Carmen skrifaði:
Super j,aimerais le tricoté
13.01.2014 - 16:42Angelikapapakyriakou skrifaði:
I like this jacket when will can download the pattern
12.01.2014 - 18:06
Ingelise Jensen skrifaði:
Elegant og tidløst
10.01.2014 - 17:48
Marie skrifaði:
Oh mais je crois bien que je me lancerai dans la réalisation de ce gilet !superbe!
10.01.2014 - 15:51
Hélène skrifaði:
Superbe, je suis impatiente de le tricoter
07.01.2014 - 15:40
Allie skrifaði:
It looks elegant and comfortable to wear. I love it!
06.01.2014 - 19:35
Rosy skrifaði:
Une merveille ! Mes aiguilles sont prêtes !
04.01.2014 - 11:25SandrineHO skrifaði:
J'adore. J'ai hâte d'avoir les explications :)
03.01.2014 - 12:00
Franca skrifaði:
Super ruk vest
02.01.2014 - 13:48Ruth Rogers skrifaði:
Lovely
30.12.2013 - 22:50
Always#alwayscadigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MÁL: Öll mæling er gerð þegar stykkinu er haldið uppi á prjóni lárétt, ekki má teygja á stykki þegar mál er tekið. MYNSTUR: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið slétt Prjónið 7-7-7-8-8-8 cm sléttprjón. Passið að næsta umf sé frá röngu. Endurtakið þetta mynstur. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan 1. og 2. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 2 hnappagöt = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið fjórðu og þriðju síðustu kantlykkjur að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 28 cm STÆRÐ M: 29 cm STÆRÐ L: 30 cm STÆRÐ XL: 30 cm STÆRÐ XXL: 31 cm STÆRÐ XXXL: 32 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-220-240-256-284-308 l (meðtaldar 18-18-20-20-22-22 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 14 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú sléttprjón, en 18-18-20-20-22-22 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 8 cm – lesið MÆLING að ofan – setjið 4 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Prjónið 18-18-20-20-22-22 l garðaprjón (= kantur að framan), 41-45-49-53-59-65 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, 2 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki, prjónið 82-90-98-106-118-130 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, 2 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki, 41-45-49-53-59-65 l sléttprjón, endið á 18-18-20-20-22-22 l garðaprjón (= kantur að framan). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-4-4 cm millibili 3-3-3-3-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-4-6-6 sinnum) = 188-204-224-240-260-284 l eftir á prjóni. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 28-29-30-30-31-32 cm – munið eftir MÆLING. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, en 18-18-20-20-22-22 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni í öllum umf (= kantur að framan) JAFNFRAMT eru prjónað HNAPPAGAT - sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-32-33-33-34-35 cm setjið fyrstu 56-60-66-70-76-82 l og síðustu 56-60-66-70-76-82 l á þræði fyrir framstykki = 76-84-92-100-108-120 l eftir á prjóni fyrir bakstykki. BAKSTYKKI: = 76-84-92-100-108-120 l. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 30 l fyrir ermar í lok næstu tveggja umf = 136-144-152-160-168-180 l. Haldið áfram með mynstur, en síðustu 8 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm er fellt af fyrir aflíðandi öxl lengst út á ermi í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 19-19-18-18-17-19 l 1 sinni, fellið síðan af 10-11-12-13-14-15 l alls 4 sinnum JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm þannig: Fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli. Þegar allar l hafa verið felldar af mælist stykkið 58-60-62-64-66-68 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 56-60-66-70-76-82 l. Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður og í lok næstu umf frá réttu eru fitjaðar upp 30 nýjar lykkjur fyrir ermi = 86-90-96-100-106-112 l. Prjónið síðan mynstur en 18-18-20-20-22-22 l við miðju að framan og 8 l lengst út á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í kanti að framan, endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 90-94-100-104-110-116 l (= 22-22-24-24-26-26 kantlykkjur í garðaprjóni í öllum umf). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af fyrir aflíðandi öxl í hverri umf lengst út á ermi (þ.e.a.s. í byrjun hverrar umf frá röngu) þannig: Fellið af 19-19-18-18-17-19 l 1 sinni, fellið síðan af 10-11-12-13-14-15 l alls 4 sinnum = 31-31-34-34-37-37 l eftir á prjóni fyrir kraga. Prjónið garðaprjón yfir þessar l með stuttum umf með byrjun frá réttu: * 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 23-23-26-26-29-29 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm þar sem það er styst. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axla/erma ermasauma og sauma undir ermum. Saumið kraga saman við miðju að aftan og saumið hann niður við hálsmál að aftan. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alwayscadigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.