DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evangeline

Prjónað vesti með gatamynstri og garðaprjóni, prjónað í hring úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL

DROPS 154-35
DROPS design: Mynstur nr w-508
Garnflokkur C eða A+A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
500-600-700-750 gr litur nr 38, kórall

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (60 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mysnsturteikningu A.1(= 9 l). Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Öll mæling á kanti er gerð meðfram stystu hliðinni.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út innan við fyrstu l í garðaprjóni í hlið og útauknar lykkjur eru prjónaðar síðan í garðaprjóni. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í uppsláttinn í stað framan) svo ekki myndist gat.

PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR:
Hægra kantstykki:
* Takið upp 1 l í síðasta lykkjubogann í næstu l/umf á bakstykki í lok umf frá réttu með vinstri prjóni, steypið nýju l yfir þá hægri og steypið síðan prjónuðu l yfir nýju l, prjónið 2 umf garðaprjón *, endurtakið frá *-* í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. kantstykkið er nú prjónað saman við bakstykki).
ATH: Til þess að mynstur á bakstykki gangi jafnt upp verður 1 l fleiri í garðaprjóni í hægra kantstykki en á vinstra kantstykki.
Vinstra kantstykki:
Takið upp lykkjur á sama hátt og á hægra kantstykki en í byrjun á hverri umf frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vestið er prjónað í 3 stykkjum: 1 bakstykki (A) + 2 kantstykki (B) sem eru prjónuð frá miðju aftan við bak og endar við miðju aftan við hnakka. Þessi eru prjónuð saman með bakstykki og saumuð síðan saman í einn hring – sjá mynsturteikningu 1.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 29-33-39-47 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Setjið 1 prjónamerki eftir 15-17-20-24 l. Hér á hægra – og vinstra kantstykki að festast saman með bakstykki hvoru megin við prjónamerki. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 l hvoru megin á stykki í lok tveggja næstu umf, endurtakið útaukningu í hvorri hlið 2 sinnum til viðbótar, fitjið síðan upp 1 l hvoru megin á stykki í lok tveggja næstu umf, endurtakið útaukningu 9 sinnum til viðbótar = 61-65-71-79 l á prjóni. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5-7-3-7 l garðaprjón, A.1 (= 9 l), * 5 l sléttprjón, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 3-3-4-4 sinnum, endið á 5-7-3-7 l garðaprjón. Haldið áfram með mynstur á hæðina. Þegar stykkið mælist 14-13-13-12 og 15-14-14-13 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið = 65-69-75-83 l í umf (= í 1. eða 4. umf í A.1) – útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 16-15-15-14 cm er aukið út um 1 l fyrir ermi á hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6 sinnum. Þegar útaukningu er lokið eru 77-81-87-95 l á prjóni (= í 1. eða 4. umf í A.1). Þegar stykkið mælist 30-30-31-31 cm – stillið af eftir 1 mynstureiningu af A.1 á hæðina – fellið af miðju 21-23-25-27 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf við hálsmál = 27-28-30-33 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með mynstur yfir þær l sem eftir eru. Fellið af þegar stykkið mælist 32-32-33-33 cm – stillið af eftir 1 mynstureiningu á hæðina.

HÆGRA KANTSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 52-56-60-64 l á hringprjóna nr 5 með Paris. Uppfitjunarkanturinn er merktur með E í mynsturteikningu. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er kantstykki prjónað saman við bakstykki frá prjónamerki – SJÁ PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR – JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir með byrjun frá réttu þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið nú 2 umf yfir fyrstu 34-36-40-42 l, síðan 2 umf yfir fyrstu 17-18-20-21 l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 18-19-21-23 cm þar sem það er minnst – LESIÐ MÆLING.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Haldið áfram að prjóna upp lykkjur JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 7 l garðaprjón (= kantur að framan), A.1 alls 4-5-5-6 sinnum, endið á 9-4-8-3 l garðaprjón JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-20-22-24 cm er prjónað frá réttu þannig: * 2 umf yfir fyrstu 25-34-34-43 l (7 l garðaprjón, A.1 alls 2-3-3-4 sinnum), 2 umf yfir fyrstu 34-43-43-52 l (7 l garðaprjón , A.1 alls 3-4-4-5 sinnum), 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 36-37-39-41 cm – munið eftir MÆLING! Nú hafa stuttar umferðir verið prjónaðar. Útaukning er lokið þegar tekin hefur verið upp 1 auka l fyrir ermi á bakstykki. Haldið áfram með mynstur.

