Sibylle skrifaði:
Hallo, sind in den Diagrammen (A1, A2, A3) die Hinreihen UND die Rückreihen abgebildet?
14.09.2014 - 20:24DROPS Design svaraði:
Ja, es sind alle R dargestellt, Hin- und Rück. Gutes Gelingen!
14.09.2014 - 20:28
Marita skrifaði:
Ja, alt stemmer frem til jeg har felt 9 av fellingene til V-hals. Jeg strikker str L. Begynte V halsen v 45 cm og ermfellingene v 46 cm. Men etter 9 V-halsfellinger er der ikke flere masker å felle på forstykket, innenfor de 27 m.
13.09.2014 - 20:18DROPS Design svaraði:
Hej Marita, Du har 46 m på forstykket, tager ind til raglan samtidig som du tager ind til V-hals. Raglanen vil snart gå ind over M.3 og da feller du i de 27 kantm. Når du er færdig har du kun de 6 kantm tilbage.
17.09.2014 - 08:26
Sibylle skrifaði:
Hallo! In Ihrer Anleitung steht im dem Absatz, der die erste Reihe nach dem Rippenmuster beschreibt, dass verschiedene Abnahmen erfolgen sollen, z.B. "innerhalb der nächsten 20 M 5 M gleichmäßig verteilt abnehmen". Gilt das nur für die allererste Reihe oder auch für die nächsten cm? Danke für eine Antwort!
10.09.2014 - 22:35DROPS Design svaraði:
Das gilt nur für die erste R (= Hin-R), die nächste R ist ja dann auch wieder beschrieben ("In der nächsten Rück-R wie folgt stricken").
11.09.2014 - 09:33
Marita skrifaði:
Birgitte nedenfor strever med samme problemet! Og min Garnbutikk ba meg ta kontakt med dere, for hun ser heller ikke hva jeg har gjort galt.
05.09.2014 - 04:27
Marita skrifaði:
Ale forskyvninger stemmer frem til bærestykket, også maskeantallet. Det er etter at maskene fra forstykket er ferdig felt problemet oppstår. På bildet forsvinner maskene i A3 fortere enn på mitt arbeide. Hvor skal de felles for at det skal bli V-hals?
05.09.2014 - 04:23DROPS Design svaraði:
Har du også fået alle disse avfellinger med til V-hals: Når arb måler 44-44-45-44-43-42 cm starter fellingene til v-hals på forstk, det felles 1 m innenfor 27 m mot midt foran i hver side – LES FELLETIPS 2 (v-hals), gjenta fellingen på hver cm totalt 15-18-19-22-25-28 ganger, SAMTIDIG når arb måler 44-45-46-47-48-49 cm felles det til ermhull i hver side
05.09.2014 - 13:22
Marita skrifaði:
Problemet er at da maskene på forstykket er ferdig felt, slutter det å bli V-ringing. Forstykket følger bare rett opp som en vanlig hals. Jeg står igjen med alt for mange masker når raglanfellingene er ferdig. Har sendt dere Mail med bilde.
05.09.2014 - 04:18
Marita skrifaði:
Ja, strikkefastheten stemmer. Har fått flere til å se på dette, men vi finner ikke ut av hva som er galt. Feller hver cm til hals, men maskene tar slutt etter 10 fellinger. Da blir det ikke v-hals.
04.09.2014 - 06:59DROPS Design svaraði:
jeg forstår ikke helt problemet, i og med at du samtidig spørger om det vil være en ide at felle til raglan på hver p på forstykket - da vi maskerne forsvinde endnu hurtigere? Husker du forskydningen af A.3 under FORSTK ?
04.09.2014 - 10:41
Marita skrifaði:
Håper jeg får svar angående V-hals fellingene! Har sendt dere Mail m bilde :-) På forhånd takk!!
