DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 25-33

#sleeptightcardigan

DROPS Design: Mynstur nr bm-047-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: (fyrirburar) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm : (40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
(150) 150-150-150-200 (200-200) gr litur nr 23, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521 : (3) 3-3-3-3-4 (4-4) stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju kantlykkju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Hnappagatið byrjar fyrst þegar öll stykkin hafa verið sett á sama hringprjón.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð Fyrirburar: 11 og 14 cm
Stærð 0/1 mán: 14 og 18 cm
Stærð 1/3 mán: 17 og 21 cm
Stærð 6/9 mán: 18 og 24 cm
Stærð 12/18 mán: 19, 23 og 27 cm
Stærð 2 år: 22, 26 og 30 cm
Stærð 3/4 ára: 25, 29 og 33 cm
Að auki er fellt af fyrir einu hnappagati eftir fyrstu rönd með garðaprjóni í hálsmáli.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (laskaúrtaka):
Öll úrtaka er gerð frá réttu, með 4 l garðaprjón á milli hverrar úrtöku.
Fækkið lykkjum á undan 4 l garðaprjón þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 l garðaprjón þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp (96) 108-124-132-144 (152-168) l (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (10) 13-16-17-18 (21-24) cm prjónið frá réttu þannig: (22) 25-29-31-34 (36-40) l = hægra framstykki, fellið af næstu 8 l, (36) 42-50-54-60 (64-72) l = bakstykki, fellið af næstu 8 l, (22) 25-29-31-34 (36-40) l = vinstra framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp (36) 38-38-38-40 (42-44) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið fyrir saum) á hringprjóna nr 3 með litnum ljós beige og prjónið garðaprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út í hvorri hlið þannig: Aukið út 1 l í (10.) 8.-8.-6.-6.- (8.-8.) hverri umf alls (3) 5-7-10-11 (12-14) sinnum = (42) 48-52-58-62 (66-72) l. Þegar stykkið mælist (10) 14-17-18-21 (24-29) cm fellið af 5 l á hvorri hlið = (32) 38-42-48-52 (56-62) l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = (144) 168-192-212-232 (248-276) l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis = 4 prjónamerki. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá skýringu að ofan. Eftir 2 umf er byrjað á laskalínu – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA, með 4 l garðaprjón á milli úrtöku, fækkað er um 8 l á hverjum prjóni. Fellið af á eftir og á undan öllum prjónamerkjum þannig:
Fellið af í 4. hverri umf alls (9) 8-9-8-8 (9-8) sinnum, síðan í annarri hverri umf (0) 4-5-9-11 (12-16) sinnum, þ.e.a.s samanlagt (9) 12-14-17-19 (21-24) úrtökur. JAFNFRAMT þegar 2 úrtökur eru eftir eru (8) 8-10-9-10 (10-11) l frá hvorri hlið við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið nú um 1 l fyrir hálsmáli í annarri hverri umf alls 2 sinnum í hvorri hlið. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru (52) 52-56-54-56 (56-58) l eftir á prjóni.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp ca 68 til 86 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af prjóni og af þræði að framan) á prjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið 8 umf garðaprjón – JAFNFRAMT eftir 2 umf garðaprjón er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í kanti að framan. Fellið af. Saumið saman ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HEKLAÐUR KANTUR.
Heklið kant í kringum opið á peysunni með heklunál nr 3 þannig: * Heklið 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca 0,5 cm *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Baby 25-33
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (150)

country flag Marina skrifaði:

Nog een vraag over de "pas": Er staat (nadat ik 8 steken op hulpdraad heb gezet) "Minder dan 1 steek richting de hals" , waar moet ik deze dan minderen?

14.12.2017 - 20:33

DROPS Design svaraði:

Hallo Marina, Dat is aan de kant van de hals, dus naast die 8 steken, zodat je een mooie ronding van de hals krijgt.

15.12.2017 - 11:25

country flag Marina skrifaði:

Ik brei het vestje maat prematuur. Ik heb bij de 'pas' nu net voor de 6e x 8 steken bij de markeerders geminderd. Moet ik nu vervolgens 2x 8 buitenste steken op een hulpdraad zetten en dan nog 3 keer heen en weer voordat ik weer voor de 7e x 8 steken (bij markeerders)mag minderen? Of moet ik alle steken nog 3x heen en weer breien en dan 2x 8 steken op de hulpdraad zetten en dan weer minderen bij de markeerders?

14.12.2017 - 20:32

DROPS Design svaraði:

Hoi Marina, Op het moment dat je 7 keer aan beide kanten van de markeerders hebt geminderd, dan zet je de 8 steken aan beide kanten op een hulpdraad, maar je gaat TEGELIJKERTIJD gewoon verder met het minderen voor de raglan op dezelfde manier als beschreven in het patroon, dus hier komen geen extra naalden tussen.