Þegar útaukningu er lokið er aukið út fyrir ermi í hlið eins og á bakstykki (= 6 l fleiri) = 58-62-66-70 l á prjóni (= í 1. eða 4. umf í A.1). Prjónið síðan mynstur og garðaprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 54-56-59-62 cm eru felldar af síðustu 27-28-30-33 l í vinstri hlið fyrir öxl – stillið af eftir 1 mynstureiningu af A.1 á hæðina = 31-34-36-37 l eftir fyrir sjalkraga. Prjónið út umf. Héðan er nú mælt. Stykkið er nú prjónað áfram með garðaprjóni. Prjónið frá réttu þannig: * 2 umf yfir fyrstu 23-26-28-29 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* til loka. Fellið af þegar stykkið mælist 7-8-8-9 cm (mælt frá styttri hlið).

VINSTRA KANTSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra kantstykki, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
- Sjá mynsturteikningu. Saumið yst í lykkjubogann og passið saumurinn verði ekki of stífur. Saumið kantstykki saman á neðri brún (E í E) og hálsmál (D í D). Festið kantstykki saman að aftan með því að sauma axlasauma (C) og kantstykki að efri kanti á bakstykki (G) aftan við hálsmál.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.05.2014
Undir PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR: Hægra kantstykki: * Takið upp 1 l í síðasta lykkjubogann í næstu l/umf á bakstykki í lok umf frá réttu með vinstri prjóni, takið nýju l yfir þá hægri og dragið síðan prjónuðu l yfir nýju l, prjónið 2 umf garðaprjón *, endurtakið frá *-* ... + undir MÆLING! Nú hafa stuttar umferðir verið prjónaðar. Útaukning er lokið þegar tekin hefur verið upp 1 auka l fyrir ermi á bakstykki. Haldið áfram með mynstur. Þegar útaukningu er lokið er aukið út fyrir ermi á hlið eins og á bakstykki (= 6 l fleiri) = 58-62-66-70 l á prjóni (= í 1. eða 4. umf í A.1)

Mynstur

symbols = bakstykki
symbols = kantstykki
symbols = öxl
symbols = hálsmál við miðju að aftan
symbols = miðja að aftan, neðri kantur
symbols = bak
symbols = hálsmál
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Chantal Maillard wrote:

Bonjour, où trouver la vidéo car je ne comprends pas toutes les explications. Notamment, pour tricoter le devant droit en relevant les mailles du dos ? Merci de m'éclairer.

16.03.2024 - 16:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Maillard, il n'existe pas de vidéo spécifique à cette technique, suivez attentivement les indications sous ASTUCE POUR RELEVER LES MAILLES :, autrement dit, en fin de rang sur l'endroit, relevez 1 maille au bord du dos, mettez cette maille sur l'aiguille droite et passez la dernière maille tricotée par-dessus la maille relevée (ainsi on n'augmente pas de mailles). Bon tricot!

18.03.2024 - 08:53

country flag Grit wrote:

Ich bin jetzt am Anfang des rechten Randteils, beim Stricken der verkürzten Reihen ist auf dem Foto ein Muster (Löcher) erkennbar, was bei mir nicht entsteht, wenn ich das Anleitungsvideo "Verkürzte Reihen kraus rechts" benutze. Gibt es da einen Trick? Vielen Dank

16.02.2023 - 17:00

DROPS Design answered:

Liebe Grit, diese Löcher entstehen, wenn man diese Technik für verkürzten Reihen strickt, je mehr die erste Masche festgezogen wird, desto weniger wird das Loch. Viel Spaß beim stricken!

17.02.2023 - 11:30

country flag Ruth wrote:

Hola! Tengo una pregunta la verdad no se como empezar a tejer, el patrón dice que tengo que montar puntos para la espalda pero que también tengo que unir con las delanteras izquierda y derecha ahi es donde no entiendo tengo que tener ya tejidas las delanteras para poder tejer la espalda la verdad estoy muy perdida no se como empezar de antemano agradezco su ayuda saludos.

30.06.2022 - 19:40

DROPS Design answered:

Hola Ruth, primero trabajas la espalda. Cuando terminas la espalda, montas puntos para el delantero. Empiezas a trabajar el delantero en punto musgo y al mismo tiempo, lo unes a la parte de la espalda. Cuando trabajas por el lado derecho, al final de la fila, levanta 1 punto en el borde de la espalda, pasar el punto levantado a la aguja derecha y montar el último punto del delantero sobre el punto levantado de la espalda. Es decir, unimos el delantero y la espalda a la vez que tejemos el delantero. También puedes unir según el siguiente vídeo, trabajando 2pjd en vez de disminución simple: https://www.garnstudio.com/video.php?id=482&lang=es.