01.09.2014 - 17:42Zahra skrifaði:
Hi I'm Iranian,I've been using your site for 3 years ago but I have problem with it you don't have Persian translate so I can't use your pattern any more can you help me.thank you
27.08.2014 - 12:53Zahra skrifaði:
Hi this is so beautiful I like it but I can't knit it because you don't have translate to Persian please help me
27.08.2014 - 12:36
April#aprilcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með laskalínu, gatamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL
DROPS 154-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ M: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ L: 4, 14, 24, 34 og 44 cm. STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ XXL: 4, 14, 23, 32 og 42 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 12, 22, 32 og 41 cm. ÚRTAKA 1 (færist til): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun A.3 þannig: Prjónið síðustu l á undan A.3 og fyrstu l í A.3 slétt saman. Fækkið lykkjum í lok A.3 þannig: Takið síðustu l á A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu l sl,steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir A.3. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið frá röngu. ÚRTAKA 2 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 6 kantlykkju að framan + A.3. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan A.3 + 6 kantlykkjur að framan þannig: Prjónið 2 fyrstu l í A.3 slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 6 kantlykkjum að framan + A.3: Takið næst síðustu l í A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum bæði frá réttu og frá röngu. Frá réttu: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, A.2, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Frá röngu: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkkjur snúnar brugðið saman, A.2, 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið upp 238-254-270-286-318-334 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan fyrir stroff í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið á 2 l sl og 2 l í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2 (= 6 l), prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3. Prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í umf 1 í A.3. Prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, prjónið A.2, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2, 2 l sl, 2 l garðaprjón = 218-234-246-266-286-306 l. Haldið svona áfram með mynstur – frá röngu: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l br, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.3 (= 21 l), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, A.3, 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, 2 l br, 2 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert mynstur í A.2 á hlið (= 4 l færri), fellið af með því að prjóna 2 l slétt saman frá réttu, endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 14 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-10 cm er A.3 fært til þannig að það verða færri l í A.1/A.2 við miðju að framan og við miðju að aftan og fleiri l í sléttprjóni í hliðum. FRAMSTYKKI: Fellið af 1 l í byrjun á fyrstu mynstureiningunni í A.3, aukið út um 1 l eftir fyrstu mynstureiningu í A.3. – LESIÐ ÚRTAKA 1 (færist til) og ÚTAUKNING. Aukið út um 1 l á undan fjórðu mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á fjórðu mynstureiningu á A.3. Endurtakið tilfærsluna með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 20-20-20-28-28-28 sinnum. BAKSTYKKI: Aukið út um 1 l á undan annarri mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á annarri mynstureiningu á A.3. Fækkið um 1 l í byrjun á þriðju mynstureiningu á A.3, aukið út um 1 l á eftir þriðju mynstureiningu á A.3. Endurtakið tilfærsluna með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-24-24-24 sinnum. Á framstykki er A.3 nú við hliðina á 6 kantlykkjum að framan, á bakstykki eru 6 l (= A.2) á milli hverra A.3. Haldið áfram með úrtöku í hliðum, eftir alla úrtöku eru 162-178-190-210-230-250 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br, A.3, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.2, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.3, A.2, A.3, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.2, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.3, 2 l br, 2 l sl 2 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 44-44-45-44-43-42 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli á framstykki, fækkið um 1 l innan við 27 l við miðju að framan í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 2 (v-hálsmál), endurtakið úrtöku í hverjum cm alls 15-18-19-22-25-28 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af í A.2 í hvorri hlið (= 6 l). Nú eru 68-76-82-92-102-112 l á bakstykki og ca 40-43-46-50-52-55 l á hvoru framstykki (fer eftir því hversu margar l hafa verið felldar af fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram á berustykki). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi er lykkjum fækkað í næstu umf 4-2-4-2-4-2 l jafnt yfir í stroffi = 40-42-44-46-48-50 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4-3½-3-2½ cm millibili alls 10-10-11-12-13-14 sinnum = 60-62-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 52-51-51-50-50-49 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 6 l undir ermi = 54-56-60-64-68-72 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = ca 256-274-294-320-342-366 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og ermar (= 4 prjónamerki. Prjónið mynstur eins og áður, að auki er A.2 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (byrjið 3 l á undan prjónamerki). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 15-16-17-17-17-17 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu), alls 4-4-5-7-9-11 sinnum. ATH! Þær l sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru ca 68-74-76-82-88-94 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 22-24-26-28-30-32 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki (þ.e.a.s. fellið af ca 6-10-10-14-18-22 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki). Prjónið fyrstu 6 l áður en þær eru settar á þráð, fækkið lykkjum þar til 6 l eru eftir í lok umf. Prjónið 6 l eins og áður. KANTUR AÐ FRAMAN/HÁLSMÁL: Haldið áfram með 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br yfir hægri kant að framan, að auki er fitjuð upp 1 ný l í lok umf inn við stykkið (= kantlykkja til að sauma í). Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 15-17-19-21-23-25 cm frá þeim stað þar sem l voru settar til baka á prjóninn (leggið kantinn á hálsmáli við stykkið við miðju að aftan, strekkið aðeins á svo að það passi í gatið), fellið síðan af. Endurtakið alveg eins í vinstri kanti að framan. Saumið sauminn við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn við rönguna á stykkinu), saumið kant á hálsmáli saman við hálsmálið innan við 1 kantlykkju. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aprilcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.