DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 153-2
DROPS Design: Mynstur nr z-674
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál: mælt ofan frá og niður meðfram miðjulykkju ca 60 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200 gr litur nr 8105, ísblár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

EINING MEÐ ÚTAUKNINGU:
Aukið er út í hverri umf frá réttu með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn þannig:
UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á sjalinu og hvoru megin við miðjulykkju.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l, prjónið fyrri uppsláttinn slétt þannig að það myndist gat, hinn uppslátturinn er látinn falla niður.
UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á sjalinu og hvoru megin við miðjulykkju.
UMFERÐ 4: Prjónið sl yfir allar l, prjónið fyrri uppsláttinn slétt þannig að það myndist gat, hinn uppslátturinn er látinn falla niður.
Í hvert sinn sem eining með útaukningu er prjónuð stækkar stykkið um 8 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í 2.l = miðjulykkja. Prjónið fyrstu umf þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka = 5 l á prjóni.
Haldið nú áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT er prjónuð EINING MEÐ ÚTAUKNINGU (hún er prjónuð nú í öllu sjalinu) – sjá útskýringu að ofan þar til einingin með útaukningu hefur verið prjónuð 22 sinnum og það eru 44 göt upp úr hvoru megin við miðjulykkju = 181 l á prjóni. Lykkjufjöldinn er nú deilanlegur með 8 + 5. Prjónið nú mynstur A.1 (útaukning er prjónuð eins og áður og kant- og miðjulykkja er prjónuð í garðaprjóni). Í umf með mynstri með 2 l slétt saman og uppslætti er prjónað fram að 1 l á undan miðjulykkju, prjónið 1 l sl, miðjulykkju og útaukning eins og áður hvoru megin við hana, 1 l sl og haldið áfram með mynstur A.1.

Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 197 l á prjóni. Prjónið nú áfram eftir mynstri A.2, A.3 og A.4 þannig: Prjónið kantlykkju og uppslátt eins og áður, prjónið A.2 (ATH! Ekki prjóna neinar l í A.2 í fyrstu umf í mynstri), endurtakið A.3 þar til 1 l er eftir á undan miðju, prjónið A.4 yfir þessa l, sláið uppá prjóninn og miðjulykkju eins og áður. Endurtakið eins hinum megin á sjalinu. Haldið áfram að prjóna eftir A.2, A.3 og A.4 alveg eins. Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 197 l á prjóni. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229 l á prjóni.

Nú er mynstureining A.3 skipt út fyrir mynstureiningu A.5, að auki hefur nú aukist út og nú er pláss fyrir 2 auka mynstureiningar af A.5 hvoru megin á sjalinu. Prjónið nú eftir mynstri A.2, A.5 og A.4 og bætið inn fleiri mynstureiningum af A.5 jafnóðum og plássið eykst. Prjónið svona þar til A.5 hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina. Nú eru 325 l á prjóni og lykkjufjöldinn er enn deilanlegur með 8 + 5.

Í næstu umf frá réttu er prjónað áfram án einingar með útaukningu þannig:
Prjónið 2 l sl í fyrstu l, síðan * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 8 sinnum, 97 l sl, endurtakið frá *-* 8 sinnum. Prjónið 2 l sl í miðjulykkju, endurtakið frá *-* 8 sinnum, 97 l sl, endurtakið frá *-* 8 sinnum og endið á að prjóna 2 l í síðustu l = 360 l á prjóni, lykkjufjöldinn er nú deilanlegur með 8. Prjónið 1 umf sl frá röngu, uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Nú er kantur prjónaður á sjalið.

KANTUR:
Snúið ekki við, heldur fitjið upp 14 nýjar l fyrir kant á sjali frá röngu. Snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir þessar 14 nýju l. Snúið við. Prjónið nú eftir mynstri A.6 yfir þessar l frá röngu (1. umf í mynstri = ranga). ATH! Í hverri umf frá réttu eru síðustu l prjónaðar saman með næstu lausu l í sjalinu – þannig verður kanturinn stífari á sjalinu. Í næstu umf er 1. l tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana br. Haldið nú áfram að prjóna A.6 meðfram öllum kantinum á sjalinu = 43 takkar meðfram kanti. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.03.2014
Undir SJAL (í dálk 2 er búið að bæta við texta í fyrstu og síðustu línu): Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 197 l á prjóni. Prjónið nú áfram eftir mynstri A.2, A.3 og A.4 þannig:... Haldið áfram að prjóna eftir A.2, A.3 og A.4 alveg eins... Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229 l á prjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.05.2014
undir SJAL (bætt hefur verið við 2 línum í lokin): ...Prjónið 1 umf sl frá röngu, uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Nú er kantur prjónaður á sjalið.

Mynstur

symbols = sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er önnur l prjónuð hin er látin falla niður
symbols = l sem felld er af frá réttu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (88)

country flag Wanda Burns wrote:

I am ready to start the border on 153-2. The pattern instructions say to add 14 stitches from the wrong side. Would you recommend the "cast on with loops" that is shown in the video provided? In order to do the cable cast on wouldn't we need to turn the work? Thanks so much for the clarification.

16.12.2022 - 00:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Burns, you can use any technique to cast on these new 14 sts as long as they are on the correct place on the piece so that you can work together at the end of every row from right side the last stitch of edge with the next stitch of the shawl. Happy knitting!

16.12.2022 - 08:36

country flag Inge wrote:

Hi, I have got to the part where you have 197 stiches and have to do A2-A3-A4. It says repeat on the other side of the mid stitch. Does this imply that you do A4-A3 repeats-A2? or A2-A3 repeats? I did the latter. Somehow neither option appears to be symmetrical

06.09.2022 - 15:13

DROPS Design answered:

Dear Inge, you will work on each side of the middle stitch the same way: A.2 x 1 time, repeat A.3 and work A.4 x 1 time (A.2 and A.4 are both stocking stitches) so that you will increase as before on each side of shawl + on each side of the middle stitch and work the new sts in stocking stitch (= as shown in A.2 and A.4). Happy knitting!