04.07.2022 - 19:37

country flag Tony And Linda Simmonds wrote:

I am thinking about making this but would like to use a finer yarn that would normally use 3.25mm needles. What size difference would I need to make i.e would I go up 1 or 2 sizes? Also, I would like to add sleeves. Do you think this is possible and how would you suggest please. Thank you

11.02.2022 - 22:29

DROPS Design answered:

Dear Tony and Linda, you would need to check the gauge by working one with your thread and needles, to compare it to the one in the pattern and then calculate which would be the proportional size taking into account the gauge. We don't make personalized patterns. Happy knitting!

13.02.2022 - 19:56

country flag Kopanyicza Gyöngyi wrote:

Hogyan kell rövidített sorokat kötni? Mi lesz a többi szemmel? Üdv: Gyöngyi

31.01.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Hi, if you could write your question in English, we will try to answer :)

22.04.2022 - 11:46

country flag Ragnhild Jordet wrote:

Hva menes med garngruppe A+A? På bildet er angitt farge nr 38, korall i foreslått garntype (bomull), mens i fargekartet er farge nr 38 kalt bringebær; er dette samme farge? Hvordan holder fasongen seg i vask, ved bruk av foreslått bomullsgarn?

07.03.2021 - 09:43

DROPS Design answered:

Hei Ragnhild, Under garngruppen er Parisgarnet fra gruppe C (som beskriver tykkelsen). Man kan erstatte et garn fra gruppe C med et annet garn fra samme gruppa, eller ved å bruke et garn fra Gruppe A og strikke med dobbelt garn (A+A). Farge 38 er Bringebær og er den samme fargen. Det er et høykvalitetsgarn som holder bra på fasongen. God fornøyelse!

08.03.2021 - 07:20

country flag Åse Søviknes wrote:

Høyre forstykke str L Riller bakre arm (rygg) blir 7m + (1+6 økte masker) = 14 m Riller forstykke arm blir 4 m + (6 m økte masker) = 10 m Hva har jeg misforstått ?

19.12.2019 - 22:27

DROPS Design answered:

Hej Åse, du øger lige mange masker i riller på rygstykket som på forstykket. God fornøjelse!

10.02.2020 - 15:26

country flag Gunilla Lindblad wrote:

På sid 3 i mönstret står det " upprepa tills ar 1:a m som är ökt till armb. Eftersom jag inte förstod detta gick jag in på den engelska översättningen och där stod det kort och gott: repeat until piece measures 36 cm, Ni kanske bör ändra i den svenska varianten?

09.07.2019 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej. Tack för info, det har nu korrigerats på den svenska översättningen. Mvh DROPS Design

10.07.2019 - 13:34

country flag Carol wrote:

I am so confused. On the side (right or left) when one row is worked across in pattern with eg 7 sts, A1 - 4 times, 9 sts: then begin two rows, 25 sts ( A1 - 2 times in total) : two rows 34 sts (A1 - 3 times in total). Now two rows over all. The result over these last two rows do not line up with the A1 pattern. The stitches over the 3rd A1 are 2 rows behind pattern repeat. What is the secret to complete.

20.05.2019 - 18:20

DROPS Design answered:

Dear Carol, you work A.1 on all this row, let's say on row 1 of the short rows you work row 1 in the first 2-3-3-4 A.1, you will work row 2 of A.1 over these 2-3-3-4 repeats on next row, then work row 3 in A.1 over the 2-3-3-4 first A.1, then row 1 over the next repeat (= 3-4-4-6 repeats on this row), turn and work row 2 over 1 repeat, row 4 over the next 2-3-3-4 repeats, on next row over all sts, work row 5 over the first 2-3-3-4 repeats, row 3 over next repeat and row 1 over the remaining repeat. ie you have to continue each repeat following the previous row worked on this repeat, not same row for all repeats so that the pattern will be the same on all repeats. Happy knitting!

21.05.2019 - 09:44

country flag Carol wrote:

I am starting the left side piece and am about to k7 sts (band) then continues with A1(4-5-5-6) times, finish with 9-4-8-3 sts. My question is, are there no sts worked between each A1?

09.05.2019 - 18:37

DROPS Design answered:

Dear Carol, left front piece will be worked reversed/mirored to the right front piece, ie short rows will start from WS, then when working A.1 you will work from RS: 9-4-8-3 sts in garter st, repeat A.1 a total of 4-5-5-6 times and finish with 7 sts in garter st for front band. Then short rows will also be worked the same way but starting from WS (instead of from RS). Happy knitting!

10.05.2019 - 09:08