15.12.2017 - 11:32

country flag Franziska skrifaði:

Ich verstehe die Abnahme nicht. Stricke ich 2 Maschen direkt vor der Markierung zusammen, dann 4M kraus re, dann wieder zwei zusammen und dann erst die abgehobene Masche? Oder wann fange ich an 2 abzunehmen, 4M kr.re., M abh, 1 re, die abgehobene M überziehen, dann wieder 2 zusammen stricken bis zum nächsten Markierung, so dass ich 2 Maschen vor und 2 Maschen auch der Markierung zusammen sticken (aus 4 mach 2 = 2 Abnahmen) I'm lost

13.12.2017 - 20:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Franziska, es muss immer 4 M kraus rechts für jeden Raglan zwischen den Abnahmen sein, dh: 1 M abnehmen, 4 M kraus rechts (markierer ist dazwischen), 1 M abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

14.12.2017 - 08:37

country flag Nina skrifaði:

Hallo, welche Knopfgröße von den Perlmuttknöpfen brauche ich ? 20mm ? 521 steht da, keine Ahnung was das bedeutet vielen Dank.

27.10.2017 - 00:30

DROPS Design svaraði:

Liebe Nina, hier finden Sie unsere Knöpfe. Viel Spaß beim stricken!

27.10.2017 - 10:08

country flag Franziska skrifaði:

Beim Ärmel lese ich folgendes: nach den ersten 4cm weitere 7R stricke, um dann in der 8.R insgesamt 14M aufnehme. Das Wiederhole ich in jeder 8. R. Wenn ich dann zur Abnahme von 5M auf jeder Seite (=10M) komme, bleiben 42 über. Ich versteh nicht wie das funktionieren soll, da ich ja in jeder 8. R 14M aufnehmen soll. Ich vermute, ich lese die Beschreibung falsch. Könnt ihr weiterhelfen?

05.10.2017 - 21:44

DROPS Design svaraði:

Liebe Franziska, wenn die Arbeit 4 cm misst, *nehmen Sie 1 M auf beiden Seite zu (= 46 M in der größere Größe), dann 7 Reihe ohne Zunahmen stricken*, diese 8 Reihe noch 13 x wiederholen = 14 M werden auf beiden Seiten zugenommmen = 28 M + 44 M am Anfang = 72 M. Viel Spaß beim stricken!

06.10.2017 - 09:20

country flag Anja Rolf skrifaði:

Hallo, wenn ich die Ärmelmaschen 52M in den Zwischenbericht der abgekettelten 8M setze ziehen sich die Maschen stark in die Länge. Gibt es die Möglichkeit diese zu vermeiden? Gruß Anja

28.03.2017 - 20:52

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Rolf, für die ersten Reihen können Sie gerne mit einer 2. Rundnadel stricken, dann wird es einfache, siehe auch Video unten. Viel Spaß beim stricken!

29.03.2017 - 09:49

country flag Agneta Wistrand Rosendal skrifaði:

Hej! Vad innebär "inklusive"? Innebär det att jag ska "lägga till" ytterligare fyra maskor på vardera sidan, eller innebär det att de fyra framkantmaskorna ingår i det angivna maskantalet? Förvirrande som det står nu. Hälsningar Agneta i Örebro

14.02.2017 - 13:37

DROPS Design svaraði:

Hej Agneta. Inklusiv er at maskerne taeller med (de indgaar i det angivne antal). Var de ikke med, saa var det eksklusiv :)

14.02.2017 - 15:57

country flag Bo skrifaði:

Wat wordt er bedoeld in dit patroon met een ' voorbiessteek' als je de steken opzet?

11.12.2016 - 08:23

DROPS Design svaraði:

Hoi Bo. Dat is de steek middenvoor van het vest. Je zet de st op inclusief de voorbiessteek en op dit vest brei je ook de voorbiessteken in ribbels - maar dat kan ook een ander soort st zijn (bijvoorbeeld boordsteek) om duidelijk onderscheid te maken.

12.12.2016 - 14:59

country flag Hanne skrifaði:

Hei! Har et spm angående bærestykket. Hva betyr før og etter 4 rillem? Raglanfelling skal vel gjøres på hver pinne? Hva skal kun felles på hver 4 pinne?

08.09.2016 - 13:09

DROPS Design svaraði:

Hej Hanne. Du feller först i hver 4. p, derefter i hver 2. som naevnt i opskriften. Du har 4 maerketraade i arbejdet og du strikker riller. Du feller för og efter de 4 rillemasker som ogsaa angivet i opskriften.

09.09.2016 - 13:00

country flag Sonja skrifaði:

Die 8 stillgelegten maschen für den halsausschnitt: sind die am jäckcken hinten oder vorne? und bedeutet 8 maschen auf jeder seite 16 maschen stilllegen? lg sonja

21.08.2016 - 08:52

DROPS Design svaraði:

Liebe Sonja, das ist am vorderen Halsauschnitt (auf jeder Seite 8 M)

27.08.2016 - 15:24