06.09.2022 - 16:25

country flag Sandra wrote:

Danke, aber nein. Ich meine die beiden Absätze vor "BORDÜRE:". Es soll zuletzt eine Rück-R re gestrickt werden und somit ist die nächste R eine Hin-R wenn mit der Bordüre begonnen wird. So kann man die Bordüre nicht richtig anstricken. Egal, ich habe es für mich angepasst und bin sonst mit der Anleitung sehr zufrieden. Danke für die vielen Anleitungen und schöne Grüße.

06.10.2021 - 23:02

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, die letzte Reihe über die 360 Maschen ist ja eine Rückreihe, am Ende dieser Reihe schlagen Sie 14 neuen Maschen (= Bordüre = A.6), wenden Sie und stricken Sie die 14 M rechts = Hinreihe, wenden Sie und jetzt stricken Sie bei der nächsten Rückreihe die 1. Reihe in A.6 (lesen Sie von links nach rechts), und so weiter stricken, bei der nächsten Reihe = Hinreihe stricken sie die letzten Masche von A.6 zs mit der nächsten M vom Tuch, usw. Kan es Ihnen helfen?

07.10.2021 - 08:40

country flag Sandra wrote:

Danke, aber irgendwie stimmt in der Anleitung etwas nicht. Nach 6 x A.5 soll eine Hinreihe mit Umschlägen und dann eine Rück-R re gestickt werden. Also bin ich dann am re Rand am Beginn einer neuen Hin-R. Wie soll ich dann am Ende der Reihe nach 14 M Neuanschlag mit der Rück-R von A.6 anfangen. Ich habe jetzt noch eine Hin-R re gestrickt und komme so hin. Es sieht jetzt auch richtig und gut aus. Zum Glück bin ich eine erfahrene Strickerin. Die Anleitung verwirrt etwas.

06.10.2021 - 07:34

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, meinen Sie A.6 anstatt A.5? A.6 wird jedesmal wie zuvor gestrickt: es sind 360 M am Ende vom Tuch und 8 Hin-Reihen in A.6 wo Sie A.6 und Tuch zusammen stricken = 45 Spitzen insgesamt. Kan das Ihnen helfen?

06.10.2021 - 07:48

country flag Sandra wrote:

Hallo, nun bin ich bei der Bordüre. Beginnen soll ich die Bordüre an der rechten Ecke des Tuches. Auf der Abbildung ist die Bordüre aber zweifelsfrei ab dem linken Rand gestickt, da das Lochmuster der Spitze entsprechend verläuft. Was passt nun? Mit dem Stricken ab der rechten Ecke wird auch die Abnahmelinie nach den Umschlägen in jeder Reihe (Lochreihe) sehr unschön, da die linke Seite zu sehen ist. Vielen Dank

05.10.2021 - 09:11

DROPS Design answered:

Liebe Sandra, die 1. Reihe von A.6 ist eine Rückreihe, die Bordüre wird zusammen mit dem Tuch am Ende den Hinreihen gestrickt, vielleicht kann Ihnen dieses Video helfen?

06.10.2021 - 07:16

country flag Sandra Witte wrote:

Negeer mijn vorige vraag maar, ik heb het al ontdekt! De omslagdoek wordt van boven naar beneden gebreid en ik dacht van onder naar boven. Foutje van mij :-)

24.10.2020 - 13:52

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

Mooi dat het opgelost is en dat je nu verder kan. Dankjewel voor de terugkoppeling en veel breiplezier!

25.10.2020 - 19:10

country flag Sandra Witte wrote:

Als het eerste deel van het patroon is gebreid, moet je toch eerst dit aflaten en dan de steken langs de zijkanten opnemen? Dit staat niet in de beschrijving.

24.10.2020 - 13:25

country flag Carolyn Bremner wrote:

Butterfly Dance Shawl: Under the section titled "INC REPETITION" it says Every time inc repetition has been worked, piece inc 8 sts. Should that not be 4 stitches as you drop the second loop off when knitting from the wrong side?

01.04.2019 - 20:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brenner, on row 1 and 3 you are increasing 4 stitches with a double yarn over: make 1 double yarn over after the first stitch, 1 double yarn over before the middle stitch, 1 double yarn over after the middle stitch, and 1 double yarn over before the last stitch = 4 double yarn overs = 4 stitches increased on row 1 + 4 stitches increased on row 3 = 8 stitches have been increased after these 4 rows have been worked. Happy knitting!

02.04.2019 - 09:55

country flag Solbjorg Olsen wrote:

På bildet av sjalet ser jeg at det er strikket ett par omganger med hullmønster før kanten strikkes. Jeg kan ikke finne dette nevnt i mønsteret hvordan dette skal srikkes.

16.10.2018 - 17:34

DROPS Design answered:

Hei Solbjorg. Den kanten med hullmønster før spissene langs kanten er en del av A.6 - hullmønsteret lengst til høyre i diagrammet. God fornøyelse.

17.10.2018 - 08:30

country flag Michele Rousse wrote:

Bonjour, Sur la photo du châle il y a un rang entièrement ajouré entre A5 et A6 comment le faire , rien ne l'indique dans les explications. Merci d'avance

04.06.2018 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rousse, le diagramme A.6 est la bordure qui se tricote le long des 2 diagonales du châle (= le long du début et de la fin des rangs, où vous avez 1 trou (= 1 jeté, 2 m ens à l'end) tout du long de ces 2 diagonales. Bon tricot!

04.06.2018 - 13:24