M.Vicei skrifaði:
Super...Looks challenging, a must to do :)
17.02.2014 - 20:02
Stefania skrifaði:
Bello! Spero di vedere presto le spiegazioni!
01.02.2014 - 11:50
Martine VADOT skrifaði:
Vivement les explications
22.01.2014 - 15:44
Elisabeth skrifaði:
Trop beau, et aérien, tout en étant douillet : vivement les explications !
19.01.2014 - 14:24
Anna skrifaði:
Nice :)
16.01.2014 - 07:40
Christine skrifaði:
J'ai hate de voir les esplications pour savoir comment réliser les points fantaisie !
06.01.2014 - 17:30Sudi skrifaði:
Nice
04.01.2014 - 12:12
Silva Beyerlein skrifaði:
Das Modell gefällt mir sehr gut. Einfach Super!
02.01.2014 - 22:06
Andrea skrifaði:
Beau travail au niveau des points de tricot sur les manches
01.01.2014 - 19:56
Irene skrifaði:
Superbe! très original avec des motifs séduisants...
01.01.2014 - 16:29
Sevilla#sevillabolero |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónaður bolero úr DROPS Alpaca með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 153-15 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA MEÐ UPPSLÆTTI: * Fækkið um 3 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn á hægri prjón, fellið uppsláttinn af *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í tveimur hlutum og saumað saman í lokin. STYKKI 1: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, þegar nægilegur fjöldi l er kominn er skipt yfir á hringprjóna. Fitjið upp 96-112-128 l með Alpaca á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna / hringprjóna nr 3. Prjónið A.1 (= 16 l) – sjá MYNSTUR að ofan, alls 6-7-8 sinnum á breiddina. JAFNFRAMT í næst síðustu umf í A.1 er aukið út um 32 l jafnt yfir = 128-144-160 l á prjóni. Prjónið síðan A.2A (= 8 l) alls 16-18-20 sinnum á breiddina. Endurtakið A.2A 4-6-8 sinnum á hæðina. Prjónið nú A.2B JAFNFRAMT er aukið út um 2 l í hverri br mynstureiningu (= 32-36-40 l fleiri) = 160-180-200 l á prjóni. Prjónið nú A.3 (= 10 l) yfir A.2 (þ.e.a.s. kúlan í síðustu umf í A.2 verður í miðju l sl í A.3) alls 16-18-20 sinnum á breiddina. ATH! Aukið er út um 2 l í A.3 – sjá mynstur. Eftir að A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 192-216-240 l á prjóni. Prjónið A.5 (= 4 l) yfir allar l JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 0-8-0 l jafnt yfir = 192-224-240 l á prjóni. Prjónið A.4 (= 16 l) alls 12-14-15 sinnum á breiddina. ATH! Aukið er út um 2 l A.4 – sjá mynstur. Í síðustu umf í mynstri A.4 er aukið út um 8-8-10 l jafnt yfir = 224-260-280 l á prjóni. Prjónið nú A.5 (= 4 l) yfir allar l. Í næstu umf er aukið út um 32-36-40 l jafnt yfir (ca eftir 7. Hverja l) = 256-296-320 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Stykkið mælist nú ca 35-37-39 cm. Fellið laust af – lesið ÚRTAKA MEÐ UPPSLÆTTI að ofan – þær fyrstu 164-192-208 l = 92-104-112 l eftir á prjóni. Stykkið er nú prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf með byrjun frá réttu þannig: Prjónið * 1 umf yfir allar l, fellið af 4 fyrstu l í næstu umf og prjónið út umf *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum = 80-92-100 l á prjóni. Prjónið nú fram og til baka í garðaprjóni yfir 80-92-100 l í 2 cm. Haldið nú áfram í garðaprjóni JAFNFRAMT er fellt af í annarri hverri umf með byrjun frá réttu þannig: Prjónið * 1 umf yfir allar l, fellið af 4 fyrstu l í næstu umf og prjónið út umf *, endurtakið frá *-* þar til allar l hafa verið felldar af. STYKKI 2: Prjónið á sama hátt og stykki 1, nema spegilmynd þ.e.a.s. fellið af síðustu 164-192-208 l í stað fyrstu l. FRÁGANGUR: Saumið saman bæði stykkin við miðju að aftan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sevillabolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.