós blágrár. Tölum er hneppt í gegnum gat innst í “sólfjöður” í kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.07.2019
Leiðretting - ERMI:..Fyrsta umf er hekluð frá réttu þannig (rendurnar halda áfram eins og áður): Heklið 2-2-2-3 (3-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 2-2-2-3 (3-4) ll. Snúið við, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja og eina af 0-0-0-1 (1-2) næstu ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja og eina af 2-2-2-3 (3-4) ll frá byrjun fyrri umf = 32-36-36-42 (42-48) l í umf.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Helena Skoglund wrote:

Alltså jag virkar baby blues och förstår inte vad som menas med att man virkar 2 LM över de 2 LM från förra varvet i raglanlinjetna?!

08.03.2024 - 13:14

DROPS Design answered:

Hei Helena. Du har 4 raglanlinjer og midt i disse raglanlinjene hekles det 2 luftmasker. I disse luftmaskene økes det til raglan (les i oppskriften når og hvordan det økes), men på hver rad med fastmasker fra vrangen hekles det 2 luftmasker (LM) over de 2 luftmaskene (LM) fra forrige rad i raglanlinjene. mvh DROPS Design

11.03.2024 - 13:48

country flag Marta wrote:

Come posso lavorare un modello fatto con uncinetto 4.5 con filato n.3? Che uncinetto devo usare? Quante maglie devo aggiungere?

07.02.2024 - 00:59

DROPS Design answered:

Buonasera Marta, per un'assistenza così personalizzata può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

10.02.2024 - 19:13

country flag Emma Kristine Eliasen wrote:

Kære Drops. Jeg forstår ikke hvorfor der kun beregnes 12 ekstra stm i dette trin, istedet for 16: "Hækl 1 st i hver fm, men i hver fm med mærketråd i hækles der 2 st + 2 lm + 2 st = 56-60-64-64 (68-68) st på rækken.", da man laver buer x4? Er det en fejl i opskriften eller er der noget jeg misforstår? :)

21.01.2024 - 14:39

country flag Pernille Skovlys Larsen wrote:

Jeg ønsker at bruge DROPS Baby Merino i stedet for, det er dog i gruppe A og jeg kan simpelthen ikke regne ud om det kan lade sig gøre med en tråd eller om jeg skal bruge to tråde, fordi A+A burde give C og ikke B. Hvad ville i her anbefale?

18.01.2024 - 11:14

DROPS Design answered:

Hei Pernille. I oppskriften er det brukt garn fra garngruppe B og om du ønsker å bruke 2 tråder fra garngruppe A vil dette bli for tykt og oppskriften/målene vil ikke stemme. Om du ønsker å bruke DROPS Baby Merino kan du ta en titt på DROPS Baby 29-5, den er heklet med 1 tråd, med lignende strukturmønster og du kan legge til striper. mvh DROPS Design

18.01.2024 - 11:58

country flag Corinne wrote:

Bonjour. Vous écrivez: "Après la dernière augmentation pour le raglan, crocheter 1 rang de ms sur l'envers comme avant." ok, mais que dois je faire au dessus des deux ml du rang précédant? des ml ou des ms? si je dois faire des ml comme avant, je ne les compte donc pas lorsque je dois sauter des mailles, je me trompe? Cordialement.

27.11.2023 - 08:33

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, vous crochetez sur l'envers exactement comme avant, autrement dit avec 2 mailles en l'air à chaque raglan., ces mailles en l'air ne comptent effectivement pas au rang suivant. Bon crochet!

27.11.2023 - 10:18

country flag Clara wrote:

Bonjour Pour le 1er rang de la manche, par où commencer les mailles en l'air c'est à dire où est-ce que je place le crochet , dans quelle partie ? Sur les 4 mailles en l'air ? Merci pour la réponse

24.11.2023 - 22:08

DROPS Design answered:

Bonjour Clara, les manches se crochètent en rond, vous commencez par 4 mailles en l'air (dans la dernière taille), vous crochetez ensuite 1 bride dans chacune des mailles de la manche laissées en attente, puis vous crochetez 6 mailles en l'air à la fin du rang (dont 2 pour tourner). Bon crochet!

27.11.2023 - 08:16

country flag MONICA wrote:

* 1 hilera de p.b. (trabajada por el LR), 1 hilera de p.a. (trabajada por el LD) *, repetir de *a* (1 hilera de p.b. + 1 hilera de p.a. = 1 hilera texturada). 1. ¿A que se refieren con texturada? 2. ¿ A qué se refieren con LR y LD ? Gracias

03.04.2023 - 20:31

DROPS Design answered:

Hola Monica, LR y LD son Lado Revés y Lado Derecho, respectivamente. Fila texturada o fila de patrón de textura, está definida en FILAS DE TEXTURA como 1 hilera de p.b por el lado revés + 1 hilera de p.a por el lado derecho.

06.04.2023 - 23:54

country flag Vivia wrote:

Hvad skal jeg gøre med de to lm buer, når jeg hækler for og bag stykket, og ærmer? Jeg har hæklet denne opskrift før, men kan ikke huske hvad jeg har lavet. Jeg overvejer at ikke hækle de to buer, i de sidste raglan rækker, fordig jeg vil ikke have to ekstra buer, der ikke har en grund til at være der.

23.11.2022 - 06:02

DROPS Design answered:

Hei Vivia. De 2 luftmaskene = raglanlinjene. Om du ikke ønsker å ha de på siste rad med raglanøkningen, pass på at du har nok masker i forhold til oppskriften og at det ikke strammer når du hekler videre. mvh DROPS Design

28.11.2022 - 10:04

country flag Maja wrote:

Hej! Jag förstår verkligen inte hur armarna ska virkas. Eftersom jag hoppar över 32 maskor för att lämna öppning till armen men samtidigt då virkar 4 lm så har ju ärmhålet 36 maskor och inte 32 som det står i beskrivningen för ärmarna. Sen står det att jag ska virka två lm och sedan en stolpe i varje maska, men var ska jag börja? Ska jag fästa tråden innan jag virkar 2 lm eller ska jag virka två lm på garnet och sedan fästa i arbetet med den första stolpen?

01.11.2022 - 10:41

DROPS Design answered:

Hej Maja, jo se videon nederst i opskriften: Hur man virkar raglan ovanifrån och ner :)

02.11.2022 - 14:14

country flag Sherry Lewis wrote:

Thank you for the pattern! I am so happy that you made the pattern available in the variety of sizes. I have a 5 week old grandson and a 14 month old grandson I made these for. I did take a little liberties with the pattern and made red outfits, turned them backwards, and made "Thing 1" and "Thing 2" from Cat In the Hat. I wish I could post you pictures.

01.11.2022 - 02:52