Andree R skrifaði:
I answered my question myself. read the pattern again and it is very clear to me now. ..
07.08.2023 - 14:09
Andree Roch skrifaði:
I am reading the pattern before starting and already in "BODY "I don't understand at line 8 : " Then work A.3 over A.1 and A.4 over A.2 " does that mean that from then A3 replaces A1 and A4 replaces A2 ? please explain thank you
07.08.2023 - 05:15DROPS Design svaraði:
Hi Andree, Yes, the stitches previously worked in A.1 are now worked in A.3 and the same applies to A.2 and A.4 Happy knitting!
07.08.2023 - 06:46
Rhoxanne skrifaði:
Ich möchte diese Jacke unbedingt stricken. Ich warte sehnsüchtig auf das Muster.
27.01.2014 - 09:48
Florence skrifaði:
Vite,vite, les explications! Ce modèle est magnifique !
19.01.2014 - 06:48
Evelyn skrifaði:
Looks so elegant - on my "to do" list for sure!
03.01.2014 - 03:24
Marita skrifaði:
Ser ut til aa kunne passe til alle, höy og lav, tykk eller tynn - og er allikeve elegant i alle störrelser.
30.12.2013 - 21:54
Gabriele skrifaði:
Möchte dieses Modell stricken.
30.12.2013 - 18:35
Olga Kotalová skrifaði:
Chytré,promyšlené,pro plnoštíhlé ideální.
25.12.2013 - 14:50
Tammy skrifaði:
I love the loose construction of this design. Just comfortable and stylish.
23.12.2013 - 04:43
Idee Annick skrifaði:
Beaucoup de style pour ce modèle
16.12.2013 - 17:46
Nadia#nadiajacket |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Paris með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-26 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR FYRIR MYNSTUR: Mynsturteikning A.3-A.4 passar ekki yfir sjálfa sig á hæðina þegar mynstrið er endurtekið en gataumferðin heldur áfram á ská eins og áður. ATH: Þegar mynstur A.3 og A.4 mætast að aftan (það eru 2 l á milli) eru prjónaðar 2 l á milli gata saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið fjórðu og fimmtu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 30, 39 og 48 cm. STÆRÐ M: 31, 40 og 49 cm. STÆRÐ L: 32, 41 og 50 cm. STÆRÐ XL: 33, 42 og 51 cm. STÆRÐ XXL: 34, 43 og 52 cm. STÆRÐ XXXL: 35, 44 og 53 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-212-252-252-252-292 l (meðtaldar 16 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þær 16 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka – munið eftir HNAPPAGAT. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5. Prjónið síðan þannig (1. umf = rétta): 16 l garðaprjón (= kantur að framan), A.1 (= 10 l) alls 9-9-11-11-11-13 sinnum á breiddina (= miðja að aftan), síðan er prjónað A.2 (= 10 l) alls 9-9-11-11-11-13 sinnum á breiddina, 16 l garðaprjón (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Prjónið síðan A.3 yfir A.1 og A.4 yfir A.2 – LESIÐ LEIÐBEININGAR FYRIR MYNSTRI! Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er stykkinu skipt, framstykki og bakstykki eru prjónuð til loka hvort fyrir sig þannig: Setjið fyrstu 56-56-66-66-66-76 l og síðustu 56-56-66-66-66-76 l á þráð fyrir framstykki, klippið frá. Prjónið nú einungis yfir miðju 100-100-120-120-120-140 l (= bakstykki). BAKSTYKKI: Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermar í hvorri hlið á stykki í lok hverrar umf þannig: 8-8-8-8-8-6 alls 2 sinnum í hvorri hlið, síðan 12-14-8-10-12-10 l alls 1 sinni á hvorri hlið = 156-160-168-172-176-184 l á prjóni. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur og þegar allar l hafa verið auknar út eru prjónaðar 4 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki fyrir kant á ermum. Haldið áfram með gatamynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 18 l fyrir hálsmáli = 69-71-75-77-79-83 l eftir á hvorri öxl/ermi. Hvor öxl/ermi er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 68-70-74-76-78-82 l eftir á öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm prjónið * 2 l garðaprjón saman, sláið uppá prjóninn * yfir allar l þar til 2 l eru eftir, endið á 2 l slétt saman = 67-69-73-75-77-81 l á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón, síðan 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið laust af allar l. Stykkið mælist ca 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-56-66-66-66-76 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu þannig: 8-8-8-8-8-6 l alls 2 sinnum, síðan 12-14-8-10-12-10 l alls 1 sinni = 84-86-90-92-94-98 l á prjóni. Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur og þegar auknar hafa verið út allar l eru síðustu 4 l prjónaðar í garðaprjóni fyrir kant á ermi. Munið eftir HNAPPAGAT. Haldið áfram með gatamynstur og garðaprjón eins og áður. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm prjónið * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn * yfir allar l þar til 2 l eru eftir, endið á 2 l slétt saman = 83-85-89-91-93-97 l á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón, síðan 2 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af síðustu 67-69-73-75-77-81 l frá röngu = 16 l eftir á prjóni fyrir kraga. Prjónið út umf. Prjónið garðaprjón yfir þessar l með stuttum umf með byrjun frá réttu þannig: * 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 10 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 9 cm þar sem það er styst. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt, ekki er fellt af fyrir hnappagötum. Fitjað er upp fyrir ermum í lok umf frá röngu. Lykkjum á öxl er fækkað frá réttu og stuttar umf yfir kraga byrja frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axla/yfirermasauma og sauma undir ermum. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið niður við hálsmál að aftan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nadiajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.