DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 153-4
DROPS Design: Mynstur nr z-665
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-250-250-250-300 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-100-100-100-125-125 gr litur nr 06, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – kantur með garðaprjóni
DROPS PERLUTALA NR 521: 6-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. l frá miðju að framan. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm
STÆRÐ M: 14, 22, 30, 38, 46 og 54 cm
STÆRÐ L: 15, 23, 31, 39, 47 og 55 cm
STÆRÐ XL: 9, 17, 25, 33, 41, 49 og 57 cm
STÆRÐ XXL: 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm
STÆRÐ XXXL: 12, 20, 28, 36, 44, 52 og 60 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 66-72-78-88-96-104 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 l í garðaprjóni (= kantlykkja), A.1 (= 5 l), 54-60-66-76-84-92 l í sléttprjóni, A.2 (= 5 l), endið á 1 l í garðaprjóni (= kantlykkja). ATH: Mynstur A.1/A.2 færist til um 1 l við miðju að aftan í hverri umf frá réttu. Haldið áfram með mynstur þannig: Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fitjið upp l fyrir ermi í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf þannig: Fitjið upp 4 l 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan 3 l 0-1-1-1-1-0 sinnum, síðan 2 l 0-0-1-1-1-2 sinnum = 82-86-88-98-106-112 l á prjóni. Þær 3 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið síðan A.1/A.2, garðaprjón og sléttprjón JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af miðju 22-22-24-24-26-26 l fyrir hálsmáli (= 30-32-32-37-40-43 l eftir í hvorri hlið). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með A.1/A.2, garðaprjón og sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l frá hálsi = 29-31-31-36-39-42 l eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 74-79-82-89-95-101 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón (= kantlykkjur) og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru, endið á 1 l garðaprjón (= kantlykkja). Kantlykkjur að framan og kantlykkja eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm (stillið af að næsta umf sé frá röngu) fellið af fyrstu 38-40-40-42-44-46 l frá röngu = 36-39-42-47-51-55 l eftir á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni og sléttprjóni þar til 1 l er eftir, endið á 1 l garðaprjóni (= kantlykkja). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm (stillið af að næsta umf sé umf frá réttu) prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón (= kantlykkja að framan), 27-30-33-38-42-46 l sléttprjón, A.2 (= 5 l), endið á 1 kantlykkju með garðaprjóni (= kantlykkja). ATH: Mynstur A.2 færist til um 1 l við miðju að framan í hverri umf frá réttu. Haldið áfram með mynstur svona. Munið eftir HNAPPAGATI! Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm (passið að næsta umf sé frá réttu) fitjið upp l fyrir ermi í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu) í lok næstu umf frá réttu þannig: Fitjið upp 4 l 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan 3 l 0-1-1-1-1-0 sinnum, síðan 2 l 0-0-1-1-1-2 sinnum = 44-46-47-52-56-59 l á prjóni. Síðustu 3 l sem fitjaðar voru upp eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið síðan garðaprjón, sléttprjón og A.2 JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53-55-56-58-59-61 cm (stillið af að næsta umf sé frá réttu) fellið af fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 13-13-14-14-15-15 l = 31-33-33-38-41-44 l eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón, garðaprjón og mynstur eins og áður yfir þær l sem eftir eru. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l frá hálsmáli, endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar í næstu umf frá réttu = 29-31-31-36-39-42 l eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd. Prjónið A.1 (= 5 l) í stað A.2.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma þannig: A (= affellingarkantur á framstykki) saumað við B (= hlið á bakstykki) – sjá teikningu. ATH: Stillið af sauminn þannig að affellingakanturinn á hvoru framstykki sé saumaður upp að prjónamerki á bakstykki, haldið síðan áfram með hliðarsaum eins og áður og saumið ermasauma í eitt. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

HÁLSMÁL:
Takið upp 60-70 l í hálsmáli á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 3 l slétt saman
symbols = 3 l snúnar slétt saman
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður, sá seinni er látinn falla niður af prjóni
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er fyrri uppslátturinn tekinn eins og prjóna eigi hann br, 1 l br (= 2. uppsláttur), steypið óprjónaða uppslættinum yfir
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (61)

country flag Birte Rasmussen wrote:

Jeg kan ikke få diagrammønstret til at blive forskudt mod midten på bagstykket. Det lyder også ulogisk, når de 5 masker på retsiden (som udvides med 2 x dobbeltopslag) reduceres til 5 masker på vrangsiden. Hvad gør jeg forkert???

20.01.2023 - 18:41

DROPS Design answered:

Hej Birte, når du strikker ifølge symbolerne, så tager du 2 masker ud med kast og du tager 2 masker ind ( ved at strikke 3 sammen) på mønsterpindene, det vil sige at du har lige mange masker i diagrammet på hver pind. Sæt et mærke på hver side af diagrammerne og forskyd 1 maske på hver 2 pind. God fornøjelse!

25.01.2023 - 15:41

country flag Viviane Van Bever wrote:

Ik had niet goed gekeken bij het bestellen het garen en dacht dat het ofwel met ALPACA ofwel met KID-SILK kon gebreid worden. Nu zie ik dat het met twee draden moet... Er zit allicht niets anders op dan de ALPACA bij te bestellen ? Welke mogelijkheden zijn er nog ? Dank bij voorbaat Viviane

05.07.2016 - 14:58

DROPS Design answered:

Hoi Viviane. Ja, dat klopt. Je kan eventueel vervangen door een dubbele draad Kid-Silk - of één van de andere garens uit categorie A, kijk hier, maar vergeet niet om een proeflapje te breien om de stekenverhouding te controleren.

05.07.2016 - 15:21

country flag Mapau wrote:

J'ai déjà réalisé le gilet "Cassidy" comme le modèle en alpaga, je souhaite maintenant le réaliser en coton SAFRAN, combien de pelotes dois-je commander pour la taille XL ? Merci d'avance pour votre réponse.

09.07.2015 - 17:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mapau, Cliquez ici pour calculer la quantité nécessaire d'une qualité alternative - ce modèle est tricoté avec 2 fils (1 Alpaca + 1 Kid-Silk), il vous faudra également le tricoter avec 2 fils (1 Safran + 1 autre du groupe A au choix), ou dans un fil du groupe C. Bon tricot!

10.07.2015 - 08:31

country flag Henriette wrote:

Jeg forstår ikke det der står ved rygstykke:Der står slå 4 masker op 1-1-0-0 gange for vis jeg slår 4 masker op er der en maske for meget og hvis jeg ikke slår de 4 masker op er der 3 for lidt men jeg har ikke begyndt at strikke den endnu så måske det hele kommer til at passe alligevel???men skal jeg slå 4 masker op eller???

13.05.2015 - 10:17

DROPS Design answered:

Hej Henriette, Jeg kan ikke finde det du skriver... men du slår op til ærmer ifølge opskriften således: Slå 4 m op 2-1-0-0-0-0 gange, derefter 3 m 0-1-1-1-1-0 gange, derefter 2 m 0-0-1-1-1-2 gange = 82-86-88-98-106-112 m på p. God fornøjelse!

13.05.2015 - 11:01

country flag BRASSART wrote:

J'ai déjà réalisé le gilet modèle z-665 comme indiqué en ALPAGA. Maintenant je voudrais réaliser ce même gilet en coton SAFRAN. Me conseillez-vous cette réalisation ainsi ? Quelles aiguilles, quel nombre de mailles ? Merci d'avance pour votre réponse

30.04.2015 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Brassart, DROPS Safran appartient au même groupe qu'Alpaca, vous pouvez ainsi utiliser Safran, et conserver soit Kid-silk, soit Alpaca (on tricote ici avec 2 fils). Cliquez ici pour plus d'informations sur les alternatives et le calcul des quantités. Bon tricot!

30.04.2015 - 16:27

country flag Marianne wrote:

Diagram A.1 og A.2 er der ikke en fejl ? der bliver 1m mindre i hver mønstre.

13.07.2014 - 13:13

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Nej, der er ikke fejl. Du har 5 m per gentagelse af begge diagrammer. Du strikker: 2 omslag som tages ind til 1 i næste pind, sæt 1 m på hj.p foran arb, 1 r, 1 r fra hj.p, dobbelt omslag og i næste pind tages de ind til 1 og 3 r/drejet r sammen = 3 strikkes sammen til 1. Dvs, de 2 masker mindre kommer igen med de to gange slå om.

14.07.2014 - 16:36

country flag Dilianne wrote:

Ik heb een proeflapje gebreid met nld. 6 (15 st. x 19 nld.) maar dit komt bij mij uit op 9 x 9 cm. Zou ik dit dan toch met 2 draden Lace kunnen breien?

28.06.2014 - 12:47

DROPS Design answered:

Hoi Dilianne. Probeer dan met een dikkere naald en zie of dat niet beter uitkomt.

01.07.2014 - 14:33

country flag Dilianne wrote:

Vraagje over dit ontzettend leuke vest; als garenalternatief staat lace mix vermeld. Het vestje wordt met 2 draden en op naalden 5 gebreid terwijl je lace als 1 draad gebruikt en geschikt is voor naalden 3,5. Kan ik, als ik dit met lace wil breien, het stekenaantal in het patroon aanhouden of moet ik tellen hoeveel steken er in het proeflapje gaan bij 10 x 10 cm?

19.06.2014 - 12:54

DROPS Design answered:

Hoi Dilianne. DROPS Lace hoort net zoals DROPS Alpaca in garencategorie A. Wil je voor dit model vervangen door Lace, dan moet je ook met 2 draden breien en een proeflapje breien om de stekenverhouding voor het patroon te controleren (dwz, 15 st x 19 nld tricot = 10 x 10 cm). Wij raden naald 6 aan, maar het kan verschillen van hoe strak/losjes je breit. De verhouding op het overzicht is standaard, maar kan dus veranderen afhankelijk van model, motief en structuur.

19.06.2014 - 13:33

country flag Sabine wrote:

Die Maschenprobe soll mit zwei Fäden gestrickt werden, die Jacke aber nur mit einen Faden. Wie passt das zusammen? Zudem werden zwei verschiedene Wollsorten angegeben, aber ich kann in der Anleitung nichts finden, wann mit welcher Wolle gestrickt werden soll. Ansonsten finde ich die Jacke sehr schön.

02.05.2014 - 10:56

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, im 2. Satz unter "Rückenteil" heißt es: "66-72-78-88-96-104 M (inkl. 1 Rand-M auf jeder Seite) mit Rundnadel 5 mit 1 Faden jeder Qualität anschlagen" - 1 Faden jeder Qualität = 1 Faden Alpaca und 1 Faden Kid-Silk = 2 Fäden zusammengenommen. In dieser Weise machen Sie auch die Maschenprobe. Sie stricken die Jacke durchgängig mit beiden Garnqualitäten, Alpaca und Kid-Silk, zusammen. Viel Spaß beim Stricken!

02.05.2014 - 11:03

country flag Teresa Chinnock wrote:

Wow I love this!!! Perfect for my hiding my pouch belly I've gotten after 3 kids lol!! Can't wait to knit this, have never used ur yarn before so looking forward to seeing it!!!

16.02.2014 - 19:08